Morgunblaðið - 22.09.2001, Side 17

Morgunblaðið - 22.09.2001, Side 17
Fengu verðlaun í ratleik VERÐLAUN hafa verið afhent í ratleik sem Bókasafn, Byggða- safn og menningarfulltrúi Reykjanesbæjar efndu til á ljósa- nótt. Ratleikurinn var gerður til að vekja athygli á menningarhúsum og listaverkum í bænum. Hægt var að velja um tvær leiðir, innri hring um Keflavík eða ytri hring um Reykjanesbæ. Báðir leikirnir hófust á bókasafninu og þar fengu tveir heppnir þátttakendur í hendur vegleg bókaverðlaun í fyrradag en nöfn þeirra voru dregin úr réttum lausnum. Á myndinni eru verðlaunahaf- arnir, Guðlaug Pálsdóttir úr Njarðvík og Erla Dröfn Vilbergs- dóttir úr Keflavík, ásamt aðstoð- arfólki sínu í ratleiknum. Fjöl- skylda Guðlaugar er til vinstri á myndinni, Jóhanna Árnadóttir heldur á Atla Geir Gunnarssyni, Gunnar Stefánsson og þá Guð- laug sjálf með Björk Gunn- arsdóttur. Til hægri eru Erla Dröfn og Kristófer Arnar Magn- ússon. Erla lét þess getið að yngri börn hennar, Vilberg Andri og Sara Birgitta, hefðu tekið þátt í leiknum með þeim. Á milli hóp- anna er Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðumaður byggðasafnsins, sem afhenti verðlaunin. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Reykjanesbær SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 17 HITAVEITA Suðurnesja hf. lætur bora tvær rannsóknahol- ur á Rosmhvalanesi, nánar til- tekið í nágrenni Keflavíkur. Borun hefst einhvern næstu daga og er gert ráð fyrir að henni ljúki í næsta mánuði. Að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra Hitaveitu Suðurnesja, er tilgangur borunarinnar að reyna að kortleggja þann hita sem er undir svæðinu. Látið verður reyna á það hvort vinn- anlegur jarðhiti er þarna undir. Júlíus segir hugsanlegt að hafa jarðhitasvæðið til vara, ef eitt- hvað komi uppá á háhitasvæð- unum, eða nýta hann til ein- hvers sem hagkvæmt þykir. Gert er ráð fyrir að önnur holan verði 250 metra djúp og hin um 300 metrar. Borað á Rosm- hvalanesi Keflavík MÖRG dönsk sveitarfélög bjóða út til einkafyrirtækja ýmsa þjónustu- þætti en gera minna af að fela einka- aðilum að byggja og eiga húsnæði yf- ir starfsemi sveitarfélaganna. Kemur þetta fram í samtali við Ein- ar Njálsson, bæjarstjóra í Grindavík, eftir kynnisferð nokkurra bæjar- stjóra til Danmerkur. Framkvæmdastjórar fjögurra sveitarfélaga á Suðurnesjum, allra nema Reykjanesbæjar, og fram- kvæmdastjóri Samtaka sveitarfé- laga eru komnir úr fræðsluferð um einkaframkvæmd í Danmörku. Dönsk sveitarfélög hafa undanfarin tíu ár verið að prófa sig áfram með einkaframkvæmd. Bæjarstjórarnir fóru á kynningarfund hjá ráðgjaf- arfyrirtæki, heimsóttu Græsted- Gilleleje og kynntu sér viðhorf danska sveitarfélagasambandsins. Einar Njálsson segir að komið hafi í ljós í ferðinni að Danir einbeita sér að útboði á þjónustu sveitarfé- laganna. Nefnir hann í því sambandi heimilisþjónustu, ræstingu, viðhald og hirðingu opinna svæða og viðhald og rekstur holræsa, gatna og gang- stétta. Þeir hafi í litlum mæli farið út í einkaframkvæmd í fjárfestingum. Það sé ekki talið hagkvæmt vegna þess að sveitarfélögin eiga kost á mun hagstæðari vöxtum. Þá séu dönsku sveitarfélögin almennt á því að allt sem lýtur að stjórnsýslufram- kvæmd verði að vera á forræði sveit- arfélaganna sjálfra og nefnir hann skipulagsmál sem dæmi um það. „Reynslan er yfirleitt