Morgunblaðið - 05.10.2001, Page 42
MINNINGAR
42 FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Friðrik Einars-son fæddist á
Hafranesi við Reyð-
arfjörð 9. maí 1909.
Hann lést á Land-
spítala Landakoti 27.
september síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Guðrún V. Hálf-
dánardóttir, f. 26.
júlí 1880 á Hafranesi
við Reyðarfjörð, d.
30. júlí 1963, og Ein-
ar S. Friðriksson
bóndi, f. 31. maí 1878
á Bleiksá við Eski-
fjörð, d. 28. júlí 1953.
Systkini Friðriks eru Anna, f. 5.
okt. 1903, d. 1. maí 1988, Jóhanna,
f. 17. sept. 1906, d. 8. jan. 1995, Eg-
ill, f. 26. apríl 1910, Skúli, f. 26.
nóv. 1914, Hálfdán, f. 31. maí 1917,
Lára, f. 27. nóv. 1919, d. 13. jan.
2001, og Þóra Sigurðardóttir
Kemp, f. 8. feb. 1913 í Hafnarnesi,
d. 30. júní 1991, en hún var kjör-
dóttir Guðrúnar og Einars.
Hinn 27. desember 1940 kvænt-
ist Friðrik Ingeborg Einarsson, f.
Korsbæk, sem fæddist í Danmörku
28. mars 1921. Foreldrar hennar
voru Johannes Korsbæk, búfræð-
ingur, forstjóri hælis fyrir þroska-
hefta í Holstebro á Jótlandi, f. 20.
mars 1884, d. í júní 1960, og Marie
Evu Lillý Einarsdóttur, og Tómas.
Langafabörnin eru átta.
Friðrik hlaut almennt lækninga-
leyfi á Íslandi 1939 og í Danmörku
1943, þar sem hann stundaði fram-
haldsnám í níu ár. Sérfræðings-
leyfi í handlækningum og kven-
sjúkdómum hlaut hann árið 1949
og stundaði læknisstörf til 73 ára
aldurs, fyrst á Landspítalanum,
síðan sem yfirlæknir á skurðdeild
Borgarspítalans og loks á endur-
hæfingar- og langlegudeild Borg-
arspítalans í Hafnarbúðum. Enn-
fremur kenndi hann við
læknadeild Háskóla Íslands til árs-
ins 1976.
Friðrik gegndi ýmsum félags-
og trúnaðarstörfum og sat m.a. í
stjórn Læknafélags Reykjavíkur,
bæjarstjórn Reykjavíkur, bygg-
ingarnefnd Borgarspítalans, í
stjórn Krabbameinsfélags Íslands,
Almannavarnanefndar Borgar-
spítalans, Nordisk Kirurgisk For-
ening, Þvagfæraskurðlæknafélags
Norðurlanda og Skurðlækna-
félags Íslands.
Friðrik var heiðursfélagi í
Skurðlæknafélagi Íslands, Nor-
disk Urologisk Forening, Dansk
Kirurgisk Selskab, Nordisk Kir-
urgisk Forening og í Heila- og
taugalækningafélagi Íslands. Þá
var hann sæmdur krossi riddara af
2. og 1. gráðu Dannebrog og ridd-
ara- og stórriddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu.
Útför Friðriks fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Korsbæk Kirkegaard,
húsmæðrakennari, f.
24. júní 1886, d. í apríl
1928. Friðrik og Inge-
borg eignuðust fimm
börn. Þau eru: 1)
Kirsten, kennari, f. 8.
maí 1942, gift Sigurði
Ingvarssyni deildar-
stjóra. Þau eiga eina
dóttur, Sigrúnu, sem
er gift Birni Þor-
steinssyni. Sonur
Kirsten er Örn Valdi-
marsson, sem er í
sambúð með Aðal-
heiði Ósk Guðbjörns-
dóttur. 2) Halldór, kerfisfræðing-
ur, f. 29. ág. 1944, kvæntur
Kristrúnu Pétursdóttur ritara.
Þau eiga tvær dætur, Hrefnu, sem
er gift Ómari Atlasyni, og Ernu. 3)
Örn, f. 29. júní 1948, d. 9. sept.
