Morgunblaðið - 28.10.2001, Side 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 35
✝ RagnheiðurKristín Magnús-
dóttir fæddist að
Vatnshorni við
Steingrímsfjörð 14.
ágúst 1901. Hún lést
á Landspítalanum í
Fossvogi mánudag-
inn 22. október síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Ingi-
björg Magnúsdóttir
og Magnús Júlíus
Jónsson. Systkini
Ragnheiðar voru
Magnús, f. 25.11.
1891, d. 27.5. 1959, Jón, f. 22.4.
1895, d. 29.4. 1957, Guðrún, f.
13.11. 1896, d. 14.7. 1976, Svein-
ína, f. 23.7. 1905, d.
2.7. 1996, og Ing-
unn, f. 26.10. 1913,
d. 7.2. 1996.
Þegar Ragnheið-
ur var um fermingu
flutti hún ásamt
fjölskyldu sinni að
bænum Feigsdal við
Arnarfjörð. Þar bjó
hún fram undir
miðjan aldur er hún
flutti suður í Kópa-
vog og bjó þar til
dauðadags.
Útför Ragnheiðar
fer fram frá Kópavogskirkju á
morgun, mánudaginn 29. októ-
ber og hefst athöfnin klukkan 15.
Mig langar í nokkrum orðum að
þakka þér, elsku Ranka mín, sam-
veruna síðustu 43 æviár þín af þeim
100 sem þú hlaust í vöggugjöf.
Þegar ég sat hjá þér síðustu dag-
ana þína eða næturnar, hvarflaði hug-
urinn til liðinna ára og minningarnar
hrönnuðust upp. Þær eru svo margar
í mínu lífi sem tengjast þér á einn eða
annan hátt. Inga amma, mamma
hennar mömmu, og þið systur henn-
ar, Sveina og þú, voruð alltaf hjá okk-
ur á jólunum eins og við öll önnur há-
tíðleg tækifæri. Jólagjafirnar frá
ykkur voru alltaf þær stærstu og
bestu og gefnar af mikilli gleði. Við
vorum svo heppin systkinin að þar
sem þið Sveina áttuð engin börn urð-
uð þið eiginlega eins og ömmur okkar
líka. Það var gott að koma til ykkar á
Digranesveginn og seinna á Álfatröð-
ina og fá eitthvað gott í gogginn, láta
skutla sér, hlýða sér yfir lexíurnar,
gista eða hvað annað það sem barnið
eða seinna unglingurinn þurfti á að
halda í það og það sinnið. Alltaf mátt-
uð þið vera að að hjálpa. Þegar ég var
svo orðin mamma og bjó á hjara ver-
aldar, öðru nafni Árbænum, voru það
aðallega þið sem hélduð í mér lífinu
með heimsóknum ykkar og andlegum
stuðningi, þar sem ég var að grotna
niður úr einsemd og áhyggjum yfir
veiku smábarni. Þetta og allt hitt sem
ég geymi í hjarta mínu þakka ég þér
af heilum hug, elsku frænka.
Megir þú hvíla í friði.
Hafdís Erla Baldvinsdóttir.
Sómakonan Ragnheiður K. Magn-
úsdóttir lést mánudaginn 22. október
á sjúkrahúsi Reykjavíkur í Fossvogi.
Ragnheiður eða Ranka, eins og hún
var ávallt kölluð af vinum sínum, hélt
nýlega upp á hundrað ára afmælið sitt
ásamt fjölskyldu og vinum. Það var
stórkostlegt að sjá hve mikil reisn var
yfir þessari gömlu konu. Nú er komið
að endalokum þessarar kynslóðar.
Ranka var síðust systkinanna til að
kveðja þennan heim. Lengi bjuggu
systurnar þrjár Ranka, Sveina og
Inga ásamt móður sinni Ingibjörgu
við Digranesveg í Kópavogi en Ingi-
björg lést í hárri elli á tíræðisaldri.
Inga giftist en Sveina og Ranka
bjuggu áfram saman meðan heilsan
leyfði. Síðustu elliárin bjó Ranka á
sambýli fyrir aldraða við Gullsmára í
Kópavogi.
