Morgunblaðið - 22.09.2001, Qupperneq 52
EIN þeirra mynda sem var ínáðinni hjá þýskum gagn-rýnendum á Berlinalefyrr á þessu ári var nýj-
asta mynd Michaels Winterbottoms,
The Claim. Þetta er langt frá því að
vera fyrsta mynd hins fertuga Breta
sem boðið er til samkeppni á stórri
kvikmyndahátíð. Winterbottom á
þegar að baki myndir á borð við
Butterfly Kiss (1994) með William
Hurt, Welcome To Sarajevo sem var
í samkeppninni í Cannes 1996, I
Want You (1997) sem keppti um
Björninn á Berlinale og árið 1999 var
hann aftur í Cannes með Wonder-
land. Á blaðamannafundi sem fylgdi í
kjölfar frumsýningar The Claim
mætti leikstjórinn með kvikmynda-
tökumanni sínum, Þjóðverjanum
Alwin Kuchler, en stjörnur á borð við
Nastössju Kinski, Millu Jovovich og
hinn 23 ára Wes Bentley (American
Beauty) voru fjarverandi.
Erfið fæðing
Bandarískur blaðamaður varpar
fram fyrstu spurningunni og pikkar
svar hins sjarmerandi Breta jafn óð-
um inn í fartölvuna: „Það eru um það
bil sex ár frá því að við byrjuðum að
vinna að þessu handriti og það mun-
aði litlu að við byrjuðum tökur fyrir
þremur árum. Við vorum byrjaðir á
sviðsmyndinni en urðum að fresta
tökum þegar stuðningsaðilar drógu
sig til baka.“ Á þessu langa tímabili
komu ýmsir leikarar til tals, t.d.
Madonna og Robert De Niro. Wint-
erbottom gerði því tvær aðrar mynd-
ir áður en honum tókst að fjármagna
The Claim sem byggist á The Mayor
of Casterbridge (1886). Þetta er önn-
ur mynd leikstjórans sem gerð er
eftir skáldsögu Bretans Thomas
Hardys, en áður hafði hann gert
Jude (1995) með Kate Winslet í aðal-
hlutverki. Winterbottom færði hið
upphaflega sögusvið Hardys frá
Casterbridge til fjallabæjarins King-
dom Come á tímum gullæðisins þeg-
ar Kalifornía var „síðasta villta
vestrið“. Vinnutitill myndarinnar var
upphaflega nafn bæjarins en honum
var breytt í The Claim til að koma í
veg fyrir að myndinni yrði ruglað
saman við nýja mynd Whoopi Gold-
berg sem ber titilinn Kingdom
Come.
Græðgi, gull og glæsikvendi
Gullæðið á miðri 19. öld hafði í för
með sér einhverja mestu mannflutn-
inga sögunnar. Hálf milljón fluttist
þá frá öllum heimshornum til Kali-
forníu í leit að gulli. Myndin hefst ár-
ið 1867, tveimur áratugum eftir að
gullæðið náði hámarki sínu. Daniel
Dillon, leikinn af Peter Mullen (My
Name is Joe, Braveheart, Train-
spotting), er landnemi sem storkaði
hinu óblíða vetrarlandslagi í fjalla-
keðjunni Sierra Nevada datt í lukku-
pottinn og varð vellauðugur. Hann er
nú konungur fjallabæjarins King-
dom Come þar sem hann er eigandi
bankans, námunnar, hótelsins og
áfengisverslunarinnar. Hann er jafn-
framt elskhugi hinnar glæsilegu
Luciu sem rekur vændishúsið og
leikin er af Jovovich sem er þekkt
fyrir að hafa leikið hálf guðlegar ver-
ur í The Fifth Element og The Mess-
enger: The Story Of Joan Of Arc.
Hinn óheflaði metnaður og ótak-
markaða græðgi sem kom Dillon á
toppinn á sér þó skuggahlið sem
kemur aftur upp á yfirborðið með
komu þriggja aðkomumanna. Einn
þeirra er Dalglish (Bentley), sem
hefur eftirlit með framlengingu
Central Pacific járnbrautarinnar í
gegnum Kingdom Come. Hin myrka
fortíð sem verður hinum volduga
Dillon að falli fylgir komu hinnar fal-
legu Hope, leikin af Sörah Polley
(eXistenZ, No Such Thing), og veikr-
ar pólskrar móður hennar (Kinski).
Upptökur í 30 stiga frosti
Þótt Winterbottom hafi gert fjölda
ólíkra mynda áttu fæstir von á mynd
um ameríska vestrið. The Claim er
hins vegar óhefðbundinn vestri.
Bandarískur blaðamaður spyr leik-
stjórann hvað hafi orðið til þess að
hann ákvað að gera mynd um gull-
grafara: „Mig langaði til að gera eitt-
hvað um þessa landnema sem komu
frá Bandaríkjunum, Evrópu, Ástral-
íu og Kína. Smám saman komust við
að því að gullæðið væri rétta tímabil-
ið. Það eiga sér stað ákveðin kyn-
slóðaskipti frá tímum gullæðisins og
fram að byggingu járnbrautakerfis-
ins 20 árum síðar. Þannig tvinnast
brot úr sögu Bandaríkjanna saman
við sögu nokkurra einstaklinga.“
Í framhaldi af því tekur þýski
kvikmyndatökumaðurinn við: „Þeg-
ar ég las handritið og kynnti mér
sögusviðið varð mér ljóst að þetta
yrði mikil áskorun. Það eitt að smíða
bæinn tók fjóra til fimm mánuði og
við urðum að klára verkið áður en
kuldinn yrði of mikill. Hitastigið var
öfgakennt, 30 mínusgráður, og
stundum hætti kvikmyndavélin að
virka. Það var mikið álag fyrir líkam-
ann að vinna í fjöllunum í þessum
kulda.“ Winterbottom heldur áfram:
„Margir af þeim stöðum sem við
skoðuðum á þessu svæði voru of erf-
iðir til að við gætum starfað þar þrátt
fyrir þann búnað sem við nútíma-
menn höfum aðgang að. Það má því
ímynda sér hversu erfitt hefur verið
fyrir fólk að búa þarna á sínum tíma.
Fólk varð að taka gífurlega áhættu
og margir dóu áður en þeir komust á
áfangastað.“
Gerir það sem hann langar
„Við stunduðum talsverðar rann-
sóknir á þessu tímabili,“ segir Kuchl-
er á ensku og skiptir síðan yfir í
þýsku: „Við vorum með talsvert af
gömlum svart/hvítum myndum sem
sýna andlit sem eru mótuð af að-
stæðunum sem fólkið bjó við og
reyndum eftir bestu getu að ná þessu
fram að hætti heimildarmyndar.
Fyrir tökurnar í Rocky Mountains
völdum við svæði þar sem vindur er
talsvert mikill og veðrið fljótt að
breytast frá því að vera ofsafengið
yfir í heiðbláan himin.“ Winter-
bottom er þá spurður hvernig leik-
ararnir hafi brugðist við slíkum
vinnuaðstæðum: „Leikararnir vissu
að tökurnar ættu að fara fram í 7000
feta hæð og að myndin fjallaði um
landnema sem bjuggu við erfiðar að-
stæður. Þetta var mjög erfitt og eitt
sinn þurfti að fara með Peter Mullan
á sjúkrahús. En á sama tíma var
landslagið stórkostlegt og leikararn-
ir voru ánægðir þegar upp var stað-
ið.“
Aðspurður um þá staðreynd að
kvikmyndagagnrýnendur hafi oft
tekið myndum Winterbottoms betur
en bíógestir svarar Winterbottom:
„Þegar maður er með sögu sem
mann langar að gera gerir maður
hana. Það sem gerist eftir það er
ekki í þínum höndum. Þú getur ekki
þvingað fólk til að heillast af mynd-
unum þínum. Þú verður að læra að
sleppa myndinni lausri. Ég geri þær
myndir sem mig langar til að gera og
á meðan ég kemst upp með það mun
ég halda því áfram.“
Mynd um Manchester-senuna
Að lokum er leikstjórinn spurður
um næsta verkefni: „Myndin sem ég
er að vinna að núna nefnist 24 Hour
Party People. Hún fjallar um hljóm-
sveitir í Manchester og Tony nokk-
urn sem rak plötufyrirtækið Factory
Records þar í borg á árunum 1976 til
1992. Á sínum snærum hafði hann
hljómsveitir á borð við Joy Division,
New Order og Happy Mondays og
var fyrstur til að koma pönkhljóm-
sveitum í sjónvarp á Bretlandi.“ Það
þarf því enginn að hafa áhyggjur af
því að Winterbottom festist í vestr-
unum frekar en öðru sem hann hefur
verið að gera fram til þessa.
Kvikmyndin The Claim kom út á myndbandi í vikunni
Það tók Michael Wint-
erbottom 6 ár að koma
myndinni The Claim á
hvíta tjaldið. Davíð
Kristinsson hitti hann
og samstarfsmenn í
Berlín og komst að því
hvernig var að taka upp
í 30 stiga frosti.
Reuters
Michael
Winter-
bottom,
leikstjóri
The Claim.
Sarah Polley
leikur eitt
aðal-
hlutverk-
anna í The
Claim.
