Morgunblaðið - 20.10.2001, Page 48
48 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SIGURBJÖRN Björnsson vann
verðskuldaðan sigur í A-flokki á
Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur.
Hann var með eins vinnings for-
ystu fyrir síðustu umferð og
tryggði sér sigurinn með því að
gera jafntefli við Jón Árna Hall-
dórsson í 11. og síðustu umferð
mótsins. Sigurbjörn er mikill bar-
áttumaður og það hvarflaði ekki að
honum að bjóða jafntefli snemma
tafls gegn Jóni Árna til þess að
freista þess að tryggja sér þannig
sigurinn á mótinu. Þess í stað
tefldi hann til vinnings, en sást yf-
ir sterkan mótleik Jóns Árna eftir
að hafa látið vafasamt peðsrán
freista sín. Staðan varð mjög vand-
tefld og tvísýn, en þegar farið var
að saxast verulega á tíma Jóns
Árna bauð Sigurbjörn honum jafn-
tefli sem Jón Árni samþykkti. Sig-
urbjörn hlaut 9 vinninga, vann átta
skákir, gerði tvö jafntefli og tapaði
einungis einni skák. Þessi árangur
Sigurbjörns þarf ekki að koma á
óvart, enda er hann meðal okkar
sterkustu skákmanna. Síðast þeg-
ar hann tók þátt í Haustmótinu,
fyrir tveimur árum, náði hann 2.-3.
sæti og á Skákþingi Reykjavíkur í
ár varð hann í 1.-2. sæti og fjölda
annarra afreka mætti nefna.
Einhver ánægjulegustu tíðindi
Haustmótsins voru þátttaka
Björns Þorsteinssonar í A-flokki
og þá ekki síður góður árangur
hans, en hann náði öðru sæti á
mótinu með 8½ vinning og varð
jafnframt skákmeistari TR. Þetta
er í fimmta sinn sem Björn hamp-
ar titlinum, en hann varð síðast
skákmeistari TR árið 1974, auk
þess sem hann sigraði 1960, 1961
og 1966. Vonandi verður þessi ár-
angur Birni hvatning til enn frek-
ari afreka. Það er aldrei að vita
hvað gerist þegar hann er kominn
í æfingu!
Ingvar Jóhannesson varð í
þriðja sæti á mótinu með 8 vinn-
inga og kemur sá árangur að vissu
leyti á óvart, a.m.k. þegar skákstig
efstu manna eru skoðuð, en Ingvar
er langstigalægstur þeirra skák-
manna sem náðu efstu sætum. Á
hinn bóginn hefur það ekki farið
framhjá þeim sem fylgjast með
Ingvari að hann hefur sýnt skák-
inni brennandi áhuga undanfarin
misseri, auk þess að setja
skemmtilegan svip á skáklífið hér
á landi með ýmsum hætti. Haldi
hann áfram á þessari braut má bú-
ast við enn frekari framförum hjá
honum á næstunni.
Varðandi frammistöðu annarra
þátttakenda þá vekur athygli góð
frammistaða hins unga og efnilega
skákmanns Dags Arngrímssonar.
Dagur er í mikilli framför og
stendur sig undantekningarlítið
vel í þeim skákmótum sem hann
tekur þátt í. Aftur á móti var Sæv-
ar Bjarnason heillum horfinn í
þessu móti og lenti í 6.-7. sæti, en
er vanari því að verma eitt af verð-
launasætunum á mótum, þannig
varð hann t.d. í 1.-3. sæti á þessu
móti í fyrra. Það má segja svipað
um Sævar og Björn Þorsteinsson,
að þeir eru ófáir ungu skákmenn-
irnir sem hafa notið góðs af því að
fá að glíma við þessa reynslumiklu
skákmenn á ótal skákmótum. Þótt
mikil áhersla sé lögð á ungu kyn-
slóðina, þá má ekki gleyma því
mikilvæga hlutverki sem eldri
skákmennirnir gegna í skáklífinu
hér á landi. Lokataðan í A-flokki:
1. Sigurbjörn Björnsson 9 v.
2. Björn Þorsteinsson 8½ v.
3. Ingvar Jóhannesson 8 v.
4. Arnar Gunnarsson 7 v.
5. Davíð Kjartansson 6½ v.
6.-7. Dagur Arngrímsson, Sævar Bjarna-
son 5 v.
8. Jón Árni Halldórsson 4½ v.
9.-10. Júlíus Friðjónsson, Guðjón Heiðar
Valgarðsson 3½ v.
