Morgunblaðið - 30.10.2001, Qupperneq 1
248. TBL. 89. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 30. OKTÓBER 2001
BANDARÍKJASTJÓRN varði í
gær loftárásirnar á Afganistan sem
hafa sætt vaxandi gagnrýni vegna
frétta um mannfall meðal óbreyttra
borgara. Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, sak-
aði talibana og al-Qaeda, samtök
hryðjuverkaforingjans Osama bin
Ladens, um að nota saklausa borg-
ara sem „skildi“ til að verjast árás-
unum.
„Talibanar og al-Qaeda eiga sök á
öllu mannfallinu í þessu stríði, hvort
sem um er að ræða saklausa Afgana
eða saklausa Bandaríkjamenn,“
sagði Rumsfeld og bætti við að talib-
anar ýktu mannfallið í áróðursskyni.
„Leiðtogar þeirra fela sig í moskum
og nota óbreytta borgara sem skildi
með því að koma vopnum sínum fyrir
nálægt skólum, sjúkrahúsum og svo
framvegis.“
Segja ólíklegt að hlé
verði gert á árásunum
Loftárásirnar á Afganistan hafa
valdið ólgu meðal múslíma í Pakistan
og bandaríski hershöfðinginn
Tommy Franks, sem stjórnar loft-
árásunum, fór til Íslamabad í gær til
að ræða við pakistanska ráðamenn.
Franks átti fund með Pervez Mus-
harraf, forseta Pakistans, sem hefur
heimilað Bandaríkjaher að nota loft-
helgi landsins og þrjá flugvelli. Mus-
harraf kvaðst vona að loftárásunum
lyki bráðlega og hvatti til þess að hlé
yrði gert á þeim yfir ramadan, föstu-
mánuð múslíma, sem hefst 17. nóv-
ember.
Sendiherra Bandaríkjanna á Ind-
landi sagði hins vegar í gær að ólík-
legt væri að gert yrði langt hlé á
árásunum. „Talið er að verði dregið
úr árásunum yfir ramadan fái talib-
anar tækifæri til að efla her sinn,“
sagði sendiherrann, Robert Black-
well. Geoff Hoon, varnarmálaráð-
herra Bretlands, tók í sama streng.
Árásir á hella og
neðanjarðarbyrgi
Bandarískar herþotur gerðu í gær
loftárásir á hella og neðanjarðar-
byrgi í austurhluta Afganistans þar
sem talið er að fylgismenn Osama
bin Ladens hafi falið sig.
Talsmaður Norðurbandalagsins
sagði að það hefði ákveðið að hefja
nýja sókn að borginni Mazar-e Shar-
if í norðurhluta Afganistans á næstu
dögum. Mazar-e Sharif er nálægt
landamærunum að Úsbekistan og
nái Norðurbandalagið borginni á sitt
vald verður auðvelt fyrir bandarísk-
ar sérsveitir, sem sendar hafa verið
til Úsbekistans, að ráðast inn í Afg-
anistan og einangra hermenn talib-
ana í vesturhluta landsins.
Rumsfeld skýrði frá því að Banda-
ríkjaher væri byrjaður að varpa nið-
ur skotfærum til liðsmanna Norður-
bandalagsins.
Sendiherra talibana í Pakistan
sagði að þeir hefðu handtekið nokkra
Bandaríkjamenn í Afganistan, en
kvaðst ekki vita hvar og hversu
margir þeir væru. Rumsfeld sagði að
engir bandarískir hermenn hefðu
verið handteknir.
Sendiherra talibana sagði að loft-
árásirnar, sem hafa nú staðið í rúmar
þrjár vikur, hefðu lítinn árangur bor-
ið „ef undan er skilið þjóðarmorðið á
Afgönum“.
Bandaríkin sæta vaxandi gagnrýni vegna loftárása á Afganistan
Segja talibana nota sak-
laust fólk sem „skildi“
Íslamabad, Washington. AFP.
Sífellt fleiri/24
Vaxandi gagnrýni/26
Reuters
Sextán kristnir Pakistanar, sem þrír íslamskir öfgamenn myrtu í kirkju
á sunnudag, voru bornir til grafar í Bahawalpur í Pakistan í gær. Talið
er að fólkið hafi verið myrt til að hefna loftárásanna á Afganistan.
ÍSRAELAR ætla að flytja herlið sitt
á brott frá fjórum bæjum á Vestur-
bakkanum til viðbótar, virði Palest-
ínumenn vopnahlé, að sögn varnar-
málaráðherra Ísraels í gær.
