Morgunblaðið - 22.09.2001, Síða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STURLA Böðvarsson samgönguráð-
herra átti fund með forsvarsmönnum
Flugleiða í gær þar sem rætt var um
þá alvarlegu stöðu sem upp er komin
í flugrekstri og ferðaþjónustu í kjöl-
far hryðjuverkanna í Bandaríkjun-
um.
Sturla sagði í samtali við Morgun-
blaðið eftir fundinn að Flugleiðir
væru í miklu og hættulegu ölduróti.
Ekki hefði hins vegar verið tekin af-
staða til þess hvort ríkið komi félag-
inu til aðstoðar.
Engin áform um beinan stuðn-
ing ríkisins á þessari stundu
Sturla sagði að engin áform væru
uppi um beinan stuðning ríkisins á
þessari stundu. Aðspurður sagði
hann hins vegar að aðstæður sem
ógnuðu samgöngum við landið hlytu
að réttlæta að stjórnvöld gripu til að-
gerða.
Sturla sagði að áður en hryðjuver-
kaárásirnar áttu sér stað í Bandaríkj-
unum hefði allt bent til þess að Flug-
leiðir væru á réttri leið og ferða-
þjónustan í jafnvægi. ,,En félagið er
lítið á hinum alþjóðlega markaði,
þannig að það hlýtur að hafa mikil
áhrif, ef eftirspurn eftir flugi dregst
mikið saman. Við verðum því að gera
okkur alveg ljóst að félagið er í miklu
og hættulegu ölduróti og við Íslend-
ingar þurfum að átta okkur á því að
við eigum mjög mikið undir Flugleið-
um og þurfum að bregðast við í því
ljósi,“ sagði hann.
Allt reynt til að tryggja sam-
göngur við landið
,,Við töldum nauðsynlegt að fara
yfir stöðuna með forsvarsmönnum
Flugleiða,“ sagði Sturla. ,,Þessi al-
varlega staða hefur auðvitað áhrif á
flugfélögin, og þá fyrst og fremst
Flugleiðir, vegna flutninganna að og
frá landinu og á milli Evrópu og Am-
eríku. Sömuleiðis hefur þessi staða
mikil áhrif nú þegar á ferðaþjón-
ustuna almennt í landinu og ég taldi
nauðsynlegt að fara yfir þetta með
forsvarsmönnum félagsins og meta
hvað væri framundan í þeim tilgangi
að reyna allt sem hægt er til þess að
tryggja samgöngur við landið,“ sagði
samgönguráðherra.
Aðspurður hvort ríkisstuðningur
við félagið kæmi til greina, sagði
Sturla að ekki hefði verið tekin af-
staða til þess máls. ,,Stjórnvöld munu
auðvitað beita sér fyrir þeim aðgerð-
um sem við teljum nauðsynlegar en
það er ekki á þessi stigi uppi nein
áform um beina ríkisstyrki. Engu að
síður er málið til skoðunar og við
munum taka á því með þeim almenna
hætti sem við teljum eðlilegt. Á þess-
ari stundu er ekki hægt að segja neitt
fyrir um það hvernig stjórnvöld geta
komið að málinu og tekið höndum
saman við þessi félög,“ sagði hann.
Samgönguráðherra kveðst gera
ráð fyrir að eiga líka fundi með for-
svarsmönnum flugfélagsins Atlanta
og fara yfir stöðuna með þeim með
svipuðum hætti og gert hefði verið
með stjórnendum Flugleiða.
Tillögur um aðgerðir Flugleiða
tilbúnar í lok næstu viku
,,Við fórum sameiginlega yfir stöðu
mála eftir hryðjuverkin í Bandaríkj-
unum og greindum samgönguráð-
herra frá því hvaða áhrif þessir at-
burðir hefðu á rekstur Flugleiða í dag
og til framtíðar litið eins og við met-
um það,“ sagði Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða, eftir fundinn.
