Morgunblaðið - 28.10.2001, Page 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 29
ÞETTA er engin smáræðis útgerð
hjá Mosfellingum. Fyrir utan leikara-
fjöldann (23 leikendur) hafa þau um-
bylt húsinu sínu, innréttað kirkju
baksviðs en breytt leiksviðinu í veislu-
sal. Svo láta þau sig ekki muna um að
bera fram tvíréttaða máltíð meðan á
sýningu stendur. Það fer ekki á milli
mála, sýningargestir í Bæjarleikhús-
inu eru staddir í brúðkaupi.
Brúðkaup Tony og Tinu er önnur
atlaga leikfélagsins að því sem þau
kalla samskiptaleikhús, tilraun til að
brjóta múrinn milli leikara og áhorf-
enda og draga gesti inn í heim verks-
ins. Í þeirri fyrri, Jarðarför ömmu Sil-
víu, voru áhorfendur viðstaddir útför
og erfidrykkju ættmóður gyðingafjöl-
skyldu í New York. Nú er það ítalskt
-amerískt brúðkaup og veislan sem
fylgir á eftir.
Eins og gefur að skilja er sýning
sem byggist á samskiptum við áhorf-
endur að miklu leyti spunnin. Það á að
mér sýnist enn frekar við um brúð-
kaupið en jarðaförina. Það er nánast
enginn söguþráður, framvinda eða
þróun í samskiptum persónanna.
Jafnvel ekki þar sem lagt er upp með
eitthvað slíkt, eins og að gamall kær-
asti brúðarinnar birtist óvænt í at-
höfninni og er hreint ekki búinn að
gleyma henni. Uppgjörið sem maður
á von á í þeim þríhyrningi kemur aldr-
ei. Þess í stað verða sýningargestir að
láta sér nægja að fylgjast með ferð
einstakra persóna í gegnum veisluna,
nú eða að hella sér út í að taka þátt í
henni af lífi og sál og skemmta sér
sjálfur.
Því miður finnst mér það engan
vegin koma í staðinn fyrir leiksýn-
ingu. Til þess er ramminn sem sam-
skiptum leikara og gesta er settur of
stífur, brúðkaup ókunnugs og fram-
andi fólks. Sýningargestir eru boð-
flennur, sem vissulega eru boðnar
velkomnar og reynt að draga þær inn
í gleðskapinn, en ekkert fær breytt
því að þær þekkja engan og fá í raun
engu ráðið um framgang mála. Og af
því að söguþráðurinn er að mestu lát-
inn lönd og leið er ekkert sem stýrir
athygli gestanna, ekkert sem gerist
öðru merkilegra. Afmörkuð atriði eru
skemmtileg sem slík, en breyta engu
nema fyrir þá sem taka þátt í þeim.
Að þessu leyti þykir mér þessi athygl-
isverða tilraun Leikfélags Mosfells-
sveitar ekki ganga upp.
Það sem hins vegar gengur upp og
tekst vel er persónusköpun og innlif-
un leikhópsins. Hver einasti þátttak-
andi er á tánum frá upphafi til enda
og margar persónurnar frábærlega
mótaðar og skemmtilegar. Af þeim
sem mest fönguðu athygli mína má
nefna Stefán Bjarnason, sem þróaðist
úr taugastrekktum brúðguma í blind-
fullt (og ákaflega íslenskt) partídýr og
Halldór Halldórsson, sem var svo
þorparalegur fyrrverandi kærasti
brúðarinnar að erfitt var að skilja af
hverju var ekki búið að henda honum
á dyr fyrir löngu. Allra mest horfði ég
þó eftir Ólafi J. Straumland sem var
ósýnilegur og þó ótrúlega áberandi
ljósmyndari. Og við Maddy, sem
Unnur Arnardóttir skilaði stórvel, vil
ég segja þetta: Já, ég laug mig frá að
dansa við þig. Maður dansar ekki í
leyfisleysi við hjákonur svona mafíu-
lega vaxinna manna.
