Morgunblaðið - 28.10.2001, Síða 57
geri mér grein fyrir því að sögu-
þráðurinn er í anda þessa tímabils,
og það er eitthvað sem gerist bara
án þess að ég hafi meðvitað reynt
það.“
–Þetta er mynd um Ítali, Þjóð-
verja og Grikki. Var aldrei erfitt
fyrir þig sem Breta að ná að lýsa
þjóðareinkennum þeirra á sannfær-
andi hátt?
„Ég ætti kannski ekki að vera
leikstjóri ef ég gæti ekki sett mig
inn í heima sem ég þekki ekki svo
gjörla,“ segir John og hlær við. „En
þetta er samt sanngjörn spurning.
Fyrir mig var mest áríðandi að ná
tökum á og skilja grískan hugs-
anahátt sem er kjarni sögunnar. Ég
vildi geta lýst vel menningu þeirra,
heimi og lífssýn. Þar skipti miklu
máli sú ákvörðun að taka kvikmynd-
ina alla upp á þessari eyju. Eyjan
skapar trúverðugleika og þar bætist
við þátttaka mjög margra Grikkja,
og nokkrir þeirra höfðu hreinlega
lifað þessar aðstæður sem ég er að
lýsa í myndinni. Hefðbundin grísk
hátíð er bæði í upphafs- og loka-
atriði myndarinnar, og Grikkirnir
sem þar eru hljóðfæraleikarar, eru
þeir sömu sem spiluðu í laug-
ardagspartíunum sem við héldum á
upptökutímanum. Þannig gat ég á
vissan hátt komist algjörlega inn í
menninguna þeirra og þá hluta
hennar sem eru óbreyttir frá því
fyrir fimmtíu, sextíu árum þegar
sagan gerist.
Fyrir mér er þetta mynd að hluta
til um Evrópu, málefni sem er mik-
ilvægt um þessar mundir og eðli
þess þegar menningarheimar rekast
á, sem er mjög áhrifaríkt í sögunni.
Þetta er jafnmikið um hvað Evr-
ópuþjóðirnar eiga sameiginlegt og
hvað sundrar þeim sem er viðeig-
andi umfjöllunarefni.“
Öngþveiti og örvænting
–Hafði þig lengi langað að gera
mynd um heimsstyrjöldina síðari?
„Ég hef áður fengist við sjón-
varpsverkefni sem gerast á þessum
tíma, en alls ekki heila stóra stríðs-
mynd. Þetta stríð var ekki hluti af
lífí mínu, ég ólst upp eftir stríð, en
andrúmsloft stríðsins var alls staðar
þegar ég var að alast upp. Þannig
var áhugavert að snúa þangað aftur,
en auðvitað á allt annan hátt og með
allt annarri sýn. Það er líka áhuga-
vert að myndin er samstiga því að
fólk er að horfa upp á átök sem það
hefði aldrei getað ímyndað sér, og
ég held að blóðbaðið á þessari eyju
sé á vissan hátt svipaður hlutur.“
–Voru sprengingarnar flóknar í
upptökum?
„Já, mjög og margar ástæður fyr-
ir því. Það voru miklir peningar í
spilinu því það þarf svo margt fólk
til að vinna við þannig atriði. Þótt
undarlegt megi virðast eru atriðin
mjög ótæknileg á þessum seinustu
tölvutæknitímum. Maður mundi
halda að hægt væri að gera spreng-
ingar í tölvum en það er ekki hægt.
Við vorum að eiga við víra á jörðinni
og skipta þurfti um sprengjustað í
hverri töku. Ég hafði ákveðnar
skoðanir á því hvaða áhrif ég vildi
að sprengjuatriðin gæfu, sem voru
öngþveiti og örvænting. Það var
ekki auðvelt og maður verður að
hafa algjöra stjórn á hlutunum. Það
þarfnast mikillar skipulagningar og
var hún mjög takmörkuð af pen-
inga- og tímaskorti. T.d höfðum við
bara einn skriðdreka og ég varð að
láta líta út fyrir að þeir væru mun
fleiri. Við unnum á setti sem við
byggðum en var samt sem áður í
miðjum bæ og einu ferjuhöfn eyj-
unnar. Rétt fyrir ofan reykinn í
myndinni er ferðamannabær í full-
um gangi með fólk að kaupa minja-
gripi. Þetta allt varð að hugsa um,
þannig að við æfðum mikið og
reyndum að fá þetta vel út, en þetta
var erfitt og erfiðar vinnuaðstæður í
40 stiga hita. Við vorum svört og
ógeðsleg í lok dagsins, en ætli stríð
sé ekki einhvern veginn þannig?“
nd var um helgina
Reuters
John með gömlu félögunum sínum.
