Morgunblaðið - 28.10.2001, Side 50
DAGBÓK
50 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Trinket kemur í dag.
Flinterdam kemur á
morgun, Júpiter fer á
morgun.
Hafnarfjarðarhöfn:
Flinterdam kemur í
dag, Selfoss kemur á
morgun.
Mannamót
Aflagrandi 40. Á morg-
un kl. 9 leikfimi og
vinnustofa, kl. 10 boccia,
kl 13, bað og vinnustofa,
kl 14 félagsvist.
Árskógar 4. Á morgun
kl. 9 opin handa-
vinnustofan, kl. 10.15
leikfimi, kl. 11 boccia, kl.
13.30–16.30 opin smíða-
stofan/útskurður, kl.
13.30 félagsvist, kl. 10
púttvöllurinn opinn, kl.
16 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Á
morgun kl. 9–16 handa-
vinna,kl. 9–12 búta-
saumur, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 10 samveru-
stund, kl. 13.30–14.30
söngur við píanóið,kl.
13–16 bútasaumur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 á mánud.
kl. 20.30. Fótaaðgerða-
stofan opin frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára 9
er opin á morgun kl.
16.30–18, s. 554 1226.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Á morgun
kl. 8 böðun, kl. 9 fótaað-
gerð og myndlist, kl.
9.30 hjúkrunarfræð-
ingur á staðnum, kl. 10
verslunin opin, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, framhald. Haust-
basarinn verður laug-
ardaginn 3. og sunnu-
daginn 4. nóvember.
Tekið við basarmunum
frá mánudeginum 29.
október til vikuloka.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Á
morgun kl. 9 böðun og
hárgreiðslustofan opin.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Á morgun verður fé-
lagsvist kl. 13.30. Á
þriðjudag verður púttað
í Bæjarútgerðinni kl. 10.
Tréútskurður í Lækjar-
skóla kl. 13. Saumar og
brids í Hraunseli kl.
13.30.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Á morgun kl.
9–16.30 opin vinnustofa,
handavinna og föndur,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
14 félagsvist. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–16
blöðin og kaffi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Sunnudagur:
Félagsvist kl. 13.30 fjög-
urra daga keppni annan
hvern sunnudag. Dans-
leikur kl. 20, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi.
Mánudagur: Brids kl.
13. Danskennsla, fram-
hald kl. 19 og byrjendur
kl. 20.30. Þriðjudagur:
Skák kl. 13 og alkort kl.
13.30. Miðvikudagur:
Göngu-Hrólfar fara í
göngu frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 10.
Félagsmiðstöðin, Furu-
gerði 1. Sprautað verður
gegn inflúensu þriðju-
daginn 30. október kl.
13. Árleg skemmtun
Bandalags kvenna verð-
ur fimmtudaginn 1. nóv-
ember kl. 20. Söngur,
grín og gaman. Upplýs-
ingar í síma 553-6040.
Gerðuberg, félagsstarf.
Í dag kl. 13–15 mynd-
listarsýning Valgarðs
Jörgensen, listamað-
urinn verður á staðnum.
Veitingar í veitingbúð. Á
morgun 9–16.30 vinnu-
stofur opnar frá hádegi
spilasalur opinn, kl. 14
kóræfing, kl. 15.30 dans.
Fimmtudaginn 1. nóv-
ember kl. 13.15 fé-
lagsvist í samstarfi við
Fellaskóla, stjórnandi
Eiríkur Sigfússon. Allir
velkomnir.
Gjábakki, Fannborg 8.
Á morgun handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum frá
kl. 9, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, kl 13
lomber, kl. 13.30 skák,
kl. 20 skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Á morgun vefnaður
kl. 9, leikfimi kl. 9.05,
brids kl. 13, kl. 11
myndmennt, kl. 12
myndlist, félagsvist kl.
20.30.
Hraunbær 105. Á morg-
un kl. 9 perlusaumur,
postulínsmálun og
kortagerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13 hár-
greiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og föndur, kl. 10
boccia, kl. 13 frjáls spila-
mennska. Fótsnyrting.
Norðurbrún 1. Á morg-
un kl. 10 ganga, kl. 9
fótaaðgerð, kl.12 bóka-
safn.
Vesturgata 7. Á morgun
kl. 9–16 fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 10
boccia, kl.12.15 dans-
kennsla, kl. 13 kóræfing.
Helgistund verður
fimmtudaginn 1, nóv-
ember kl. 10.30 í umsjón
séra Jakobs Ágústs
Hjálmarssonar dóm-
kirkjuprests
Vitatorg. Á morgun kl.