1949. 4) Erlingur, framkvæmda-
stjóri, f. 7. júlí 1950, kvæntur Val-
gerði Sigurjónsdóttur. Þau eiga
tvö börn, Hrafnhildi, sem er gift
Erlingi Jónssyni, og Friðrik Þór,
sem kvæntur er Ásu Lind Þor-
geirsdóttur. 4) Hildur, blaðamað-
ur, f. 12. febr. 1953, gift Bjarna
Halldórssyni fjármálastjóra. Þau
eiga þrjá syni, Arnar, sem kvænt-
ur er Hafdísi Dögg Guðmundsdótt-
ur, Stefán, sem er í sambúð með
Elsku afi. Við eigum svo margar
og fallegar minningar um þig, sem
okkur er mjög ljúft að rifja upp og
ylja okkur við nú þegar við söknum
þín sem mest. Þú varst okkur öllum
svo mikið, svo hlýr og góður og lést
okkur finna og heyra hvað þér þótti
vænt um okkur. Það var erfitt að
vita til þess að þér leið ekki vel og
því huggar það okkur núna að vita
að þú ert kominn þangað sem þú
varst farinn að óska þér að komast.
Við erum sannfærð um að þú ert
nákvæmlega þar og að þar munum
við öll hittast síðar.
Ástinni í lífi þínu, henni ömmu,
kynntist þú í Danmörku og giftist
fyrir rúmum 60 árum. Þú sagðir
það hafa verið þína mestu gæfu í
lífinu og án hennar hefðir þú ekki
orðið það sem þú varst. Ef þú
fékkst hrós, þá eignaðir þú ömmu
allan heiður af því. Þið hafið alltaf
umgengist hvort annað af mikilli
ástúð og virðingu og leyft hvort
öðru að blómstra og hafið verið
okkur hinum hin fullkomna fyrir-
mynd.
Þú varst vandur að virðingu þinni
og gekkst um með reisn. Þú varst
stoltur og hreinskilinn og umfram
allt heiðarlegur. Þú varst óspar á
hrósið þegar þér fannst eitthvað vel
gert og það gladdi alltaf því þú
sagðir ekkert nema meina það. Við
hátíðleg tækifæri fannst þér viðeig-
andi að segja nokkur falleg orð og
beindir þeim að okkur öllum. Það
eru stundir sem eru vel geymdar í
huganum.
Afrek þín sem læknis verða seint
upptalin. Þú varst læknir af köllun.
Við höfum öll upplifað það að vera
stöðvuð af fólki, sem vill segja frá
því hvernig þú bjargaðir eða
breyttir lífi þess eða einhvers ná-
komins. Þá fyllist maður stolti yfir
að geta kallað þig afa sinn.
Við systkinin eigum ótalmargar
skemmtilegar æskuminningar
tengdar þér og ömmu. Þegar við
komum tókst þú á móti okkur með
opinn faðminn og bauðst upp á
knús og fullt af litlum kossum á
kinnina. Það var alltaf nóg hægt að
gera hjá ykkur ömmu og alveg
ótrúlega margt sem var leyfilegt.
Við munum svo vel þegar við vorum
lítil og þú fórst í kjólfötin. Við hlóg-
um að því lengi, hvernig þú varst
klæddur eins og mörgæs og köll-
uðum fínu kjólfötin þín alltaf mör-
gæsaföt. Það var líka svo spennandi
þegar þú fórst með okkur og opn-
aðir læsta skápinn við skrifborðið
þitt og náðir í beiska brjóstsyk-
urinn þinn og gafst okkur sinn
hvorn molann. Eða þegar þú keypt-
ir hatt á Spáni og stilltir þér voða
spengilegur upp í stofunni fyrir
okkur Sigrúnu og við sprungum úr
hlátri. Þú hlóst með og hafðir orð á
því að lítið væri ungs manns
gaman. Það tók mörg ár að skilja
þetta, því okkur fannst þetta bara
helling gaman, ekkert lítið. Þú
lumaðir alltaf á góðum bröndurum
og fannst svo sniðugt hvað við
höfðum gaman af hinu og þessu. Þú
hlóst svo innilega og það var alltaf
svo gaman að heyra þig hlæja.
