Morgunblaðið - 28.10.2001, Síða 39
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 39
ÖNNUR Tómasarmessan á þessu
hausti verður í Breiðholtskirkju í
Mjódd í kvöld, sunnudaginn 28.
október, kl. 20.
Tómasarmessan hefur vakið
mikla ánægju þeirra sem þátt hafa
tekið og virðist hafa unnið sér fast-
an sess í kirkjulífi borgarinnar, en
slík messa hefur verið haldin í
Breiðholtskirkju í Mjódd síðsta
sunnudag í mánuði, frá hausti til
vors, síðustu fjögur árin og verður
sami háttur hafður á í vetur. Fram-
kvæmdaaðilar að þessu messuhaldi
eru Breiðholtskirkja, Kristilega
skólahreyfingin, Félag guð-
fræðinema og hópur presta og
djákna.
Heiti messunnar er dregið af
postulanum Tómasi, sem ekki vildi
trúa upprisu Drottins nema hann
fengi sjálfur að sjá hann upprisinn
og þreifa á sárum hans. Markmið
Tómasarmessunnar eru öðru frem-
ur að leitast við að gera nútíma-
manninum auðveldara að skynja ná-
vist Drottins, einkum í máltíðinni
sem hann stofnuði og í bænaþjón-
ustu og sálgæslu, en mikil áhersla er
lögð á fyrirbænarþjónustu. Þá ein-
kennist messan af fjölbreytilegum
söng og tónlist og sömuleiðis af
virkri þátttöku leikmanna. Stór hóp-
ur fólks tekur jafnan þátt í und-
irbúningi og framkvæmd Tóm-
asarmessunnar og er það um 30
manna hópur, bæði leikmenn,
djáknar og prestar, sem stendur að
hverri messu. Það er von okkar, sem
að messunni stöndum, að þær góðu
mótttökur sem Tómasarmessan hef-
ur hlotið hingað til gefi tóninn um
framhaldið og að hún megi áfram
verða mörgum til blessunar og
starfi íslensku kirkjunnar til efl-
ingar.
Skilnaðarnámskeið í
Kvennakirkjunni
KVENNAKIRKJAN gengst fyrir
námskeiði um afleiðingar skilnaðar
og leiðir til betra lífs.
Námskeiðið verður í Þingholts-
stræti 17 og byrjar mánudags-
kvöldið 29. október. Það verður frá
kl. 17.30 til 19 næstu sex mánudags-
kvöld. Leiðbeinandi verður Val-
gerður Hjartardóttir hjúkr-
unarfræðingur og djákni.
Valgerður hélt svipað námskeið í
Kvennakirkjunni í fyrra og bætir nú
við nýjum þáttum og ræðir sér-
staklega um þátttöku barna í skiln-
aði foreldra.
Þátttakendur komi í Þingholts-
stræti 17 á auglýstum tíma. Ef óskað
er eftir nánari upplýsingum fást
þær á skrifstofu Kvennakirkjunnar í
síma 551 3934.
Allir kórar
Langholtskirkju
með söngskemmtun
SÖNGSKEMMTUN verður haldinn í
Langholtskirkju sunnudaginn 28.
október kl. 16, þar sem að allir kór-
ar sem starfa við kirkjuna munu
syngja auk sönghópa sem sprottið
hafa upp úr starfinu. Markmiðið er
að kynna söngstarfið í Langholts-
kirkju og um leið að gefa söfn-
uðinum og öðru áhugafólki kost á
góðri skemmtun, en efnisskráin að
þessu sinni verður blanda af léttum
lögum við allra hæfi.
Þetta er í fyrsta sinni sem þessir
kórar syngja allir á einum tón-
leikum og eru söngvararnir á þriðja
hundrað í alls tíu kórum og söng-
hópum. Þeir sem fram koma eru allt
frá fjögurra ára aldri, en kórarnir
eru: Krúttakórinn, Kór Kórskólans,
Graduale futuri, Gradualekór Lang-
holtskirkju, Graduale Nobili, Kór
Langholtskirkju, Kammerkór Lang-
holtskirkju, Karlakór Íslands og ná-
grennis, Djúsí (systur) og Töfra-
drengirnir (úr Töfraflautunni).