góð. Hún byggist á því að verkefnin séu vel skilgreind og útboðin vandlega und- irbúin. Öllum bar saman um að und- irbúningurinn réði úrslitum um framkvæmdina,“ segir Einar. Útboð á þjónustu Grindavíkurbær lét byggja leik- skóla í einkaframkvæmd. Eftir ferð- ina telur hann að miðað við aðferðir Dana hafi Grindvíkingar ef til vill byrjað á öfugum enda. Hins vegar hafi þessi framkvæmd tekist vel og rekstur leikskólans sé með miklum ágætum. Hann telur að íslensku sveitar- félögin gætu hugað í ríkari mæli að útboðum á þjónustu. Með því móti gætu þau hugsanlega nýtt fjármuni sína betur og eflt atvinnurekstur í sveitarfélögunum. Þegar litið er til starfsemi Grinda- víkurbæjar telur Einar að vel sé hægt að bjóða út viðhald og rekstur vatnsveitu og hirðingu opinna svæða og íþróttasvæða, svo dæmi séu tekin. Það séu allt verkefni sem auðvelt væri að fela einkaaðilum. „En menn bjóða ekki út verk bara til að bjóða þau út, með útboðum þyrfti að nást betri nýting á fjármunum sveitarfé- lagsins og betri þjónusta við íbúana,“ segir Einar Njálsson. Kynna sér einkaframkvæmd í Danmörku Hægt að auka út- boð á þjónustu Grindavík DAVÍÐ Art Sigurðsson opnar í dag myndlistarsýningu í Galleríi Hring- list í Keflavík. Hann sýnir nítján akrýlmyndir. Þær eru allar mál- aðar á þessu ári og er myndefnið sótt í íslenska náttúru. Sýningin er sett upp í minningu föður listamannsins, Sigurðar heit- ins Jónssonar, sem orðið hefði 75 ára í þessum mánuði. „Mig langaði að tengjast betur við Keflavík. Fað- ir minn var að hluta til alinn hér upp og var meðal annars fyrsti lög- regluþjónninn á Keflavíkur- flugvelli. Ég á skyldfólk hér og einnig konan mín. Ég hlakka til að kynnast betur bæjarlífinu,“ segir Davíð Art. Davíð Art er fæddur 1968. Hann hefur sótt nokkra tíma við Mynd- listarskólann í Kópavogi en er að mestu leyti sjálfmenntaður í mynd- listinni. Hann lagði hins vegar stund á klassískan söng í mörg ár. Davíð hélt sína fyrstu myndlist- arsýningu í Deiglunni á Akureyri fyrir tveimur árum. Hann tók þátt í samsýningu í Hafnarfirði á síðasta ári og hélt einkasýningu á Café 22 í Reykjavík. Í ár tók Davíð þátt í samsýningu í Breiðholtslaug þar sem hann starfar. Hún leiddi til frekara samstarfs við nokkra af sundstöðum Íþrótta- og tóm- stundaráðs Reykjavíkur, um röð listsýninga undir yfirskriftinni Listasumar ÍTR. Sýningin í Gallery Hringlist verð- ur opin á afgreiðslutíma, kl. 13 til 18 virka daga og 10 til 16 á laug- ardögum. Sýningin stendur til 6. október. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Davíð Art hengir upp myndir í Galleríi Hringlist. Langaði að tengj- ast við staðinn Keflavík SÖNGSKEMMTUN verður í Frum- leikhúsinu í Keflavík á sunnudags- kvöld. Þekktar tónlistarkonur taka lagið undir nafninu 4Klassískar. Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhalls- dóttir og Signý Sæmundsdóttir hafa sameinað krafta sína og myndað samvinnuhreyfinguna 4Klassískar, eins og það er orðað í tilkynningu á vef Reykjanesbæjar. Á efnisskránni eru dægurperlur og sígild sönglög úr þekktum óper- ettum, söngleikjum og kvikmyndum. Þær hafa flutt þessa dagskrá áður á Ísafirði, Akranesi, Flatey á Skjálf- anda og í Reykjavík. Þá er geisla- diskur væntanlegur. Söngskemmtunin á sunnudags- kvöld hefst klukkan 20.30. 4Klassísk- ar í Frum- leikhúsinu Keflavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.