Systurnar unnu allar hörðum
höndum og oft var mannmargt á
heimili þeirra. Systkinabörn áttu
heimili hjá þeim langtímum saman
einnig var annað frændfólk og vinir
alltaf velkomið. Magnús maðurinn
minn var einn af þeim sem bjuggu hjá
þeim þegar hann kom að vestan og
þegar ég kom í fjölskylduna var mér
tekið opnum örmum.Við Magnús
leigðum þá hjá Unni dóttur Ingu og
Baldvini manninum hennar í litlu húsi
rétt við hús systranna og mömmu
þeirra.
Ranka vann á Kóavogshælinu og í
félagsheimili Kópavogs um margra
ára skeið. Hún var mikill dugnaðar-
forkur eins og hún átti ætt til. Hún
var fremur heilsuhraust gegnum árin
og naut þess að ferðast um landið.
Ranka var sögufróð og með afbrigð-
um minnug enda mikill lestrarhestur.
Hún þekkti landið sitt vel og hafði
gaman af því að segja frá og syngja en
hún kunni mikið af vísum og kvæðum.
Seinni árin sátu systurnar og prjón-
uðu bæði lopapeysur og sjónvarps-
sokka svo eitthvað sé nefnt. Hún var
skapgóð og hafði gaman af því að
ræða við fólk. Ragnheiður var heill
fróðleiksbrunnur og oft var gaman að
hlusta á hana segja frá æskuárum sín-
um og búskaparháttum eins og þeir
voru í byrjun aldarinnar.
Ég vil að lokum kveðja þessa mekt-
arkonu. Blessuð sé minning hennar.
Valborg Soffía
Böðvarsdóttir.
RAGNHEIÐUR
KRISTÍN
MAGNÚSDÓTTIR
✝ Þórlaug SvavaGuðnadóttir
fæddist í Reykjavík 2.
desember 1924. Hún
lést 23. október síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Guðni
Stígsson, löggilding-
armaður, og Margrét
Guðbrandsdóttir, bú-
sett í Reykjavík.
Systkini Þórlaugar
eru: Sigrún, Lára,
Friðrik, látinn, María
og Haukur, látinn.
Hálfbróðir þeirra var
Guðmundur Jónsson,
látinn. Uppeldissystir þeirra var
Sveinssína Baldursdóttir, látin.
Þórlaug giftist Guðmundi J.
Kristjánssyni, vegg-
fóðrara- og dúklagn-
ingameistara 8. maí
1943. Þau eignuðust
fimm börn. Þau eru:
Guðni, f. 30.9. 1942,
Örn, f. 14.7. 1946,
Áslaug, f. 28.11.
1949, Þórlaug, f.
25.12. 1954 og Al-
bert, f. 20.10. 1965.
Afkomendur Þór-
laugar og Guðmund-
ar eru nú orðnir 35
talsins.
Útför Þórlaugar
fer fram frá Bú-
staðakirkju á morgun, mánudag-
inn 29. október, og hefst athöfnin
kukkan 13.30.
Tengdamóðir okkar hún Lilla eins
og hún var alltaf kölluð lést á Land-
spítalanum í Fossvogi eftir að hafa
glímt við erfið veikindi undanfarin tvö
ár. Kynni okkar beggja af henni hóf-
ust er við hófum búskap með dætrum
hennar í Bakkagerðinu á efri hæðinni,
en þar hófu öll börn Lillu og Munda
sinn búskap. Oft var þar þröng á þingi
en Lilla sem var húsmóðir af gamla
skólanum sá um ört stækkandi hóp-
inn sinn af dugnaði og væntumþykju.
Lilla hafði skemmtilegan húmor og
ákveðnar skoðanir og í fjörugum sam-
ræðum í Bakkagerðinu mátti oft sjá
glampa í augum hennar þegar hún
kom með skemmtilegt innlegg í sam-
ræðurnar.
Það er sárt fyrir okkur að sjá á eftir
þessari góðu konu, en þó vitum við að
eftir erfið veikindi er hún hvíldinni
fegin. Við viljum kveðja þig með þess-
um fallega sálmi:
Þú, einn sem leystir eymdarbönd
og öll vor bættir meinin vönd,
þú sest nú Guðs við hægri hönd,
upp hafin yfir jarðar lönd.
Verk föðurins er fullkomnað,
þá ferð þú heim í dýrðarstað,
og skyggir á þig skýið það,
er skilur jörð og himin að.
