Morgunblaðið - 20.10.2001, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra segir að ekki komi til greina að
láta einstaklinga kaupa sér svonefnd-
ar einkatryggingar, eins og hægt er
sums staðar erlendis, sem standi síð-
an undir hluta kostnaðar við aðgerðir
á einkaspítala eða einkastofum.
Á ársfundi Tryggingastofnunar,
sem haldinn var í gær, sagði heil-
brigðisráðherra að með einkatrygg-
ingum væri verið að leggja grunninn
að tvískiptu kerfi, að fyrstu og ann-
arri deild í heilbrigðisþjónustunni.
Karl Steinar Guðnason, forstjóri
TR, sagði á fundinum að biðlistarnir
væru sovéskt fyrirbrigði og finna
þyrfti leiðir án fordóma til úrbóta fyr-
ir fólk. Hann sagði að hjá sjúkrahús-
um væru biðlistar sem kæmu niður á
sjúku fólki sem ella gæti verið úti í at-
vinnulífinu en það væri augljóst að ef
of seint væri gripið inn í sjúkdóm yrði
meðferð dýrari. Endurhæfing yrði
einnig erfiðari og dýrari og hann teldi
áreiðanlegt að dæmi væru um að fólk
hefði lent á örorkubótum af því að það
hefði ekki fengið tilhlýðilega með-
höndlun á eðlilegum tíma.
Með einkatryggingum er lagð-
ur grunnur að tvískiptu kerfi
Leggst gegn/35
LAGT er til að hlutur krókaafla-
marksbáta verði aukinn nokkuð í ýsu,
steinbít og ufsa og þeim verði jafn-
framt úthlutað í keilu, löngu og karfa
samkvæmt frumvarpi sjávarútvegs-
ráðherra til laga um breytingu á lög-
um um stjórn fiskveiða sem dreift
hefur verið á Alþingi. Búast má við að
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra mæli fyrir frumvarpinu þegar
þing kemur saman eftir kjördæma-
viku, sem er í næstu viku.
Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðar-
maður sjávarútvegsráðherra, segir
að í frumvarpinu felist m.a. að króka-
aflamarksbátarnir fái samtals 3.000
tonn af ýsu, 3.100 tonn af steinbít og
600 tonn af ufsa umfram það sem þeir
fá skv. lögunum um nýja skipan veiða
krókabáta sem tóku gildi hinn 1.
september sl.
Við upphaf fiskveiðiárs, hinn 1.
september sl., komu til framkvæmda
ákvæði laga um nýja skipan veiða
krókabáta sem vakið hafa hörð við-
brögð smábátasjómanna. Eru nú í
gildi tvö kerfi um veiðar krókabáta,
annars vegar krókaaflamarkskerfi
og hins vegar sóknarkerfi með fram-
seljanlegum sóknardögum. Um 600
bátar verða í krókaaflamarkskerfinu
en ríflega 200 í sóknarkerfinu.
Í frumvarpinu er lagt til að króka-
aflamarksbátum sem voru á föstu
þorskaflahámarki verði gefinn kost-
ur á veiðileyfi með dagatakmörkun-
um. Þá verði heimilað að skipt sé á
krókaaflamarki og almennu afla-
marki, enda sé um jöfn skipti að ræða
þannig að ekki verði um breytingu á
heildarþorskígildistonnum að ræða
innan hvors kerfis. Ennfremur verði
ráðherra heimilt að úthluta allt að
1.000 lestum af ýsu og 1.000 lestum af
steinbít til báta sem gerðir eru út frá
sjávarbyggðum sem eru verulega
háðar veiðum krókaaflamarksbáta.
Í frumvarpinu er ennfremur lagt
til að breytt verði ákvæði 5. gr. um
gerðir veiðileyfa og kveðið verði
skýrt á um að sömu reglur gildi að
jafnaði um krókaaflahlutdeild og
krókaaflamark og gilda um aflahlut-
deild og aflamark.
Loks er lagt til að heimilt verði að
koma með 5% af afla hverrar veiði-
ferðar af tegundum sem þeir eiga
ekki aflamark í og reiknast ekki til
Hlutur krókaaflamarksbáta aukinn í ýsu, steinbít og ufsa
Fá samtals 3.000
tonn af ýsu í viðbót
aflamarks veiðiskips, enda renni and-
virði þess afla til Hafrannsóknastofn-
unarinnar. Er lagt til að sú heimild
gildi til loka ársins 2002 og er gert
ráð fyrir að hún verði endurskoðuð í
ljósi reynslunnar.
Heildarkvóti í ýsu 7.000 tonn?
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa hagsmunaaðilar í sjáv-
arútvegi sumir hverjir óskað eftir því
að enn frekar verði aukið við kvótann
í ýsu, skarkola og ufsa vegna mikillar
fiskgengdar að undanförnu. Að-
spurður um þessar óskir segir Ár-
mann að ráðuneytið hafi enn ekki
tekið afstöðu til þeirra en í ljósi upp-
lýsinga um mikla veiði sé málið þó til
skoðunar í ráðuneytinu.
