Morgunblaðið - 22.09.2001, Qupperneq 28
UMRÆÐAN
28 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FÁMENNUR hóp-
ur forystumanna inn-
an íþróttahreyfingar-
innar hefur haft
ákveðnar meiningar
um það að sameina
bæri Íþrótta- og ól-
ympíusamband Ís-
lands (ÍSÍ) og Ung-
mennafélag Íslands
(UMFÍ). Rökin eru
helst þau að spara
mætti með því nokk-
urt fé í rekstri höf-
uðstöðvanna og í þjón-
ustu við aðildarfélögin.
Móðurhreyfing ís-
lenskrar íþróttahreyf-
ingar, UMFÍ, hefur nú
bráðum starfað í 100 ár, var stofn-
uð 1907, en ÍSÍ fimm árum síðar.
Frá og með tilkomu Íþróttalaga
1940 hafa þessar systurhreyfingar
átt aðild að íþróttanefnd ríkisins og
stjórn íþróttasjóðs á jafnréttis-
grundvelli, en í lögunum var þó
alltaf skýrt tekið fram að varðandi
keppni og þátttöku í íþróttum á er-
lendri grund færi ÍSÍ með forræð-
ið. Vegna þessa ákvæðis í lögunum
ákvað stjórn UMFÍ á sínum tíma
að sækja um aðild að ÍSÍ fyrir öll
aðildarfélög sín.
Undirritaður hefur nú starfað í
íþróttahreyfingunni í rúm 50 ár og
vill fullyrða að forystumenn beggja
hreyfinganna hafa lagt sig fram um
það á hverjum tíma að
laga starfsemina að
breyttum kröfum og
vinna sameiginlega að
því að bæta aðstöðuna
til íþrótta- og fé-
lagsstarfs um allt
land. Þá höfum við átt
stóran þátt í því að
efla íþróttakennara-
menntun á Íslandi
með aðild okkar að
stjórn Íþróttakennara-
skóla Íslands (ÍKÍ). Þá
lagði ÍSÍ peninga í það
á sínum tíma að
byggja yfir ÍKÍ á
Laugarvatni, svo eitt-
hvað sé nefnt. Í bar-
áttu okkar fyrir auknum fjárveit-
ingum ríkisvalds og sveitarfélaga
höfum við alla tíð átt samleið og
góða samvinnu, svo sem við stofnun
Íslenskra getrauna ásamt KSÍ á
sinni tíð og með baráttu fyrir Lott-
óinu. Einnig stofnun Íþróttamið-
stöðvar Íslands á Laugarvatni.
Kæru vinir og samherjar innan
íþróttahreyfingarinnar. Þegar horft
er til síðustu ára og hugleidd sú
blinda trú sem ríkt hefur á samein-
ingu fyrirtækja, félaga og stofnana,
sem meðal annars, og einkum, hef-
ur átt að bæta fjárhagslega stöðu
þeirra sem áttu í hlut, sjáum við
sorgleg dæmi um að það hefur
sjaldan tekist. Ég beini orðum mín-
um einkum til dreifbýlisins og tek
nærtækt dæmi. Goði hf. átti að
verða stórveldi eftir einhverja
mestu sameiningu eða yfirtöku á
eignum sem um getur. Fyrirtækið
er komið í þrot, dreifbýlisfólk og
forystumenn bænda eru aftur
komnir á byrjunarreit. Í þessu
sambandi er vert að hugleiða orð
formanns bændasamtakanna, Ara
Teitssonar, þar sem í landsmóts-
byrjun í júlí sl. eru höfð eftir hon-
um í dagblaði þessi ummæli, án
rökstuðnings: „Sameining ÍSÍ og
UMFÍ án tafar.“
Aukin samvinna
er lausnin
Samvinna er að mínu mati lausn-
arorðið. Ég hef alltaf litið á ÍSÍ og
sérsambönd þess, sem við hjá
UMFÍ áttum þátt í að koma á fót,
sem forystuafl okkar í afreksíþrótt-
um og nú á hinum ólympíska vett-
vangi. Einnig hefur skapast sú hefð
í verkaskiptingu systurhreyfing-
anna, að ÍSÍ þjónustar kannski
meira og betur þéttbýlið, þar sem
íþróttabandalögin eru öflug, en
UMFÍ hefur beitt afli sínu út í hin-
ar dreifðu byggðir landsins, þjónu-
stað héraðssamböndin og aðildar-
félög sín.