9 smíði og hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og sund, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla, leikfimi og spil-
að.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús á þriðjudag kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fleira.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 alla mánu-
daga og fimmtudaga.
Skráning kl. 12,45. Spil
hefst kl. 13. Bridsdeild
FEBK í Gullsmára.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁÁ, Síðumúla
3–5 og í Kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigs-
veg á laugardögum kl.
10.30.
Háteigskirkja, eldri
borgarar, mánudaga fé-
lagsvist kl. 13–15, kaffi.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12,
Reykjavík. Stuðst er við
12 spora kerfi AA-
samtakanna.
Kvenfélag Kópavogs
vinnukvöld vegna bas-
ars mánudag kl. 20, að
Hamraborg 10.
Slysavarnadeild kvenna
í Reykjavík fundur verð-
ur haldinn fimmtudag-
inn 1. nóv. kl. 20 í Sæ-
björgu, Grandagarði hjá
Slysavarnahúsinu. Kaffi
og skemmtiatriði.
Öldungaráð Hauka.
Fundur verður miðviku-
daginn 31. okt. kl. 20 í
Félagsheimilinu á Ás-
völlum.
Hana-nú, Kópavogi.
Byrjað verður að skrá
þátttakendur og selja
miða á galakvöldið eftir
hádegi á morgun, mánu-
dag, sem verður laug-
ardaginn 3. nóvember
kl. 20 í Gjábakka. Húsið
opnað kl.19.30. Dagskrá:
Hátíðarræða heið-
ursgests; Sigríður
Hannesdóttir leikkona
skemmtir við píanóund-
irleik Sigurðar Jóns-
sonar; Helga Þórarins-
dóttir lágfiðluleikari
leikur einleik á lágfiðlu;
Arngrímur, Ingibjörg
og Pétur sjá um að
dansinn duni að loknum
þríréttuðum hátíð-
arkvöldverði.
Allar upplýsingar í Gjá-
bakka, s. 554-3400 og
Gullsmára, s. 564-5261.
Kvenfélag Hreyfils.
Vetrarstarfið hafið,
fyrsti fundur verður
miðvikudaginn 31 okt.
kl. 20. Ath. breyttan
fundardag.
Minningarkort
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Minningakort Áskirkju
eru seld á eftirtöldum
stöðum: Kirkjuhúsinu
Laugavegi 31, þjónustu-
íbúðum aldraðra við
Dalbraut, Norðurbrún
1, Apótekinu Glæsibæ
og Áskirkju, Vesturbrún
30, sími 588-8870.
KFUM og KFUK og
Samband íslenskra
kristniboða. Minning-
arkort félaganna eru af-
greidd á skrifstofunni,
Holtavegi 28, í s. 588
8899 milli kl. 10 og 17
alla virka daga. Gíró- og
kreditkortaþjónusta.
Bergmál, líknar og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikum fyrir krabba-
meinssjúka og langveika
fást í síma 587-5566, alla
daga fyrir hádegi.
Í dag er sunnudagur 28. október,
301. dagur ársins 2001. Tveggja-
postulamessa. Orð dagsins: Deiglan
er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyr-
ir gullið, en Drottinn prófar hjörtun.
(Orðskv. 17, 3.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 ágengt, 4 snauð, 7
slægjulandið, 8 þröngvað
til, 9 elska, 11 anga, 13
karlfugl, 14 gösla í vatni,
15 gauragangur, 17 ófög-
ur, 20 fjallsbrún, 22 sela-
hópur, 23 stirðleiki, 24
grassverði, 25 hreinan.
LÓÐRÉTT:
1 frosin jörð, 2 klaufdýr-
um, 3 nöldra, 4 snjór, 5
sloka í sig, 6 rándýri, 10
ekki gömul, 12 ílát, 13
mann, 15 helmingur, 16
fuglar, 18 húðpoki, 19
ljósfærið, 20 á jakka, 21
syrgi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1skapnaður, 8 mítur, 9 dotta, 10 rýr, 11 nurla, 13
áfram, 15 friðs,18 samur, 21 tóm, 22 leifi, 23 eflum, 24
andkaldur.
Lóðrétt: 2 kýtir, 3 púrra, 4 andrá, 5 urtur, 6 smán, 7
garm, 12 lið, 14 fúa, 15 fólk, 16 iðinn, 17 stilk, 18 smell,
19 muldu, 20 rúmt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Myndir vantar
í útgerðarsögu
Kljástrandar
UNDANFARIN ár hefur
Björn Ingólfsson, skóla-
stjóri á Grenivík, unnið að
bók um útgerð í Grýtu-
bakkahreppi. Nú er farið að
sjást fyrir endann á þessu
verki og bókaútgáfan Hólar
á Akureyri mun gefa bók-
ina út á næsta ári. Útgerð-
arsaga Grýtubakkahrepps
er markverð fyrir margra
hluta sakir. Einn sérstæð-
asti og merkilegasti kafli
hennar gerðist á Kljáströnd
á tímabilinu 1890–1940. Að
henni stóðu afkomendur sr.
