Morgunblaðið - 28.10.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TÖKUR á kvikmyndinni Hafinu
hófust í Neskaupstað í vikunni.
Áætlað er að tökur standi yfir
fram í nóvember en kvikmynda-
gerðinni fylgir talsvert umfang
svo að eftir er tekið í bænum.
Starfslið og leikarar, alls um 35-
50 manns, búa í Neskaupstað á
meðan á tökum stendur og hafa
mannvirki víða um bæinn, sem
notuð verða í leikmynd, tekið
stakkaskiptum.
Kvikmyndin Hafið er byggð á
sögu eftir Ólaf Hauk Símonarson
sem gerist á Norðfirði. Það eru
Ólafur Haukur og Baltasar Kor-
mákur sem skrifa handrit mynd-
arinnar í sameiningu.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Leikstjórinn Baltasar Kormákur leiðbeinir Stefáni Þorleifssyni frá Nes-
kaupstað en hann leikur aukahlutverk í kvikmyndinni Hafinu.
Tökur á Hafinu hafnar
HÆSTIRÉTTUR telur ekki að sú
íslenska dómvenja að farþegar sem
taka sér far með ölvuðum öku-
mönnum fyrirgeri rétti til bóta á
eigin tjóni, brjóti í bága við tilskip-
anir Evrópusambandsins og ráð-
gefandi álit sem EFTA-dómstóll-
inn hefur sent frá sér um norskt
mál. Hæstiréttur telur hins vegar
að umræddar niðurstöður dómstóla
hafi ekki byggst á lögfestri reglu
heldur mótast af almennum við-
horfum og kenningum í skaðabóta-
rétti og leitt til dómvenju sem talin
hafi verið bindandi. Í ljósi þróunar
skaðabótaréttar hér á landi og
annars staðar megi fallast á að efni
séu til að þessi regla sæti nú end-
urskoðun.
Hæstiréttur kvað á fimmtudag
upp dóm í máli konu, sem slasaðist
þegar hún var farþegi í bíl sem ölv-
aður maður ók í Vestfjarðagöng-
unum árið 1997. Talið var sannað
að konunni hefði mátt vera ljóst að
ökumaðurinn var undir áhrifum
áfengis og jafnframt þótti sannað
að slysið yrði rakið til ölvunar
hans.
Dómstólamynduð regla íslensks
skaðabótaréttar hefur verið sú að
farþegi sem tekur sér far með ölv-
uðum ökumanni missi bótarétt.
Héraðsdómur Reykjavíkur komst
að þeirri niðurstöðu að þessi dóma-
venja ætti ekki stoð í ákvæðum
umferðarlaga og yrði að telja að
hún leiddi til niðurstöðu sem gengi
gegn tilskipunum Evrópusam-
bandsins. Því voru konunni dæmd-
ar bætur en hún var látin bera
helming tjónsins sjálf þar sem talið
var að hún væri með nokkrum
hætti meðvöld að tjóninu af stór-
kostlegu gáleysi með því að þiggja
boð mannsins um að aka bíl sem
hún var með í láni.
Sýndi af sér
stórkostlegt gáleysi
Hæstiréttur taldi hins vegar
ekki að umrædd dómvenja bryti í
bága við reglur ESB. En í ljósi
þróunar skaðabótaréttar hér á
landi og annars staðar væru ekki
efni til þess lengur að halda dóm-
venjunni við og var niðurstaða
málsins því látin ráðast af reglum
um eigin sök samkvæmt umferð-
arlögum. Taldi Hæstiréttur að kon-
an hefði sýnt af sér stórkostlegt
gáleysi er hún fékk manni, sem
henni gat ekki dulist að var veru-
lega undir áhrifum áfengis, stjórn
bifreiðar, sem hún hafði umráð yf-
ir, og tók sér far með honum.