Fleiri sönghópar og kórar hafa
reyndar sprottið upp úr söngstarf-
inu í Langholtskirkju en þeir verða
ekki með að þessu sinni. Jón Stef-
ánsson hefur umsjón með tónleik-
unum og stjórnar flestum kóranna,
en einnig koma fram aðrir stjórn-
endur og kennarar sem starfa við
Kórskóla Langholtskirkju. Kynnir
verður Ólafur H. Jóhannsson. Að-
göngumiðinn kostar 1.000 kr. (sæt-
ið) og eru miðar seldir við inngang-
inn, en húsið verður opnað kl. 15.
Þórunn Harðardóttir
spilar við tónlistar-
guðsþjónustu
ÞÓRUNN Harðardóttir leikur á
víólu við tónlistarguðsþjónustu í
Hafnarfjarðarkirkju sem hefst kl.
17 nk. sunnudag.
Við tónlistarguðsþjónustuna er
lögð áhersla á sjálfa tónlistina, bæn-
ina, kyrrðina og íhugunina.
Tónlistarguðsþjónustur hafa ver-
ið haldnar við kirkjuna undanfarin
ár. Að venju er organisti Natalía
Chow og félagar úr kór kirkjunnar
leiða söng. Prestur að þessu sinni er
sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir,
héraðsprestur í Kjalarnesprófasts-
dæmi.
Kópamessa
BOÐIÐ verður upp á þá nýbreytni í
starfi Kópavogskirkju í vetur að
svokallaðar Kópamessur verða einu
sinni í mánuði. Í þeim verður tónlist-
in léttari en í hefðbundnum messum
og yfirbragð þeirra nokkuð annað.
Lögð verður áhersla á þáttöku
kirkjugesta bæði í söng og öðrum
þáttum helgihaldsins. Með Kópa-
messunum, sem eru viðbót við hinar
hefðbundnu guðsþjónustur, vill
sóknarnefnd og starfsfólk kirkj-
unnar bjóða upp á nýjan valkost í
helgihaldinu.
Fyrsta Kópamessan verður
sunnudaginn 28. október kl. 20.30.
Sóknarnefnd - sóknarprestur.
Kvöldvaka í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði
KVÖLDVAKA verður í Fríkirkjunni
í Hafnarfirði sunnudagskvöldið 28.
október og hefst hún kl. 20. Fyrir
næstu þrjár kvöldvökur hefur verið
valið þemað: Trú, von og kærleikur.
Að þessu sinni verður flutt dag-
skrá í tali og tónum um þemað: Trú
– hverju eigum við að trúa? Hver er
tilgangurinn?
Umsjón með kvöldvökunni hafa
prestarnir Einar Eyjólfsson og Sig-
ríður Kristín Helgadóttir. Örn Arn-
arson tónlistarmaður sér um söng-
dagskrá með fjölhæfu liði
tónlistarfólks en hljómsveit hans
hefur á að skipa píanóleikara,
bassaleikara, gítarleikara og þver-
flautuleikara. Félagar úr kór kirkj-
unnar leiða almennan safnaðarsöng.
Leitast er við að kynna og kenna
trúarlega söngva á kvöldvökunum
en þær eru að jafnaði einu sinni í
mánuði. Og eins og á öllum almenni-
legum kvöldvökum verður lesin
saga, að þessu sinni saga sem teng-
ist þema hennar.
Að lokinni kvöldvökunni verður
kaffihús í safnaðarheimilinu. Þessar
mánaðarlegu kvöldvökur í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði henta fólki á öll-
um aldri. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
Einar Eyjólfsson.