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2001 57
Nú býðst þér ótrúlegt tækifæri til þess-
arar heillandi borgar. Þú bókar tvö sæti
til Prag, en greiðir bara fyrir eitt, og kemst til einnar fegurstu borgar
Evrópu á frábærum kjörum. Allar ferðir í október eru nú uppseldar og
þér bjóðast nú síðustu sætin þann 5. nóvember á einstökum kjörum.
Hjá Heimsferðum getur þú valið um gott úrval 3ja og 4 stjörnu hótela
og fararstjórar Heimsferða bjóða þér spennandi kynnisferðir meðan á
dvölinni stendur.
Verð kr. 16.850
Flugsæti á mann, m.v. 2 fyrir 1.
33.700/2 = 16.850.-
Skattar kr. 3.350, ekki innifaldir.
Gildir eingöngu 5. nóv., 3 nætur.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Forfallagjald, kr. 1.800.
Aðeins 28 sæti
2 fyrir 1 til
Prag
5. nóvember
frá kr. 16.850
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð hótela:
Verð á mann
Hotel Korunek – 3 stjörnur,
kr. 3.890 nóttin
í tveggja manna herbergi.
Expo – 4 stjörnur,
kr. 4.900 nóttin
í tveggja manna herbergi.
BOB Dylan hefur gert útgáfusamning við
bókaforlagið Simon & Schuster um að rita
fyrir það viðamikla sjálfsævisögu sína.
Gert er ráð fyrir að afraksturinn sem hlot-
ið hefur nafnið Chronicles verði gefin út í
mörgum bindum.
„Dylan er skáld og hefur fengist við
mörg form ritlistarinnar. Þetta er því eðli-
leg þróun á þeirri iðju hans,“ segir Elliott
Mintz, talsmaður Dylans, um væntanleg
ritstörf hans.
Dylan, sem tilnefndur hefur verið til
bókmenntaverðlauna Nóbels, gaf út sína
43. breiðskífu á dögunum sem heitir Love
and Theft og hefur hlotið einróma lof
gagnrýnenda fyrir, eins og svo oft áður.
Þrátt fyrir að hafa samið yfir 500 lög og
texta þá hefur Dylan einungis gefið út
eina bók, ljóða- og prósasafnið Tarantula, sem kom út
árið 1966 þegar hann var einungis 25 ára gamall. Í við-
tali sem tekið var við hann í fyrra segir Dylan í raun
ekki hafa viljað gefa þá bók út heldur hafi
verið neyddur til þess að umboðsmanni
sínum.
Í þetta sinn er hugmyndin að bókaút-
gáfunni frá honum komin. „Skriftir mínar
síðustu misseri hafa leitað að opinber-
unarformi um nokkra hríð,“ sagði hann í
sama viðtali. Í september sagði hann í
viðtali við tímaritið Time að hann hefði
þegar lokið við tæplega 200 síður af
sjálfsævisögu sinni og væri þessa dagana
að púsla saman „skrýtlum“ og minnis-
punktum um sig sem aðrir hefðu sagt sér
því minnið væri ekki alveg eins og best
væri kosið.
Allmargar ævisögur hafa þegar verið
ritaðar um Dylan og til marks um það eru
til sölu hjá netversluninni Amazon 156
bækur um hann.
Fyrsta bindi sjálfsævisögunnar er væntanlegt í búðir
einhvern tímann á næsta ári.
Dylan horfir um öxl og gerist annálaritari
Ritar sjálfsævisögu sína
Annálaritarinn Dylan.