Við erum svo þakklát fyrir allan
þann tíma sem við fengum með þér
og allt sem þú gafst okkur. Líka
fyrir það hvernig þið amma tókuð
Erlingi og Ásu Lind strax sem
hluta af fjölskyldunni. Okkur þótti
svo vænt um hvað þú talaðir hlý-
lega um þau og fannst mikið til
þeirra koma. Þegar langafastrák-
arnir fæddust varst þú þeim eins og
Arnar Haukur orðar það „besti
langafi í öllum heimi“. Þér varð tíð-
rætt um það, með bros á vör, hve
Egill Orri er líflegur og kátur, Arn-
ar Haukur eftirtektarsamur og vak-
andi og Viktor Goði síglaður og
brosandi. Við söknum þín öll svo
mikið en huggum okkur við það að
þér líður betur núna. Þú hafðir
mestar áhyggjur af ömmu, en við
munum öll gera okkar besta til að
hugsa vel um hana eins og þið hafið
hugsað um okkur hingað til.
Þín
Hrafnhildur og Friðrik Þór.
Afi minn er dáinn. Ég kvaddi
hann fyrir tæpum tveimur mán-
uðum. Við vissum bæði að við sæj-
umst ekki aftur í þessu lífi. Við töl-
uðum um það. Það var erfitt að
taka þessi fáu skref út af sjúkra-
stofunni og fram á gang. Það var
erfitt að kveðja og vita að þetta var
í síðasta sinn sem ég tók utan um
afa minn og kyssti hann á kinnina.
Kveðjustundir eru erfiðar. Þetta er
búin að vera löng kveðjustund fyrir
afa og ömmu. Hún sat við hlið hans
þar til yfir lauk, og þannig vildi
hann kveðja, í friði og ró. Það er
vart hægt að hugsa sér fallegri
dauðdaga. Afa virtist líða vel á
dauðastundinni og því er erfitt að
trúa öðru en að honum líði vel
núna. Afi hafði oft upplifað dauð-
ann, bæði í starfi sínu og í einkalífi
sínu, og sú reynsla hafði gert hann
trúaðan á að dauðinn væri ekki
endalokin heldur upphafið að ein-
hverju nýju.
Þegar ég kvaddi afa lá hann á
Borgarspítalanum, sem var hans
annað heimili og umgjörð um ævi-
starf hans lengst af. Afi minn, fal-
legur gamall maður, klæddur í ljós-
röndótta skyrtu, brosir hughreyst-
andi til mín í spítalaumhverfi sem
var honum svo kunnuglegt og
minnti ekki ekki síður á styrk hans
en veikindi. Þannig er gott að muna
eftir honum.
Önnur mynd sem ég varðveiti í
huga mér er af afa í sófanum heima
hjá honum og ömmu í Hæðargarði.
Afi heldur á Snædísi litlu dóttur
minni í fanginu. Hún horfir stórum
forvitnum augum á langafa sinn og
hann horfir svo blítt á hana á móti.
Þetta var þeirra fyrsti fundur og á
milli þeirra myndaðist þögult trún-
aðartraust. Kannski fundu þau
styrk hvort í öðru. Hún svona lítil,
hann svona gamall.
Í sumar þegar Snædís heimsótti
langafa sinn á spítalann reyndi ég
að útskýra fyrir henni að langafi
væri mjög lasinn. „Ég ætla að
hugga hann,“ sagði hún alvarleg á
svip. Ég veit ekki hvort henni tókst
að hughreysta hann í þetta skipti
en ég veit að afi fann mikinn styrk í
því að fylgjast með langafabörn-
unum sínum átta.
Ég átti margar góðar stundir
með afa en ég vildi að þær hefðu
verið fleiri. Við spjölluðum stundum
saman um lífið og tilveruna og for-
tíðina sem var okkar sameiginlega
áhugamál en ég vildi að við hefðum
spjallað meira saman. Afi minn var
mikill áhugamaður um ljóð. Ég vildi
að ég hefði einhvern tímann farið
með ljóð fyrir hann.
