Morgunblaðið - 22.09.2001, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 9
SJÓBIRTINGSVEIÐIN gengur
enn stirðlega utan á afmörkuðum
svæðum í jökulvatninu austan heiða.
Er þá verið að tala um aðalstöðvar
birtingsins í kring um Klaustur. Al-
gengt er að birtingurinn gangi seint
úr jökulvatninu í bergvötnin og ætl-
ar það að verða ofan á þetta haustið.
Engum blandast hugur um það, því
talsverð veiði hefur verið t.d. í Skaftá
að undanförnu og fyrr eða síðar mun
sá fiskur ganga á hrygningarstöðv-
arnar.
Sem dæmi um trega sjóbirtings-
veiði má nefna Tungufljót en þar
hefur verið dauf veiði að undanförnu.
Upp úr mánaðamótunum veiddist
þar dálítið um tíma, en síðustu daga
hefur lítið veiðst. Hafsteinn Jóhann-
esson á Vík var með félögum sínum í
ánni á mánudag og þriðjudag og
fengu þeir einn lax og eina bleikju.
Engan birting. Sagði Hafsteinn að
4-5 daga á undan hefði enginn birt-
ingur verið færður til bókar, en hins
vegar einn lax og tvær eða þrjár
bleikjur. Veitt er til 10. október í
Tungufljóti og ekki ólíklegt að leyfi
fáist fyrir framlengingu til 20. októ-
ber. Oft byrjar ekki að veiðast af viti
í Fljótinu fyrr en upp úr miðjum
september.
Framlenging í Skógá
Leyfi hefur fengist til að fram-
lengja veiðitímanum í Skógá undir
Eyjafjöllum og verða vertíðarlok þar
nú 10.október, að sögn Eddu Dungal
hjá SVFR. Það er sama mokið þar og
fyrri daginn, nýlegt holl var t.d. með
140 fiska. Alls hafa veiðst í ánni 2.500
fiskar, þar af 300 sjóbirtingar og 6
laxar. Restin er sjóbleikja af öllum
stærðum.
Glæðist í Vatnsá
Hafsteinn Jóhannesson á Vík
sagði að veiði hefði mjög glæðst í
Vatnsá við Vík síðustu daga og ekki
óalgengt að stangirnar þrjár væru
að fá upp undir 20 fiska á dag, mest
2-3 punda bjartan sjóbirting, en
einnig laxa á stangli.
Fín veiði í Laxá á Nesjum
135 fiskar höfðu veiðst í Laxá á
Nesjum nú í vikulokin og enn nokkr-
ir dagar eftir af vertíðinni. Þetta eru
65 laxar og 70 sjóbirtingar. Einnig
hefur veiðst slatti af ágætri bleikju.
Sjóbirtings- og bleikjuveiði hefur
verið lífleg neðst í ánni síðustu daga,
þannig veiddi veiðimaður einn 12
fiska á tveimur tímum á fimmtudag-
inn.
Batamerki í Svalbarðsá
Veiði er lokið í Svalbarðsá í Þist-
ilfirði og veiddust alls 155 laxar sem
er hátíð hjá síðasta sumri þegar að-
eins 92 laxar veiddust. Sömu sögu er
að segja um aðrar helstu ár Þistil-
fjarðar, Sandá, Hölkná og Hafra-
lónsá, allar voru með mun betri afla
en í fyrra. Að sögn Jörundar Mark-
ússonar leigutaka Svalbarðsár var
meðalþungi laxa í sumar 4,64 kg, eða
yfir 9 pund sem bendir ekki til að
göngur tveggja ára laxa hafi verið lé-
legar. Sagði hann enn fremur að út-
reikningar sýndu að 0,75 laxar hefðu
veiðst á stöng að meðaltali, 82 laxar
hefðu veiðst á flugu og 60 á maðk.
„Þetta er prýðisútkoma miðað við að
veður var rysjótt í sumar. Þegar ánni
var lokað mátti sjá talsvert af laxi í
helstu veiðistöðum árinnar, Stóra-
fossi, Laxahyl, Neðri-Eyrarhyl og
Svalbarðsselshyl. Það er því nóg af
fiski eftir í hrygninguna,“ bætti Jör-
undur við.
Sjóbirtingur gengur seint í árnar við Klaustur, en norðan heiða, í Litluá
í Kelduhverfi, er að heyra að hann sé mættur samkvæmt áætlun. Hér er
Pálmi Gunnarsson með fallegan birting úr Litluá.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Tregt í
Tungu-
fljóti
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ Reykjavík-
ur gengst fyrir fræðslufundi um ísl-
am fyrir skólastjórnendur í Reykja-
vík eftir tæplega hálfan mánuð og
fljótlega verður einnig námskeið fyr-
ir kennara um sama efni. Tilefnið er
árásin á Bandaríkin og aðkast, sem
fólk sem játar íslam hér á landi, hef-
ur orðið fyrir.