11. Guðni Stefán Pétursson 3 v.
12. Einar K. Einarsson 2½ v.
Halldór Pálsson sigraði í B-flokki, hlaut 8
vinninga.
Lokastaðan í B-flokki:
1. Halldór Pálsson 8 v.
2.-3. Jónas Jónasson, Guðmundur Kjart-
ansson 7 v.
4.-5. Bjarni Magnússon, Ólafur Kjartans-
son 6 v.
6.-8. Páll Gunnarsson, Halldór Garðars-
son, Atli Antonsson 5½ v.
9. Kjartan Guðmundsson 5 v.
10.-12. Kristján Ö. Elíasson, Harpa Ing-
ólfsdóttir, Valgarð Ingibergsson 3½ v.
Í opna flokknum vakti athygli
hversu vel stúlkurnar tvær í
flokknum stóðu sig. Lokastaðan
varð þessi:
1. Aldís Rún Lárusdóttir 10½ v.
2. Hilmar Þorsteinsson 9½ v.
3. Anna Björg Þorgrímsdóttir 8 v.
4. Sturla Þórðarson 7½ v.
5. Aron Ingi Óskarsson 7 v.
6.-8. Örn Stefánsson, Arnljótur Sigurðs-
son, Arnar Sigurðsson 6 v.
9.-10. Atli Freyr Kristjánsson, Hjörtur
Ingvi Jóhannsson 5½ v.
11.-16. Trausti Eiríksson, Skúli Mogen-
sen, Andrés Kolbeinsson, Ólafur Evert,
Ásgeir Mogensen, Hallgerður Þorsteins-
dóttir 5 v.
o.s.frv.
Þátttakendur í opna flokknum
voru 21.
Íslandsmót skákfélaga
um helgina
Fyrstu fjórar umferðirnar á Ís-
landsmóti skákfélaga verða tefldar
um helgina. Keppnin í efstu deild-
unum fer fram í Vestmannaeyjum.
Helstu tíðindi varðandi keppnina
eru mjög vaxandi þátttaka er-
lendra stórmeistara í fyrstu deild,
Jórvíkurflugsdeildinni. Sér í lagi
vekur athygli að Hrókurinn (áður
Grand-Rokk) mætir til leiks með 6
erlenda stórmeistara og einungis
tvo titillausa Íslendinga, sem reka
lestina á tveimur neðstu borðun-
um. Miðað við liðsuppstillingu nú
er Hrókurinn sigurstranglegastur,
Taflfélagið Hellir er með næst-
stigahæsta liðið og Taflfélag
Reykjavíkur er í þriðja sæti. Það
er því útlit fyrir sögulega og
spennandi keppni.
Skákmót á næstunni
SÍ. 19.10. Íslandsm. skákfélaga
SÍ. 23.10. Minnm. um Jóhann
Þóri
SA. 25.10. Hraðskákmót
Sigurbjörn Björnsson
sigraði á Haustmóti TR
Daði Örn Jónsson
SKÁK
T a f l f é l a g
R e y k j a v í k u r
HAUSTMÓT TR
26.9.-17.10. 2001
SKÁK
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Héraðsmenn!
Aðalfundur Átthagafélags Héraðsmanna-
verður haldinn í Gerðubergi, sal E, mið-
vikuaginn 24. október 2001 og hefst kl.
20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Glæsileg íbúð í Smáranum
Glæsileg 3ja herb. „penthouse“-íbúð til
leigu við Smáralind. Fyrirframgreiðsla
Upplýsingar í síma 861 2319.
TIL SÖLU
Veiðivörulager
og innréttingar
Til sölu er lager og innréttingar, þ.m.t. eld-
traustur öryggisskápur/peningaskápur
(ca 200x140x60 cm), þrotabús Veiði-sports ehf.
á Akureyri.
Frekari upplýsingar veitir skiptastjóri, Helgi
Teitur Helgason hdl., Geislagötu 5, Akureyri,
í síma 462 4606.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Tilboð
óskast í eftirfarandi fasteign
í eigu dánarbús:
Silfurtún (áður Hólahreppi), Sveitarfélaginu
Skagafirði.
Tilboð í ofangreinda eign sendist til skiptastjóra
fyrir mánudaginn 29. október nk. kl. 12.00.
Nánari upplýsingar veitir Margrét María Sig-
urðardóttir, skiptastjóri, í síma 862 0414,
fax 464 0403, netf. mms@isl.is .