Engar viðræður um stuðning
stjórnvalda við félagið
,,Við erum ekki komnir með end-
anlegar tillögur um til hvaða ráðstaf-
ana við munum grípa, en það er aug-
ljóst að við þurfum að grípa til
ákveðinna ráðstafana. Við vonumst
til þess að geta verið komnir með
endanlegar tillögur um það í lok
næstu viku,“ sagði Sigurður.
Að sögn hans var ekki rætt um
stuðning af hálfu hins opinbera við fé-
lagið. ,,Við vorum fyrst og fremst að
ræða um flugsamgöngur milli Íslands
og annarra landa og um ferðaþjón-
ustuna á Íslandi. Við fórum ekki í
neinar viðræður varðandi stuðning
stjórnvalda við Flugleiðir,“ segir
hann.
Sigurður sagði að afleiðingar
hryðjuverkaárásanna í Bandaríkjun-
um hefðu augljóslega töluverð nei-
kvæð áhrif á flugsamgöngur og
ferðaþjónustu á Íslandi. Fram kom
fyrir nokkrum dögum að áætlað tap
Flugleiða vegna röskunar á flugi
fyrstu dagana eftir hryðjuverkin á
meðan flug lá niðri til Bandaríkjanna
nemi um 100 milljónum kr. en nú er
orðið ljóst að afleiðingarnar á rekst-
urinn verða töluvert meiri til lengri
og skemmri tíma, að mati forsvars-
manna Flugleiða.
,,Við sjáum að þetta skekkir enn-
frekar afkomu Flugleiða frá því að
flugið byrjaði aftur. Við höfum séð
töluvert brottfall á farþegum og bók-
anir eru ekki að bæta það upp,“ sagði
Sigurður.
,,Ég held að við verðum að búast
við áframhaldandi minni ferðalögum
en við sjáum ekki ennþá fyrir hvað
það mun standa yfir í langan tíma.
Það fer nokkuð eftir því hver at-
burðarásin verður næstu dagana,“
sagði hann ennfremur.
Fækkun ferða og
áfangastaða til skoðunar
Flugleiðir vinna nú að heildarend-
urskoðun á starfsemi Flugleiða,
framboði á ferðum á milli Íslands og
annarra landa í vetur og hvaða áhrif
það hefur á ferðaþjónustuna á Ís-
landi. Að sögn Sigurðar er m.a. verið
að fara yfir hvort ástæða sé til að
draga úr ferðum ,,og jafnvel að fækka
áfangastöðum, en við erum ekki
komnir með neinar endanlegar tillög-
ur um það,“ sagði hann.
Skv. milliuppgjöri Flugleiða í sein-
asta mánuði versnaði afkoma félags-
ins á fyrri helmingi ársins og koll-
varpa atburðirnir í Bandaríkjunum
nú öllum áætlunum um batnandi af-
komu. Aðspurður hversu alvarleg
staða Flugleiða væri sagði Sigurður
að meira tap hefði verið á rekstrinum
á fyrstu sex mánuðum ársins en á
sama tíma á undanförnum tveimur
árum. ,,Okkur gekk ágætlega í júlí og
ágúst og sáum fram á það í byrjun
september, áður en þessar hörmung-
ar dundu yfir, að það var góður gang-
ur í bókunum. Töluvert mikið var
bókað á ráðstefnur á Íslandi og víðar í
bókunarkerfi Flugleiða. Við vorum
því orðin hæfilega bjartsýn á að við
værum að ná ákveðnum árangri, en
þessi ósköp sem hafa dunið yfir síð-
ustu tíu dagana kollvarpa því öllu,“
sagði hann.
Að sögn hans munu forsvarsmenn
félagsins vera í mjög nánu samráði
við samgönguyfirvöld á næstunni í
tengslum við þær ráðstafanir sem
gripið verður til.
