Morgunblaðið - 20.10.2001, Síða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 27
FIMMTA framlag háðfuglsins
snjalla, Kevins Smiths, er dæmalaus
kraftsúpa eða kjaftfor hrærigrautur.
Þar sem raunverulegir og tilbúnir
karakterar flækjast hver um annan
þveran í atriðum sem mörg hver eru
kunnugleg úr öðrum myndum. Að
þessu sinni eru aukapersónurnar
orðnar aðal- og titilpersónur, Jay og
þögli Bob (Jason Mewes og Kevin
Smith) birtust fyrst sem dópsalar ut-
anvið búðina á horninu, í Clerks,
fyrstu og bestu mynd leikstjórans/
höfundarins. Þeim brá jafnvel fyrir í
Chasing Amy, núna í upphafi í sömu
sporunum utan við búðina í New
Jersey og hafa ekki í hyggju að færa
sig um set er þeir komast að því að
Hollyewood er með á prjónunum
kvikmynd um vesælt líf þeirra lúð-
anna. Þær upplýsingar fá þeir hjá
Holden McNeil (Ben Affleck), úr
Chasing Amy. Síðar í myndinni kem-
ur Affleck fram sem hann sjálfur;
dæmigert fyrir stílbrögð Smiths.
Rólyndislegri tilveru er ógnað, Jay
og Bob una því illa að vera hafðir að
fíflum á hvíta tjaldinu (!) og grípa til
sinna ráða. JASBSB verður að vega-
mynd um sinn, þar sem þeir lenda
m.a. í viðsjárverðum félagsskap fjög-
urra álfakroppa sem misnota sér
heimsku þeirra við demantarán. Þar
komast þeir í tæri við apynju, sem
einnig verður þeim fylgispök. Húll-
umhæið endar um síðir í Miramax-
kvikmyndaverinu.
Þessir gaurar eru engum líkir,
steypuklumpar sem geta varla að
rennt upp buxnaklaufinni án þess að
vana sig. Mewes og Smith eru nánast
samgrónir lúðunum í raunveruleikan-
um, við eigum varla von á þeim í öðr-
um hlutverkum. Ef þeir halda áfram
að vera jafn skemmtilegir og raun ber
vitni þurfa þeir ekki að kasta hamn-
um. Kosturinn við myndir Smiths, öf-
ugt við nánast alla aulamyndafram-
leiðsluna að Farrellybræðrum
undanskildum, er óvenjuleg kímni-
gáfa; þær geisla af vitrænni flónsku,
háði sem leynir á sér og er oftar en
ekki beint að samfélaginu. Þeir hafa
oftar gert betri hluti, engu að síður er
myndin á bestu köflunum óborganleg,
járnbent steypa. Tugir leikara koma
við sögu, sumir hverjir í eigin persónu
(Affleck, Matt Damon, Jason Biggs,
o.fl. auk leikstjóranna Gus Van Sant
og Wes Craven), aðrir í stórum og
smáum hlutverkum (Shannon Eliza-
beth, Carrie Fisher, Mark Hamill, Al-
anis Morisette, Chris Rock, jafnvel
Judd Nelson bregður fyrir). Þessi
sundurleiti hópur fer almennt á kost-
um og Kevin Smith svíkur engan sem
kann á annað borð að meta jaðarhúm-
orinn sem hann hefur sérhæft sig í.
Munnsöfnuðurinn er hroðalegur og
Smith ekkert heilagt. Ég hafði því
nokkrar áhyggjur af smáfólkinu sem
var fjölmennast í salnum og sat keikt
undir þeirri súpu klámbrandara, tott-
brandara, hommabrandara, dýralífs-
brandara, o.s.frv., sem er undirstaða
textans. Því virtist ekki blöskra hið
minnsta, ég vil þó benda foreldrum
eindregið á að senda ófermd börn sín
á barnvænni sýningar!
Járn-
bent
steypa
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIR
S m á r a b í ó , R e g n b o g -
i n n , B o r g a r b í ó
Leikstjóri og handritshöfundur:
Kevin Smith. Tónskáld: James L.
Venable. Kvikmyndatökustjóri:
Jamie Anderson. Aðalleikendur:
Jason Mewes, Kevin Smith, Joey
Lauren Adams, Ben Affleck,
George Carlin, Alanis Morrisette,
Judd Nelson, o.fl.
Sýningartími 95 mín. Bandarísk.
Dimension Films. 2001.
JAY AND SILENT BOB
STRIKE BACK MUNIRNIR á myndinni eru hluti
af listaverki eftir breska
listamanninn Damien Hirst sem
sjá má þessa dagana í
Eyestorm-galleríinu í London.
Listaverkið varð á dögunum
samviskusamri skúringakonu að
bráð, en hún taldi verkið vera
leifar frá skemmtan næturinnar
og henti því beint í ruslið.
Starfsmenn gallerísins hafa
sett verkið aftur saman eftir að
mistökin uppgötvuðust og
bíður það nú þess að kaupandi
finnist.
AP
List
eða rusl?