Morgunblaðið - 30.10.2001, Blaðsíða 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 19
OLÍUFÉLAGIÐ hf. (ESSO) hefur
móttekið áreiðanleikakönnun tveggja
endurskoðunarfélaga vegna kaupa á
hlutum í Samskipum hf. að nafnverði
445 milljóna króna. Niðurstaða könn-
unarinnar er innan þeirra skekkju-
marka sem tilgreind er í kaupsamn-
ingi. Kristján Loftsson,
stjórnarformaður ESSO, segir könn-
unina staðfesta að þau gögn sem lögð
voru til grundvallar kaupunum séu
innan ramma samningsins og því ljóst
að kominn sé á bindandi samningur
án fyrirvara.
Í september sl. var tilkynnt um
kaup Olíufélagsins hf. á hlutabréfum í
Samskipum hf. að nafnverði 445 millj-
ónir króna, sem er 42% af hlutafé fé-
lagsins. ESSO átti fyrir 7,7% í Sam-
skipum þannig að félagið á nú 49,7%
af heildarhlutafénu. Kaupverðið var
greitt með hlutabréfum í eigu ESSO.
Á sama tíma var tilkynnt um kaup Ol-
íuverzlunar Íslands hf. (Olís) á 10% af
hlutafé Samskipa, þ.e. 105 milljónum
króna að nafnverði.
Kaup ESSO
á Samskip-
um staðfest
ÁFORM Baugs varðandi Arcadia
hafa verið talsvert til umfjöllunar í
breskum fjölmiðlum síðustu daga.
Eftir að tilkynnt var sl. fimmtudag
að Baugur ætti í viðræðum við Arc-
adia um yfirtökutilboð hafa breskir
fjölmiðlar keppst við að fá botn í það
hvernig þetta litla íslenska fyrirtæki
ráði við að yfirtaka stórfyrirtæki á
borð við Arcadia Group.
Í The Sunday Times sl. sunnudag
er haft eftir Bryan Roberts, greining-
arsérfræðingi á smásölumarkaði sem
starfar hjá Mintel Retail Intelligence,
að yfirtaka Baugs sé tvíeggjað sverð.
Hún geti komið Baugi verulega til
góða, á hinn bóginn geti hún orðið
feigðarboði beggja fyrirtækjanna.
Þá segir að ýmsir telji að Baugur sé
að freista þess að eignast Arcadia á
afar hagstæðum kjörum. Verðtilboð-
ið, þ.e. 280-300 pens, hljóði einungis
upp á nífaldan áætlaðan hagnað árs-
ins. Þetta sé lágt miðað við að smá-
sölugeirinn í heild sé metinn á fjór-
tánfaldan hagnað.
Aðrir telja þó tilboðið endurspegla
þá gríðarlegu áhættu sem Baugur
mundi taka með þessari fjárfestingu.
„Arcadia hefur gríðarlega rekstrarg-
írun, sem er tvíbent“, er haft eftir
Tom Gadspy, sérfræðingi hjá Willi-
ams De Broe. „Ef skilyrði versna í
smásölugeiranum þá mun Arcadia
verða eitt af fyrstu fyrirtækjunum
sem verða illa úti. Hins vegar, ef allt
gengur vel, þá gerist hið gagnstæða.
Baugur hlýtur því að vera ákaflega
bjartsýnn á aðstæður smásölunnar.“
Fjármögnun ekki náð saman
Jafnframt fjallar The Sunday Tim-
es um að Baugur sé í betri aðstöðu til
yfirtöku en nokkur annar vegna 20%
eignarhlutar síns og að sá hlutur sem
fyrirtækið á fyrir lækki meðalkaup-
verðið nokkuð.
Samkvæmt Guardian sl. sunnudag
viðurkenndu ráðgjafar Baugs að ekki
hefði enn tekist að ná saman fjár-
mögnun kaupanna, sem gæti orðið
allt að 570 milljónir punda. Þá er haft
eftir einhverjum sem sagður er náinn
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra
Baugs, að tilboð verði ekki lagt fram í
þessari viku en mögulega verði það
innan tveggja vikna.
Þá fullyrðir blaðið að yfirtaka hafi
verið á dagskrá þegar Baugur hafi
byrjað að kaupa í Arcadia í október í
fyrra. Tilkoma Rose í nóvember hafi
hins vegar frestað málinu.
Daily Telegraph segir Arcadia að-
eins metið á það sem samsvarar fjög-
urra mánaða sölu og það geri fjár-
mögnunina að öllum líkindum
áhugaverða fyrir Deutsche Bank,
sem hefur verið orðaður við fjár-
mögnun. Til samanburðar er þess
getið að Marks & Spencer, sem er
einn helsti keppinauturinn, er metinn
á það sem samsvarar meira en árs-
sölu. Blaðið segir orðróm á kreiki um
að Deutsche Bank ásamt Royal Bank
of Scotland standi að baki fjármögn-
uninni auk Kaupþings og Íslands-
banka.