Kolaportsmessa
HELGIHALD þarfnast ekki hús-
næðis heldur lifandi fólks. Kirkja
Jesú Krists er ekki steypa, heldur
lifandi steinar, manneskjur af holdi
og blóði. Þess vegna er hægt að fara
út úr kirkjubyggingum með helgi-
hald og fagnaðarerindið og mæta
fólki í dagsins önn.
Í tilefni af því bjóðum við til messu
í Kolaportinu sunnudaginn 28. októ-
ber kl. 14. Bjarni Karlsson sókn-
arprestur í Laugarneskirkju predik-
ar og þjónar ásamt Jónu Hrönn
Bolladóttur, miðborgarpresti, Hans
G. Alfreðssyni, guðfræðingi og
Sverri Jónssyni. Þorvaldur Hall-
dórsson leiðir lofgjörðina.
Áður en Kolaportsmessan hefst
kl. 13.40 mun Þorvaldur Hall-
dórsson flytja þekktar dægurperlur.
Þá er hægt að leggja inn fyrirbæn-
arefni til þeirra sem þjóna í mess-
unni. Í lok stundarinnar verður alt-
arisganga.
Messan fer fram í kaffistofunni
hennar Jónu í Kolaportinu sem ber
heitið Kaffi port, þar er hægt að
kaupa sér kaffi og dýrindis meðlæti
og eiga gott samfélag við Guð og
menn.
Miðborgarstarf KFUM&K.
Nýjung í
Bessastaðasókn
BRYDDAÐ hefur verið upp á ýms-
um nýjungum að undanförnu í safn-
aðarstarfi Bessastaðasóknar, en
markmið þeirra er að sem flestir
geti fundið starf við sitt hæfi á vett-
vangi kirkjunnar.
Miðvikudaginn 31. október hefst
sérstakt kirkjustarf fyrir eldri borg-
ara í Bessastaðasókn. Starfið fer
fram í Haukshúsum á mið-
vikudögum kl. 13–16. Bessa-
staðasókn býður eldri borgurum
sínum að taka þátt í opnu húsi, en
þar er stefnt að því að eiga notaleg-
ar samverustundir með fræðslu, leik
og söng. Til að jafnvægis sé gætt
gagnvart holdi og anda verður gott
kaffiborð hverju sinni kl. 15. Á
fyrstu samverunni, 31. október, mun
Þórir S. Guðbergsson, rithöfundur,
koma og fjalla um bók sína Lífsorka
og létt lund. Einnig verður sungið
og starfið framundan kynnt. Um-
sjónarmenn þessa starfs verða þær
Gréta Konráðs og Nanna Guðrún,
djákni. Til að auðvelda fólki þátt-
töku munu Auður eða Erlendur sjá
um að sækja fólkið og aka því heim.
Hægt er að hringja í síma 565 0952.
Miðvikudagar eru dagar kirkj-
unnar í Haukshúsum, því kl. 10–12
koma þar saman foreldrar ungra
barna sem bundnir eru yfir börnum
sínum. Í daglegu tali eru þessar
stundir kallaðar mömmumorgnar,
en að sjálfsögðu eru feðurnir einnig
velkomnir.
Starf fyrir 10–12 ára börn, TTT-
starf, fer fram í Álftanesskóla á
þriðjudögum kl. 17.30 í framhaldi af
fermingarfræðslunni, sem er kl.
16.30 hvern þriðjudag.
Þá má einnig minna á öflugt starf
Álftaneskórsins sem kemur sterkur
að kirkjusöngnum ásamt hinum
nýja organista safnaðarins, Hrönn
Helgadóttur.
Sunnudagaskólinn er hvern
sunnudag kl. 13 í Álftanesskóla og
helgihald í kirkjunni hefur verið
kynnt í Kirkjutíðindunum, en bæna-
og kyrrðarstund verður í Bessa-
staðakirkju á sunnudagskvöld, 28.
október, kl. 20.30.