Hæstiréttur lækkaði því bætur
konunnar úr rúmum 2,5 milljónum
krónum sem henni voru dæmdar í
héraði í rúmar 1,8 milljónir og hún
var látin bera 2⁄3 hluta tjóns síns.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Garðar Gíslason, Guð-
rún Erlendsdóttir, Gunnlaugur
Claessen, Haraldur Henrysson,
Hrafn Bragason, Markús Sigur-
björnsson og Pétur Kr. Hafstein.
Hrafn Bragason skilaði sératkvæði
í málinu og taldi m.a. að ekki þyrfti
að taka afstöðu til þess hvort fram-
angreind dómvenja hefði stangast
á við tilskipanir Evrópusambands-
ins.
Lögmaður aðaláfrýjanda, eig-
anda bílsins og tryggingafélags,
var Ólafur Axelsson hrl. og lög-
maður gagnáfrýjanda, konunnar,
Jóhann H. Níelsson hrl.
Fallist á að endurskoða dóma-
reglu um ábyrgð farþega ölvaðra
Neskaupstað. Morgunblaðið.
KÍSILIÐJAN við Mývatn hefur
farið þess á leit við Skipulagsstofn-
un að hún fresti afgreiðslu á tillögu
að matsáætlun vegna kísilvinnslu úr
Ytriflóa Mývatns. Framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins segir að ekkert
liggi á; komið hafi í ljós meira efni
á núverandi námasvæðum og engin
ákvörðun hafi verið tekin um fram-
haldið.
Skipulagsstofnun barst í byrjun
september tillaga Kísiliðjunnar að
matsáætlun vegna mats á umhverf-
isáhrifum kísilvinnslu úr Ytriflóa,
en þar hefur vinnsla farið fram síð-
an 1967. Þar er í gildi námaleyfi til
ársins 2010, en farið er fram á út-
víkkun námasvæðanna á þremur
stöðum, þ.e. norðan Slútness og
sunnan þess og í Vogaflóa. Á móti
kemur að hluta af núverandi námu-
svæði, þar sem engin vinnsla hefur
farið fram vegna grynninga, yrði
skilað til baka.
Nokkur styrr hefur staðið um
starfsemi Kísiliðjunnar við Mývatn
vegna áforma hennar um náma-
vinnslu í Syðriflóa. Í fyrravetur
staðfesti umhverfisráðherra úr-
skurð Skipulagsstofnunar um heim-
ild til efnistöku kísilgúrs á námu-
svæði 2 í Syðriflóa að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum. Í úrskurði
umhverfisráðuneytisins sagði að
ekki hefði verið sýnt fram á að kís-
ilgúrnám í Mývatni raskaði lífríki
vatnsins.
Í nýjum hugmyndum Kísiliðjunn-
ar, eftir eigendaskipti að fyrirtæk-
inu, vöknuðu hugmyndir um frekari
vinnslu í Ytriflóa. Segir í matsáætl-
un að „ef samkomulag náist um
vinnslu í Ytriflóa verði fallið frá því
að sækja um námuleyfi í Syðriflóa
og hann yrði því ósnortinn“.
Gunnar Örn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Kísiliðjunnar, segir
að nákvæmar rannsóknir fyrirtæk-
isins síðustu misseri hafi leitt í ljós
nokkru meira efni á núverandi
námasvæði og það muni duga til
kísilvinnslu í eitt og hálft „dælus-
umar,“ eins og hann orðaði það.
Sagði hann að þess vegna hefði
stjórn fyrirtækisins beðið Skipu-
lagsstofnun að fresta afgreiðslu á
matsáætluninni.
Erindi Kísiliðjunnar vegna Ytriflóa í Mývatni
Matsáætlun verði frestað
um óákveðinn tíma
EINS og fram kom í Morgun-
blaðinu á föstudag gerir Baugur
ráð fyrir í áætlunum sínum að hlut-
deild félagsins í afkomu Arcadia
verði jákvæð um 700 milljónir
króna og er Arcadia með þeim
hætti farið að vega þungt í rekstri
Baugs, en á síðasta ári var hagn-
aður Baugs fyrir skatta 816 millj-
ónir króna.
