Morgunblaðið - 20.10.2001, Síða 4
FRÉTTIR
4 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HjálpumAfganistan
Afganistan er eitt fátækasta land í heimi.
Þar vofir yfir hungursneyð nú þegar vetur gengur
í garð. Stríðshrjáðir landsmenn þurfa mat, tjöld,
teppi og hreint vatn.
Þú getur hjálpað. Með því að hringja í 907 2003
leggur þú 1.000 krónur inn á sérstakan reikning. Fénu
verður varið til að hjálpa Afgönum í mikilli neyð.
Einnig er hægt að setja framlög á reikning númer 1150 26 21000
í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis.
En tíminn er naumur. Hringdu núna.
stöðu þeirra og ástand, sem varð í
kjölfar skýrslu Rannsóknarnefndar
flugslysa um flugslysið í Skerjafirði
7. ágúst 2000. Jafnframt er höfð hlið-
sjón af úttekt Alþjóðaflugmálastofn-
unarinnar (ICAO) á stjórnun flugör-
yggismála á Íslandi.
Meðal annarra nýmæla frum-
varpsins er, að flugvellir og flug-
stöðvar á Íslandi verða leyfisskyld og
sett undir opinbert eftirlit flugörygg-
FLUGMÁLASTJÓRN fær aukið
eftirlitsvald og aukin úrræði til að
knýja fram þær ákvarðanir í flugör-
yggismálum sem stofnunin telur
nauðsynlegar í þágu aukins öryggis,
samkvæmt nýju frumvarpi sam-
gönguráðherra um breytingu á loft-
ferðalögum. Gert er ráð fyrir að flug-
leiðsögugjald af innanlandsflugi
verði fellt niður.
Í frumvarpinu nýja er lagastoð
skotið undir lofthæfifyrirmæli og
bein rekstrarfyrirmæli Flugmála-
stjórnar. Þá er henni veitt dagsekta-
vald og heimild til að leggja févíti á
eftirlitsskylda aðila í líkingu við þær
heimildir sem Samkeppnisstofnun og
Fjármálaeftirlitinu eru búnar.
Með frumvarpinu, sem Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær, er
ætlunin að lögfesta ýmsar endurbæt-
ur í flugöryggismálum sem nefndar
voru af hálfu flugmálayfirvalda í
þeirri umræðu um flugöryggismál,
issviðs Flugmálastjórnar. Þá er með
ákvæðum um flugvernd áréttuð þátt-
taka Íslendinga í átaki sem stendur
yfir um allan heim í kjölfar hryðju-
verkanna í Bandaríkjunum.
Einnig eru ný ákvæði um varnir
gegn ólátum, framferði svonefndra
flugdólga, sem ganga ekki svo langt
að teljast hryðjuverk eða valda al-
mannahættu í skilningi almennra
hegningarlaga. Kveðið er á um við-
urlög við slíku hátterni. Á síðastliðn-
um árum hafa æ fleiri tilvik komið
upp þar sem farþegar sýna af sér of-
stopafulla hegðun eða hegðun sem
getur stofnað öryggi loftfars í hættu.
Í ljósi þeirrar þróunar þykir nauð-
synlegt að lögfesta ítarlegri ákvæði
er varða þá hegðun. Þá er leitast við
að styrkja þau ákvæði loftferðalag-
anna sem varða samskipti flugstjóra,
flugliða og þjónustuliða við farþega.
Flugleiðsögugjald fellt niður
Þá hefur ríkisstjórnin samþykkt
að tillögu samgönguráðherra að
leggja til niðurfellingu flugleiðsögu-
gjalds vegna bágrar afkomu innan-
landsflugsins. Með frumvarpinu er
fengin lagaheimild til þeirrar niður-
fellingar.
Loks eru ýmsar meginreglur í
fluginu, svo sem hámarksaldur flug-
manna, sem skipað hefur verið með
reglugerðum til þessa, styrktar með
því að taka þær upp í lög.