Vonir standa til að þessi ný-
breytni í starfi safnaðarins mælist
vel fyrir og efli kirkjuvitund og
kristna trú.
Prestar, djákni og sóknarnefnd
Bessastaðasóknar.
Kaffihúsamessa
SVOKÖLLUÐ kaffihúsamessa verð-
ur í Safnaðarheimili Landakirkju
sunnudagskvöldið 28. október.
Haldnar voru þrjár slíkar guðsþjón-
ustur síðasta vetur með Tónsmíða-
félagi Vestmannaeyja.
Kaffihúsamessa er heiti á sér-
stakri umgjörð um góða tónlistar-
dagskrá þar sem skiptast á frum-
samin verk félaga í Tónsmíða-
félaginu og eldri þekkt dægurlög úr
trúarheimi kristinna manna. Upp-
runi laganna er kynntur jafnóðum
og inn á milli er guðspjallið lesið og
lagt út af því guðsorði, sem tilheyrir
þessum kirkjudegi, sem er siðbót-
ardagurinn. Signing, bæn, lofgjörð
og blessun eru einnig á sínum stað
en ekki er um hefðbundin messus-
vör að ræða. Söngurinn er allsráð-
andi.
Umgjörðin í Safnaðarheimilinu er
lík því sem gerist á kaffihúsi, þannig
að fólk situr við lítil borð og kerta-
ljós, fær sér kaffisopa, te eða djús.
Hugmyndin er að fólk njóti kvölds-
ins án þess að vera í hefðbundnu
hnakkasamfélagi kirkjuhússins.
Í Tónsmíðafélagi Vestmannaeyja
eru um tólf tónlistarmenn og söngv-
arar en prestur er sr. Kristján
Björnsson. Kaffihúsið verður opnað
kl. 20 en tónlistin hefst 20.30.
Eyrbekkingar og
Stokkseyringar
messa í Hafnar-
fjarðarkirkju
VON er á heimsókn kirkjufólks frá
Eyrarbakka og Stokkseyri nk.
sunnudag sem mun taka þátt í
messu í Hafnarfjarðarkirkju kl. 11.
Sr. Úlfar Guðmundsson, prófastur,
mun prédika og þjóna fyrir altari
ásamt sóknarpresti, sr. Gunnþóri Þ.
Ingasyni og kirkjukór Eyrarbakka-
og Stokkseyrarkirkna syngja ásamt
Kór Hafnarfjarðarkirkju undir
stjórn organista sinna.
Ánægjulegt væri að sem flestir
kæmu þá í kirkju og einkum þeir
sem tengjast Stokkseyri og Eyr-
arbakka. Eftir messuna mun að-
komufólkið skoða sig um í Hafn-
arfirði og líta við í kirkjum og
söfnum.
Tónlistarmessa fer svo fram kl.
17, sem sr. Kristín Tómasdóttir hér-
aðsprestur mun annast.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Tólf sporin –
Andlegt ferðalag
FJÓRÐI og síðasti kynningarfundur
á námskeiðinu, Tólf sporin – And-
legt ferðalag verður nk. miðvikudag
kl. 20 í Hjallakirkju í Kópavogi.
Námskeiðið miðar að því að hjálpa
fólki að auka lífsgæði sín með
kristna trú að leiðarljósi.
Námskeiðið verður á mið-
vikudögum á sama tíma í vetur.Allir
hjartanlega velkomnir.
Tómasarmessa í
Breiðholtskirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Breiðholtskirkja.
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk
mánudagskvöld kl. 20.
Háteigskirkja. Félagsvist fyrir eldri borgara
í Setrinu á neðri hæð safnaðarheimilis
mánudag kl. 13. TTT-klúbburinn kl. 17. Lif-
andi og fjöbreytt starf fyrir börn úr 4.-6.
bekk í umsjón Andra, Gunnfríðar, Guðrúnar
Þóru og Jóhönnu. Öll börn velkomin og allt-
af hægt að bætast í hópinn.
