Morgunblaðið - 05.10.2001, Síða 56
DAGBÓK
56 FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Hvar fæst íslenskt
grænkál og OMO?
KONA í Reykjavík hafði
samband við Velvakanda
og vildi hún afla sér upplýs-
inga um hvar hún gæti
fengið íslenskt grænkál og
handþvottaefnið OMO, sem
henni líkar vel en hefur
ekki séð í hillum verslana í
langan tíma.
Fáein þakkarorð
ÉG vil af alhug þakka
læknum og hjúkrunarfólki
á deild 12, Kleppi, Land-
spítala, fyrir ómetanlega
hjálp í 6 vikur. Kærar
kveðjur til sjúklinga sem
þar eru. Einnig vil ég
þakka hlýjar og ómetan-
lega móttökur hjá fólkinu á
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Börnum mínum og barna-
börnum sendi ég þakkir
fyrir alla hjálpina.
Guðs blessun fylgi ykkur
öllum.
Guðfinna Ólafsdóttir,
Gerðakoti 2,
Bessastaðahreppi.
Gestalisti
OKKAR virðulegi forseti
heimsótti nýlega Grikkland
ásamt ástkonu sinni og 30
manna fylgdarliði, sem
nauðsynlegt þótti til að
prýða þessa heimsókn.
Í þeirri aðgangshörðu
fréttamennsku sem nú
tíðkast er nær óskiljanlegt
að gestalistinn skuli ekki
hafa birst fyrir löngu.
Æskilegt að hann birtist án
frekari tafa.
Skattgreiðandi.
Góð þjónusta
ÉG get ekki annað en látið
vita af mjög góðri þjónustu
hjá bílaverkstæðinu Ræsi
og Bifreiðastillingu í Kópa-
vogi. Við lentum í miklum
vandræðum með hemlabil-
un í bifreið og leystu aðilar
á báðum þessum verkstæð-
um úr vandanum.
Sérstakar þakkir til Guð-
jóns hjá Ræsi.
Guðm. H. Guðjónsson,
Fjarðarási 6, Rvík.
Tapað/fundið
GSM-sími týndist
við Strokk
GSM-sími týndist á Geysis-
svæðinu við Strokk föstu-
daginn 28. september. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 898-5321
Barnaúlpa
í óskilum
BARNAÚLPA, dökkmosa-
græn með svörtu fóðri, var
fjúkandi við gangbraut/bið-
skýli við Strýtusel sl.
mánudag. Upplýsingar í
síma 557 6003.
Barnaleðurjakki
í óskilum
LEÐURJAKKI barns
fannst í Úlfarsfelli síðast-
liðinn sunnudag. Upplýs-
ingar eftir kl. 16 í síma
557 4586.
Dýrahald
Svartur fress
í óskilum
SVARTUR fress hefur ver-
ið flækingi á Freyjugötu og
þar um kring. Þeir sem
kannast við kisa eða vilja
taka hann að sér hafi sam-
band í síma 552-2264.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA rennur það til rifjaþegar hann gengur um sum
eldri hverfi borgarinnar, t.d. Melana,
Hlíðarnar, Norðurmýrina og Teig-
ana, hversu illa hefur verið farið með
eitt helzta stíleinkenni margra húsa
frá árunum 1935–1955, sem er
steypti þakkanturinn. Eðli málsins
samkvæmt hafa margir þakkantar
látið á sjá, enda er þakrenna
húsanna grópuð beint ofan í steyp-
una í þeim og regnvatnið hefur farið
illa með þá marga, sérstaklega ef
menn hafa trassað að tjarga renn-
urnar. Svo hafa alkalískemmdirnar
illræmdu sums staðar haft sitt að
segja. En Víkverja finnst hreint
skelfilegt hvernig menn hafa látið
eðlilegt viðhald á þessu mikilvæga
stíleinkenni húsanna lönd og leið og
þess í stað valið „ódýrar“ lausnir á
borð við að brjóta þakkantinn burt
og setja blikk- eða plastrennu í stað-
inn, að setja slíkar rennur utan á
þakkantinn, að blikkklæða allan
kantinn o.s.frv. Þar sem um hús með
steiningu eða skeljasandi er að ræða,
eins og víða í ofangreindum hverf-
um, er klastur af þessu tagi enn
verra lýti á húsinu en ella. Um leið og
þakkanturinn hefur verið skemmdur
hefur þakinu sjálfu gjarnan verið
breytt og húsin orðin nánast óþekkj-
anleg.