UNDANFARNA daga hafa staðið
yfir á Siglufirði tökur á kvikmynd-
inni „Fálkar“ sem leikstýrt er af
Friðriki Þór Friðrikssyni. Um 40
manna starfslið hefur unnið við tök-
urnar á Siglufirði, auk þess sem yf-
ir 50 bæjarbúar hafa fengið hlut-
verk „statista“ eða aukaleikara í
myndinni. Þeir hafa þurft að setja
sig í hin ýmsu hlutverk, sumir eru í
kunnuglegum hlutverkum en aðrir
í nýjum.
Það hefur vakið mikla athygli
hversu miklar tilfæringar og tækni-
vinnslu þarf við tökur á myndinni,
og hefur jafnvel yfirbragði gatna
og húsa verið breytt til þess að taka
það sem virðast stutt og einföld at-
riði. Að sögn Hálfdans Theódórs-
sonar aðstoðarleikstjóra hefur
kvikmyndatakan gengið vel og
samkvæmt áætlun.
Tekið verður upp á Siglufirði
fram yfir helgina, en einnig hefur
verið tekið upp á Hofsósi. Hluti
myndarinnar verður tekinn upp er-
lendis. Í aðalhlutverkum eru banda-
ríski leikarinn Keith Carradine og
Margrét Vilhjálmsdóttir. Fálkar
verður frumsýnd um mitt næsta ár.
Fálkar á
Siglufirði
Morgunblaðið/Halldór Halldórsson
Í þokunni á Siglufirði í gær: Hálfdan Theódórsson kvikmyndatökumað-
ur ásamt Magnúsi Ólafssyni, Ingvari Sigurðssyni og Keith Carradine.
SAMKVÆMT mati Flugmála-
stjórnar er kostnaður vegna flug-
öryggismála áætlaður 30 milljónir
króna. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir
næsta ár hefur verið gert ráð fyrir
þessum kostnaði með því að færa
fjárheimild af framkvæmdum á
flugvöllum til reksturs Flugmála-
stjórnar. Það er einnig mat Flug-
málastjórnar að vegna aukinna
áherslna í flugvernd þurfi 15 millj-
ónir króna á ári. Samgönguráðu-
neytið hyggst mæta þeim kostnaði
innan núverandi fjárlagaramma.
Þrjátíu milljónir króna
vegna aukins flugöryggis
Á FRÍMERKJASÝNINGUNNI
Hafnía 01 í Kaupmannahöfn sýna
fjórir íslenskir safnarar. Að auki
eru fágæt íslensk skildinga- og
aurabréf úr Þjóðskjalasafni í sér-
stakri heiðursdeild. Indriði Páls-
son hlaut stórt gull og sérstök
heiðursverðlaun fyrir íslenska
safn sitt frá 1836-1902. Mun þetta
vera í fyrsta skipti, sem íslenskur
frímerkjasafnari hefur fengið svo
há verðlaun á sýningu.
Jón Aðalsteinn Jónsson fékk
stórt gyllt silfur fyrir safn sitt af
dönskum tvílitum skildinga- og
auramerkjum frá 1870-1905. Sig-
urður R. Pétursson fékk gyllt silf-
ur fyrir íslenska safn sitt af
tveggja kónga frímerkjum frá
1907 til 1915. Guðni Friðrik Árna-
son fékk stórt silfur fyrir mótíf-
safn sitt af Kólumbusi.
Stórt gull og
heiðursverðlaun
GEIR Haarde fjármálaráðherra seg-
ir þær ábendingar eiga fyllilega rétt á
sér sem fram komu í Morgunblaðinu
í gær um skattamál hlutafélaga og
sjálfstætt starfandi einkstaklinga og
tillit hafi verið tekið til þeirra í boð-
uðu skattalagafrumvarpi.
