Morgunblaðið - 30.10.2001, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 11
Góð tilbreyting frá
stórborgarferðum...
ÞÆGILEGT FLUG FRÁ REYKJAVÍK Á FÖSTUDÖGUM
Stuttar helgarferðir til Færeyja
BÓKUNARSÍMI 511 1515
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR
JÓNASSONAR EHF.
Borgartúni 34, Rvík, sími 511 1515, www.gjtravel.is
netfang: outgoing@gjtravel.is
Græn borg í bláu hafi
Nútímalegur bragur í bland við þjóðlega stemningu einkennir
Þórshöfn í Færeyjum, sem er laus við ys og þys stórborganna.
Gestrisni og vinátta einkenna móttökurnar hjá frændum okkar.
Stuttar helgarferðir – slökun og tilbreyting
Flogið er með þotu færeyska flugfélagsins Atlantic Airways frá
Reykjavík á föstudagskvöldum og komið til baka á mánudegi.
Í boði er gisting á tveimur hótelum í höfuðborginni Þórshöfn;
Hótel Tórshavn og Hótel Hafnia.
Einstakt tækifæri – hagstætt verð
Innifalið er flug, flugvallaskattar, gisting í 3 nætur og morgunverður.
Heildarverð á mann er frá 33.900 til 36.900 krónum eftir hótelum,
miðað við 2ja manna herbergi.
33.900
LÖGREGLAN í Reykjavík hafði í
fyrrinótt afskipti af ungri konu sem
grunuð er um ölvun við akstur og
reyndi að flýja undan lögregluþjón-
um, fyrst akandi en síðan á hlaupum.
Lögreglan kom auga á bíl hennar
við Smiðshöfða en konan, sem er 22
ára, sinnti ekki tilmælum lögreglu
um að stöðva bílinn. Hófst því eft-
irför um Höfðahverfið þar til bíllinn
lenti á umferðarmerki utan vegar
hjá hringtorginu við Sævarhöfða.
Konan reyndi að forða sér á hlaupum
en lögreglumenn náðu henni og
handtóku hana. Hún slapp ómeidd
og minniháttar tjón varð á bílnum.
Reyndi að flýja lögregl-
una eftir ölvunarakstur
HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands úr-
skurðaði þrítugan karlmann í fimm
daga gæsluvarðhald á sunnudags-
kvöld að kröfu lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum vegna gruns um of-
beldi og skotvopnanotkun heimahúsi
í Vestmannaeyjum á sunnudags-
morgun. Maðurinn mun þar hafa
slegið mann í höfuðið með byssu-
skefti og hleypt a.m.k. þrem hagla-
skotum af innandyra.
Fernt var í íbúðinni þegar atvikið
átti sér stað, þrír karlmenn og ein
kona, öll um þrítugt. Að sögn lög-
reglunnar liggur ekki alveg ljóst fyr-
ir hvað leiddi til þess að maðurinn
hleypti af byssunni og barði einn
gestanna a.m.k. einu sinni í höfuðið
með skefti hennar. Virðist þó ljóst að
einhvers konar ágreiningur hafi
sprottið upp með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Maðurinn sem var barinn höfuð-
kúpubrotnaði og var fluttur undir
læknishendur á Landspítala í Foss-
vogi. Hann mun þó ekki hafa hlotið
lífshættulega áverka.
Barði
mann og
skaut af
byssu inn-
andyra
„AÐ mínu mati er þetta eitthvert
best heppnaða átak í sögu bílgrein-
arinnar,“ sagði Egill Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Brimborgar, en
hann átti sæti í nefnd til undirbún-
ings Bíladögum sem umboðin stóðu
fyrir ásamt Bílgreinasambandi,
tryggingafélögum og fjármálafyr-
irtækjum.
Egill segir að með Bíladögum
hafi verið ætlunin að koma því á
framfæri að bíllinn væri nauðsynja-
tæki, nýir bílar menguðu sífellt
minna, öryggið færi síbatnandi og
ekki væri rétt að kenna bílnum um
viðskiptahallann, bílainnflutning-
urinn ætti mjög lítinn þátt í honum.
„Við lögðum okkur fram um að
koma þessum boðskap á framfæri
og vönduðum mjög allan undirbún-
ing,“ sagði Egill og sagði þetta hafa
skilað sér í jákvæðri afstöðu við-
skiptavina sem og starfsmanna,
margir hefðu sérstaklega haft orð á
því að þeir hefðu ekki gert sér
grein fyrir ýmsum þeim stað-
reyndum sem bent var á í boðskap
Bíladaga.
Hjá Brimborg voru seldir 18 bílar
um helgina sem Egill segir að sé á
við hálfs mánðar sölu á þessum árs-
tíma. Hann telur ekki fráleitt að
efnt verði til svipaðs átaks árlega
og undir það tók Skúli K. Skúlason,
sölustjóri hjá Toyota-umboðinu P.
Samúelssyni. Lögðu þeir báðir
áherslu á að með átakinu Vinum
bílsins hefðu umboðin snúið bökum
saman og unnið að því sameig-
inlega markmiði að koma að já-
kvæðri ímynd bílsins. Skúli taldi
undirtektir sýna að það hefði tekist
og sagði fólk hafa haft samband og
spurt hvar hægt væri að ganga í
samtökin Vini bílsins. Hann sagði
söluna hafa verið ágæta og ekki
væri síður verðmætt að margir
væru nú að velta kaupum fyrir sér
sem myndu skila sér á næstu dög-
um og vikum.
Morgunblaðið/Kristinn
Auk sýninga hjá umboðunum var jeppasýning í Smáralind.
