Morgunblaðið - 20.10.2001, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 33
Höfundur starfar sem tónlistarkenn-
ari, skjalaþýðandi og húsmóðir.
endum saman.
Sumir halda að það sé hægt að
bæta við sig nemendum og tjakka
upp launin. Auðvitað gera menn
það – og allt annað sem hugsast
getur – til þess að hafa í sig og á.
Langflestir tónlistarkennarar sem
ég þekki taka að sér mikla auka-
kennslu eða vinna líka að öðrum
störfum til að afla sér viðurværis,
því þeir eiga ekki annars úrkosta.
En fyrir kennara með fjölskyldu
krefst hver nemandi/bekkur til
viðbótar aukinnar fjarveru frá
heimilinu með tilheyrandi pössun-
arkostnaði og röskun heimilis-
mynsturs, því tónlistarkennarinn
getur sjaldan byrjað að vinna fyrr
en eftir að skóladegi nemendanna
lýkur. Ég hef oft þurft að vinna til
kl 22 til þess að koma kennslunni
fyrir – ekki ýkja fjölskylduvænt
fyrirkomulag.
Þegar maður virðir fyrir sér
vinnukjör sem einkennast af svo
lágum launum að menn eru nauð-
beygðir til að stunda hvers kyns
aukavinnu, og af vinnudegi sem
lágmarkar þann tíma sem foreldr-
ar geta eytt með börnunum sínum;
þegar maður áttar sig á því hversu
lítill skilningur mætir samninga-
nefnd tónlistarskólakennara í
kjarabaráttu hennar fyrir okkar
hönd, þá verður maður vægast
sagt vondaufur. Ef ekki verður
leiðrétting á þessu skammarlega
ástandi – og það sem fyrst – gæti
ég vel hugsað mér að kveðja þessa
ágætu stétt, þau indælu börn og
skemmtilegu samstarfsmenn sem
ég hef kynnst í tónlistarskólum á
Íslandi. Ég fór út í tónlist af hug-
sjónarástæðum: af því að tónlistin
er óviðjafnanleg og ég vildi helga
líf mitt henni. Og ég hef ekki séð
eftir þeirri ákvörðun fyrr en nú.
En þegar launin duga ekki til að
framfleyta fjölskyldunni og him-
inháir (og síhækkandi) reikningar
koma inn um bréfalúguna, þá fer
hugsjónin út um gluggann. Á ég að
halda endalaust áfram að yfirgefa
eigin börn um leið og þau koma
heim úr skóla til þess að kenna
börnum annarra og þiggja laun
sem duga varla fyrir matnum,
hvað þá meir? Nei, takk. Kannski
er betra að vinna á Wall Street – á
byrjunarkjörum.
kvæmdastjórn BÍSN samtökin hafa
fullt erindi þangað inn þar sem flest-
ir skólar innan BÍSN eru komnir á
háskólastig. Tilgangur ESIB er að
jafna rétt nemenda á háskólastigi
alls staðar í Evrópu. Það er stefna
nýrrar framkvæmdastjórnar að gera
samtökin sýnilegri meðal fé-
lagsmanna næsta starfsárið. Eins og
fram hefur komið þá felst aðalstarf-
semin í hagsmunagæslu fyrir nem-
endur og er það starf, því miður, yf-
irleitt algjörlega ósýnilegt öðrum en
þeim sem óska eftir aðstoð þar sem
nær undantekningarlaust er verið að
fjalla um trúnaðarmál. Það er samt
sem áður alltaf hægt að gera betur.
Framkvæmdastjórnin og fram-
kvæmdastjóri taka vel á móti öllum
þeim sem vilja starfa með samtök-
unum eða þurfa að leita til þeirra.
Allir þeir sem hafa áhuga á starfsem-
inni ættu því ekki að hika við að hafa
samband eða kíkja við á skrifstofu
BÍSN á Hverfisgötu 103, þriðju hæð.
Höfundur er framkvæmdastjóri
BÍSN.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík