Morgunblaðið - 28.10.2001, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 51
DAGBÓK
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert fær í flestan sjó
en mátt gæta þín á fljót-
færninni því hún kemur
þér oft í klípu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er ekki allt grænna í
garði grannans þótt þér
kunni að sýnast svo. Vertu
ánægður með þig og þína
hæfileika og njóttu þess sem
lífið er þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vinur sýnir þér mikið traust
með því að trúa þér fyrir sín-
um innstu leyndarmálum.
Þér er heiður að svo eins gott
að þú bregðist ekki traustinu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú verður að koma einhverju
skikki á líf þitt. Þessi ringul-
reið drepur allt í dróma og
þér verður ekkert úr verki.
Hristu af þér slenið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Frestaðu því ekki til morguns
sem þú getur gert í dag. Það
eru nokkur erindi sem þú hef-
ur dregið úr hömlu að svara.
Gakktu nú í það að klára
þetta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að setjast niður með
fjölskyldunni og fara í gegn-
um málin. Best er að allir viti
hvað um er að vera, því þá
geta allir lagst á eitt.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er eins og allt þurfi að
gerast í einu og þú átt í mesta
basli með að hafa yfirsýn yfir
hlutina. Reyndu að halda ró
þinni og brosa.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er betra að vera með á
nótunum þegar fjármálin eru
annars vegar. Það er nefni-
lega aldrei að vita hvenær
óvænt útgjöld banka upp á.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Reyndu að verða þér úti um
lausar stundir sem þú getur
notað til að endurnýja kraft-
ana. Þetta er allt bara spurn-
ing um rétta forgangsröðun.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þér er mikil þörf á einveru
þessa dagana og þú ættir að
tala út um málið við þína nán-
ustu. Þá verður enginn mis-
skilningur til að skemma fyr-
ir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hlustaðu á ráð vina þinna.
Þótt þau gagnist þér ekki er
ókurteist af þér að skella
skollaeyrum við öllu sem sagt
er. Sýndu tillitssemi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Til þín verður leitað með sér-
stök verkefni og þú ættir að
hafa svigrúm til þess að taka
þau að þér. En þá dugar líka
ekkert elsku mamma!
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Misstu ekki af tækifærum til
að bæta við þekkingu þína.
Þótt þú sjáir ekki í fljótu
bragði hvernig það gagnast
þér, þá er öll þekking af hinu
góða.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÞEGAR ég var í skóla fyr-
ir miðja síðustu öld,
kenndu íslenzkukennarar
okkur, að betra mál – og
raunar réttara mál, – ef
svo leyfist að nefna það nú
á dögum – væri að segja
sem svo: Þetta hefur get-
að átt sér stað árið 1930 í
stað þess að segja: Þetta
getur hafa átt sér stað ár-
ið 1930. Menn hljóta að
taka eftir þessum orða-
lagsmun. Ég var minntur
á þetta, þegar ég rakst á
eftirfarandi á tveimur
stöðum í Fréttablaðinu 5.
okt. sl. Þar var á öðrum
staðnum rætt um flug-
skeyti og komizt svo að
orði, að flaugarnar „hefðu
ekki nægilegt flugþol til
að geta hafa valdið slys-
inu“. Á hinum staðnum er
greint frá því, að menn í
fólksbíl hentu þungum
hlut í hliðarrúðu vörubíls.
Talað var um fólskuverk í
þessu sambandi, enda
„gæti vörubílstjórinn hafa
misst stjórn á bílnum sín-
um“. Hér er eðlilegra mál
að segja, að flaugarnar
hefðu ekki nægilegt flug-
þol til að hafa getað valdið
slysinu. Á seinni staðnum
hefði átt að tala um, að
vörubílstjórinn hefði get-
að misst stjórn á bílnum.
Hér er um að ræða svo-
nefnda núliðna og þáliðna
tíð af so. að geta. Hún tek-
ur svo með sér lh. þt. af
aðalsögninni, þ.e. valdið af
valda og misst af missa,
en ekki nafnhátt. Vissu-
lega er þetta hlutverka-
skipti sagnorðanna orðið
algengt í máli okkar og við
fyrir alllöngu fengið það
að láni frá Dönum. Þeir
munu segja sem svo: Han
kunne have gjort det. En
við snarað þessu á ís-
lenzku: Hann getur hafa
gert þetta. Ég hygg, að
þetta sé eina dæmið í máli
okkar, þar sem so. að geta
tekur með sér nafnhátt í
stað lýsingarháttar. Sjálf-
sagt er að benda lesend-
um á þennan mun.
J.A.J.
ORÐABÓKIN
Getur hafa
LJÓÐABROT
VIÐLÖG
Hirði eg aldrei,
hver mig kallar vóndan.
En heldur kyssi eg húsfreyjuna
en bóndann.
Sú er ástin heitust
sem bundin er meinum.
Er því bezt að unna ekki neinum.
Ljósmyndir Rut.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 30. júní sl. í Krist-
kirkju, Landakoti, af sr.
Jurgen Jamin Theodóra
Thorlacius og Valgeir Pét-
ursson.
Ljósmyndir Rut.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 5. maí sl. í Bústaða-
kirkju af sr. Pálma Matth-
íassyni Nadine Thorlacius
og Þorleifur Pétursson.