Afi minn skildi eftir sig margar
fallegar minningar. Samband þeirra
ömmu og afa var eitt fallegasta
samband milli tveggja manneskja
sem hægt er að hugsa sér og ég
veit að margir taka sér það til fyr-
irmyndar. Hugur okkar Björns er
hjá ömmu. Öll hennar fullorðinsár
hafa þau tvö, hún og afi, deilt lífinu
saman, gleði sinni og sorgum. Nú
stendur hún ein eftir með minn-
inguna um afa við hlið sér og við
vitum öll að ef afi hefur nokkur tök
á því nú þegar hann er horfinn af
því sviði sem er okkar líf fylgir
hann henni hvert fótmál og vernd-
ar.
Ég finn mikinn styrk í því að
hugsa um afa, styrk til að gera vel
allt það sem ég tek mér fyrir hend-
ur. Hann var einstakur og sterkur
persónuleiki. Afi minn, Friðrik Ein-
arsson, er dáinn en hann mun lifa
áfram meðal okkar sem minnumst
hans. Við Björn og Snædís munum
halda áfram að tala um hann og
hugsa um hann og þannig mun
hann ætíð verða hluti af lífi okkar.
Þannig verður hann okkur áfram
nálægur þó að hann sé ekki lengur
hér á meðal okkar.
Sigrún.
Í tilefni af níræðisafmæli Frið-
riks Einarssonar fyrir tveimur ár-
um skrifaði undirritaður grein í
Læknablaðið, sem tileinkuð var
honum sem þá var Nestor íslenskra
skurðlækna. Greinin var einnig
helguð þeim hópi íslenskra lækna
sem komu til starfa í upphafi og við
lok síðari heimsstyrjaldarinnar en
heimkoma þeirra breytti íslenskri
læknisfræði í það að verða „nútíma“
læknisfræði, sem síðan hefur þróast
nokkuð í sama takti og annars stað-
ar. Ég kynntist honum fyrst sem
heimilislækni fjölskyldunnar, síðan
sem skurðlækni á Hvítabandinu og
loks sem kennara og samstarfs-
manni á Landspítalanum allt þar til
hann gerðist yfirlæknir á skurð-
lækningadeild nýopnaðs Borgar-
spítala. Það væri ekki sannleikan-
um samkvæmt að halda því fram að
við höfum alltaf verið sammála á
þessum tíma, en sú vinátta sem
hann batt sem heimilislæknir við
fjölskylduna á Lokastígnum hélst
óslitin til loka.
Það er ekki ætlunin að rekja hér
starfsferil Friðriks Einarssonar,
upplýsingar um hann eru víða og
verða eflaust raktar af öðrum. Frið-
rik var góður skurðlæknir, fljótur
en mjög vandvirkur. Þó held ég að
hans verði í framtíðinni fyrst og
fremst minnst fyrir uppbyggingar-
starf hans og stjórnun á Borgar-
spítalanum meðan sú stofnun var í
mótun.
Síðustu árin hafa verið Friðrik
allþung í skauti. Elli kelling bugaði
hann með því að svipta hann smátt
og smátt þeirri hæfni, sem gerir líf-
ið þess virði að lifa því. Þó sætti
hann sig verst við það að geta ekki
lengur mælt af munni fram ljóðin,
sem voru öðrum til skemmtunar og
honum dýrmætur fjársjóður and-
ans.
Um leið og við kveðjum aldurs-
forseta íslenskra skurðlækna þakka
ég honum fræðslu, samvinnu og
vináttu á langri læknisævi og fjöl-
skyldan öll þakkar heimilislæknin-
um, sem aldrei taldi eftir sér sporin
ef eitthvað bjátaði á.
Ingeborg og fjölskyldunni allri
vottum við okkar innilegustu sam-
úð.
Guðný og Árni Björnsson.
Friðrik Einarsson er eftirminni-
legur þeim sem honum kynntust
fyrir margra hluta sakir. Þegar
hann var upp á sitt besta var hann
afkastamikill skurðlæknir og fjöl-
hæfur eins og skurðlæknar þurftu
að vera áður en sú mikla sérhæfing
sem nú ríkir kom til sögunnar.
Hann gerði aðgerðir á meltingar-
færum, þvagfærum, skjaldkirtli,
gerði að beinbrotum og margt
fleira sem ekki verður talið hér.