x x x
NÚ eru til margar góðar og gildaraðferðir til að bjarga þakkant-
inum, taki fólk þann kost að steypa
hann upp á nýjan leik og gera hann
eins og nýjan. Komin eru betri efni
til að húða steypuna og sumir hafa
látið blikkklæða rennuna að innan
eingöngu, en leyft upprunalegu útliti
þakkantsins að öðru leyti að halda
sér. Því miður virðast þessir húseig-
endur vera í minnihluta.
x x x
FYRIR nokkrum árum komst þaðí fréttir að fólk í austurbænum
hefði fengið styrk úr Húsverndar-
sjóði til að láta gera við þakkant á
húsi, sem var „aðeins“ 40–50 ára
gamalt. Sumum fannst þá að sjóður-
inn ætti eingöngu að styrkja við-
gerðir á húsum, sem eru frá fyrri
hluta síðustu aldar. Það er hins veg-
ar greinilega þörf á að gera átak til
bjargar steypta þakkantinum, því
það er verið að stórskemma heilu
hverfin með síðari tíma „endurbót-
um“ á þessu mikilvæga stíleinkenni
þeirra. Er ekki betra að grípa inn í
núna en að súta algera útþurrkun
steypta þakkantsins eftir nokkra
áratugi?
x x x
MANNA á milli gengur nú tölvu-póstur með fyrirsögninni
„Hvað á að gera við Osama bin Lad-
en?“ Ekki kemur fram hver er höf-
undur póstsins, sem er skrifaður á
ensku. Hann kemst hins vegar að
þeirri niðurstöðu, þegar hann veltir
svarinu við spurningunni fyrir sér,
að ekki gangi að taka hryðjuverka-
foringjann af lífi ef til hans næst, því
það myndi bara gera úr honum písl-
arvott. Ef hann yrði fangelsaður,
yrði það stuðningsmönnum hans til-
efni til að taka gísla og krefjast þess
að hann yrði látinn laus. Tillaga höf-
undarins er því að láta brezkar eða
bandarískar sérsveitir ná honum,
breyta kauða svo í konu og senda
hann aftur til Afganistans þar sem
talibanar fara með völd – það væri
líklega bezta refsingin.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Playa de Arneles kem-
ur og fer í dag. Akra-
berg, Skógarfoss og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Högifossur fór í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 14
bingó.
Árskógar 4. Bingó kl.
13.30, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Allar upp-
lýsingar í síma 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 böðun, kl. 9–12
bókband, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerðir, kl.13–16 spilað í
sal og glerlist.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 13–
16.30, spil og föndur.
Jóga á föstudögum kl.
13.30.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9 smíðar og
útskurður, kl. 14 bingó.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við böðun, kl.
9–16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 9 opin
handavinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félagsfundur verður í
Gullsmára 13 laug-
ardaginn 6. október kl.
14. Dagskrá: Félagið og
störf þess. Kjaramálin.
Önnur mál. Félagar
fjölmennið.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10–12 verslunin opin,
kl. 10.30 sr. Tómas
Sveinsson, kl. 13. Opið
hús, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Myndlist kl. 13, brids kl,
13.30 og pútt á vellinum
hjá Hrafnistu kl. 14. Á
morgun er ganga kl. 10.
Skráning stendur yfir í
Óperuna, Töfraflaut-
una, 21. okt. Takmark-
aður miðafjöldi. Einnig
stendur yfir skáning í
glerskurð.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Fræðslunefnd
FEB stendur fyrir
„Heilsa og hamingja á
efri árum“, fyrirlestrum
og kynningu á mörgum
atriðum sem snerta
heilsu fólks á efri árum.