Gunnars Ólafssonar í
Höfða, stórhuga menn og
frumkvöðlar á sínu sviði.
Enn skortir myndir frá út-
gerðinni á Kljáströnd, af
bátum, húsum og fólki.
Nokkuð hefur Birni orðið
ágengt en ekki nóg. Svona
myndir geta verið á ólíkleg-
ustu stöðum og það er aldr-
ei að vita hvað kynni að
koma upp úr kafinu ef fólk
kannaði gömul myndaal-
búm. Fjölmargir bjuggu á
Kljáströnd og er næsta víst
að margar myndir hafa ver-
ið teknar á þessum slóðum
– myndir sem gætu prýtt
bókina og aukið á heimild-
argildi hennar. Þeir sem
telja sig geta aðstoðað höf-
undinn eru hvattir til að
hafa samband við hann í
síma 895 8131 eða senda
honum tölvupóst á netfang-
ið bjorni@ismennt.is.
Heimilisfang Björns er
Melgata 10, Grenivík.
Frábært – frábært
ÉG var staddur í Reykjavík
og var þá svo heppinn að
mér var boðið í leikhús í
Mosfellsbæ á leikritið
Brúðkaup Tony og Tinu,
sem leikfélag Mosfellssveit-
ar sýnir. Ég tók því fremur
fálega að fara í leikhús en
sló þó til.
Það er óhætt að segja að
ég varð ekki fyrir vonbrigð-
um, þetta var alveg ógleym-
anleg skemmtun.
Tekið var á móti manni í
kirkjunni sem einum af fjöl-
skyldu Tinu (aðrir voru í
fjölskyldu Tonys). Leikar-
arnir (fjölskyldumeðlimirn-
ir) komu inn hver á fætur
öðrum og heilsuðu gestun-
um eins og þeir væru búnir
að þekkja þá í mörg ár.
Margir spaugilegir hlutir
gerast í brúðkaupinu.
Að því loknu er öllum
boðið til veislu og eru ýms-
ar veitingar bornar fram á
meðan á sýningu stendur.
Áhorfendur eru með í leik-
ritinu allan tímann og eru
oft kallaðir til. Mikil gleði
var ríkjandi hjá leikurum
og eiga þeir allir þakkir
skilið fyrir frábært kvöld.
Stór hópur áhugaleikara
tekur á móti fólki og er
óhætt að mæla með þessu
verki.
Það er sama í hvernig
skapi fólk er þegar það fer
inn, ég næstum því lofa að
það fer brosandi út.
Það skal tekið fram að ég
hef engra hagsmuna að
gæta, þekki hvorki til leik-
félagsins né leikaranna.
Vil ég þakka Leikfélagi
Mosfellssveitar fyrir.
Guðmundur Bjarnason,
Reyðarfirði.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
ÞAÐ ER grátlegt að horfa
upp á þau landspjöll sem
ráðamenn í Reykjavík
standa fyrir þessar vik-
urnar í Geldinganesi. Á
einu fegursta bygging-
arsvæði borgarinnar, móti
suðri, er landið tætt í
sundur af risavöxnum
vinnuvélum og notað í
uppfyllingar. Þegar er bú-
ið að ryðja burtu 250.000
tonnum og stefnt að því að
skera burtu milljón tonn af
þessu fagra bygging-
arsvæði. Og hver er til-
gangurinn: Stórskipahöfn
sem á ekki að rísa fyrr en
eftir áratugi. Eyðilegg-
ingin á þessu svæði er
óbætanleg og óréttlæt-
anleg, rétt eins og þegar
Rauðhólarnir voru eyði-
lagðir – hafa menn ekkert
lært? En það þýðir ekki að
ræða þessi mál við borg-
aryfirvöld, þar er ætíð
komið að harðlæstum dyr-
um. Borgarstjórinn virðist
búa í rammgerðum turni
sem er ekki ætlaður öðr-
um en jábræðrum og
systrum. Og svo þykist
þetta fólk hafa mikinn
áhuga á náttúruvernd. Já,
og hvar eru Vinstrigrænir
núna? Skiptir Geld-
inganesið þá minna máli
en Eyjabakkar? Er nema
von að borgari í Reykjavík
spyrji: Nær umhyggja
þessa fólks fyrir nátt-
úrunni bara til óbyggð-
anna? Er það tilbúið að
eyða hér fögrum svæðum
við túnfót okkar Reykvík-
inga vegna þess að það
hefur tekið um það póli-
tíska ákvörðun sem kemur
hinum almenna Reykvík-
ingi ekki við? Hinn al-
menni Reykvíkingur skipt-
ir ekki lengur máli að því
er virðist. Hann getur bit-
ist um lóðir uppi við hita-
veitutanka þar sem vind-
urinn blæs flesta daga. En
Geldinganesinu blæðir út.
