Morgunblaðið - 28.10.2001, Síða 42
FRÉTTIR
42 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Mjög góð og rúmgóð 3ja herb. ca. 97 fm íbúð á 3. hæð, ásamt
aukaherbergi í kjallara í góðu nýviðgerðu húsi. Stutt er í skóla og
helstu þjónustu. Áhv. ca. 5 millj., verð aðeins 10,9 millj.
Guðrún og Magnús taka á móti ykkur milli kl. 13 og 17 í dag.
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446.
ÁSBYRGI
OPIÐ HÚS Í DAG
MILLI KL. 13 OG 17
AÐ HRAUNBÆ 74
Verðum frá kl 14.00 til 16.00 í dag með sölusýningu í Breiðuvík 75. Um
er að ræða ca 230 fm einbýlishús, þar af ca 45 fm bílskúr. Húsið er til
afhendingar nú þegar. Húsið afhendist fullfrágengið að utan, pússað á
hefðbundinn hátt en ómálað. Þakkantur og gluggar málaðir. Að innan
skilast húsið í fokheldu ástandi. Sölumenn Ásbyrgis verða á staðnum.
SÖLUSÝNING Í DAG.
BREIÐAVÍK 75 EINBÝLISHÚS
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446.
ÁSBYRGI
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Mjög fallegt og vandað 221 fm einlyft einbýlishús með innb. bílskúr á
þessum eftirsótta stað í Skerjafirði. Eignin skiptist í forstofu, sjónvarps-
hol, stórar samliggjandi borð- og setustofu, auk arinnstofu, eldhúss,
þvottaherb., 4 svefnherb. og flísalagðs baðherbergis. Mjög vandaðar
innréttingar og gólfefni úr gegnheilu mahóní. Franskir gluggar í öllu hús-
inu. 640 fm falleg ræktuð lóð með hellulagðri verönd. Eign í sérflokki.
SKILDINGANES
KRINGLUNNI 4-12, s. 800 6000
NAUSTABRYGGJA 26 - BRYGGJUHVERFI
TILBÚIN TIL AFHENDINGAR!
Í sölu stórglæsileg 170 fm penthouse-íbúð, endaíbúð, á 3. hæð. Hátt er
til lofts og vítt til veggja og setja fallegir gluggar svip sinn á íbúðina. 3-4
svefnherb. og stórar stofur. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Suður-
svalir. Útsýni til allra átta. Verð 22,9 millj. Áhv. 10,6 millj. MYNDIR Á
NETINU! ÞESSARI MÁ FAGURKERI EKKI MISSA AF!
OPIÐ HÚS Í DAG, frá kl 15-17
PENTHOUSE-ÍBÚÐ
Á FRÁBÆRUM STAÐ Í HJARTA
HVERAGERÐISBÆJAR
Erum með í einkasölu raðhús við Réttarheiði 2-12. Um er að ræða
1 hæðar hús, sem er 3 herbergi ásamt innbyggðum bílskúr, samtals um
122 m2. Húsin eru í byggingu og verða til afhendingar í febrúar og mars
2002. Verða þau fullbúin að utan og einangruð að innan og lóð
grófjöfnuð. Einnig er hægt að fá húsin fullbúin. Stutt er í alla þjónustu og
aðeins 25 mín. akstur til Reykjavíkur. Teikningar og nánari upplýsingar á
skrifstofu H-gæði. Húsunum fylgja garðhúsgögn og heitur pottur.
Verð
1. Verð miðað við framanskráða lýsingu kr. 8,9 milljónir
Greiðslur
1. Greitt með húsbréfum kr. 6,5 milljónir
2. Lán frá verktaka kr. 1,0 milljón
3. Greitt við kaupsamning, lagt á bankabók merkta kaupanda þar
til húsið er afhent kr. 0,7 milljónir
4. Lokagreiðsla við afhendingu kr. 0,7 milljónir
Nánari upplýsingar gefur Sæmundur í síma 898-2817
Raðhús á ótrúlegu verði
Suðurlandsbraut 16.
Sími 588 8787
Fax 588 8780
Þuríður Halldórsdóttir, hdl., lögg. fasteigna- og skipasali. Aðalsteinn Torfason, sölustjóri.
Þórður Kr. Guðmundsson, sölustjóri, Reykjanesi, sími 893 0007.
Símar 551 7270 og 893 3985 - Fasteignavefur www. hreidrid.is
Hverfisgötu 105,
101 Reykjavík
Glæsilega staðsettur þjónustu-
kjarni fyrir ferðamenn við þjóðveg
101. Veitingarekstur, gisting,
verslun o.fl. í einni fegurstu sveit
landsins rétt við góðar laxveiðiár.
Hentar vel fyrir tvær manneskjur.
Fasteignasalan Hreiðrið,
símar 551 7270 og 551 7282,
GSM 893 3985.
Ferðamannaþjónusta
FORMAÐUR Félags fasteignasala
og formaður Húseigendafélagsins
eru mjög ánægðir með frumvarp til
laga um fasteignakaup sem lagt hef-
ur verið fram í ríkisstjórn og telja af
því mikla réttarbót.
Guðrún Árnadóttir, formaður Fé-
lags fasteignasala, sagði að almenn
ánægja væri með að loksins skuli
hafa verið lagt fram frumvarp til laga
í þessum efnum, en það hafi verið
nauðsynlegt og löngu tímabært.