Laugardaginn 6. októ-
ber nk. mun Ásta K.
Ragnarsdóttir náms-
ráðgjafi flytja erindi um
breytt lífsmunstur við
starfslok. Síðan mun
Magnús Kolbeinsson,
yfirlæknir á Akranesi,
ræða um hinn algenga
sjúkdóm gallsteina og
nýjustu tækni við með-
ferð sjúkdómsins. Fyr-
irlestrarnir verða
haldnir í húsakynnum
félagsins Ásgarði,
Glæsibæ, og hefjast kl.
13.30. Á eftir hverju er-
indi gefst tækifæri til
spurninga og umræðna.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi kl.
9.45. Silfurlínan er opin
á mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10 til
12 f.h. Skrifstofa félags-
ins er flutt í Faxafen 12,
sama símanúmer og áð-
ur. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði,
Glæsibæ. Upplýsingar á
skrifstofu FEB kl. 10–
16 s. 588 2111.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
myndlist og rósamálun
á tré, kl. 9–13 hár-
greiðsla, kl. 9.30 göngu-
hópur, kl. 14 brids. Opið
alla sunnudaga frá kl.
14–16 blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar m.a. byrjar bók-
band kl. 13, umsjón
Þröstur Jónsson, frá há-
degi spilasalur opinn, kl.
14 kóræfing. Myndlist-
arsýning Valgarðs Jörg-
ensen stendur yfir.
Þriðjudaginn 9. október
kl. 10 kynning á sam-
starfi við Miðberg, m.a.
boðið upp á borðtennis,
innipúttvöll, snóker,
stofnun tölvuklúbbs og
aðgang að tölvuveri o.fl.
Allir velkomnir. Umsjón
Hermann Valsson
íþróttakennari. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 13 bók-
band, kl. 9.15 ramma-
vefnaður.
Gullsmári Gullsmára
13. Glerlistahópur kl.
10. Bingó kl. 14.
Hraunbær 105. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 9 handa-
vinna, bútasaumur, kl.
10–12 pútt, kl. 11–12
leikfimi og spurt og
spjallað.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun, leikfimi og
postulín, kl. 12.30
postlín. Fótsnyrting og
hársnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–13
tréskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 10–11
kántrýdans, kl. 11–12
stepp, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 13.30
sungið við flygilinn, kl.
14.30 kaffi og dansað í
aðalsal við lagaval Sig-
valda, gott með kaffinu,
allir velkomnir. Söng-
fuglar, kór félagsstarfs
aldraðra í Reykjavík,
verða með söng-
skemmtun í tilefni 15
ára afmælis kórsins.
Sunnudaginn 14. októ-
ber kl. 15.30 í Ráðhús-
inu. Allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerðir, kl.
12.30 leirmótun, kl.13.30
bingó. Haustfagnaður
verður 18. október kl.
19. Fram verður borinn
léttur kvöldverður:
Haustkabarett, berja-
terta, kaffi. Fjölbreytt
dagskrá, söngur, gam-
anmál og gleði. Lukku-
vinningur. Skráning og
upplýsingar í síma
561 0300.
Háteigskirkja – aldr-
aðir. Samvera í Setrinu
kl. 13–15. Sauma-,
prjónaklúbbur, vöfflur
með kaffinu.
Bridsdeild FEBK Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára 13
kl. 10 á laugardögum.
Félag fráskilinna og
einstæðra. Fundur á
morgun kl. 21 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105.
Nýir félagar velkomnir.
Munið gönguna mánu-
daga og fimmtudaga.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt Húsið býður
ungum foreldrum
(u.þ.b. 16–25 ára) að
mæta með börnin sín á
laugardögum kl. 15–17 á
Geysi, Kakóbar, Að-
alstræti 2 (Gengið inn
Vesturgötumegin). Opið
hús og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Úrvalsfólk. Haustfagn-
aður verður á Hótel
Sögu, Súlnasal, föstu-
daginn 19. okt. kl. 19.