Gerður G. Óskarsdóttir, fræðslu-
stjóri Reykjavíkur, segir að þessi
verkefni séu liður í stefnumótun,
sem samþykkt var í fyrra og varðar
nemendur með annað móðurmál en
íslensku. Þar séu sex meginmarkmið
og þar af eitt varðandi það að draga
úr fordómum gagnvart útlendingum.
Undir því séu aftur markmið um
námskeið og fræðslufundi fyrir
kennara og skólastjórnendur, þar
sem viðfangsefnið sé hvernig koma
megi í veg fyrir fordóma. Slíkt nám-
skeið hafi verið haldið í sumar en nú
hafi verið bætt við fræðslufundi og
námskeiði eingöngu um íslam vegna
árásarinnar á Bandaríkin í liðinni
viku og umræðunnar í kjölfarið.
Undir skólastjórnendur falla
skólastjórar, aðstoðarskólastjórar
og deildarstjórar og er um meira en
100 manns að ræða, að sögn Gerðar.
Hún segir að á námskeiðum um fjöl-
menningu hafi verið fræðsla um mis-
munandi trúarbrögð og þar á meðal
íslam, en þetta verður í fyrsta sinn
sem aðeins íslam verður tekið fyrir á
fræðslufundi. „Hvatinn er sá að fólk
sem játar íslam hefur orðið fyrir
ómaklegu aðkasti,“ segir Gerður og
bætir við að vegna aðstæðna sé ekki
látið duga að vera með almenna
fræðslu um hin ýmsu trúarbrögð og
menningarheima, eins og hingað til.
Gerður segir að allir skólar sinni
fjölmenningarlegu samfélagi á ein-
hvern hátt og fjölmenningarlegt efni
sé í námskrá flestra skóla. Fræðslu-
miðstöðin sé með sérstaka ráðgjafa í
þessum málum og þeir fari um og
vinni með skólunum auk þess að sjá
um námskeið, fræðslu og útgáfu.
Eins séu sameiginlegar móttöku-
deildir fyrir nokkra skóla fyrir nem-
endur með íslensku sem annað
tungumál en þetta starf sé tilkomið
vegna umræðunnar og umfjöllunar-
innar um fjölmenningarlegt sam-
félag. Hún bendir jafnframt á að í
umræddri stefnumótun sé m.a. lögð
áhersla á, að í kennslu í kristinfræði
og trúarbragðafræði sé tekið tillit til
mismunandi trúarbragða nemenda
og lögð áhersla á að auka þekkingu
og skilning á ólíkum menningar- og
trúarhefðum. Komandi fundur og
námskeið séu m.a. til að undirstrika
mikilvægi málefnisins og tryggja að
málefnið sé til umræðu í skólunum
núna.
Reynt að draga úr fordómum gagnvart útlendingum
Fræðslufundur um íslam
fyrir skólastjórnendur
EKKERT bendir til þess að
skjálftahrinan í Öxarfirði sé að
hjaðna, að sögn Hjörleifs Svein-
björnssonar, jarðfræðings hjá
Veðurstofu Íslands. Skjálftar í
firðinum hafa verið reglulegir
síðustu sólarhringa þótt ekki hafi
mælst sérlega stórir skjálftar. Þó
hafa einstaka skjálftar náð allt að
þremur stigum á Richterskvarða.
Í hádeginu í gær mældist skjálfti
3,2 á Richter en stærsti skjálfti
dagsins þar áður mældist 3 á
Richter. Hjörleifur sagði að eng-
ar tilkynnningar hefðu borist frá
íbúum á svæðinu um að þeir
fyndu fyrir skjálftunum en það
væri ekki útilokað að einhverjir
fyndu fyrir því þegar skjálftar
færu yfir þrjú stig. Hann segir að
skjálftahrinan í Öxarfirði nú sé í
meira lagi miðað við skjálfta-
virkni undanfarinna ára. Skjálft-
arnir eiga upptök sín við Tjörnes-
brotabeltið, á sprungusvæði sem
liggur í norðvestur frá landinu.
Skjálfti í Öxarfirði
upp á 3,2 á Richter
Mörkinni 3, sími 588 0640G
læ
si
le
ga
r
gj
af
av
ör
ur
Tannstönglabox
kr. 2.470
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18.
Lau. frá kl. 11-14.
Kápur, frakkar
og úlpur
Frábært úrval
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Kvartermabolir
Gylltir — Silfraðir — Svartir
Stærðir 36-56
Ljósakrónur Bókahillur
Skatthol Íkonar
www.simnet.is/antikmunir
Úrval af
fataskápum
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Neðst við Dunhaga
sími 562 2230
Ný sending frá
Opið mán.-fös. kl. 10-18,
laugardag kl. 10-14.
Kór, kór, kvennakór!
!"
#$
%
&$
'
$
#!
Heimboð! Heimboð!
Vilt þú sjá hvernig keramikmunir verða til?
Nýir eigendur ásamt starfsfólki Listasmiðjunnar
bjóða ykkur velkomin í heimsókn.
10% afsláttur í dag og næstu viku.
Hlökkum til að sjá ykkur, Margrét, Bára og Bjarni.
Listasmiðjan Keramikhús, Skeifunni 3a.
FRÉTTIR