Græðgi á
tímum
gullæðis
FÓLK Í FRÉTTUM
52 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MÉR fannst Stone Temple Pilots
aldrei fá þá virðingu sem þeir áttu
skilda er gruggið stóð sem hæst.
Ókei, ég veit að stundum hljómuðu
þeir eins og þriðja flokks samhrær-
ingur af Pearl Jam, Nirvana og [bæt-
ið við eftir smekk]. En ef plöturnar
þeirra eru skoðaðar nánar er vel
hægt að greina að hér voru ekki
leiðitamir gróðapungar á ferð.
Heildaráferð eða samfelldni eru
orð sem jafnan
hafa verið fjarri
Stone Temple Pil-
ots. Plöturnar hafa
öllu heldur verið
fjölskrúðug laga-
söfn, með bæði frá-
bærum, ekkert sérstökum og líka
„allt þar á milli“ lögum. En bless-
unarlega hefur aldrei verið pláss fyr-
ir flatneskju eða meðalmennsku.
Á þessari plötu heldur sveitin
þessu striki, og það með nokkurri
reisn. Það er uppfyllingarefni hérna
en líka stórgóðir og melódískir
„smellir“ og þrusurokkarar. Hér er
líka nægilega mikið af óvæntum hlið-
ar- og víxlsporum til að gera end-
urteknar hlustanir þess virði. Platan
hallar þó svolítið undir flatt á enda-
sprettinum og það dregur hana nið-
ur.
Shangri-La Dee Da er langt í frá
meistaraverk en hún rokkar vel og
örugglega og er svalandi sem slík.
Fín plata og um leið líka þokkaleg-
asta afrek, ef litið er til þyrnum
stráðrar sögu Stone Temple Pilots.
Tónlist
Hofið heldur
Stone Temple Pilots
Shangri-La Dee Da
Atlantic
Fimmta plata Scott Weiland og félaga.
Þeir eru bara seigir karlarnir.
Arnar Eggert Thoroddsen
KRISTNIHALD UNDIR JÖKLI
e. Halldór Laxness
í leikgerð Sveins Einarssonar
FRUMSÝNING Fö 28. sept kl. 20 - UPPSELT
2. sýn su 30. sept. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
3. sýn fim 4. okt kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. sýn fö 5. okt. kl. 20 - NOKKUR SÆTI
5. sýn lau 13. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Í kvöld kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 29. sept. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Lau 6. okt, kl. 20 - LAUS SÆTI
Fö 12. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eva Ensler
Í kvöld kl. 20 - UPPSELT
Fi 27. sept kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 29. sept kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Su 30. sept kl. 20 - LAUS SÆTI
Fi 4. okt kl. 20 - UPPSELT
Fö. 5. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 6. okt kl. 20 - NOKKUR SÆTI
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab
Í kvöld kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 29. sept kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau 6. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
Fim11. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
Fö 12. okt. 20 - LAUS SÆTI
ATH. AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
Stóra svið
Litla svið
3. hæðin
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Munið áskriftarkortin,
leiksýningar og ýmis
fríðindi að auki.
VERTU MEÐ Í VETUR!!!
Matseðill
Rjómabætt humarsúpa
Fylltar kálfasneiðar
með koníakmöndluosti
og villisveppasósu
Súkkulaðimousse Grand
Marnier Kr.3900.-
Verið velkomin
Töfraflautan
- $$ & ./
$ $0 & ./
0 $/ & ./
1 0% & .2
3 4 ./
4 2 ./
2 .0 ./
5 .1 .2
6&) .3./ +) .%./
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
!"# $ %&'() ()*+(,
7 $$8/ -../0 $08/ -../01 $58/ 23/4 0
-/1 48.% (55-/40
-/6
7
"8"""
!9 %
9 $/8/ -../0 0%8/ 23/40
-/1 18.% :6/;((,6
8 ! #
<'=
7 $$8/
=8=## 8 78 $ >??
@'+
'"0A - $28/ (55-/40
-/ $/8/ (55-/40
-/ 0%8/
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 mánudaga og þriðjudaga,
aðra daga kl. 13—20. Símapantanir frá kl. 10 virka daga
www.leikhusid.is — midasala@leikhusid.is
IRO Á ÍSLANDI, Loftkastalinn, kl. 20.
lau. 22/9, sun. 23/9, lau 29/9 aukasýning
Aðeins þessar sýningar.
Miðasala er í síma 552 3000, virka daga
kl. 12-16, um helgar frá kl. 16 og fram að
sýningu. Opið er í Loftkastalanum sam-
kvæmt fyrrgreindum tíma.
!"#$%&$"'(##)*'(!#)+