Morgunblaðið - 28.10.2001, Síða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 43
Sími 530 4500
Vorum að fá þessa glæsieign í sölu, en húsið, sem er í hjarta
borgarinnar, skiptist í dag í 3 glæsilegar íbúðir á efri hæðum og
skrifstofuhúsnæði á jarðhæð sem er í tryggri útleigu. Húsið er samtals
um 600 fm að stærð og er á 3 hæðum. Gerð hafa verið drög að
breytingu þar sem 4 íbúðinni er komið fyrir með litlum tilkostnaði.
Eign sem býður upp á marga möguleika, t.d. undir gistiheimili.
Verð 55 millj.
Glæsieign í hjarta borgarinnar
Allar nánari upplýsingar veitir Björn í síma 561 1069.
Verðum frá kl 14.00 til 16.00 í
dag með sölusýningu á
húseigninni Heiðarhjalla 45
sem eru tvær sérhæðir.
5 herbergja 150 fm efri
sérhæð auk 26 fm bílskúrs
og 3ja herb. 118 fm neðri
sérhæð. Afhendist
fullfrágengið og málað að
utan. Tilbúið undir tréverk og
málningu að innan. Lóðin
verður fullfrágengin. Til afhendingar strax. Sölumenn Ásbyrgis
verða á staðnum.
SÖLUSÝNING Í DAG.
HEIÐARHJALLI 45 KÓP. - GLÆSILEGT TVÍBÝLISHÚS.
Suðurlandsbraut 54,
við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446.
ÁSBYRGI
EINBÝLI
Viðarrimi - vandað.
Einlyft 183 fm einbýlishús með inn-
byggðum 39 fm bílskúr. Húsið skiptist
m.a. í fjögur herbergi, stofur, tvö
baðherbergi ,þvottahús, eldhús o.fl.
Skipti á minni eign (helst í sama hverfi)
koma til greina. V. 20,5 m. 1232
RAÐHÚS OG PARHÚS
Ránargata.
Höfum í einkasölu eftirsótt um 250 fm
steypt steinhús á þessum frábæra stað.
Eignin skiptist í kjallara með þremur
herbergjum. Gengið er úr kjallara út í
garð. Þriggja fasa rafmagn. Fyrsta hæð
er með þremur björtum herbergjum,
gangi, fatahengi og snyrtingu. Á efri hæð
er stofa, borðstofa, stórt og gott eldhús,
gangur og stórt og gott baðherbergi.
Risið er með þremur herbergjum, tvö
þeirra eru með kvistgluggum. Stigapallur
er einnig á rishæð. Garður til suðurs.
Góðar geymslur. Húsið er nú nýtt sem
parhús en samkvæmt teikningu mætti
breyta því í þrjár samþykktar íbúðir. Hús
með mikla möguleika. V. 23,0 m. 1780
4RA-6 HERB.
Drápuhlíð - endurnýjuð.
5 herbergja efri sérhæð sem skiptist
m.a. í 3 herbergi og tvær samliggjandi
stofur. Íbúðin hefur töluvert verið endur-
nýjuð m.a. gluggar að mestu, raflagnir,
baðherbergi, gólfefni o.fl. Ákv. sala. V.
13,9 m. 1922
Hjarðarhagi - 1. hæð.
Vorum að fá í einkasölu rúmgóða og
bjarta u.þ.b. 120 fm íbúð á 1. hæð í
góðu fjölbýli (kennarablokkin). Fjögur-
svefnherbergi. Vestursvalir. Hús og sam-
eign í góðu ástandi. V. 14,3 m.1641
Mjóstræti
Rúmgóð 118,6 fm 5 herbergja íbúð á 3.
hæð í steinhúsi í Grjótaþorpi. Eignin
skiptist m.a. í hol, tvær stofur, eldhús,
baðherbergi og þrjú herbergi. Eignin hef-
ur verið mikið endurnýjuð s.s. þak,
skolp, rafmagn og vatnslagnir. Nýleg
eldhúsinnrétting og góð lofthæð í íbúð-
inni. V. 15,0 m. 1875
Álftamýri m. bílskúr - laus
4ra-5 herb. mjög góð og endurnýjuð íb.
á 3. h. ásamt bílskúr. Nýl. gólfefni, nýtt
flísal. baðherb., standsett eldhús. Sérbúr
innaf eldh. Laus strax. V. 12,9 m. 2667
2JA OG 3JA HERB.