En gegnum skýið glöggt þú sér,
hvar göngum áfram mæddir vér
og mænum augum eftir þér,
til arftöku með ljóssins her.
Og þú ert ætíð þínum hjá,
er þig með trúaraugum sjá,
þú lýsir þeim og leiðir þá
til lífs og sigurs himnum á.
(Björn Halld. frá Laufási.)
Þorvarður Jón Guðmundsson,
Baldvin G. Heimisson.
Á morgun kveðjum við móðursyst-
ur mína, Þórlaugu eða Lillu eins og
hún var ævinlega kölluð. Við bjuggum
í mörg ár í sama húsi. Foreldrar mínir
og systur og Lilla og Mundi og þeirra
börn. Þær systur voru samrýndar og
við krakkarnir á svipuðu reki og ól-
umst upp eins og systkin. „Drekku-
tímarnir“ voru ýmist heima hjá mér
eða hjá Lillu eða bara í næsta húsi en
þar bjuggu afi og amma. Enginn
þurfti að hafa lykil um hálsinn í þá
daga því alltaf var einhver heima ein-
hvers staðar.
Það var margt brallað á þessum
bernskuárum og er ég hugsa til baka
þá var alltaf svo gaman og næstum
alltaf sólskin. Ekki vorum við alltaf
bæjarins bestu börn en sama á hverju
gekk aldrei skammaði Lilla okkur
heldur tók á brekum okkar af sinni al-
kunnu ljúfmennsku.
Þessar tvær fjölskyldur fóru á
sumrin saman í Borgarfjörðinn að
veiða, Þingvallahringinn á sunnudög-
um og ógleymanleg er langferð ein
norður í Fljót 1947 að heimsækja
frændfólk þeirra systra. Þá var gist
fyrstu nóttina í Andakílnum, aðra
nótt á Króknum og loks ekið til Haga-
nesvíkur. Þaðan fórum við ríðandi inn
í Fljót. Á veturna fórum við oft á
skauta á Tjörninni og skíði eða sleða
upp í Ártúnsbrekkur.
Öll samskipti við Lillu og Munda
voru ljúf og góð enda bæði mætar
manneskjur. Heimili þeirra hefur allt-
af staðið okkur opið og þegar við Ótt-
ar giftum okkur og engin íbúð var
laus í fjölskylduhúsinu fluttum við í
Bakkagerðið til þeirra og var okkur
tekið opnum örmum.
Við vorum líka samtaka frænkurn-
ar þegar ég átti mitt fyrsta barn og
hún sitt yngsta barn og var aðeins
tveggja mánaða munur á strákunum.
Margar minningar koma upp í hug-
ann sem mætti hafa í heila bók en ég
læt hér staðar numið og þakka
frænku minni samfylgdina.
Ég votta Munda, börnum og þeirra
fjölskyldum innilega samúð. Blessuð
sé minning Lillu.
Vigdís (Viddý).
ÞÓRLAUG SVAVA
GUÐNADÓTTIR
!"
# $
% %&&'
( #
)
"
!"
! "
# "
$ %& ' ( # )
)$' *# "
$ %+ )
$ %)
,
-$ $ % "
+ $ %) .
!
" #
$%$
#
!!"
# # $%& '%&
&& ( ( '(& #(& '(&
$' $& ( ( "$' !!"
&& ( ( "$' !!" )*!
'+ ''%&
,- ( ( "$' !!" )
"& ''%&
& &% & & &-
!!"
!" #$
%&'(!&&)!
! !"&&)! !* +( )! ",''
-!
!"&&)! . &",''
/&0
!"&",'' ) #,!
!"&&)!
,0 !"&",'' 0"!
$
+ &&)!
01'
!"&&)! ! 12
#30&",''
1 ! 12!
)
1 ! 1 ! 12!$
!
" # $
!"#$% "& '!! ' !
("#$% "& ) $ *!+,! !
* ! "% $% "& - "% .!" !
) +/0% 1$% ! % 2!-1*"&
+ -%"$% "& -!!$ !
$+,3 "%1
! " !
!
" #$#% !&
Útfararþjónustan ehf.
Stofnuð 1990
Rúnar Geirmundsson
útfararstjóri
Traust persónuleg
alhliða útfararþjónusta.
Áratuga reynsla.
Símar 567 9110 & 893 8638
utfarir.is