1. d4 d6 2. Bg5 g6 3. c4 Bg7
4. Rc3 c5 5. d5 b5 6. cxb5
a6 7. e4 Da5 8. Bd2 Rf6 9.
a4 axb5 10. Bxb5+ Rbd7
11. Rf3 O-O 12. O-O Ba6
13. h3 Bxb5 14. Rxb5 Db6
15. He1 e6 16. dxe6 fxe6 17.
Bc3 d5 18. exd5 exd5 19.
He7 d4 20. Db3+ Kh8 21.
Bd2 Dc6 22. Hae1 Rd5 23.
H7e6 Db7 24. Dc2 Ha6 25.
Rg5 Bf6 26. Rd6
Da7 27. De4 Bxg5
28. Bxg5 Da8
Staðan kom upp í
atskákkeppni Evr-
ópu og Asíu sem
lauk fyrir nokkru.
Mikhail Gurevich
(2633) hafði hvítt
gegn Ian Rogers
(2538). 29. Rf7+!
Kg7 29...Hxf7 gekk
ekki upp vegna 30.
He8+ 30. Hxa6! og
svartur gafst upp
enda fátt til varnar
eftir 30...Dxa6 31.
Bh6+ Kxf7 32. Dxd5+.
Umferð í minningarmóti
Jóhanns Þóris fer fram í
dag, 28. október, í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Áhorfendur
eru velkomnir.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Í breska Acol-kerfinu er lög-
málið um „skjóta afgreiðslu“
(fast arrival) í hávegum haft,
en kerfið er byggt upp á
þeirri meginhugsun að það
borgi sig að segja strax það
sem spilið þolir. Sjaldan hef-
ur greinarhöfundur séð jafn
skjóta afgreiðslu og í eftir-
farandi spili frá HM í París:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ KD10
♥ G107
♦ ÁK104
♣986
Vestur Austur
♠ – ♠ G82
♥ D42 ♥ 98652
♦ DG873 ♦ 962
♣ÁD1052 ♣G7
Suður
♠ Á976543
♥ ÁK
♦ 5
♣K43
Í leik Indverja og Japana í
kvennaflokki tók það NS að-
eins einn sagnhring að kom-
ast í slemmu:
Vestur Norður Austur Suður
Hayashi Chothia Yamada Sicka
1 tígull Dobl Pass 6 spaðar!
Pass Pass Pass
Eftir opnunardobl norð-
urs er slemma líkleg frá
bæjardyrum suðurs, en ein-
hverjir hefðu kosið að fara
hægar í sakirnar og athuga
a.m.k. hvort vörnin ætti tvo
ása. En indverska konan
Sicka lét bara vaða í slemmu
og uppskar vel þegar vestur
kom út með laufás. Útspilið
var vissulega hjálplegt, en
sagnhafi fær líka tólf slagi
með hjarta út, því vestur
lendir í óverjandi kastþröng
þegar trompin eru tekin,
enda með vald á þremur lit-
um. Það þarf háan tígul út til
að hnekkja slemmunni, því
þá slitnar samgangurinn við
blindan.
Opnunardobl norðurs er
umdeilanlegt, en í viðureign
bandarísku og þýsku
kvennanna var líka doblað á
spil norðurs. Hins vegar fór
suður hægt í sakirnar með
slæmum árangri:
Vestur Norður Austur Suður
Auken Quinn Von Arnim Breed
1 tígull Dobl Pass 2 tíglar
Pass 2 spaðar ! Pass 4 grönd
Pass 5 spaðar Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Breed í suður krafði fyrst
með tveimur tíglum og
Quinn sá ekki aðra leið út úr
vandanum en melda spað-
ann á þrílit. Þar með var
norður orðinn sagnhafi í
slemmunni. Von Arnim hitti
ekki á laufgosann út, en hún
valdi tígul og það dugði
vörninni í tvo slagi.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Haldið þér því
ennþá fram að eitt-
hvað hafi verið að
steikinni yðar?
Herrann þarna er
að borða hana með
góðri list.
www.postlistinn.is
20% afsl
áttur
til 1. nóve
mber
sér
me
rkt
Nú kr. 1.560
Rétt verð kr. 1.950
Stærð 70 x 140 cm, margir litir.
sími 557-1960
handklæði
tilb
oð
Íslenski Póstlistinn
Akureyri
Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti og
tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið
2. nóvember og laugardaginn 3. nóvember
í safnaðarsal Glerákirkju.
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800 og hjá Halldóru Bergman,
sálfræðingi, í síma 847 1418.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Kjörin leið til sjálfsþroska og meiri meðvitundar um
andlegan veruleika.
4. nóv. - Reikimeistaranámskeið
Undirbúningur: Reiki 2 frá einhverjum reikimeistara.
Sem hluta af þessu námskeiði átt þú jafnframt kost á
að fylgjast með kennslu á námskeiði í Reiki 1 og 2.
10. og 11. nóvember
Reiki 1 og Reiki 2
Grunnurinn og þungamiðjan í reiki.
18. nóvember Karuna - Reiki 1 og 2
Yfirbygging á hefðbundið Usui reiki með táknum til
margvíslegra nota.
Einnig hér er nauðsynlegt að hafa lært Reiki 2 áður.
Reiki - Námskeið
Bergur
Björnsson,
reikimeistari,
sími 898 0277
halló
30-40%
afmælisafsláttur
alla næstu viku
af einstökum skóm
og öðrum vörum.
Þökkum góðar viðtökur.
1 árs afmæli
NÁMSAÐSTOÐ
við þá sem vilja ná lengra í
grunnskóla háskóla
framhaldsskóla flestar námsgreinar
Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19
Nemendaþjónustan sf. Þangbakka 10, Mjódd.