Seinni árin voru þvagfæraskurð-
lækningar aðalviðfangsefni hans.
Hann þótti fljótur við aðgerðir og
vandvirkur.
Á námsárunum í Danmörku varð
hann líklega fyrir áhrifum af þeim
mikla aga sem mun hafa tíðkast á
sjúkrahúsum. Þótti hann fyrr á ár-
um allstífur á stundum en það hef-
ur líklega fremur verið vegna þess
að hann gerði miklar kröfur til ann-
arra ekki síður en sjálfs sín. Þannig
var hann afar stundvís, bæði við
stofuganga og aðgerðir, og ef hon-
um fannst menn ekki standa sig
gátu tilsvör hans verið beinskeytt.
Hann lifði tímana tvenna, bæði
þjóðfélagsbreytingar og framfarir í
læknisfræði. Þegar hann hóf feril
sinn voru svæfingalækningar að
þróast en höfðu ekki slitið barns-
skónum. Fyrst þegar hann kom til
Danmerkur þurfti hann sjálfur að
svæfa sjúklingana fyrir aðgerðir en
hafði til þess enga þekkingu og ár-
angur misjafn eins og hann segir í
ævisögu sinni þar sem hann leggur
áherslu á það hve mikill léttir það
sé fyrir skurðlækna að þurfa ekki
að hafa áhyggjur af svæfingunni.
Hann gerði sér grein fyrir mik-
ilvægi framfara í svæfingalækning-
um og var dyggur stuðningsmaður
sérgreinarinnar alla tíð. Á fyrstu
starfsárum hans voru gjörgæslu-
deildir ekki komnar til sögunnar en
hann sá fljótt að þær voru nauðsyn-
legar og var eindreginn talsmaður
þess að komið yrði á fót gjörgæslu-
deild við Borgarspítalann árið 1970.
Sem ungur læknir sá hann þörf-
ina á auknu spítalarými í Reykja-
vík. Þegar ákveðið var að byggja
Borgarspítalann var hann kjörinn í
byggingarnefnd. Hann varð síðan
yfirlæknir skurðlækningadeildar. Á
honum mæddi mikill undirbúningur
fyrir opnun spítalans, einkum þau
atriði sem sneru að skurðstofustarf-
semi og legudeildum. Hann helgaði
spítalann starfskrafta sína af áhuga
og ósérhlífni. Málefni spítalans voru
honum ætíð hugleikin og hann lét
heyra frá sér í ræðu og riti ef hon-
um fannst hlutur hans fyrir borð
borinn.
Ekki er hægt að minnast Frið-
riks Einarssonar án þess að nefna
eiginkonu hans, frú Ingeborg. Hún
var mjög ung þegar þau gengu í
hjónaband og óhikað fylgdi hún
honum til Íslands á alókunnar slóð-
ir og stóð alla tíð eins og klettur á
bak við hann í hinum annasömu
störfum hans, glæsileg og fáguð.
Hann minntist oft á hana við okkur
kollega sína með mikilli hlýju og
virðingu.
Við fráfall Friðriks Einarssonar
eru frú Ingeborg og fjölskyldunni
fluttar einlægar samúðarkveðjur.
Ólafur Þ. Jónsson.
Ég sakna Friðriks. Ég var farin
að sakna hans um leið og ég vissi
að hann kæmi ekki aftur heim af
spítalanum. Ég er búin að vera
hans aðstoð og Ingeborgar í u.þ.b.
10–11 ár við að halda þeirra snotra
heimili hreinu. Í fyrstu gekk syni
þeirra illa að „troða mér inn á þau“
því þeim var ekki sama hver kæmi
inn á þeirra heimili einu sinni í viku
til að aðstoða þau í þeim efnum. Ég
fann strax og ég kom í fyrsta sinn
að hér var ég komin inn á heimili
hjá fólki sem mér leið vel hjá. Það
var alveg sama hvenær ég kom,
þótt það væri kl. 9 á morgnana, þá
var Friðrik alltaf uppáklæddur í
FRIÐRIK
EINARSSON
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar
endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í
Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1,
Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569
1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer
höfundar/sendanda fylgi.
Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein-
ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir
ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru
nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.
Birting afmælis- og
minningargreina