Morgunblaðið - 28.10.2001, Page 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 55
...ferskir vindar í umhirðu húðar
Loksins kom krem þar sem virknin finnst þegar það er
borið á húðina og jafnframt sjáanlegur munur! Ég mæli
eindregið með Silhouette fyrir konur á öllum aldri og eftir
barnsburð er það alveg nauðsynlegt.
Nýja Body scrubið er kærkomin viðbót og tvöfaldar virkni
Silhouette kremsins á húðina.“
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
Dísa í World Class segir:
„Loksins sýnilegur árangur!“
Kynningar í vikunni:
Mánudagur:
Lyf og heilsa - Domus Medica
Hagkaup Kringlunni
Þriðjudagur:
Lyf og heilsa - Mosfellsbæ
Hagkaup Smáralind
Fimmtudagur:
Lyf og heilsa - Mjódd
Hagkaup Smáralind
Föstudagur:
Lyfja Laugavegi
Hagkaup Kringlunni
Hagkaup Smáralind
Debenhams
Laugardagur:
Hagkaup Smáralind
Debenhams Dísa í World Class
UPPÚR miðjum áttunda aratugn-
um varð mikil rokkvakning vestan
hafs enda menn orðnir leiðir á
steingeldu framúrstefnurokki.
Pönkstraumar frá Bretlandseyjum
og tilraunamennska vestur í Kali-
forníu runnu saman við hefðbundið
bandarískt vinsældarokk og úr varð
það sem menn kölluðu gjarnan ný-
pönk vestan hafs, miðstéttarpönk
þar sem markmiðið var að
skemmta sér en ekki að brjóta og
bramla. Hljómsveitirnar sem þá
urðu til náðu fæstar langt, en sum-
ar, eins og Blondie, náðu heims-
frægð, þó ekki fyrr en búið var að
slípa af alla skarpa kanta og mýkja
umtalsvert tónlistina. Fyrir
skemmstu voru allar skífur Blondie
endurútgefnar með bættum hljómi
og talsverðu af aukalögum.
Grípandi pönkskotið popp
Blondie varð til haustið 1973 þeg-
ar Deborah „Debbie“ Harry og
Chris Stein kynntust í rokkbúllunni
frægu CBGB í New York og fóru
að búa saman. Harrie var áður í
þjóðlagasveit, en hafði þá stofnað
hljómsveit sem hún kallaði The Sti-
lettos sem lék heldur harðari tón-
list. Stein, sem var gítarleikari, tók
þátt í að breyta Stilettos í alvöru-
hljómsveit og eftir árs tilrauna-
mennsku varð Blondie til í ágúst
1974. Enn var mannaskipan eitt-
hvað á reiki og segja má að 1975
hafi það sem eftir var árs farið í að
raða saman í endanlega mynd, en
þá um haustið voru í sveitinni auk
Harry og Stein Clement Burke á
trommur, Gary Valentine á bassa
og Jimmy Destri á hljómborð.
Það voru margir um hituna í
rokkklúbbum New York á þessum
tíma og Blondie átti erfitt upp-
dráttar í harðri samkeppni. Með
stífri spilamennsku tókst sveitinni
að ná eyrum útgefenda og hausti
1976 kom út fyrsta platan sam-
nefnd sveitinni hjá smáfyrirtæki.
Aðal sveitarinnar var grípandi
pönkskotið popp og Debbie Harry
var andlit hennar. Lag af skífunni,
In the Flesh, náði nokkrum vin-
sældum og komst meðal annars í
annað sætið í Ástralíu. Í júlí 1997
kom Frank Infante í stað Valentine
og stuttu síðar keypti Columbia
sveitina frá smáfyrirtækinu sem
hún var samningsbundin, gaf aftur
út fyrstu plötuna og síðan plötu
númer tvö, Plastic Letters. Til að
fylgja þeirri skífu eftir bætti sveitin
við sig bassaleikara, Nigel Harr-
ison, og Frank Infante skipti yfir í
gítarleik. Denis varð vinsælt víða
um heim af Plastic Letters og einn-
ig tiltillagið.
Pönkið lagt á hilluna
Þegar kom að því að setja saman
þriðju breiðskífuna tóku liðsmenn
sveitarinnar ákvörðun um að leggja
pönkið alveg á hilluna og snúa sér
alfarið að fáguðu gítarpoppi. Til að
leggja lið við þann umsnúning köll-
uðu þau á breska lagasmiðinn og
upptökustjórann Mike Chapman og
það bar þann árangur að platan,
Parallel Lines, gerði Blondie vin-
sæla um heim allan. Lagið Heart of
Glass fór á toppinn vestan hafs og
austan og Picture This, Hanging on
the Telephone og Sunday Girl urðu
einnig geysivinsæl.
Næsta skífa, Eat to the Beat,
sem kom út 1979, varð einnig gríð-
arlega vinsæl utan Bandaríkjanna,
en gekk miður á heimaslóðum,
enda voru breyttir tímar, diskóæði í
uppsiglingu. Debby Harry var
reyndar tekin til við diskóið sjálf,
vann meðal annars lag með Gorgio
Moroder, Call Me, sem varð gríð-
arlega vinsælt undir Blondie heit-
inu, og af næstu plötu Blondie,
Autoamerican, varð lagið Rapture,
sem státaði af rappkafla, gríðarlega
vinsælt. Fyrsta smáskífa af þeirri
plötu var reyndar reggípopplagið
The Tide Is High, sem sló rækilega
í gegn.
Brestir í samstarfinu
Þegar hér var komið sögu voru
komnir brestir í samstarfið og deil-
ur um hvert skyldi stefna urðu til
þess að sveitin leystist upp. Frank
Infante fór meðal annars í mál við
félaga sína vegna þess að honum
fannst hann ekki fá að taka nógu
mikinn þátt í störfum sveitarinnar
og svo má telja.
Blondie átti eftir að senda frá sér
eina skífu til, The Hunter, en þegar
upptökur á henni fóru fram töl-
uðust liðsmenn ekki við nema með
milligöngu lögfræðinga. Síðar átti
sveitin svo eftir að koma saman
með upprunalegri mannaskipan og
taka upp eina plötu, No Exit, sem
kom út fyrir tveimur árum, en það
er önnur saga.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Blondie minnst
Á áttunda áratugnum var mikil gerjun
í rokkinu vestan hafs. Árni Matthíasson
segir frá hljómsveitinni Blondie í tilefni
af endurútgáfu á plötum sveitarinnar.
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Oxygen face