Mælt með sölu
Mælt er með því í The Sunday Tim-
es að hluthafar í Arcadia byrji strax
að selja hlutabréf sín á meðan verðið
er ágætt, ef ske kynni að Baugur
skipti um skoðun og hætti við yfir-
töku.
Samkvæmt Daily Telegraph ráð-
lagði verðbréfafyrirtækið Williams
De Broe, viðskiptavinum sínum að
„taka tilboðinu og forða sér“ ef til
þess kemur.
Því hefur verið lýst yfir að Baugur
vilji halda í stjórnendur Arcadia ef af
kaupunum verður. The Sunday Tim-
es spyr hins vegar hvað muni gerast
ef Stuart Rose, forstjóri Arcadia, yf-
irgefur skipið. Talsverð hætta er talin
á því að geri Baugur tilboðið, muni
stjórnendur Arcadia innleysa gróða
sinn af sölu hlutabréfa og yfirgefa fyr-
irtækið í kjölfarið.
Fjármögnunin
umfjöllunarefni
breskra fjölmiðla
Viðræður Baugs við Arcadia um hugsanlegt yfirtökutilboð vekja athygli
BAUGUR hefur sent stjórn Arcadia
kynningartilboð sem gæti leitt til
þess að tilboð yrði gert í öll útistand-
andi hlutabréf Arcadia.
Í kynningartilboðinu, sem meðal
annars er háð stuðningi stjórnar
Arcadia, áreiðanleikakönnun og fjár-
mögnun, var nefnt verð á bilinu 280
pence til 300 pence á hvern hlut í
Arcadia. Baugur áskilur sér rétt til
að draga tilboðið til baka, endur-
skoða, eða hækka tilboðsverðið. Slíkt
tilboð væri 28 til 37 prósentum
hærra en lokaverð Arcadia þann 24.
október 2001, daginn áður en Arc-
adia sendi frá sér fréttatilkynningu
um áhuga Baugs á kaupunum, en þá
var verðið 218.75 pence á hvern hlut.
Í fréttatilkynningu á Verðbréfa-
þingi Íslands í gær segir að viðræður
félaganna séu á frumstigi og ekki er
víst að þær leiði til þess að formlegt
tilboð verði gert. Hreinn Loftsson,
stjórnarformaður Baugs, sagðist í
samtali við Morgunblaðið í gær ekki
geta tjáð sig frekar um tilboðið
vegna reglna um upplýsingaskyldu á
hlutabréfamarkaðnum í London.
Frekari upplýsingar verði gefnar um
leið og ástæða þykir til.
Baugur gerir kynn-
ingartilboð í Arcadia
FRAMLEIÐSLA þorskseiða hefur
gengið vel í Noregi á þessu ári. Alls
er gert ráð fyrir að framleidd verði
ein milljón seiða og er meðalverð á
þeim í ár um 250 krónur á hvert
stykki, en seiðin hafa selzt á allt að
500 krónur stykkið. Á næsta ári er
gert ráð fyrir að seiðaframleiðslan
verði um 2 milljónir og að verð á
seiðunum lækki, samkvæmt frétt í
norska blaðinu Dagens Næringsliv.
Skýringin á háu verði á seiðunum
er mikil sókn laxeldismanna í þorsk-
eldi, þar sem þeir telja sig geta
fengið leyfi til meiri framleiðslu á
laxi, fari þeir jafnframt út í þor-
skeldi. Aðeins þau fyrirtæki, sem
náð höfðu samingum um kaup á
seiðum, komu til greina við leyf-
isveitingar. Þess vegna varð spurn
eftir seiðunum svo mikil sem raun
ber vitni.
Fyrirtækið Profunda, sem hefur
náð beztum árangri í eldinu, fram-
leiðir um 160.000 seiði á þessu ári.
Stjórnendur fyrirtækisins vilja ekki
gefa upp á hvaða verði seiðin hafa
verið eða verða seld. Nú kostar um
300 krónur að framleiða hvert seiði,
en búizt er við að kostnaður við
framleiðslu á seiðunum verði kom-
inn niður í 10 til 20 krónur innan 20
ára og söluverð þeirra þá margfalt
lægra en nú.
Verðið á seiðunum nú er allt of
hátt til að framleiðsla á þorskinum
geti borgað sig. Talið er að verðið á
seiðunum megi ekki vera hærra en
100 til 120 krónur, en norska haf-
rannsóknastofnunin selur seiði nú á
aðeins 160 krónur stykkið, sem er
miklu lægra en hjá sjálfstæðum
framleiðendum.
Gengur
vel að
framleiða
þorskseiði