Morgunblaðið - 20.10.2001, Page 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 55
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ – til minn-
ingar um Hafdísi Hlíf Björnsdóttur
og til styrktar rannsóknum á heila-
himnubólgu – verður haldin á stóra
sviði Þjóðleikhússins í dag, laug-
ardag, kl. 15. Hafdís Hlíf Björns-
dóttir lést 21. júní sl., þá tæplega 11
ára gömul, úr bráðri heilahimnu-
bólgu.
Fjölskylduhátíðin er haldin að til-
hlutan félaga í Félagi íslenskra
leikara, en allir sem á einn eða ann-
an hátt koma að skemmtuninni
leggja málefninu lið og gefa vinnu
sína. Ágóði af fjölskylduhátíðinni
verður látinn renna óskiptur í
minningarsjóð Hafdísar Hlífar
Björnsdóttur, sem stofnaður var sl.
sumar í því skyni að efla rann-
sóknir á heilahimnubólgu.
Meðal þeirra sem koma fram eru
Gunnar og Felix, Solla stirða úr
Latabæ og Gleðiglaumur frá Bláa
hnettinum. Flutt verða atriði úr
söngleikjunum „Sungið í rigning-
unni“ og „Wake me up before you
go go“ og sýnd dansatriði frá List-
dansskóla Íslands og Ballettskóla
Sigríðar Ármann. Þá verða flutt
nokkur söngatriði þar sem koma
fram Sigrún Hjálmtýsdóttir og Örn
Árnason ásamt Jóhanni G. Jó-
hannssyni, Jóhanna Guðrún Jóns-
dóttir, Selma Björnsdóttir, Þórunn
Lárusdóttir, Kór Hofstaðaskóla og
hljómsveitin Sign. Kynnir hátíðar-
innar verður Margrét Vilhjálms-
dóttir.
Miðaverð er kr. 1.000. Þeim sem
ekki sjá sér fært að sækja skemmt-
unina í Þjóðleikhúsinu, en vilja láta
sitt af hendi rakna, skal bent á
Minningarsjóð Hafdísar Hlífar
Björnsdóttur sem varðveittur er í
Landsbankanum Smáralind, númer
0132-26-18000, kennitala: 521001-
3130.
Samkoma til
að efla rann-
sóknir á heila-
himnubólgu
GENGIÐ verður um Blikdal, sem
gengur inn í Esju að vestanverðu,
sunnudaginn 21. október á vegum
Ferðafélags Íslands.
Þetta er áætluð um 5 klst. ganga
en ekki er mikil hæðaraukning, þó
nokkuð blautlent. Brottför frá BSÍ
kl 10.30 með viðkomu í Mörkinni 6.
Fararstjóri Ásgeir Pálsson. Verð
1.400 eða 1.700 krónur.
Gengið
um Blikdal
Í INGUNNARSKÓLA við Maríu-
baug 1 í Reykjavík verður haldið
námskeið um frið, fyrir foreldra og
börn þeirra fædd 1994/1995. Nám-
skeiðið hefst 25. október kl. 20 og
lýkur 9. nóvember.
Markmið námskeiðsins er að efla
sjálfstraust, sjálfsaga og jákvæð
samskipti einstaklinga, segir í frétta-
tilkynningu.
Námskeið
um frið
7. RÁÐSFUNDUR II. ráðs ITC á
Íslandi verður haldinn í dag, laug-
ardag, í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi frá kl. 12-17.
Í ITC gefst fólki tækifæri til að
þjálfa sig í mannlegum samskiptum,
efla sjálfstraustið, læra fundarsköp,
skipulag og stjórnun, segir í frétta-
tilkynningu.
Fundurinn er öllum opinn.
ITC – þjálfun
í samskiptum
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is