Þar var frá því greint að fyrirhug-
uð lækkun tekjuskattshlutfalls félaga
yki verulega skattalegt hagræði sem
sjálfstætt starfandi einstaklingar
gætu haft af því að vera með rekstur
sinn í formi einkahlutafélags og
greiða tekju- og fjármagnstekjuskatt
af hagnaðinum fremur en reikna sér
endurgjald og telja fram launatekjur.
Ágætt að ríkisskattstjóri
hafi áhyggjur
Ráðherrann telur þetta ekki vís-
bendingu um að það þurfi að vera
minni munur á tekjuskatti einstak-
linga og fyrirtækja. „Þetta er rétt
ábending eins og kerfið er í dag. Í
þessari umræðu gleymist hins vegar
að í frumvarpinu eru sérstök ákvæði
þar sem hert er á þeirri skyldu
manna að telja sér til tekna, gagnvart
greiðslum úr einkahlutafélögum,
sambærilegar launatekjur og þeir
myndu fá í störfum hjá óskyldum að-
ilum.
Þetta er mikilvægt ákvæði í frum-
varpinu því við sáum fyrir þennan
möguleika. Þetta er sambærilegt við
reiknað endurgjald hjá þeim sem eru
í sjálfstæðum rekstri. Þó að verið sé
að liðka fyrir atvinnurekstrinum og
þessu tiltekna félagsformi, þá verður
að koma í veg fyrir misnotkun. Til
þess eru ákvæðin í frumvarpinu hert
hvað þetta varðar,“ segir Geir.
Fjármálaráðherra segir það í
verkahring skattyfirvalda að fylgjast
með því að menn með einkahluta-
félög séu ekki að reikna sér lúsar-
laun. Haft var eftir ríkisskattstjóra í
blaðinu í gær að embættið óttaðist að
aukinn mismunur á skattlagningu á
félög og einstaklinga myndi ekki auð-
velda framkvæmdina. Spurður um
þau ummæli bendir Geir á að einka-
hlutafélög hafi verið starfandi í nokk-
urn tíma. Mismunurinn hafi verið
fyrir hendi en með frumvarpinu sé
verið að bregðast við því.
„Það er ágætt að ríkisskattstjóri
hafi áhyggjur, menn verða að vera
vel á verði. Hann hefur komið þess-
um ábendingum á framfæri við okkur
en ef hann er sem eftirlitsaðili með
frekari ábendingar, og telur að okkur
hafi yfirsést, þá munum við hlusta
gaumgæfilega á það. Við erum ekki
að breyta lögum til að auðvelda
mönnum að misnota þau eða aðstöðu
sína.“
Ábendingin
réttmæt og tillit
tekið til hennar
Fjármálaráðherra um skattalegt
hagræði af einkahlutafélagsforminu
SNÆUGLA, sem sást í kart-
öflugörðunum í Selvík skammt
norðan við Blönduós um síð-
ustu helgi, fannst dauð í Selvík-
inni í gær. Ugluhræið er í
vörslu lögreglunnar á Blöndu-
ósi og samkvæmt upplýsingum
frá henni er ekki vitað hvað
varð uglunni að aldurtila og er
málið í rannsókn. Snæuglur eru
afar sjaldgæfar á Íslandi og al-
friðaðar.
Snæugla
fannst dauð
á Blönduósi
Samgönguráðherra kynnir frumvarp til laga um breytingar á loftferðalögum
Gerir ráð fyrir auknu eftir-
litsvaldi Flugmálastjórnar
ELDRI borgarar í Kópavogi
munu í dag, laugardag, ganga í
hús og safna fé fyrir Sunnuhlíð,
vist- og hjúkrunarheimili aldr-
aðra í bænum. Þeir hafa æft leik-
fimi að undanförnu til að búa sig
undir það líkamlega erfiði sem
fylgir slíkri söfnun og lokahnykk-
urinn var í gær þegar þeir tóku
til við leikfimisæfingarnar undir
stjórn hins góðkunna fim-
leikastjóra Valdimars Örnólfs-
sonar.
Hitað upp
fyrir söfnun
Morgunblaðið/Þorkell