Morgunblaðið - 28.10.2001, Side 38
MINNINGAR
38 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Aðalbjörg Zoph-oníasdóttir fædd-
ist 7. apríl 1918 á
Bárðarstöðum í Loð-
mundarfirði. Hún lést
á hjúkrunarheimilinu
Eiri að kvöldi föstu-
dagsins 19. október
síðastliðinn. Foreldr-
ar hennar voru hjónin
Zophonías Stefánsson
og Ólína Jóhannsdótt-
ir. Aðalbjörg ólst upp
í Loðmundarfirði, en
hélt ung til Reykja-
víkur, þar sem hún
kynntist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Gísla Dag-
bjartssyni, f. í Syðri-Vík í Land-
broti 29. sept. 1908. Þau hófu bú-
skap árið 1939, en gengu í
hjónaband 7. apríl 1943. Aðalbjörg
og Gísli eiga þrjú börn og þau eru:
1) Gylfi Baldur, f. 6. júní 1939,
kvæntur Ingu Gunnarsdóttur. Þau
eiga tvær dætur, Guðfinnu Gígju
og Sonju Aðalbjörgu, og þrjú
barnabörn. 2) Álfheiður, f. 26. sept.
1941, gift Bjarna Felixsyni. Þau
eiga fjögur börn, Gísla Felix,
Bjarna Felix, Ágústu og Aðal-
björgu, og fjögur barnabörn. 3) Óli
Zophonías, f. 11. ágúst 1953. Kona
hans er Guðrún Ragna Emilsdóttir
og eiga þau eina dótt-
ur, Aðalheiði Rögnu.
Óli á og tvær eldri
dætur, Ingunni og
Margréti Þóru, og
tvö barnabörn.
Aðalbjörg var
sjálfmenntuð kona
og listfeng og mikill
náttúruunnandi. Hún
hafði yndi af göngu-
ferðum í íslenskri
nátturu og steina-
söfnun og var heið-
ursfélagi í Ferða-
félaginu Útivist. Hún
lagði stund á mynd-
list og ljóðlist í frístundum, en fór
leynt með. Hún tók samt þátt í
nokkrum sýningum áhugamálara
og finna má ljóð eftir hana í kvæða-
bókinni Raddir að austan. Fyrstu
tíu árin bjuggu þau Aðalbjörg og
Gísli í Sjávarborg og Bráðræði á
Bráðræðisholti en síðan í hálfa öld
í eigin íbúð á Birkimel 6A. Aðal-
björg átti við mikla vanheilsu að
stríða síðustu æviárin og sl. þrjú ár
var hún á Hjúkrunarheimilinu Eiri
þar sem hún lést 19. október.
Útför Aðalbjargar fer fram frá
Fossvogskirkju á morgun, mánu-
daginn 29. október, og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Elsku amma. Nú ertu farin frá okk-
ur eftir að hafa háð langt og erfitt
stríð við hræðilegan sjúkdóm, þar
sem þú varst svo langt frá því að vera
sjálfri þér lík og náðir þar af leiðandi
ekki að njóta samskipta við fjölskyldu
þína sem skyldi. En við systurnar vit-
um að núna ertu komin til Guðs og ert
orðin á ný eins og þú átt að þér að
vera, skemmtileg, kát og hvers manns
hugljúfi. Því nálægt þér var aldrei
nein lognmolla og alltaf varstu með
eitthvað í deiglunni, hvort sem það
var ferðalag upp um fjöll og firnindi,
drög að málverki eða andinn hafði
komið yfir þig og þú sest niður við
ljóðagerð. Hæfileikar þínir voru ótrú-
legir og ef einhverjir titla sig því
starfsheiti listamaður þá varst þú það
að Guðs náð. Elsku amma, það er svo
margt skemmtilegt sem upp úr stend-
ur í minningunni um þig, til dæmis
ferðirnar sem við fórum með þér með
ferðafélaginu Útivist, og grínuðumst
við með það að varla væri til sú þúfa á
landi þessu sem þú vissir ekki deili á
og hefðir ekki grandskoðað. Mikið
rosalega skemmtum við okkur vel.
Þegar við systur hugsum núna til
baka þá verður manni ljóst hve þessar
samverustundir með þér skildu eftir
sig sterkar og yndislegar minningar.
Snæfellsnesið, Þórsmörk og fleiri af
þessum stöðum sem við heimsóttum
og í þínum félagsskap urðu þessar
ferðir ævintýri líkastar því fróðari og
betri leiðsögumann er vart hægt að
finna og veistu það amma að þú átt
heiðurinn af því að þessi áhugi og
virðing okkar fyrir fallega landinu
sem við búum á er eins sterk í okkur
og raunin er. Fyrir þitt tilstilli er
langt síðan við ákváðum að okkar
börn skyldu kynnast náttúrunni og
læra að virða hana rétt eins og þú
kenndir okkur það. Við vildum óska
að þú hefðir átt heilsu lengur því ég
veit að þú hefðir notið þín til fullnustu
í sveitinni minni í kringum öll dýrin
mín sem þar eru. Því meira náttúru-
barn er vart hægt að finna. Kær er
mér minning um heimsókn þína til
mín þegar ég var í verknámi frá Hól-
um í Hjaltadal. Þú vildir endilega
komast á hestbak og reyndi ég eftir
bestu getu að verða við þeirri beiðni.
