Morgunblaðið - 28.10.2001, Page 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 37
! "#
$%&
'' & !
' !
(
!"#$ %
&% '% ()$%##)
"'*%+ ()$%#$ %
!
"!
!! "! !# !# $%&
!"#$ !
! "
#$ ##$
%
&
' & (
)
%&"# '&()#'(*# (+,, &+' &+'-&
.!#'
-& /00#
1"# ,# (+,,
)#' .#&%(+,, /' #2- ,&-&
3!# .# !-3!#
/ &# .#&%(+,, #('#$ )(#!-$4
!%' .#&%-&
0#  &-0# �#  &6
!" #
$ "
%
!
!!
&"
!" #" $ ""
%&
'' ("$ "" "
! )"$ ""
(" "
*
!
"
##$
! "#"
$ %& #" '" ($(
)& !
*
)) ))) +
!
"#
$" "%&
!
! "
# $%
&#
'
'
( $ %( ')!$)
# $ *! ' (
+)! $ ,
- !$) )
# % $
') $ # (
. $
% %
) %
! " #
! ! $!%%&'! ()
%%! *+,%"-%&#
✝ Gísli Theodórs-son fæddist í
Reykjavík 12. des-
ember 1930. Hann
lést á St. Jósefs-
sjúkrahúsinu í
Hafnafirði að
morgni 18. október
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Theodór Gíslason,
hafnsögumaður í
Reykjavík, f. 4.
ágúst 1907, d. 3.
apríl 1986, og Sig-
ríður Margrét
Helgadóttir frá
Tungu í Reykjavík, f. 28. febrúar
1910, d. 27. febrúar 1977. Systk-
ini Gísla eru Friðrik Theodórs-
son, f. 7. febrúar 1937, og Guð-
björg Theodórsdóttir, f. 3.
nóvember 1943.
Gísli kvæntist 6.október 1953
Ragnheiði Thorsteinsson, f. 24.
janúar 1932. Þau skildu. For-
eldrar hennar voru Geir Thor-
steinsson útgerðarmaður, f. 4.
mars 1890, og Sigríður Hann-
esdóttir Hafstein, f. 3. desember
1896.
Gísli kvæntist 12. desember
1959 Margréti Gunnlaugsdóttur,
f. 11. mars 1938. Þau skildu.
Foreldrar hennar voru Gunn-
laugur Kristinsson múrarameist-
ari, f. 18. júlí 1910, og Steinunn
Thorlacius, f. 26. júlí 1910. Hinn
20. desember 1976 kvæntist Gísli
Aðalheiði Steinþórsdóttur, f. 24.
desember 1941. Foreldrar henn-
ar voru Steinþór Helgason út-
gerðamaður og Guðríður Brynj-
ólfsdóttir, f. 15. mars 1911.
Aðalheiður lést í London 1. mars
1979.
Gísli var í sambúð
frá 1987 til dauða-
dags með eftirlifandi
sambýliskonu sinni,
Hebu Júlíusdóttur, f.
25. janúar 1937. For-
eldrar hennar voru
Júlíus Oddsson,
kaupmaður og út-
gerðamaður í Hrísey,
f. 11.október 1899, d.
23. október 1946, og
kona hans Sigríður
Jörundsdóttir, f. 4.
febrúar 1911, d. 15.
maí 1999.
Gísli útskrifaðist
úr verslunardeild Verslunar-
skóla Íslands 1949. Hann starf-
aði við aðalbókhald Flugfélags
Íslands frá 1949–1951 en hóf þá
störf hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga, var deildar-
fulltrúi rafmagnsdeildar 1951–
1954, deildarstjóri bíladeildar
1954–1965, kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Arnfirðinga á Bíldu-
dal 1965–1969, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri innflutningsdeild-
ar SÍS 1969–1976,
framkvæmdastjóri Lundúna-
skrifstofu 1977–1980, fram-
kvæmdastjóri Iceland Seafood
Ltd. í Bretlandi 1981, fram-
kvæmdastjóri fyrstu erlendu
skrifstofu Hafskipa í Bretlandi
árin 1982–1984, stundaði sjálf-
stætt fisksölu í Bretlandi og víð-
ar 1984–1985, vann að ýmsum
ráðgjafar- og áætlunarverkefn-
um árin 1985–1988 og hjá Verð-
lagsstofunni í Reykjavík 1988–
1991.