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis
þriðjudaginn 23. október 2001 kl. 13—16 í porti bak við skrif-
stofu vora í Borgartúni 7 og víðar:
Sjá nánar á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is .
1 stk. Land Rover Discovery 4x4 dísel 1997
3 stk. Land Rover Defender 4x4 dísel 1997—98
1 stk. Nissan Terrano II SGX
1 stk. Suzuki Baleno station 1 stk. Subaru Legacy Outback 4x4 bensín 1996
1 stk. Subaru Legacy Gl 4x4 bensín 1993
1 stk. Subaru Impreza
1 stk. Suzuki Vitara 1 stk. Ford Super Cab F-250 4x4 1 stk. Ford Econoline E-350 1 stk. Toyota Hi Lux (úrbræddur) 1 stk. Toyoya Hi Lux m/húsi 1 stk. Toyota Hi Lux
1 stk. Toyota Hi Ace 1 stk. Volkswagen Transporter
1 stk. Mitsubishi L-300 4x4 bensín 1993
1 stk. Mitsubishi L-200 (biluð vél) 2 stk. Ford Escort van 4x2 bensín 1996—97
1 stk. Renault Clio 4x2 bensín 1998
1 stk. Mercedes Benz 711D 4x2 dísel 1992
1 stk. Chevrolet 500 (ógangfær) 4x2 bensín 1989
1 stk. Ski Doo Skandic vélsleði bensín 1985
1 stk. snjóblásari m/
dráttarvélatengi
1991
Til sýnis hjá Vegagerðinni á Akureyri:
2 stk. plastbátar 10 manna, lengd 4,96 m - breidd 1,76
m - dýpt 0,76 1978
Til sýnis hjá bílaverkstæði Jóns G. Snorrasonar, Gránu-
félagsgötu 47 á Akureyri:
2 stk. Lada Sport 4x4 bensín 1991—92
1 stk. Lada Samara 4x2 bensín 1991
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Ríkiskaupa sama dag
kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn
til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
(ATH. Inngangur í port frá Steintúni).
TILKYNNINGAR
Auglýsing um skipulag
í Kópavogi
Hamraborg 7 — breytt deiliskipulag
Tillaga að breyttu deiliskipulagi Hamraborgar
7 auglýsist hér með í samræmi við 25. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Í breytingunni felst að heimilt verði að byggja
inndregna þakhæð á núverandi byggingu um
300 fm að flatarmáli.
Ofangreind tillaga verður til sýnis á Bæjar-
skipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð, frá kl.
9-16 alla virka daga frá 24. október til 21. nóvem-
ber 2001. Athugasemdir eða ábendingar skulu
hafa borist skriflega Bæjarskipulagi eigi síðar
en kl. 15:00 mánudaginn 10. desember 2001.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Mat á umhverfisáhrifum —
úrskurður Skipulagsstofnunar
Jarðgöng og vegur á milli
Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar
Skipulagsstofnun hefur úrskurðað samkvæmt
lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrif-
um. Fallist er á gerð jarðgangna og vegalagn-
ingu á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar
eins og henni er lýst í matsskýrslu framkvæmd-
araðila.
Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu-
lagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.
Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu
Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is.
Úrskurð Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
21. nóvember 2001.
Skipulagsstofnun.
SMÁAUGLÝSINGAR
ÝMISLEGT
Pennavinir
Viltu æfa tungumálakunnátt-
una með bréfaskriftum?
International Pen Friends.
Sími 881 8181.
FÉLAGSLÍF
Sunnudagur 21. okt. Farið frá
BSÍ kl. 10.30. Fjallasyrpa 10.
ferð. Gengið á Þorbjörn og
Hagafell. Fararstj.: Margrét
Björnsdóttir. Verð kr. 1.500/
1.700. Selatangar - fjölskyldu-
ferð. Fjara og gamlar minjar.
Fararstj. Anna Soffía Óskarsdótt-
ir. Verð 1.500/1.700. Bað í Bláa
lóninu í lok ferðar, ekki innifalið í
verði. Munið heimasíðuna
www.utivist.is .
Sunnud. 21. okt. Blikdalur í
Esju. Brottför frá BSÍ kl 10:30
með viðkomu í Mörkinni 6. Um 5
klst. ganga, nokkuð blautlent, en
ekki mikil hæðaraukning. Farar-
stjóri Ásgeir Pálsson. Verð 1400/
1700 krónur. Skráið ykkur tíman-
lega í hátíðaferðir F.Í., Þórs-
mörk á aðventu, Landmanna-
laugar um áramót. FRÉTTIR
mbl.is