En þar sem flest hrossin sem ég var
með á húsi voru lítið tamin trippi,
keppnishross eða stóðhestar var ég í
dálitlum vandræðum með hvað á hvað
ég ætti að setja þig. Varð þá fyrir val-
inu frekar þjáll og reyndur keppnis-
hestur sem var vel viljugur. Og svo
varð úr að búið var að gera gæðinginn
tilbúinn fyrir ömmu og ég sest á hest-
inn minn og fer af stað á hægu feti og
sný mér að ömmu svona rétt til að
nefna það að fet í upphafi reiðtúrs sé
nú nauðsynleg upphitun svona fyrst
um sinn meðan klárarnir séu að hitna.
Mér gafst nú aldrei tími til að klára
setninguna því sú gamla rak upp eitt-
hvert indíanaöskur, rak þvínæst hæl-
inn í hestinn og rauk á blindstökki
eitthvað út í loftið og ég sat bara eftir.
Fyrir öryggis sakir ákvað ég að
hleypa ekki á eftir henni til að æsa
klárinn ekki enn meira því mér sýnd-
ist nóg samt. Náði henni þó einhverj-
um kílómetrum seinna og vel fjarri
sveitabænum og bjóst þá við henni
kannski í þreyttara lagi og jafnvel
smeykri, ónei aldeilis ekki, indíána-
gólið var sko fyrirfram ákveðið til að
bikkjan færi hraðar og hún skildi ekk-
ert í því af hverju hrossið gæti ekki
haldið hraðanum og svindl að núna
væri bara komin þreyta í gripinn og
ekkert lengur gaman. Þetta er amma
í hnotskurn; kjarkmikil og gaf okkur
unga fólkinu aldrei neitt eftir. Minn-
isstæðar eru einnig gönguskíðaferð-
irnar sem hún dró Gígju systur í og
sögurnar sem systir hefur sagt mér í
kjölfarið og voru þessar ferðir frábær
skemmtun í alla staði, var ég ekkert
að pota mér með því ég hafði ekki roð
við þessum tveimur skíðaskvísum. Yf-
irleitt hringdi hún eldsnemma á laug-
ardags- eða sunnudagsmorgnum og
var þá samkvæmt henni ákveðið að
drífa sig og ekki seinna en strax og
voru þær ferðir yndislegar og kom
það aldrei fyrir að eitthvert tillit
þyrfti að taka til ömmunnar um
hversu hratt var farið yfir því að sögn
Gígju var sú gamla fremst og systir
þurfti víst á öllu sínu að halda til að
halda í við þjarkinn.
Elsku amma, svona er lífið og þótt
við systurnar vildum upplifa þessar
stundir aftur og aftur þá er það víst
ekki hægt og árin þau líða því miður
svo hratt og núna eru það okkar börn
og þinn sonur sem eru í þeim sömu
skemmtilegu sporum og við systur
vorum með þér fyrir öllum þessum
árum og veistu elsku amma að það er
yndislegt að þetta skuli endurtaka sig
svona. Þínar
Gígja og Sonja.
Þegar dauðinn kemur sem líknandi
hönd og leysir úr viðjum þann sem
haldinn er ólæknandi sjúkdómi þar
sem engin leið er til bala, ber okkur að
þakka, jafnvel þótt það valdi okkur
depurð og sorg. Nú er hún Aðalbjörg
orðin frjáls og hún skilur eftir handa
okkur svo margar góðar minningar.
Kynni okkar hófust í Ferðafélaginu
Útivist þar sem við áttum samleið í
rúm 20 ár. Ég fletti ekki ferðamynda-
albúmunum mínum svo að ekki verði
fyrir mér myndir af Aðalbjörgu. Aðal-
björg að bæsa loftbitana í skálanum í
Básum, Aðalbjörg uppi á fjallatoppi.
Aðalbjörg að hvíla lúin bein í fallegri
lyngbrekku, Aðalbjörg á gangi í fjöru
eða klofandi snjó, syngjandi á kvöld-
vöku í skálanum í Básum, dansandi á
árshátíð félagsins, og svo mætti lengi
telja. Hún var afar félagslynd og naut
sín svo vel í hópi félaganna, glaðlynd
og hjálpsöm. Hún var svo létt á göng-
unni, svo örugg til fótanna, hoppaði
yfir hvaða á sem var, stiklandi á oft
rennblautum steinum yfir ár í vexti og
klifrandi upp kletta. Hún var fædd og
uppalin í sveit, á Austfjörðum, og frá
blautu barnsbeini vön göngum um
fjöll og dali, barn náttúrunnar og mik-
ill náttúruunnandi. Hún tók oft að sér
fararstjórn og þá líka um sína heima-
sveit á Austfjörðum.
