Morgunblaðið - 20.10.2001, Qupperneq 62
LEIKARARNIR ofur-
svölu Billy Bob Thornton
og Johnny Depp eiga all-
sérstæða fælni sameig-
inlega. Þeir eru nefnilega
báðir logandi hræddir við
trúða.
Thornton, sem er giftur
Angelinu Jolie, útskýrir
sinn vanda þannig: „Það er
eitthvað svo óþægilegt að
vita ekki hver leynist bak-
við grímuna.“
Þetta er ekki eina fælni
Thorntons, sem ber jafnan
lyfjaglas með blóðdropa úr
konu sinni um hálsinn. Hann segist
nefnilega einnig hafa illan bifur á
forngripum: „Það fer um mig hrollur
og ég verð andstuttur í nærveru forn-
gripa. Þó ekki hvaða forngripa sem
er, einkum franskra og breskra.“
Depp og Thornton
hræðast trúða
Thornton er ekki eins og fólk er flest.
Hann er t.d. giftur Hollywood-stjörnu.
Reuters
BANDARÍSKA sveitin
Dismemberment Plan
átti að leika á veit-
ingastaðnum Vídalín á
fimmtudagskvöldið en
forfallaðist af
óviðráðanlegum or-
sökum.
Fyrir þær sakir var
bætt við auka-
tónleikum sem fram
fara í kvöld á sama
stað en í gær lék sveit-
in í Norðurkjallara
MH. Í kvöld leika með
sveitinni Apes frá Bandaríkjunum,
Náttfari og Fidel. Húsið verður opn-
að kl. 23 og er miðaverð 1.200 kr.
Tónleikar þessir eru liður í
vetrardagskrá plötubúðarinnar
Hljómalindar.
Dismemberment
Plan á Vídalín í kvöld
The Dismemberment Plan.
FÓLK Í FRÉTTUM
62 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir
Sýnd kl. 2, 5.10, 8 og 10.50.
Sýnd kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Með íslensku tali Sýnd kl. 8 og 10.30.
Moulin Rouge er án efa
besta mynd ársins hingað til...
E.P.Ó. Kvikmyndir.com
Empire
SV Mbl
DV
Rás 2
FRUMSÝNING
Ótrúlegar tæknibrellur, brjáluð spenna og veisla fyrir augu og eyru.
Þú hefur aldrei séð annað eins.
Nýjasta sýnishornið úr Lord of the Rings er sýnt á undan
Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni.
Miðasala opnar kl. 13
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15.
Stórstjörnurnar Julia Roberts, Billy Crystal, Catherine Zeta-Jones og John
Cusack fara hér á kostum í stórskemmtilegri rómantískri gamanmynd sem
fjallar um fræga fólkið, ástina og önnur skemmtileg vandamál.
ÉG hafði ekki ráðgert að fara á
tónleika Mínuss á Gauknum sem
voru liður í
yfirstandandi
Airwaves-há-
tíð. Ég hafði
ekki einu
sinni gert ráð
fyrir að þeir
myndu spila,
einhverra
hluta vegna.
Til allrar
hamingju rak
ég inn nefið
og ákvað að
tékka á
strákunum
en þeir áttu
að enda
kvöldið. Og
hvílíkir tón-
leikar!
Það slitn-
uðu þrír
strengir
þetta kvöld; hjá báðum gítarleik-
urunum svo og sleit bassaleikarinn
sverasta strenginn, slík voru lætin
og ofsinn. Málið með Mínus er að
ef þeir virka ekki, þá virka þeir alls
ekki. En ef þeir virka þá eru þeir
algerlega ósnertanlegir. Þetta var
eins og að horfa á klukkutíma
langa atómsprengingu og salurinn
stóð gersamlega á öndinni yfir
þessu þar sem sveitin var hreint og
beint hættuleg á sviðinu.
Hér gekk allt upp. Hljómurinn
var góður og kraftmikill og rennsl-
ið óaðfinnanlegt. Krummi, söngv-
ari, kastaðist til á sviðinu í villtum
ham og hljóðfæraleikararnir ein-
beittir, allir sem einn stilltir inn á
að gefa allt í þetta. Óhljóðastef á
milli laga mögnuðu svo stemn-
inguna enn frekar. Í lokalaginu
henti Krummi hljóðnemanum í
gólfið og sagði stuttlega, hálfpart-
inn andvarpandi „takk“. Sveitin
gekk rakleitt af sviðinu; sýnilega
jafn teknir eftir þennan ótrúlega
hamagang og áhorfendur sjálfir.
Sem voru flestallir gapandi yfir
ósköpunum.
Airwaves-hátíðin er öðrum þræði
ætluð sem
vettvangur til
að kynna ís-
lenska tónlist
fyrir erlendu
áhrifafólki í
þeim geiran-
um. Blaða-
menn frá
Kerrang, sem
er eitt helsta
tímaritið um
þungt rokk,
voru einmitt í
salnum en
fyrirhugað er
opnuviðtal
við sveitina á
næstunni.
Jesus Christ
Bobby, hin
magnaða
plata sveitar-
innar sem út
kom í fyrra, fékk toppeinkunn í
blaðinu fyrr á þessu ári en flest lög
kvöldsins voru tekin af henni.
Þess má geta að í fyrra lék Sigur
Rós í Fríkirkjunni á þessari sömu
hátíð og vakti á þeim tónleikum
mikla athygli erlendra poppfræð-
inga. Í kjölfarið hófst mikill slagur
á milli erlendra útgáfufyrirtækja
um sveitina sem endaði með því að
hún skrifaði undir hjá MCA í
Bandaríkjunum.
Ef það er eitthvert réttlæti í
heiminum ættu hinir ýmsu mógúl-
ar að hugsa sinn gang eftir þetta
kvöld.
Því þessa tæpu klukkustund var
Mínus einfaldlega besta rokkhljóm-
sveit heims. Punktur og basta.
Milljón plúsar
Hljómsveitin Mínus.
Tónlist
G a u k u r á S t ö n g
Tónleikar Mínuss á Airwaves,
fimmtudaginn 18. október.
HLJÓMLEIKAR
Arnar Eggert Thoroddsen