Ísraelska herliðið var flutt á brott
frá Betlehem og Beit Jalla í gær-
morgun þrátt fyrir að Palestínu-
menn gerðu tvær skotárásir á
sunnudaginn var og felldu fimm Ísr-
aela, fjórar konur og hermann.
Ísraelskir embættismenn sögðust
ekki vita hvenær herinn færi frá
bæjunum fjórum, Tulkarem, Qalqi-
lya, Ramallah og Jenin. Vegna óviss-
unnar kann svo að fara að Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
fresti fyrirhugaðri ferð sinni til
London og Washington í næstu viku.
Ísraelar sögðu brottför hersins frá
Betlehem og Beit Jalla prófstein á
það hvort hægt yrði að flytja her-
mennina frá hinum bæjunum fjór-
um.
Brottför Ísraelshers frá Vesturbakkanum háð skilyrðum
Vopnahlé verði virt
Betlehem. AP.
Reuters
Palestínsk kona kannar skemmdir á húsi sínu eftir að það varð fyrir
sprengikúlum frá ísraelskum skriðdrekum á Gaza-svæðinu í fyrrinótt.
MILTISBRANDSGRÓ fundust í
dómhúsi hæstaréttar Bandaríkjanna
og tveimur öðrum opinberum bygg-
ingum í Washington í gær.
Sýkillinn fannst í póststofu aðal-
byggingar hæstaréttar Bandaríkj-
anna og ákveðið var að loka henni í
fyrsta sinn í 66 ára sögu hennar. Áð-
ur höfðu fundist miltisbrandsgró í
húsi sem notað var til að flokka póst
réttarins. Dómararnir færðu réttar-
höldin í dómhús áfrýjunarréttar í
Washington.
Sýkillinn fannst í byggingu Mat-
væla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna
þar sem útvarpsstöðin Voice of
America er einnig með höfuðstöðvar.
Þá voru miltisbrandsgró í póstflokk-
unarstöð utanríkisráðuneytisins,
skammt frá höfuðstöðvum ráðuneyt-
isins, og í póstpoka sem senda átti í
bandaríska sendiráðið í Perú. Gripið
var til þess ráðs að sótthreinsa allar
póststofur ráðuneytisins.
Miltisbrandsgró hafa nú fundist á
meira en tíu stöðum í Washington.
Starfskona póstflokkunarstöðvar í
New Jersey hefur verið greind með
miltisbrand í lungum og alls hafa
fjórtán Bandaríkjamenn sýkst af
miltisbrandi, þar af átta í öndunar-
færum.
Sex Bandaríkjamenn hafa fengið
miltisbrand í húð sem er ekki eins
hættuleg sýking og þegar menn
anda að sér sýklinum. Þrír menn
hafa dáið af völdum miltisbrands í
lungum og fimm aðrir hafa gengist
undir meðferð á sjúkrahúsum. Einn
þeirra hefur náð bata.
Miltisbrandsgró í
fleiri byggingum
Washington. AP.
JOHN Ashcroft, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, varaði
við því í gærkvöldi að hryðju-
verkamenn kynnu að gera
árásir í Bandaríkjunum eða
öðrum löndum í vikunni. Hann
sagði að bandarísk öryggisyfir-
völd væru nú með „hámarks-
viðbúnað“.
„Bandaríkjastjórn hefur
dregið þá ályktun af upplýsing-
um, sem hún hefur fengið, að
hugsanlega verði gerðar fleiri
árásir í Bandaríkjunum eða
gegn bandarískum hagsmun-
um erlendis í vikunni,“ sagði
Ashcroft á blaðamannafundi
sem boðaður var í skyndi í
Washington. „Stjórnin telur
þessar upplýsingar trúverðug-
ar en því miður vitum við ekki
hvers konar árásir kunna að
verða gerðar eða hvar.“
Önnur viðvörunin
í mánuðinum
Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, gaf út svipaða viðvörun
11. október og heimildarmenn
fréttastofunnar AP sögðu að
lögreglan hefði síðan fengið
upplýsingar um að hryðjuverk
væru ráðgerð á næstu dögum.
Fyrr um daginn hvatti
George W. Bush Bandaríkja-
forseti landsmenn til að vera á
varðbergi vegna hugsanlegra
árása hryðjuverkamanna
Osama bin Ladens. Hann bætti
þó við að Bandaríkjamenn
þyrftu að sýna stillingu og
halda áfram daglegum störfum
sínum.
Óttast
hryðju-
verk í
vikunni
Washington. AFP, AP.