Páll Steingrímsson, endurskoð-
andi hjá Deloitte & Touche, segir
að hann sjái ekkert athugavert við
meðhöndlun Baugs á hlutdeild í af-
komu Arcadia eins og henni var
lýst í Morgunblaðinu. Eðlilegt væri
að reikna hlutdeild í hagnaði frá
þeim tíma sem hún færi yfir 20%
og þar sem reikningsárin væru ekki
hin sömu þyrfti Baugur í sínu upp-
gjöri um áramót að taka inn hluta
úr reikningsári Arcadia, þ.e. tíma-
bilið september til desember. Þar
yrði þó að hafa í huga að miða yrði
við rauntölur úr rekstri Arcadia á
þeim tíma en ekki áætlun.
Eðlileg uppgjörs-
aðferð hjá Baugi
Álit endurskoðanda hjá D&T
GÖMUL verbúð brann til
kaldra kola í Hrísey í fyrrinótt.
Slökkviliðinu á staðnum barst
tilkynning um reyk og eld frá
húsinu um hálffimmleytið og
kom fljótlega á vettvang á eina
bílnum sem það hefur til um-
ráða, Bedford af árgerðinni
1962. Slökkvistarf tók á annan
klukkutíma en þetta var fyrsta
brunaútkall ársins í Hrísey.
Um tíma var talið að nærstödd
hús og olíutankar gætu verið í
hættu sökum glæða sem fuku
frá verbúðinni en þær áhyggj-
ur reyndust ástæðulausar.
Verbúðin, um 150 fermetra
timburhús á einni hæð, stóð
við Ægisgötu niðri við höfnina
og átti að fara að flytja það á
annan stað um helgina, að
sögn Þorgeirs Jónssonar,
slökkviliðsstjóra í Hrísey. Eig-
andi hússins hafði verið að
gera það klárt til flutnings
kvöldið áður og búið var að
koma undir það stálbitum á
vörubílsvögnum. Eldsupptök
eru ókunn en rannsóknarlög-
reglumenn frá Akureyri voru
væntanlegir á vettvang í gær.
Gömul verbúð
brann í Hrísey
Fyrsta út-
kall ársins
hjá slökkvi-
liðinu
AÐ MATI lögmanns Blaðamanna-
félagsins eru auknar líkur á því að
hægt verði að fara fram á endurupp-
töku dómsmáls, sem eigendur Gall-
erís Borgar höfðuðu gegn blaða-
manni og ritstjóra Pressunnar, í
kjölfar yfirlýsinga Ólafs Inga Jóns-
sonar forvarðar í fyrradag um tvö
málverk sem eignuð hafa verið Sig-
urði Guðmundssyni málara. Ólafur
Ingi telur verkin fölsuð.
Um áramótin 1990 til 1991 birti
vikublaðið Pressan greinar þar sem
því var haldið fram að fölsuð málverk
væru í umferð hér á landi. Í kjölfarið
höfðaði Gallerí Borg meiðyrðamál
gegn ritstjóra og blaðamanni Press-
unnar og voru þeir sakfelldir í héraði
árið 1992 og í Hæstarétti þremur ár-
um síðar.
Fyrir tæpum tveimur árum kom
hins vegar aftur upp mikil umræða
um það, að fjöldi falsaðra málverka
væri í umferð og ákvað Blaðamanna-
félag Íslands þá að fela lögmanni sín-
um, Atla Gíslasyni, að kanna hvort
skilyrði væru til endurupptöku máls-
ins á hendur blaðamönnunum.
Uppreisn æru
Atli sagði líkur á því að hægt yrði
að óska endurupptöku heldur meiri
eftir yfirlýsingar Ólafs Inga núna.
Málið væri þó flókið. „Þetta er í öllu
falli ákveðin uppreisn æru fyrir
blaðamennina. Jafnvel þó að Hæsti-
réttur myndi synja endurupptöku þá
hafa þessir blaðamenn það allavega í
höndunum núna að þeir voru að
segja satt,“ sagði hann.
BÍ kannar endurupp-
töku meiðyrðamáls