„Landsmót UMFÍ – Landsmót
hverra?“ spurði formaður Íþrótta-
bandalags Reykjavíkur (ÍBR),
Reynir Ragnarsson, í blaðagrein,
við upphaf landsmótsins á Egils-
stöðum 12. til 15. júlí sl. Reynir
svarar sjálfur í fyrri hluta fyrir-
sagnar sinnar því sem hann spyr
um í seinni hlutanum. Landsmótin
eru landsmót UMFÍ. Íþróttabanda-
lögin sem enn standa utan við
UMFÍ þurfa að breyta lögum sín-
um lítillega til þess að öðlast aðild
og þátttökurétt. Það er ekki rétt
hjá formanni ÍBR að Reykvíkingar,
þ.e.a.s. reykvískt íþróttafólk, hafi
verið útilokaðir frá þátttöku í
mótinu. Eitt fjölmennasta íþrótta-
og ungmennafélag landsins, Fjölnir
í Grafarvogi, átti fjölmenna þátt-
tökusveit íþróttafólks og fylgdar-
liðs.
Ég veit að Reynir og fleiri for-
ystumenn, sem e.t.v. hafa talið sam-
eininguna lausnarorð, sjá að hún
leysir engan vanda, hvorki fjár-
hagslega né félagslega, nema áætl-
unin sé í leiðinni að draga úr þeirri
þjónustu sem aðildarfélögin fá í
dag. Vandi íþróttahreyfingarinnar í
heild er því miður eigi að síður til,
en liggur í öðrum þáttum.
Leiðir til lausnar
án sameiningar
Ég mæli með stóraukinni og
markvissri samvinnu systurhreyf-
inganna, ÍSÍ og UMFÍ. Grundvöll-
ur slíkrar samvinnu eru viðræður
sem mér skilst að séu þegar hafnar.
Ekki fer á milli mála að miklir sam-
eiginlegir hagsmunir eru í húfi. Til
markvissari árangurs og hugsan-
lega til sparnaðar í þeim verkefnum
sem taka þarf fyrir geta hreyfing-
arnar skipt með sér verkum.
Stórefla þarf allan erindrekstur
og útbreiðslustarfsemi og á það
jafnt við um ÍSÍ og sérsambönd
þess sem og UMFÍ. Auka þarf til
muna félagslega og stjórnunarlega
þáttinn sem allt of víða er í molum.
Sameiginlega snerum við bökum
saman í baráttu fyrir auknum fjár-
veitingum opinberra aðila til fjöl-
mennasta þáttar æskulýðsstarfs á
Íslandi. Afreksmannastefnu ÍSÍ og
fjárstuðning við hana ber UMFÍ að
koma inn í með myndarlegum
hætti. Grasrótarstarfið úti í félög-
unum skortir næringu sem og
íþróttabandalögin og héraðs-
samböndin. Þessi næring á að koma
frá höfuðstöðvum hreyfinganna í
skipulögðum heimsóknum starfandi
forystumanna til aðildarfélaganna,
forystumanna sem hafa eitthvað að
segja til leiðbeiningar starfandi
stjórnum. Þessar heimsóknir þarf
líka að tengja heimsóknum til starf-
andi sveitarstjórnarmanna og full-
trúa í héraðsnefndum.
Ágætu forystumenn ÍSÍ og
UMFÍ. Stuðningsaðilar okkar, fyr-
irtæki, stofnanir og einstaklingar
kalla á markvissara og samræmd-
ara skipulag sem okkur ber að
vinna að af metnaði og raunsæi.