Vinir bílsins ánægðir
með Bíladaga
STJÓRNENDUR nokkurra skóla á
höfuðborgarsvæðinu, sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær, segjast ekki
hafa orðið varir við fordóma í garð
múslima meðal nemenda í kjölfar
framvindu heimsmála síðastliðnar
vikur. Samkvæmt upplýsingum
þeirra hafa skólarnir brugðist við
þeirri atburðarás sem hófst eftir
hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11.
september, með fræðslu og um-
ræðum í skólunum.
Fanný Gunnarsdóttir aðstoðar-
skólastjóri og námsráðgjafi í Álfta-
mýrarskóla, segir að allir séu vak-
andi fyrir því að grípa inn í ef vart
verður fordóma gagnvart múslim-
um. Nú fer fram kennsla um islam í
tengslum við samfélags- og trúar-
bragðafræði og lífsleikni í 8. og 10.
bekk skólans og segir Fanný að það
hafi reynst gott að fara af stað með
fræðsluna á þessum tímapunkti.
Helgi Kristjánsson aðstoðarskóla-
meistari í Menntaskólanum í Kópa-
vogi, sem einnig hefur kennt sögu
við skólann, segist sömuleiðis ekki
hafa orðið var við fordóma nemenda
gagnvart múslimum. Í skólanum
eru nokkrir nemendur sem eiga
annað foreldri frá arabalöndum auk
þess sem í skólanum hafa verið
nemendur frá Pakistan og víðar.
Helgi segist hafa óttast að nemend-
ur yrðu hugsanlega fyrir barðinu á
fordómum samnemenda sinna í ljósi
heimsatburða í haust, en sá ótti
reyndist með öllu óþarfur. „Þegar
þessi mál komu upp bað ég þessa
nemendur að láta mig vita ef þau
yrðu vör við einhverja fordóma, en
þeim hefur aldrei verið sýnt neitt í
þá veru,“ segir Helgi.
Helgi Árnason skólastjóri Rima-
skóla segir að kennarar hafi rætt
umrædda atburði við nemendur
sína auk þess sem samskipti ólíkra
trúarhópa hafi komið inn í lífsleikn-
inám nemenda. „Ég hef á engan
hátt orðið var við fordóma meðal
nemenda, sem betur fer,“ segir
hann.
Skipulögð fræðsla
um trúarbrögð
Skólastjóri Garðaskóla, Gunn-
laugur Sigurðsson segist heldur
ekki hafa orðið var við fordóma
meðal nemenda. „Ein skýringin
gæti verið sú að hér fer fram skipu-
lögð fræðsla um trúarbrögð,“ segir
hann. „Í lífsleikni er verið að fást við
tiltekin efni samkvæmt skipulagi, en
þegar stóratburðir verða í heimin-
um, eins og þeir sem hér um ræðir,
eða einelti í skólanum, slys, eða ann-
að sem vekur athygli fólks, þá er
eðlilegt að kennarar ræði atburðina
við nemendur á eins faglegan hátt
og þeim er unnt. Ef málin eru rædd
af hógværð og stillingu, þá hefur
það góð áhrif.“
Skólastjórnendur bregðast við hryðjuverkum
Ekki varir við fordóma
gagnvart múslimum
SAMÞYKKT var í samgöngunefnd
Reykjavíkur í gær að lækka stöðu-
gjöld í bílageymsluhúsum borgar-
innar. Fyrsti klukkutíminn kostar
eftir breytingarnar 80 krónur í
stað 100, sem er 20% lækkun.
Tímagjaldið eftir það lækkar um
50%. Tillögu sjálfstæðismanna um
að aukastöðugjöld, eða stöðumæla-
sektir, yrðu lækkuð úr 1500 krón-
um í 750 krónur var aftur á móti
vísað frá.
Lækkunin á einungis við í bíla-
geymsluhúsum borgarinnar og tek-
ur breytingin gildi á næstunni.
Sjálfstæðismenn létu bóka að
með frávísun tillögunnar um lækk-
un aukastöðugjalda, væru festar í
sessi þær hækkanir, sem urðu á
gjaldskrá bílastæðasjóðs í júní
2000 og námu allt að 200%. Hætt
væri við að hin háa gjaldskrá
myndi áfram fæla viðskiptavini úr
miðbænum og leiða til enn frekari
flótta fyrirtækja og annarrar þjón-
ustu þaðan.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi og flutningsmaður tillög-
unnar, segir að notkun bílastæða-
húsanna hafi minnkað eftir
hækkun verðskrárinnar og að
lækkunin nú væri hugsuð sem að-
gerð til að vinna það aftur. Hann
segir breytinguna góða en að hún
muni þó skipta litlu máli þegar á
heildina er litið og því þurfi að gera
meira fyrir miðbæinn. Áætluð
lækkun tekna sjóðsins vegna
breytingarinnar væri um 5 millj-
ónir króna á ársgrundvelli eða
2,5% af þeirri hækkun sem hefur
orðið á síðustu tveimur árum.
Viðskiptavinir miðbæjarins
skattlagðir
Kjartan segir að tekjur bíla-
stæðasjóðs af stöðumælum og
stöðubrotum hafi nær tvöfaldast
frá árinu 1999 til 2001, úr 213 millj-
ónum í 400 milljónir samkvæmt
útkomuspá þessa árs. „Þetta eru
tekjur sem eru auðvitað teknar
beint úr vösum viðskiptavina mið-
bæjarins og hljóta að hafa áhrif á
aðsóknina þar. Viðskiptavinir mið-
bæjarins eru skattlagðir á meðan
önnur hverfi og verslunarmiðstöðv-
ar auglýsa óspart að hjá þeim fái
viðskiptavinir ókeypis bílastæði,“
segir Kjartan.
Stöðugjöld í bílageymslu-
húsum borgarinnar lækka
Tillögu um lækkun stöðumælasekta var vísað frá