Morgunblaðið - 20.10.2001, Síða 13
RAGNAR Arnalds, fv. þingmaður
og ráðherra, hefur opnað nýtt
vefrit, sem hann ritstýrir einn,
um Ísland og Evrópusambandið,
ESB, á slóðinni www.fullveldi.is.
Ragnar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að megintilgangur vef-
ritsins væri að halda til haga rök-
um þeirra sem hafna aðild að
ESB og telja farsælast fyrir Ís-
lendinga að varðveita fullveldi
sitt í framtíðinni. Ragnar sagði
vefritið vera nokkurs konar
framhald bókar sem hann gaf út
fyrir þremur árum og nefndist
Sjálfstæðið er sívirk auðlind.
„Ég minni á að hér starfa sér-
stök samtök til stuðnings aðild en
þverpólitískt, skipulagt andóf
gegn aðild er hins vegar lítt
áberandi og litlum fjármunum
varið til að vekja athygli á ókost-
um aðildar. Oft er sagt að við Ís-
lendingar hljótum að ganga í
ESB úr því að svo margar aðrar
þjóðir hafi gert það. En þegar
dýpra er skyggnst dylst fæstum
að ókostirnir við aðild eru miklu
stærri en kostirnir. Ég ætla að
gera grein fyrir sem flestum hlið-
um málsins,“ sagði Ragnar, sem
heldur vefnum úti einn og
óstuddur.
Efni vefritsins er skipt niður í
fjórtán þætti þar sem fjallað er í
stuttu máli um ýmsar hliðar að-
ildar að ESB, svo sem um hag-
vöxt og skattinn til ESB, um
landbúnað og sjávarútveg,
reynslu Norðmanna, hvað virðist
„söguleg veiðireynsla“ að dómi
framkvæmdastjórnar ESB, evr-
una og gengislækkun krónunnar
og um þróun ESB í átt til stórrík-
is. Fyrstu tíu þættirnir birtast
einnig í enskri þýðingu, sem
Ragnar sagði að væri hugsað fyr-
ir áhugamenn um stjórnmál í
Evrópu sem vildu fylgjast með
umræðunni hér á landi. Hann
ætlar að uppfæra vefritið reglu-
lega með pistlum og upplýs-
ingum.
Ragnar hefur sem kunnugt er
sagt skilið við Samfylkinguna og
gengið í raðir Vinstri grænna.
Hann sagði innihald vefritsins
vera í anda Evrópustefnu síns
flokks.
„Stjórnmálaflokkarnir hafa lát-
ið málið til sín taka. Formaður
Sjálfstæðisflokksins hefur margt
skynsamlegt sagt um þessi mál,
sem ég hef getað tekið undir. Hef
ég þá ekki alltaf verið sammála
honum,“ sagði Ragnar.
Með vefritið fullveldi.is
gegn Evrópusambandinu
Morgunblaðið/Ásdís
Ragnar Arnalds á vinnustofu sinni, en þaðan ritstýrir hann vefritinu
fullveldi.is auk þess að sinna öðrum störfum.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 13
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Fé-
lag fasteignasala til að færa fast-
eignasala, sem hafði verið vísað úr
félaginu, á félagaskrá að nýju.
Hæstiréttur segir að fasteignasal-
inn hafi ekki fengið tækifæri til að
bregðast við áminningu félagsins
eða tjá sig um fyrirhugaða brott-
vísun.
Á stjórnarfundi Félags fasteigna-
sala í október 1999 var einum fé-
lagsmanna, sem er löggiltur fast-
eignasali, vikið úr félaginu, en
stjórn félagsins ákvað að grípa til
brottvísunar vegna kvartana er
borist höfðu vegna starfa mannsins.
Í niðurstöðu Hæstaréttar kemur
fram, að fasteignasalanum hafi ekki
verið gefinn kostur á að bregðast
við áminningu með því að lagfæra
vinnubrögð sín og félagið hafi held-
ur ekki gefið honum kost á að tala
máli sínu fyrir stjórninni, áður en
brottvísunin var ákveðin.
Því hafi ekki verið staðið að
brottvísuninni á fullnægjandi hátt.
Hæstiréttur fellir því ákvörðun
stjórnar Félags fasteignasala úr
gildi, þótt ávirðingar fasteignasal-
ans, þegar þær voru metnar í heild,
gætu talist alvarlegar.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Árni Kolbeinsson, Haraldur Hen-
rysson, Hrafn Bragason og Pétur
Kr. Hafstein.
Brottvísun
úr Félagi fast-
eignasala ógild
BROTIST var inn í verslunina B.T.
tölvur við Reykjavíkurveg í Hafnar-
firði um klukkan þrjú í fyrrinótt og
þaðan stolið fjórum tölvum.
Á upptökum úr eftirlitsmyndavél-
um mátti sjá að þjófarnir voru tveir.
Báðir voru þeir með e.k. trefla fyrir
andliti samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Hafnarfirði. Annar var í
blárri peysu og dökkum buxum. Hinn
þjófurinn var klæddur röndóttri
peysu, neðst var gul rönd, síðan
ljósblá og loks dökkblá rönd.
Um klukkan 14.30 var tilkynnt um
innbrot í heimahús í Hafnarfirði. Það-
an var stolið talstöð og verkjatöflum.
Þjófar með
trefla
fyrir andliti
♦ ♦ ♦
Í MORGUNBLAÐINU í gær var
greint frá innbroti í Minjasafn Orku-
veitu Reykjavíkur en við frumathug-
un lögreglu og starfsfólks virtist sem
þjófurinn eða þjófarnir hefðu haft
lykla að húsinu.
Við nánari athugun kom í ljós að
átt hafði verið við svalahurð með kú-
beini. Svo fagmannlega hafði verið
staðið að verki að ummerkin sáust
ekki strax, samkvæmt upplýsingum
frá Orkuveitunni.
Hafði ekki
lyklavöld