Kirkjusandur m/bílskýli
Glæsileg 90 fm íbúð á jarðhæð í þessu
eftirsótta húsi. Íbúðin er búin vönduðum
innréttingum, parket og flísar á gólfum.
Innangengt í bílskýlið. Húsvörður. V.
13,5 m. 1894
Sigtún - góð staðsetning.
3ja herb. um 85 fm íbúð á jarðhæð.
Íbúðin skiptist í gang, baðherbergi, eld-
hús, svefnherbergi og tvær samliggjandi
stofur m. frönskum gluggum. Ákv. sala.
V. 9,7 m. 1476
Langholtsvegur - allt sér.
3ja herb. 83 fm falleg íbúð á jarðhæð m.
sérinng., sérþvottah. o.fl. Fallegur garð-
ur, m.a. ný hellul. upphituð og upplýst
gangsett o.fl. Góð eign. V. 9,8 m. 1859
Starhagi - frábær staðsetn-
ing
3ja herb. 77 fm falleg og björt kj.íbúð á
einum besta stað við Starhaga. Parket á
gólfum. Sérinng. Laus fljótlega. Verð til-
boð. 1887
Gullengi - rúmgóð m. bílskúr
Vorum að fá í sölu rúmgóða u.þ.b. 70 fm
íbúð á jarðhæð í litlu og fallegu fjölbýli.
Íbúðinni fylgir góður 24 fm bílskúr. Park-
et og góðar innréttingar. Íbúðin er laus.
V.10,3 m. 1889
ELDRI BORGARAR
Björt og rúmgóð 3ja herb. íbúð á á
4. hæð í lyftuhúsi með fallegu út-
sýni. Góð stofa. Tvö svefnherb.
Parket. Góðar innréttingar. Þvotta-
hús í íbúð. Stærð 89,4 fm. Laus
strax. Verð 16,5 millj. Mötuneyti og
þjónusta á staðnum. 1695
Stella býður ykkur velkomin milli
kl. 14 - 16 í dag. Íbúð merkt 8042
OPIÐ HÚS
í dag frá kl. 14-16 að Árskógum 4, Reykjavík
Efri hæð
Góð 4 efri sérhæð í fjórbýli með
sérinngangi og innb. bílskúr,
vesturendi. 3 rúmgóð svefnher-
bergi. Tvö baðherbergi, annað inn-
af hjónaherb. Björt og góð stofa.
Parket og flísar. Þvottahús í íbúð. Tvennar svalir. Frábært útsýni. Verð
18,9 millj. 1682. Þórdís býður ykkur velkomin frá kl. kl. 14-18 í dag.
OPIÐ HÚS
í dag frá kl. 14-18 að Blásölum 7, Kópavogi
4. hæð í lyftuhúsi.
Bjalla 442
Mjög góð og fallega innréttuð 3ja
herbergja íbúð á 4. hæð (efstu) í
lyftuhúsi. Góðar innr. Rúmgóð
svefnherbergi. Parket. Suðursvalir.
Verð 14,9 millj. Frábær staðsetn-
ing. Fallegt útsýni yfir borgina. Mjög falleg sameign. 1689
Guðbjörg og Einar Bjóða ykkur velkomin frá kl. 15-17 í dag.
OPIÐ HÚS
í dag frá kl. 15-17 að Bláhömrum 7, Reykjavík
Til leigu
Vorum að fá gott 130 m² verslunarhúsnæði nálægt miðbæ
Reykjavíkur. Húsnæðið skiptist í sýningarsal, skrifstofu, starfs-
mannaaðst., lager og kjallara. Hentar vel undir sérverslun, hvers
kyns þjónustu o.fl. Gott húsnæði á góðum stað. Sanngjörn leiga.
Sími
511-2900
Grafarvogur - Breiðavík
Glæsil. útsýnisíb. í lyftuh. m. innb.
bílsk. Rúmgóð, nýleg og afar
glæsil. innréttuð 113 fm íb. á 5.
hæð í nýl. lyftuh., örskammt frá
golfvellinum við Korpu. Vandaðar
sérsm. innr. Merbau- parket.
Þvottahús í íb. Góðar vestursvalir,
stórbrotið útsýni o.fl. Innb. bílsk. m.
inngang í sameign. V. 16,4 m. 5532
Rauðhamrar 8 - bílskúr - opið hús
Opið á Valhöll í dag
frá kl. 11-13
Glæsileg 110 fm fimm herb. íb. á 3ju
hæð (önnur hæð frá götu) í fallegu
litlu fjölbýli m. glæsil. útsýni yfir borg-
ina. 4 svefnherb. Fallegt eldhús og
bað. Stórar suðvestursvalir. Mjög
gott skipul. Hægt að stækka stofu og
taka niður eitt herb. Góður bílskúr.