Verði ráðuneytið við þeim óskum
myndi það þýða, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins, að smábátarnir
fengju enn meira en þau 3.000 tonn af
ýsu sem gert er ráð fyrir í umræddu
frumvarpi. Ef t.d. sjávarútvegsráð-
herra færi með heildarkvótann í ýsu
upp í 40 þúsund tonn myndi það þýða
að heildarkvóti krókaaflamarksbáta í
ýsu færi að nálgast sjö þúsund tonn.
ÞOKA var víða um land í gær og
hafði það í för með sér mikla rösk-
un á flugi. Allt innanlandsflug um
Reykjavík lá niðri frá því um há-
degi og aðeins ein vél var afgreidd
á Akureyrarvelli í gærmorgun.
Stillur og neðsta lag hlýs lofts,
sem kólnaði frá hafinu, mynduðu
kjöraðstæður fyrir þokuna. Búist er
við að rofi til í dag suðvestanlands.
Kylfingar á Hvaleyrarvelli í
Hafnarfirði létu þokuna þó ekki
aftra sér frá spilamennsku á iðja-
grænum golfvellinum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Mikil þoka víða á landinu
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, gerði boðaðar
skattabreytingar ríkisstjórnarinnar
m.a. að umtalsefni í setningarræðu
sinni á landsfundi VG í gær og
gagnrýndi þær harðlega. Orðaði
hann það þannig að „útspil rík-
isstjórnarinnar í skattamálum væri
örvæntingarfull tilraun til að halda
veislunni áfram, hysja upp um
verðbréfamarkaðinn og kaupa sér
tíma fram yfir enn einar kosning-
ar“.
„Sama marki brennd er áherslan
og ofurtrúin á meiri erlenda stór-
iðju; þótt hún kosti gríðarlegar
óafturkræfar umhverfisfórnir; þótt
hún valdi verðbólgu; þótt hún sé
áhættusöm, bara ef hún er ávísun á
nýjan skammt, meiri veisluföng,
þannig að hægt sé að sitja að enn
um stund. Skítt með morgundag-
inn, skítt með timburmennina, skítt
með reikninginn,“ sagði Steingrím-
ur.
Í ræðu sinni sagði Steingrímur
ennfremur að ýmsar heldur dap-
urlegar staðreyndir hefðu „hrann-
ast upp um góðærið svokallaða sem
forsætisráðherra, Davíð Oddsson,
hefur lengst af persónugert við
sjálfan sig“, og bætti við: „Nú er að
sjá hvort hann telur efnahagserf-
iðleikana jafn skilgetið afkvæmi
sitt.“
Efasemdir um sameiginlegt
framboð í Reykjavík
Í almennum stjórnmálaumræðum
á landsfundinum í gærkveldi var
víða komið við. Í máli sumra fund-
armanna komu meðal annars fram
efasemdir um fýsileika sameigin-
legs framboðs með Reykjavíkurlist-
anum í sveitarstjórnarkosningunum
á vori komanda. Þá kom fram and-
staða við loftárásirnar á Afganistan.
Fundarmenn gerðu einnig árangur
flokksins að umtalsefni og sögðu að
hann mætti fyrst og fremst rekja til
skýrrar stefnumörkunar hans.
Morgunblaðið/Kristinn
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, á landsfundi í gær.
„Örvæntingarfull
tilraun til að halda
veislunni áfram“
Formaður VG gagnrýnir skatta-
breytingar ríkisstjórnarinnar
Tími kominn/34–35
RJÚPNAVEIÐIMAÐUR slasaðist
er hann fékk högl í andlit og hendur
við Gjástykki í Suður-Þingeyjarsýslu
skömmu eftir hádegið í gær. Hann
var fluttur með sjúkrabíl á sjúkra-
húsið á Akureyri en hann fékk einnig
hagl í augað. Maðurinn gekkst undir
aðgerð í gærkvöldi en samkvæmt
upplýsingum frá slysadeild var hann
ekki alvarlega slasaður.
Slysið vildi þannig til að tveir
menn voru saman á veiðum og voru
þeir báðir að skjóta á sömu rjúpuna
án þess að vita hvor af öðrum.
Fékk högl í
andlit og hendur
RAFMAGNSLAUST varð á hluta
Sogavegar og nágrennis og í Gerð-
unum í Reykjavík eftir sprengingu í
spennistöð í Garðsenda laust fyrir
klukkan 22 í gærkvöldi.
Lagnir út frá spennistöðinni, sem
er í Bústaðahverfi, virkuðu ekki í
kjölfarið. Sprengingin mun þó ekki
hafa orðið af mannavöldum. Starfs-
menn Orkuveitu Reykjavíkur komu
rafmagni á að fullu um fjórðungi fyr-
ir miðnætti.
Sprenging í
spennistöð
♦ ♦ ♦