Aðalbjörgu var margt til lista lagt.
Hún var listfeng í meira lagi, málaði
bæði með olíu- og vatnslitum, hélt
sýningar bæði með öðrum og líka ein
og myndir hennar prýða veggi
margra okkar félaga hennar. Einnig
bjó hún til myndir úr mósaík, þar sem
hún notaði steina sem hún sjálf hafði
safnað í ferðum sínum og mulið. Hún
var ágætlega hagmælt og orti falleg
tækifærisljóð og gamanvísur ef eitt-
hvað skemmtilegt kom upp á í ferð-
um, og er margt eftir hana á söngskrá
Útivistar og sungið á kvöldvökum fé-
lagsins. Hún átti afar fallegt steina-
safn sem hún hafði safnað á ferðalög-
um sínum og látið slípa svo fegurð
þeirra og litadýrð blasti alstaðar við á
heimili þeirra Gísla, mannsins henn-
ar, þar sem falleg og gróskumikil
stofublóm gáfu til kynna að hún hafði
líka „græna fingur“. Hún átti mikið
safn „slides“-mynda sem hún tók í
ferðum sínum og bauð okkur félögum
sínum oft að koma og skoða myndir
og drekka kaffi á eftir með þeim hjón-
um, þar sem alltaf var hlaðborð af
meðlæti, því að hún var einnig mikil
húsmóðir og góður gestgjafi.
Í mörgum ferðum okkar í Bása til
hreingerninga og frágangs, vor og
haust, í skálunum okkar og nágrenni,
reyndist hún hörkudugleg. Þegar við
vorum orðnar lúnar og leiðar á að
skrúbba og skúra og aldurinn farinn að
færast yfir okkur, en við vorum jafn-
gamlar, var okkur fengið það verkefni
að sá og bera á tjaldstæðin og hreinsa
þar til, sömuleiðis að bera á örfoka-
svæði sem voru hingað og þangað inn-
an um annars gróðursælar og skógi-
vaxnar brekkur í Básum og nágrenni.
Þetta líkaði okkur vel. Við ókum áburð-
arpokunum með okkur í hjólbörum
milli tjaldstæða. Við þetta áttum við
margar góðar stundir saman í róleg-
heitum úti undir beru lofti í allri feg-
urðinni sem umlykur Bása og Goða-
land allt. Eiginlega voru þetta yndisleg
og góð endalok á starfi okkar í Básum
og okkur báðum til mikillar ánægju.
Aðalbjörg var gerð heiðursfélagi
Útivistar á 20 ára afmæli félagsins ár-
ið 1995.
Þrek hennar entist lengi eftir að
sjúkdómurinn fór að gera vart við sig,
en að lokum náði hann yfirhöndinni
og lamaði svo þrek hennar og vilja að
hún varð að láta undan síga, og nú er
hún komin á leiðarenda. Ég er þakk-
lát fyrir þessi góðu kynni, vináttu
hennar og samstarf og margra ára
samfylgd í okkar ógleymanlegu ferð-
um um rúmlega tuttugu ára skeið.
Gísla, eiginmanni hennar, börnum
þeirra og fjölskyldum þeirra sendi ég
einlægar samúðarkveðjur og bið þeim
blessunar um ókomin ár.
Nanna Kaaber.
AÐALBJÖRG
ZOPHONÍASDÓTTIR
!" "
"# $ %
!" $ %
%& $ " ' %
$ % ( )& *+" "
$ " #
+ &
" ( $ % %
,% ,
!
!""
""
#"$ %&!"
'("
& %)* %&!"&++! ,-""#
!+)""
.&/
%&!"&++! !" ""
# ! "(
%&!"" % )* 0 (+&++!1
!
"
#
% & #
!
"
##
$ %!
"
! "
##
& "
%!
' %!
##
( ( "( ( (
!
"!
#
!" #
$ %&
' (' !"! )! * ' &
)!+ !"! &
#' !"! ' &
$ %
!"&
,' !
- ! &
&'. .
!
"#$ %
&'( "#$ %
'' "")!
%' ' *) %+"#$ %
&'(
%' *) "#$ %
# , % -"")!
!
%'.!/%"#$ %
*) !'% % -"")!
' 01'
%!' -"#$ %
%' 21' %" !% -"#$ %
% 3 "")!
)'2!2!21!
Blómastofa
Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Blómaskreytingar við öll tilefni
Opið til kl. 19 öll kvöld