Laugarneskirkja. Morgunbænir mánudag
kl. 6.45-7.05. 12 spora fundur mánudag
kl. 20. Umsjón Margrét Scheving, sál-
gæsluþjónn safnaðarins. (Sjá síðu 650 í
Textavarpi).
Neskirkja. 6 ára starf mánudag kl. 14. Öll
börn í 1. bekk velkomin. 10-12 ára TTT-
starf mánudag kl. 16.30. Öll börn í 4.-5.
bekk velkomin. Litli Kórinn, kór eldri borg-
ara, þriðjudag kl. 16.30. Stjórnandi Inga J.
Backman. Nýir félagar velkomnir.
Árbæjarkirkja. Mánudagur: TTT-klúbburinn
frá kl. 17-18.
Fella- og Hólakirkja. Fjölskyldumorgnar
mánudag kl. 10-12 í umsjón Lilju djákna.
Léttar hreyfingar, kaffi/djús og spjall/bæn-
ir. Mánudagur: Starf fyrir 11-12 ára stúlkur
kl. 17-18. Starf fyrir 9-10 ára drengi kl. 17-
18. Unglingastarf á mánudagskvöldum kl.
20.30.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið
er við bænarefnum alla virka daga frá kl. 9-
17 í síma 587-9070. Mánudagur: KFUK fyr-
ir stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
Hjallakirkja. Mánudagur: Æskulýðsfundur
fyrir unglinga 13-15 ára kl. 20.30.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK fundur fyrir
stelpur á aldrinum 9-12 ára kl. 17.15 í kirkj-
unni. Fjölbreytt fundarefni. Allar stelpur vel-
komnar.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt kristilegt starf fyr-
ir 9-12 ára drengi í Kirkjuhvoli á mánudög-
um kl. 17.30 í umsjón KFUM.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagskvöld kl.
20-22 eldri félagar.
Lágafellskirkja. Mánudagur: Fjölskyldu-
samvera fyrir foreldra og börn þeirra frá kl.
13.30-15.30 í safnaðarheimilinu, Þverholti
3, 3. hæð. Al-Anon fundur í kirkjunni kl. 21.
Hvammstangakirkja. KFUM&K starf kirkj-
unnar í Hrakhólum mánudag kl. 17.30.
Krossinn. Almenn samkoma að Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Mánudag-
ur: Kl. 16.45 æskulýðsstarf fatlaðra, yngri
hópur. Hulda Líney, Helga og Ingveldur
leiða helga bæn og fjöruga leiki. Kl. 20
fundur í kvenfélagi Landakirkju.
Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 16.30, lof-
gjörðarhópur Fíladelfíu leiðir söng. Ræðu-
maður Hafliði Kristinsson. Miriam Óskars-
dóttir syngur einsöng.
Vegurinn. Fjölskyldusamkoma kl. 11. Létt-
ur hádegisverður að henni lokinni. Bæna-
stund kl. 19.30. Samkoma kl. 20. Bene-
dikt Jóhannsson prédikar, lofgjörð og
fyrirbænir. Allir hjartanlega velkomnir.
Keflavíkurkirkja. Samvera með fermingar-
börnum og foreldrum þeirra kl. 20. Systk-
inin Sigurður Bjarni Gíslason og Þóra Gísla-
dóttir aðstoða. Stutt kynning á
fermingarstörfunum fyrir foreldra ferming-
arbarna.
Safnaðarstarf
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Stapahrauni 5, Hafnarfirði, sími 565 5892
www.utfararstofa.is
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður, í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
Allan sólarhringinn — www.utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Gestabók
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Bryndís
Valbjarnardóttir
útfararstjóri
Legsteinar
Vönduð íslensk framleiðsla
Fáið sendan myndalista
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík
sími: 587 1960, fax: 587 1986
MOSAIK
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít