Morgunblaðið - 28.10.2001, Qupperneq 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BAKGRUNNUR barna- og fjöl-
skyldumyndarinnar Osmosis Jones
er heldur óvenjulegur, eða manns-
líkami. Eigandinn dýragæslumaður-
inn Frank (Bill Murray). Til að gera
umhverfið viðsjárverðara er Frank
gott dæmi um þau átvögl og sinnu-
leysingja sem öllu troða ofan í sig,
hvað svo sem hver segir. Þið þekkið
örugglega einhverja slíka. (!)
Annars er Osmosis Jones byggð á
gömlu formúlunni um gott og illt.
Það góða er að þessu sinni titilper-
sónan, hvíta blóðkornið Osmosis,
„Ossie“ Jones (rödd Chris Rock), og
kvefmeðalataflan Drix (rödd David
Hyde Pierce). Þeir félagar standa í
eilífri orrustu við heilsuspillandi
ruslfæðið og bjórinn, sem endalaust
flæðir niður um kverkar og melting-
arveg matgoggsins. Ekki bætir úr
skák að yfirstjórn líkamans er í
kærulausum höndum „borgarstjór-
ans“, sem hugsar um það eitt að ná
endurkosningu.
Á ytra borðinu er það aðeins
Shane (Elena Franklin), ung dóttir
Franks, sem reynir að temja subb-
unni heilbrigðari lífshætti og mat-
arvenjur, en án árangurs. Ástandið
hlýtur því að enda með ósköpum, og
sú er raunin. Frank tekst að inn-
byrða erkióvininn Thrax (rödd
Laurence Fisgburne), lífshættuleg-
an sýkil, og nú fer allt í háaloft í
meltingarveginum og fyrr en varir
er skrokkræfill Franks undirlagður
og deyjamdi á gjörgæslunni.
Það er kaldhæðnislegt að dauða-
sýkilinn Thrax dregur vitaskuld
nafn sitt af anthrax, miltisbrands-
sýklinum, sem enginn tengir lengur
við gamanmál. Skjótt skipast veður
í lofti. Annars er myndin frekar létt-
væg fundin, gallinn sá að einsog hún
lítur endanlega út er ómögulegt að
sjá hvaða aldurshópi hún er ætluð.
Of flókin fyrir yngstu börnin og
tætingslega niðurdrepandi fyrir
aðra. Hugmyndin er góð en ekki vel
framborin. Frank og innviðir hans
eru afar óspennandi vettvangur
kvikmyndar fyrir alla aldurshópa.
Hún er vissulega umhugsunarverð
og hefði getað orðið þörf og kær-
komin lexía mannkyninu; ef betur
hefði verið unnið úr grundvallar-
hugmyndinni að maður er það sem
maður étur.
Hefði getað orðið þörf
og kærkomin lexía
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYNDIR
S a m b í ó i n
Leikstjórar Peter og Bobby Farr-
elli (leikin atriði); Piet Kroog og
Tom Sito (teiknimyndin).
Handritshöfundur: Marc Hyman.
Tónskáld: Randy Edelman.
Kvikmyndatökustjóri: Mark Irwin.
Aðalleikendur: Bill Murray,
Elena Franklin, Molly Shannon,
Chris Elliott.
Aðalraddsetjarar; Chris Rock,
Laurence Fishburne,
David Hyde Pierce, William
Shatner, Ron Howard.
Sýningartími 98 mín. Bandarísk.
Warner Bros. 2001.
OSMOSIS
JONES JAKOB Lothe, prófessor við Ósló-
arháskóla, flytur opinberan fyrir-
lestur í boði heimspekideildar Há-
skóla Íslands á morgun, mánudag,
kl. 17.15 í stofu 101 í Lögbergi.
Fyrirlesturinn nefnist: „The
Problem of Narrative Beginnings:
Franz Kafka’s Der Prozess and
Orson Welles’s The Trial“ (Vand-
inn að hefja frásögn. Réttarhöldin
– skáldsaga Franz Kafka og kvik-
mynd Orson Welles) og verður
fluttur á ensku.
Prófessor Lothe fjallar um kvik-
myndir sem gerðar hafa verið eftir
sögum og ræðir bæði almennt um
slíkar aðlaganir og tekur sérstak-
lega mið af kvikmynd sem Orson
Welles gerði eftir sögu Franz
Kafka, Réttarhöldin. Hann mun
jafnframt sýna dæmi úr kvik-
myndinni.
Jakob Lothe er prófessor við
enskudeild Óslóarháskóla og hefur
m.a. skrifað rit um skáldverk Jos-
eph Conrad og Thomas Hardy, en
birti nýverið bókina Narrative in
Fiction and Film (Oxford Univers-
ity Press 2000).
Fyrirlestur
um Franz
Kafka
HAUSTSÝNING á damaski
frá Georg Jensen verður í Nor-
ræna húsinu í dag, sunnudag og
mánudag, kl. 13-17.
Georg Jensen Damask er
rótgróið vefnaðarfyrirtæki í
Danmörku og leggur áherslu á
listræna hönnun sem hefur
unnið til ótal verðlauna og við-
urkenninga. Árlega koma ný
munstur og litir í framleiðslu
þeirra.
Sýning á
damaski
Í LISTAKLÚBBI Leikhúskjallar-
ans verður dagskrá helguð Andra
Snæ Magnasyni, höfundi Bláa hnatt-
arins, annað
kvöld, mánu-
dagskvöld, kl.
20.30, en sam-
nefnt leikrit er
sýnt á stóra sviði
Þjóðleikhússins
þessa dagana.
Andri Snær segir
sögu sem verður
efni næstu bókar
hans og flytur
frumsamin ljóð.
Þá verður lesið úr væntanlegu út-
varpsleikriti Andra Snæs, Hlauptu
náttúrubarn. Hljómsveitin múm
kemur fram og flytur lög af vænt-
anlegum hljómdiski sveitarinnar.
Leikarar og leikstjóri Bláa hnatt-
arins taka þátt í dagskránni.
Andri Snær og
múm í Leikhús-
kjallaranum
Andri Snær
Magnason