Útför Gísla fór fram frá Foss-
vogskapellu 26. október í kyrr-
þey að ósk hans.
Mágur okkar og svili, Gísli Theó-
dórsson, er látinn eftir langa og
stranga sjúkralegu – og bið eftir því
að fá að kveðja. Gísli kom inn í fjöl-
skyldu okkar fyrir sautján árum þeg-
ar hann kynntist Hebu. Við munum
hann þá sem glæsimenni, teinréttan
og vel eygðan með sterkan augnsvip
og yfirbragð sem minnti á enskan að-
alsmann. Hann var hlédrægur maður
með fágaða framkomu og lumaði á
góðum húmor. Þessi hæverska og lát-
leysi ásamt stolti fylgdi honum í sam-
skiptum okkar alla tíð síðan.
Heba og Gísli áttu vel saman og
voru náin og samstillt í daglegu lífi.
Skipulag og nákvæmni einkenndi
samfylgd þeirra, meðal annars á
mörgum ferðalögum erlendis, ekki
síst til Bretlands. Þar var Gísli þaul-
kunnugur og þau nutu áhyggjulausra
daga. Á góðum stundum með fjöl-
skyldunni gat Gísli tekið fram gítar-
inn og þá var sungið af hjartans lyst
sem minnti á gamla daga þegar oft
var glatt á hjalla í fjölskylduboðunum.
Gísli átti hjónaband að baki en
eignaðist ekki börn sjálfur. Það var
því ánægjulegt að sjá hversu vel hann
naut samskiptanna við barnabörn
Hebu og þau munu búa að því. Hann
var barngóður og hafði yndi af að gefa
þeim gjafir, fylgjast með þeim og
passa meðan hann hafði heilsu og þau
voru lítil. Gísli átti hins vegar ekki
gott með að þiggja sjálfur og afþakk-
aði gjafir og allt tilstand með sig. En
hann var bóngóður og ætíð fús að út-
vega hluti, taka myndir og halda til
haga minningum. Ósjaldan lagði hann
líka óbeðinn lykkju á leið sína í þessu
skyni.
Auðfundið var að Gísli bjó yfir fjöl-
þættri lífsreynslu og þjálfun úr störf-
um sínum fyrr á árum. Hann gegndi
trúnaðar- og stjórnunarstörfum á
vegum samvinnuhreyfingarinnar í
þrjátíu ár. Hann hafði verið kaup-
félagsstjóri á Bíldudal er hann réðst
til að veita forstöðu skrifstofu SÍS í
London og þar dvaldist hann um ára-
bil. Hann hafði afar góð tök á enskri
tungu enda las hann mikið alla tíð og
helst á ensku. Þetta sagði til sín ásamt
gerhygli hans og samviskusemi þegar
hann hjálpaði til við samningu og þýð-
ingar á ensku.
En lífið átti eftir að bæta á hann
byrðum. Hann greindist með sjald-
gæfa tegund hægfara blóðkrabba-
meins fyrir allmörgum árum og síð-
ustu árin var lífslöngun hans horfin.
Hann lét aðeins í ljós eina ósk – að
hafa Hebu sína hjá sér sem oftast og
vita stöðugt af nálægð hennar. Hún
var líka vakin og sofin í því að hlúa að
honum sem mest og sem best. Friðrik
bróðir hans reyndist honum líka vel í
veikindum hans og var Hebu og okkur
öllum þannig góður stuðningur.
En það var átakanlegt að fylgjast
með andlegum þjáningum hans síð-
ustu misserin og horfa á glæsileika
hans hverfa inn í skugga sjúkdómsins.
Hann hefði viljað fá að halda reisn
sinni og stolti og síst af öllu verða öðr-
um til byrði. Það var sárt að sjá hann
þurfa að láta í minni pokann í þeirri
baráttu. Hann var líklega einn af fáum
langlegusjúklingum á sjúkrastofnun-
um okkar sem urðu fyrri til að kveðja
þegar komið var í heimsókn.
Gísli hefur nú kvatt okkur hinsta
sinni. Hann var ferðbúinn og stríði
hans er lokið. Við þökkum samfylgd-
ina við drengskaparmann sem skilur
eftir sig skarð í huga okkar og lífi.
Sigrún og Þorsteinn.
GÍSLI
THEODÓRSSON
Fleiri minningargreinar
um Gísla Theodórsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284