Morgunblaðið - 20.10.2001, Side 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Þið hljótið að sjá að þetta er nú ekki rétti tíminn til að suða um launahækkun,
það er nú ekki endalaust hægt að moka.
Málbjörg, félag um stam, tíu ára
Brýnt að ná til
barnanna
MÁLBJÖRG félagum stam er tíuára um þessar
mundir en félagið var
stofnað 10. október 1991.
Það voru þeir Benedikt
Benediktsson ásamt
André Bachmann, sem
stofnuðu félagið en Bene-
dikt stamaði mikið sjálfur
og vildi stofna félag til að
ná sambandi við aðra,
sem svipað var ástatt um.
„Upp úr stofnun félags-
ins varð til nokkuð öflug-
ur félagsskapur, sem
byggðist á sjálfstyrktar-
hópum, þar sem fé-
lagsmenn komu saman og
ræddu sín mál,“ sagði
Björn Tryggvason for-
maður félagsins. „Við höf-
um verið með námskeið í
ræðumennsku í samvinnu við JC
og staðið fyrir tveimur norræn-
um ráðstefnum fyrir fólk sem
stamar, fyrst árið 1994 og aftur
árið 1999.“
– Á hvað leggið þið áherslu?
„Aðaláhersla í starfi félagsins í
seinni tíð hefur færst yfir á börn-
in og foreldra þeirra. Það er svo
mikilvægt að börnin fari til tal-
meinafræðings eins fljótt og
hægt er. Því fyrr sem tekið er á
stami því meiri líkur eru á að
hægt sé að losna við það og hefur
Jóhanna Einarsdóttir talmeina-
fræðingur náð geysilega góðum
árangri þó að öðrum talmeina-
fræðingum hafi farið mikið fram
að undanförnu.“
– Er stam ættgengt?
„Vitað er að talsverðar líkur
eru á að stam erfist. Jóhanna og
Bryndís Guðmundsdóttir tal-
meinafræðingar eru að fara af
stað með rannsókn í samvinnu
við bandaríska vísindamenn, þar
sem reynt verður að finna orsak-
ir stams og nákvæmari greiningu
en það hefur skort á alþjóðaskil-
greiningu á stami.“
– Er vitað hversu algengt stam
er?
„Vitað er að 1% fullorðinna
stamar en hjá börnum eru það
4-5%. Með því að fara snemma í
meðferð losna börn við stam en
hjá sumum minnkar það með
aldrinum en ekki er vert að taka
áhættu og sleppa meðferðinni.“
– Hvernig er best að styðja
þann sem stamar?
„Við vitum að það er óþægilegt
að tala við fólk sem stamar mik-
ið. Bæði fyrir þann sem stamar
og þann sem stamar ekki. En um
það gildir það sama og í venju-
legum samræðum, maður gefur
fólki tíma til að tjá sig. Best er að
halda eðlilegu augnsambandi og
það sem hjálpar mest er að vera
ekki með neinn æsing.“
– Er eitthvað sameiginlegt
með þeim sem stama?
„Það eina sem sameinar fólk
sem stamar er stamið. Þeim er
ekki hættara við taugaveiklun
eða stressi en öðrum og stam er
óháð greind.“
– Hvaða vandamál
fylgja stami?
„Stami getur fylgt
félagsleg einangrun.
Fólki sem stamar er
hætt við að nýta ekki
hæfileika sína og það fer síður í
langskólanám.
– Er ákveðinn aldur erfiður
þeim sem stamar?
„Ég segi fyrir mig að unglings-
árin voru erfiðust og erfiðast var
að vera alltaf að skipta um skóla.
Fyrst barnaskóli, svo unglinga-
skóli og síðan menntaskóli. Þá
var maður alltaf að kynnast nýj-
um félögum og kennurum. Það
er mikilvægt þegar börn sem
stama flytja milli bekkja að rætt
sé við kennarann um þann vanda
sem fylgir stami. Til dæmis þeg-
ar börn eru látin lesa ein og upp-
hátt þá getur það reynst þeim
sem stamar mjög erfitt. Betra er
að tveir og tveir nemendur lesi
saman. Sama á reyndar við um
framhaldsskóla. Best er ef ung-
lingurinn ræðir sjálfur vanda-
málið við kennarana og að þeir
komi sér saman um fyrirkomu-
lagið þegar tekið er upp á töflu.“
– Hvað verður gert til að
minnast 10 ára afmælisins?
„Vegna tímamótanna hefur
Hjörleifur Ingason, ritari félags-
ins, samið lag og Skerjafjarðar-
skáldið, Kristján Hreinsson,
samið texta. Þetta lag verður
frumflutt á afmælishátíðinni, 22.
október, klukkan 20 í Iðnó en
dagurinn er alþjóðlegur upplýs-
ingadagur um stam. Nokkur
ungmenni, sem stama, munu
segja frá helgardvöl félagsins að
Bakkarflöt í Skagafirði í sumar
en þar komu saman um tíu ung-
lingar og skemmtu sér.
Forseti Íslands ætlar að
heiðra okkur með nærveru sinni
en hann stamaði á sínum yngri
árum. Jón Kristjánsson, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra,
mun einnig sækja okkur heim
ásamt öðrum höfðingjum.
Við munum einnig kynna nýj-
an bækling um stam, sem félagið
gefur út í samvinnu við Trygg-
ingastofnun. Honum verður
dreift í alla skóla, leikskóla og
heilsustofnanir lands-
ins.“
– Starfar félagið ein-
göngu í Reykjavík?
„Nei, í fyrravor var
stofnuð deild á Akur-
eyri og við stefnum að því að afla
tengiliða á Vestfjörðum og Aust-
fjörðum. Í stefnumótun félagsins
er hins vegar gert ráð fyrir að
meginvettvangur fræðslu um
stam verði á heimasíðu félagsins,
www.stam.is.
Rétt er að geta þess að á
heimasíðunni er um þessar
mundir tengill inn á alþjóðlega
netráðstefnu um stam.“
Björn Tryggvason
Björn Tryggvason fæddist
1955 í Reykjavík. Lengst af hefur
hann starfað hjá Reiknistofu
bankanna en starfar nú hjá
tölvudeild Búnaðarbankans.
Hann tók við formennsku í Mál-
björgu af Benedikt Benedikts-
syni árið 2000.
Björn er kvæntur Erlu Björk
Steinarsdóttur kennara í Ing-
unnarskóla í Grafarholti. Þau
eiga synina Steinar, Halldór og
Guðberg.
Félagsleg ein-
angrun getur
fylgt stami