LEIKLIST
L e i k f é l a g
M o s f e l l s s v e i t a r
Frumflutt af Artificial Intelligence
Þýðing: María Guðmundsdóttir og
Guðný María Jónsdóttir Leikstjóri:
Guðný María Jónsdóttir Bæjarleik-
húsinu í Mosfellsbæ fimmtudaginn
25. október 2001
BRÚÐKAUP
TONY OG TINU
Boðflennur velkomnar
Þorgeir Tryggvason
KVIKMYNDIN Steinblómið verður
sýnd í bíósal Mír, Vatnsstíg 10,
sunnudag, kl. 15. Myndin er gerð í
Moskvu árið 1946 og byggist á göml-
um ævintýrum og þjóðsögum. Leik-
stjóri er A. Ptútsko. Kvikmyndin er
sýnd án þýddra texta. Aðgangur er
ókeypis.
Steinblómið í Mír
ÁFRAM er einsöngsplata Þorgeirs
J. Andréssonar við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar píanóleikara. Plat-
an geymir 21 íslenskt lag og fjórar
aríur úr óperum Rich-
ards Wagners.
Lögin íslensku eru
m.a. eftir Árna Thor-
steinsson, Eyþór Stef-
ánsson, Emil Thor-
oddsen, Inga T.
Lárusson, Karl O.
Runólfsson, Sigfús
Einarsson, Sigfús
Halldórsson, Sigvalda Kaldalóns o.fl.
Aríur Wagners eru úr óperunum Lo-
hengrin og Hollendingnum fljúgandi.
Trausti Jónsson ritar um íslensku
lögin og höfunda þeirra en Reynir
Axelsson ritar um aríurnar og þýðir
texta þeirra á íslensku.
Þorgeir hefur áður sungið inn á
fjölmargar geislaplötur sem ein-
söngvari með ýmsum kórum. Hann
hefur sungið fjölmörg óperuhlutverk
á undanförnum árum, bæði í Íslensku
óperunni, Þjóðleikhúsinu, ríkisóper-
unnni í Hamborg og við Wagnerhá-
tíðina í Bayreuth.
Jónas Ingimundarson er meðal
mikilvirkustu píanóleikara landsins
og hefur í áratugi komið fram sem
einleikari og leikið með flestum
fremstu söngvurum landsins.
Útgefandi er Fermata. Halldór
Víkingsson sá um upptöku og hljóð-
vinnslu en Ingvar Víkingsson sá um
grafiska hönnun bæklings. Verðið er
2.399 kr.
Nýjar geislaplötur
Þorgeir J.
Andrésson
BURT – og meir en bæjarleið.
Dagbækur og persónuleg skrif vest-
urheimsfara á síðari hluta 19. aldar
er fimmta bókin sem kemur út í rit-
röðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðu-
menningar. Sagnfræðingarnir Davíð
Ólafsson og Sigurður Gylfi Magn-
ússon tóku bókina saman og rita báð-
ir inngangskafla að henni. Í inngangi
sínum fjallar Sigurður Gylfi um
stöðu og þróun innflytjendarann-
sókna hér heima og erlendis og ræðir
möguleika framhaldsrannsókna á því
fræðasviði.Birtir eru valdir kaflar úr
dagbókum nokkurra Íslendinga sem
fluttu vestur um haf til Kanada og
Bandaríkjanna á síðasta fjórðungi
nítjándu aldar auk bréfa og sjálfs-
ævisögukafla vesturheimsfara.
Davíð Ólafsson og Sigurður Gylfi
Magnússon, hafa lagt stund á rann-
sóknir á persónulegum heimildum á
undanförnum árum og beitt rann-
sóknaraðferðum einsögunnar við úr-
vinnslu þeirra. Eftir þá liggja bækur
og greinar sem fjalla um alþýðu-
menningu á átjándu, nítjándu og
tuttugustu öld sem birst hafa hér
heima og erlendis.
Útgefandi er Háskólaútgáfan.
Alda Lóa Leifsdóttir sá um hönnun
bókarinnar. Prentun: Hjá oss. Verð:
3.500 kr.
Nýjar bækur
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