Guðrún sagði að félagið hefði feng-
ið drög að frumvarpinu til umsagnar
og laganefnd félagsins hefði farið yfir
það og komið fram með ábendingar.
Þá hefði Viðar Már Matthíasson, pró-
fessor, sem unnið hefði að gerð frum-
varpsins, komið á fund til að kynna
það og fólk hefði almennt verið mjög
sátt við það. Yrði frumvarpið að lög-
um myndi það eyða réttaróvissu og
auka neytendavernd og vera af því
mikið réttarbót. Þarna væru mörg
þörf ákvæði á ferðinni eins og til
dæmis að það ættu að liggja fyrir
ástandsskýrslur um fasteignir.
Frumvarpið myndi gera það að verk-
um að hlutirnir yrðu miklu skýrari en
áður og sú óvissa sem hefði verið
ríkjandi á þessu sviði yrði miklu
minni. Frumvarpið væri mikið fram-
faraskref og af því væri mikil bót fyr-
ir alla aðila.
Baráttumál
Húseigendafélagsins
Sigurður Helgi Guðjónsson, for-
maður Húseigendafélagsins, sagði að
Húseigendafélagið hefði barist fyrir
því árum saman að sett væri löggjöf á
þessu sviði. Frumvarpið hefði verið
unnið í nánu samráði við félagið og
hann hefði átt beina aðild að samn-
ingu þess.
Sigurður sagði að dómsmálaráð-
herra ætti heiður skilinn fyrir að hafa
tekið þetta mál upp á sína arma og
fylgt því eftir með þessum árangri.
Það hefði verið vel til fundið að fá
Viðar Má Matthíassson, prófessor, til
að semja frumvarpið, en hann hefði
verið nýbúinn að taka saman dóma í
fasteignakauparétti og skrifa bók um
þau efni. Viðar hefði tekið að sér
verkið og hann hefði unnið að þessu
með honum á síðari stigum verksins,
sem sérfræðingur á þessi sviði.
„Við erum himinlifandi. Það verð-
ur mikill dagur þegar frumvarpið lít-
ur dagsins ljós og við trúum því að
það eigi greiða leið í gegnum þingið,
enda hefur verið haft víðtækt samráð
við alla þá sem koma að þessum mál-
um við samningu þess, þannig að það
á ekki að tefja framgang málsins,“
sagði Sigurður ennfremur.
Hann sagðist hafa nokkra reynslu
af smíði frumvarpa, því hann hefði
samið húsaleigulög og fjöleignahúsa-
lög og hann gæti fullyrt að lagafrum-
vörp gerðust ekki vandaðri en þetta.
„Það er mjög brýnt að þetta mál
verði afgreitt nokkuð hratt vegna
þess að hingað til hafa menn verið að
lögjafna frá lausafjárkaupalögunum
frá 1920 og síðan hafa orðið til dóma-
fordæmi á grundvelli þeirra. Núna
eru komin ný lausafjárkaupalög og
þá er spurningin hvað gerist. Dæma
dómstólar áfram eftir lögjöfnun og
dómafordæmum frá gildistíð eldri
laganna eða verður farið að lögjafna
frá nýju lausafjárkaupalögunum?
Þarna er millibilsástand sem getur
orðið til vandræða,“ sagði Sigurður
að lokum.
Formenn Húseigendafélagsins og Félags fasteignasala
Mikil réttarbót að frum-
varpi um fasteignakaup
VIÐLAGATRYGGING Íslands
bætir ekki tjón á landi vegna land-
brots, enda borga landeigendur
ekki iðgjöld af því til Viðlagatrygg-
ingar. Þetta á við um ræktað sem
óræktað land.
Múlakvísl hefur að undanförnu
brotið stórar landspildur úr landi
Jóhannesar Kristjánssonar, bónda
á Höfðabrekku, en í viðtali við
Morgunblaðið á miðvikudag sagði
hann að ekkert hefði verið hlustað
á kröfur hans um að fá landið
bætt.
Í Morgunblaðinu í gær er haft
eftir Sveini Runólfssyni land-
græðslustjóra að landeigendur
ættu almennt ekki rétt á bótum frá
Landgræðslunni eða Vegagerðinni
vegna landbrots. Það væri frekar
mál Viðlagatryggingar ef um stór-
tjón á ræktuðu landi væri að ræða.
Ásgeir Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Viðlagatryggingar,
segir að ræktað land hafi verið
tryggt hjá stofnuninni þar til árið
1993 þegar lögum um Viðlaga-
tryggingu var breytt. Landið var
þó aðeins tryggt ef um skemmdir
var að ræða af völdum náttúru-
hamfara, s.s. eldgosa, skriðufalla
eða vatnsflóða. Tjón vegna lands-
brots var ekki bótaskylt.
Spurður um ástæður fyrir því að
hætt var að tryggja ræktað land
segir hann að þær hafi einkum ver-
ið þær að reynst hafi óframkvæm-
anlegt að innheimta iðgjöld af
ræktuðu landi. Tryggingafjárhæðir
hafi t.d. verið það lágar að kostn-
aður við innheimtu hefði orðið
hærri en iðgjöldin sjálf.
Viðlagatrygging bætir
ekki tjón vegna landbrotsKVEN-
SÍÐBUXUR
3 SKÁLMALENGDIR
Bláu húsin við Fákafen.
Sími 553 0100.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga 10-16.