Einhver fækkun starfsmanna
óhjákvæmileg
Í opnu bréfi forstjóra Flugleiða til
starfsfólks félagsins í gær kemur
fram að félagið muni á næstu vikum
grípa til margháttaðra aðgerða til að
draga úr neikvæðum áhrifum af at-
burðunum vestanhafs. ,,Engu að síð-
ur er ljóst að um verður að ræða ein-
hverja fækkun ferða í áætlunarflugi í
vetur frá því sem ætlað var. Flug-
reksturinn er grundvöllur tekjuöfl-
unar félagsins. Samdráttur í flugi
leiðir því óhjákvæmilega af sér ein-
hverja fækkun starfsmanna. Við
munum kappkosta að halda slíkum
samdrætti í lágmarki og vinnum að
því alla næstu viku. Föstudaginn 28.
september greinir félagið síðan frá
aðgerðum til að mæta neikvæðum
áhrifum hryðjuverkanna vestanhafs
á starfsemina,“ segir m.a. í bréfinu.
Samgönguráðherra átti fund með forsvarsmönnum Flugleiða í gær
Félagið í miklu ölduróti
Morgunblaðið/Ásdís
Forsvarsmenn Flugleiða, Sigurður Helgason forstjóri og Steinn Logi Björnsson, áttu fund með Sturlu Böðv-
arssyni samgönguráðherra, Þorgeiri Pálssyni flugmálastjóra og Jóni Birgi Jónssyni ráðuneytisstjóra í Þjóð-
menningarhúsinu í gær.
omfr@mbl.is
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík
og bæjarstjórarnir í Hafnarfirði og
Garðabæ undirrituðu í gær nýjan
samning um framtíðarfyrirkomulag
hitaveitu í Hafnarfirði og Garðabæ.
Með samningnum eru Hafnar-
fjörður og Garðabær orðnir með-
eigendur borgarinnar í Orkuveitu
Reykjavíkur.
Í fréttatilkynningu frá borgar-
stjóra Reykjavíkur og bæjarstjórn-
um Hafnarfjarðar og Garðabæjar
segir að réttur bæjarfélaganna til
hlutdeildar í hagnaði Hitaveitu
Reykjavíkur falli niður en í stað
þess kemur hlutdeild í arð-
greiðslum Orkuveitunnar í sam-
ræmi við eignarhluta. Hafnarfjörð-
ur eignast þannig 1% í Orkuveitu
Reykjavíkur en Garðabær 0,5%.
Samningurinn felur einnig í sér
að Reykjavíkurborg hefur ekki
lengur ótímabundið einkaleyfi til
dreifingar og sölu á heitu vatni í
bæjarfélögunum. Einkaleyfið er þó
samkvæmt samningnum uppsegjan-
legt með fimmtán ára fyrirvara.
Með samningnum er leiddur til
lykta ágreiningur sveitarfélaganna
um túlkun eldri samninga og í
fréttatilkynningu segir orðrétt:
„Það er von og trú samningsaðila
að Orkuveita Reykjavíkur verði
áfram öflugur þátttakandi í upp-
byggingu og framförum í sveitar-
félögunum sem kappkosti að veita
íbúum þeirra góða og hagkvæma
þjónustu.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við undirritun samningsins. F.v. Magnús Gunnarsson, bæjarstjóri í
Hafnarfirði, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og Ásdís Halla
Bragadóttir, bæjarstjóri í Garðabæ.
Hafnarfjörður og Garðabær
Meðeigendur í Orku-
veitu Reykjavíkur
MAGNÚS Þorsteinsson, tónlistar-
maður og skipuleggjandi tónleika í
Borgarleikhúsinu á miðvikudags-
kvöld, þar sem sýnt var ólöglegt
klámefni undir leik einnar hljóm-
sveitar, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið í gær harma atburðinn.
Hann sagðist í samtalinu vera leigu-
taki tónleikahúsnæðisins og þar með
ábyrgur fyrir efninu, í ljósi þess að
Borgarleikhúsið segir í yfirlýsingu
sinni að leigutaki sé ábyrgur fyrir
efni í útleigðu húsnæði leikhússins.
Magnús sagði umrædda mynd hafa
verið sýnda án samráðs við sig og að
hann hefði alls ekki vitað að ábyrgð-
armaður myndefnisins, sem mun
vera farinn af landi brott, hefði ætlað
að sýna eins gróft klámefni og raunin
varð.
Hin ólöglega klámmynd flokkast
undir svokallað dýraklám, en sam-
kvæmt almennum hegningarlögum
varðar það allt að 6 mánaða fangelsi
að sýna klámmyndir opinberlega.
Myndin mun hafa verið sýnd á 8 mm
kvikmyndavél í nokkrar mínútur áð-
ur en sýning hennar var stöðvuð.
Einstakur afglapaháttur
Morgunblaðinu barst yfirlýsing frá
Borgarleikhúsinu í gær vegna máls-
ins og segir þar: „Borgarleikhúsið er
lánað og leigt til ýmissa uppákoma og
hefur það ekki verið vani að ritskoða
það sem þar fer fram enda efnið á
ábyrgð viðkomandi leigutaka og talið
sjálfsagt og eðlilegt að siðgæðis sé
gætt og landslögum fylgt.
Miðvikudaginn 19. september voru
haldnir tónleikar á Litla sviði leik-
hússins á vegum Magnúsar Þor-
steinssonar tónlistarmanns. Þrjár
efnilegar hljómsveitir komu þar fram
og myndum eftir myndlistarmanninn
Sigursson var varpað á vegg. Fyrst
var frumsýnd ný stuttmynd, en seint
um kvöldið mun einstaklega ógeð-
felldu myndefni hafa verið varpað á
vegg fyrir ofan sviðið þar sem ein
hljómsveitanna var að spila. Efnið
var sýnt í nokkrar mínútur áður en
upp komst og stöðvaði tónleikahald-
ari sýninguna samstundis.
Borgarleikhúsið harmar þessi
ósköp. Við vonum að slíkur afglapa-
háttur sé einsdæmi sem endurtaki
sig aldrei, og að við getum haldið
áfram að fá fólk til liðs við okkur til
þess að skipuleggja fjölbreyttar
uppákomur í húsinu.
Málið er til meðhöndlunar hjá lög-
mönnum Borgarleikhússins.“
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Reykjavík hefur ekki borist
kæra til hennar vegna atburðarins.
Að sögn Harðar Jóhannessonar, yf-
irlögregluþjóns hjá rannsóknardeild,
er ekki sjálfgefið að lögreglan hefji
rannsókn á málinu að eigin frum-
kvæði en lögreglan bregst við öllum
kærum sem henni berast.
Engin kæra
borist lögreglu
Leigutaki
ábyrgur
TÆPLEGA fimmtugur karlmaður
var dæmdur í tveggja mánaða fang-
elsi í Héraðsdómi Vestfjarða í gær
fyrir líkamsárás og þjófnað á Ísafirði í
janúar 1999 og þjófnað í Rúmfatalag-
ernum í Kópavogi fyrr á þessu ári.
Auk þess að veita fórnarlambi sínu
áverka þótti sannað að hann hefði við
sama tilefni stolið kvenmannsleður-
jakka og tveimur gylltum kven-
mannsarmbandsúrum í eigu sam-
býliskonu þess. Þá viðurkenndi hann
þjófnað á tveimur flíspeysum og úlpu,
samtals að verðmæti 5.970 krónur, úr
Rúmfatalagernum en hann var stöðv-
aður af starfsmanni verslunarinnar er
hann var á leið út úr henni.
Ákærði á langan brotaferil að baki,
allt frá árinu 1973. Refsing ákærða
nú, tveggja mánaða fangelsi, var
ákveðin sem hegningarauki .
Dæmdur í
tveggja mán-
aða fangelsi