Matur, tískusýning,
fjölbreytt skemmti-
atriði, aðgöngumiðar
seldir hjá Rebekku og
Valdísi 585 4000.
Gigtarfélag Íslands
Gönguferð um Laug-
ardalinn laugardaginn
6. október kl. 11 frá
húsakynnum félagsins í
Ármúla 5. Þægileg
klukkutíma ganga sem
ætti að henta flestum.
Einn af kennurum hóp-
þjálfunar gengur með
og sér um létta upp-
hitun og teygjur. Allir
velkomnir. Ekkert
gjald. Nánari upplýs-
ingar í síma 530 3600.
Húnvetningafélagið í
Reykjavík Sunnudaginn
7. október kl. 13.30 er
haldinn hátíðlegur Dag-
ur Huldu Á. Stefáns-
dóttur Þingeyrum,
skólastýru Kvennaskól-
ans á Blönduósi. Fjöl-
breytt dagskrá, umsjón
Guðmundur Þorsteins-
son frá Steinnesi. Kaffi-
veitingar. Allir velkomn-
ir. Nánar kynnt síðar.
Félag kennara á eft-
irlaunum Á morgun,
laugardag, kl. 13.30,
skemmtifundur í Húna-
búð, Skeifunni 11, 3.
hæð. Félagsvist, upp-
lestur og söngur.
Hallgrímskirkja – eldri
borgarar Leikfimi
þriðjudaga og föstudaga
kl. 13. Verið velkomin.
Í dag er föstudagur 5. október, 278.
dagur ársins 2001. Orð dagsins: Jes-
ús sagði þeim: Ég er brauð lífsins.
Þann mun ekki hungra, sem til mín
kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á
mig trúir.
(Jóh. 6, 35.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 skaði, 4 dreng, 7 líffær-
in, 8 kærleiksþel, 9 elska,
11 storms, 13 svara, 14
fjandskapur, 15 talað, 17
flanir, 20 blóm, 22 áhöld-
in, 23 land, 24 nabbinn,
25 gabba.
LÓÐRÉTT:
1 starir, 2 ósannindi, 3
framkvæma, 4 sauðatað,
5 illkvittin, 6 veslast upp,
10 bor, 12 sorg, 13 sjáv-
ardýr, 15 fótþurrka,16
læst, 18 kaldur, 19 rás, 20
sæla, 21 skaði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bágstadda, 8 frísk, 9 doppa, 10 nía, 11 skata, 13
norpa, 15 stolt, 18 ómerk, 21 ull, 22 gátan, 23 andar, 24
hafurtask.
Lóðrétt: 2 álíta, 3 sakna, 4 aldan, 5 dapur, 6 ofns, 7 lama,
12 tel, 14 orm, 15 segg, 16 ostra, 17 tunnu, 18 ólatt, 19
eldis, 20 korg.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Í BRÉFUM til blaðsins í
Morgunblaðinu sl. mið-
vikudag skrifar Ásdís
Arthúrsdóttir, heim-
spekinemi, pistil sem hún
nefnir Hvað spinnur sam-
félagið? Ég er alveg
hjartanlega sammála Ás-
dísi í þessum pistli. Það er
sama hvert litið er, fólk
er alls staðar að kikna
undan mánaðarlegri
greiðslubyrði og vísa-
reikningum. Er ég sam-
mála Ásdísi um að setja
verði hömlur á útlán, fólk
virðist eiga mjög auðvelt
með að verða sér úti um
bílalán, hærri yfir-
dráttarheimild eða kred-
itkort. Inn um lúguna
streyma iðulega gylliboð
lánastofnana sem getur
reynst erfitt fyrir marga
að standast.
Eins er ég sammála Ás-
dísi í því að ungmenni
landsins læra það af for-
eldrum að ekki sé hægt
að fara í útilegu (í fína
fellihýsinu) eða að gera
sér dagamun án áfengis.
Hafdís.
Setja verður hömlur á útlán