Áhv. Byggsj. rík 5,8 milj. (ekkert
greiðslumat). Hægt að taka húsbréf í viðbót. Sigurður og Jórunn
verða með opið hús í dag, sunnudag, á milli kl. 14 og 17. Allir vel-
komnir. Verð 14,8 m.
www.valholl.is - Opið virka daga
frá kl. 9 - 17.30 og sunnud. frá kl. 11 - 13
TRYGGINGAFÉLAG útgerðar
flutningaskipsins Vikartinds m/s
sem strandaði á Háfsfjöru í Rang-
árvallasýslu árið 1997 hefur verið
sýknað af kröfu um að greiða ís-
lenska ríkinu 10,7 milljónir vegna
kostnaðar sem hlaust af strandi
skipsins.
Kostnaðurinn fellur því á ríkissjóð
sem auk þess var gert að greiða
700.000 krónur í málskostnað.
Skipið strandaði 5. mars 1997 og
lagðist því sem næst á hliðina í Háfs-
fjöru. Fjölmargir gámar féllu af
skipinu og þurfti m.a. að banna um-
ferð um Þykkvabæjar- og Háfs-
fjörur á meðan björgunarsveitir
söfnuðu saman hættulegum efnum.
Þá fauk brak af strandstað langt upp
í land. Losun skipsins hófst um miðj-
an apríl 1997 og var farmurinn flutt-
ur í vörugeymslu Eimskips í Sunda-
höfn en félagið hafði haft Vikartind á
leigu.
Greitt fyrir geymslu
Tryggingafélagið undirritaði yfir-
lýsingu þar sem félagið ábyrgðist að
eigandi Vikartinds myndi greiða
sýslumanninum í Rangárvallasýslu
kostnað sem embættið yrði fyrir
vegna strandsins. Tilgreint var að
ábyrgðin myndi falla úr gildi eigi síð-
ar en 9. apríl 1999.
Sýslumaður þurfti að greiða 10,7
milljónir vegna geymslu á farmi úr
Vikartindi, tollafgreiðslu, könnun á
farmi og förgunar á sorpi og spilli-
efnum. Reikningarnir vegna þessa
voru hins vegar ekki greiddir fyrr en
í apríl árið 2000. Héraðsdómur
Reykjavíkur komst því að þeirri nið-
urstöðu að ábyrgðartryggingin hafi
verið fallin úr gildi.
Sigurður Hallur Stefánsson hér-
aðsdómari kvað upp dóminn.
Vikartindur
Ríkið tapar
máli gegn
trygginga-
félagi
ÚTTEKT á stjórnsýslu sveitarfé-
laga samkvæmt svokölluðu Bertels-
manns-prófi hefur vakið áhuga sveit-
arfélaga hér á landi eftir að
Reykjanesbær tók nýverið þátt í
slíkri athugun ásamt vinabæjum
sveitarfélagins á Norðurlöndum. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir önnur sveitarfélög ekki hafa
farið í slík próf, nema hvað Reykja-
víkurborg hafi byggt á þessum kenn-
ingum í sambandi við stjórnsýsluum-
fjallanir og sé aðili að þessari
stofnun. Borgin hefur hins vegar
ekki farið út í samanburð við önnur
sveitarfélög.
Að sögn Vilhjálms hafa mörg
sveitarfélög verið að endurskoða
stjórnsýslu sína á síðustu árum, ekki
síst í ljósi nýrra stjórnsýslu- og upp-
lýsingalaga sem leitt hafi til rót-
tækra breytingar hjá mörgum sveit-
arfélögum í þessum efnum.
Vilhjálmur segir prófið hafa vakið
athygli meðal sveitarstjórnarmanna
og segist ekki telja ólíklegt að í fram-
haldi af úttekt Reykjanesbæjar
muni mörg sveitarfélög kynna sér þá
vinnu sem Reykjanesbær hafi farið í.
Ekki síst með tilliti til þess að þarna
sé um ákveðin samanburðarfræði að
ræða við önnur sveitarfélög á Norð-
urlöndum.
Formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga
Úttekt
Reykjanes-
bæjar vek-
ur áhuga
♦ ♦ ♦