Ég veit að Ellert B. Schram, for-
seti ÍSÍ, og Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri ÍSÍ, hafa skynj-
að að ekki er komið að sameiningu
þessara systurhreyfinga. Ég veit
líka að þeir eru tilbúnir til við-
ræðna og samstarfs við forystu
UMFÍ um það sem við best getum
gert fyrir íslenska íþrótta- og ung-
mennafélagshreyfingu. Tökum
höndum saman í markvissu upp-
byggingarstarfi, í stað þess að eyða
tíma, kröftum og fjármunum í um-
ræðu sem ekki er eining um.
Sameining, lausn á hverju?
Hafsteinn
Þorvaldsson
Sameining
Tökum höndum saman,
segir Hafsteinn Þor-
valdsson, í markvissu
uppbyggingarstarfi.
Höfundur er fyrrverandi formaður
Ungmennafélags Íslands.
ÞAÐ fer ekki á milli
mála að Heimdallur
hefur í gegnum ára-
tugina, eða allt frá
stofnun félagsins árið
1927, skipt miklu máli í
allri stjórnmálaum-
ræðu innan Sjálfstæð-
isflokksins og reyndar
á landsvísu. Sagt er að
félagið sé vagga hug-
myndafræði flokksins
og þar deilir ungt fólk
um stefnur og mark-
mið og miðlar til ann-
arra sjálfstæðismanna.
Það hefur alltaf loð-
að við félagsmenn í
Heimdalli að þeir eru sagðir of rót-
tækir, gagnrýna flokksforystuna
harkalega og á skjön við almenn-
ingsálitið, sem er ekki líklegt til vin-
sælda. En þetta er ekkert nýtt og
má lesa um í 10 ára afmælisriti fé-
lagsins frá 1937 jafnt sem í dag.
Samt sem áður hefur félögum fjölg-
að mikið og þó að allir séu ekki sam-
mála stjórn félagsins í öllum málum
finnst félagsmönnum mikilvægt að
þessi rödd heyrist.
Styrkur félagsins
felst ekki í því að huga
fyrst og fremst að al-
menningsálitinu held-
ur öflugri hugmynda-
fræði sem félagsmenn
hafa haldið á lofti frá
upphafi. Stefnan hefur
verið skýr, markmið-
um hefur verið náð
með rökföstum mál-
flutningi og tíminn hef-
ur sannað ágæti mál-
efnanna. Öflug og frjó
umræða félagsmanna
er sú kjölfesta sem not-
uð er í karpi dagsins en
er um leið sá áttaviti
sem siglt er eftir. Og sú leið er ekki
alltaf auðsótt þar sem ágjöfin er oft
mikil.
Hugmyndafræðin hefur þó vísað
vel veginn og sjaldan hafa Heimdell-
ingar siglt af leið og oftast haldist á
réttum kili. Hlutverk þeirra er að
vekja athygli á því sem aðrir hafa
ekki hugrekki til að nefna, ryðja
brautina og vekja fólk til umhugs-
unar. Einnig á félagið að gagnrýna
forystu flokksins ef þurfa þykir.
„Gagnrýni úr réttri átt,“ sagði for-
maður Sjálfstæðisflokksins þegar
hann var spurður út í málflutning
Heimdellinga gagnvart flokksfor-
ystunni. Heimdallur á einmitt að
vekja athygli á þeim málum sem for-
ystan á erfitt með að taka upp og ljá
máls á og þannig auðvelda þeim bar-
áttuna í heimi málamiðlana.
Næsta mánudag kl. 18 verður
haldinn aðalfundur Heimdallar í
Valhöll. Ég hvet alla unga sjálfstæð-
ismenn í Reykjavík til að mæta og
aðstoða við að halda hugsjónum
okkar á lofti.
Hugsjónir
ungs fólks
Björgvin
Guðmundsson
Höfundur er formaður Heimdallar,
f.u.s. í Reykjavík.
Hugsjónir
Ég hvet alla unga
sjálfstæðismenn í
Reykjavík til að mæta á
aðalfund Heimdallar
næsta mánudag, segir
Björgvin Guðmunds-
son, og halda hug-
sjónum okkar á lofti.