Borgari í Reykjavík.
Umhverfisslys í Geldinganesi
Víkverji skrifar...
ENN einu sinni er komið að því aðsvara þeirri samviskuspurningu
hvort setja eigi nagladekk undir bíl-
inn fyrir veturinn. Víkverji hallast að
því að nagladekkin séu nánast óþörf á
höfuðborgarsvæðinu. Önnur dekk,
t.d. svonefnd harðkornadekk, ættu að
geta komið í staðinn – en fyrst og
fremst er lykilatriði að ökumenn fari
varlega í umferðinni. Með því að
hætta notkun nagladekkja sparast
gríðarlegar upphæðir, vegna þess
hve dregur þá úr eyðingu malbiksins,
auk þess sem mengun verður vita-
skuld verulega minni.
x x x
EIGINKONU Víkverja barst ádögunum tölvubréf þar sem var
að finna leiðbeiningar um það hvernig
best væri að falla í kramið á „þotu-
stað“ bæjarins, eins og það var kallað.
Staðinn er best að kalla Bangsa –
og með tilheyrandi breytingum voru
skilaboðin meðal annars þessi:
„Klæðnaður skal vera sem hér seg-
ir: þröngar buxur með lágum streng
og helst svartar en alls ekki í áber-
andi litum. Við buxurnar skal klæðast
þröngum bol (litur er aukaatriði en þó
ekki skræpótt). Best er að bolurinn sé
mjög þröngur og að það sjáist vel í
brjóstaskoruna. Góður Vúnderhald-
ari er algjör nauðsyn. Kjólar og pils
eru mjög vinsæl líka en hafa skal í
huga að það er algjört skilyrði að
þetta sé allt níðþröngt og eins stutt
og rassaspik ræður við. Hlébarða-
mynstur spillir ekki.
Meikoppið er nokkuð frjálst en,
guð minn góður, ekki fara lítið máluð
því þá sjá allir hvað þú ert ljót.“
Síðan er bent á að tíu tvöfaldir
túrbótímar hjá ákveðinni sólbaðs-
stofu séu nauðsynlegir. Einnig er
mjög mikilvægt að hafa ljóst, slegið
hár niður á mitt bak. „Annað er bara
viðbjóður,“ segir í bréfinu.
„Ef þú ert svo óheppin að hafa það
ekki þá er betra að sýna meiri
brjóst.“
Svört handtaska er sögð nauðsyn-
leg, og allt sem er gervi: s.s. augnhár,
höfuðhár, neglur, augnlinsur og
brjóst.
Tekið er fram í ráðleggingunum að
mjög mikilvægt sé að vera ekki of
fullur þegar komið er að staðnum.
„Þegar gengið er í átt að Bangsa skal
gengið hratt, örugglega og ekki
heilsa neinum nema hann sé frægur.
Vanalega þegar komið er að staðnum
er komin röð sem nær til Reykjanes-
kjördæmis en þið verðið að muna að
það að standa í röð sæmir ekki sannri
Bangsapíu. Gott ráð er að standa fyr-
ir framan hurðina og þrýsta brjóst-
unum saman og reyna að ná athygli
dyranördsins.“
Þegar inn er komið er sagt mik-
ilvægt að láta líta út fyrir að maður
skemmti sér ekki sérstaklega vel, án
þess þó að vera í fýlu. „Ef þú sérð ein-
hvern sem þú þekkir og hann er ekki
frægur eða kúl þá má ekki undir nein-
um kringumstæðun tala við þá mann-
eskju. En aftur á móti ef manneskjan
er fræg þá er um að gera að tala sem
mest. Ef þú þekkir engan frægan
skaltu finna einhvern á barnum og
bara standa við hliðina á honum
þangað til fólk heldur að þið séuð
saman.“
Bréfið endar svo á þessum skila-
boðum: „Muna að þrýsta saman
brjóstunum reglulega. Stelpur skulu
alltaf fara 10–30 saman á klósettið og
það er mjög mikilvægt að standa fyrir
framan spegilinn í 5–10 mínútur og
laga eitthvað.“