Morgunblaðið - 30.10.2001, Qupperneq 43
Morgunblaðið/Ásdís
BAKARÍIÐ Brauðbarinn hefur
opnað í Holtasmára 1, Kópavogi.
Eigendur bakarísins eru Lárus
Ólafsson og Claudía kona hans.
Þar verður brauð og annað bakk-
elsi á boðstólum, einnig er hægt
að fá súpu og salat í hádeginu.
Áhersla verður lögð á smurt
brauð.
Opið er mánudaga til föstudaga
kl. 8–18, og laugardaga kl. 8–17.
Nýtt bak-
arí í Holta-
smára
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 43
Námskeið
um vefjagigt
GIGTARFÉLAG Íslands heldur
námskeið um að lifa með vefjagigt
miðvikudaginn 31. október kl.
19.30 í húsnæði félagsins í Ármúla
5, annarri hæð. Um er að ræða
þriggja kvölda námskeið. Á nám-
skeiðinu verður farið í þætti sem
tengjast því að lifa með vefjagigt.
Fjallað verður um sjúkdóminn,
einkenni hans og áhrif á daglegt
líf, mikilvægi þjálfunar, slökun, að-
lögun að breyttum aðstæðum og
tilfinningalega og samfélagslega
þætti. Leiðbeinendur verða Arnór
Víkingsson og Árni Jón Geirsson,
gigtarsérfræðingar, Sólveig Hlöð-
versdóttir, sjúkraþjálfari, Unnur
Stefanía Alfreðsdóttir, iðjuþjálfi,
Jónína Björg Guðmundsdóttir og
Svala Björgvinsdóttir, félagsráð-
gjafar. Skráning er á skrifstofu fé-
lagsins.
Sorgarhópur
í safnaðar-
heimilinu í Garði
BJARMI, hópur um sorg og sorg-
arferli á Suðurnesjum, verður með
kynningarfund í safnaðarheimilinu
Sæborgu í Garði í kvöld, þriðju-
daginn 30. október kl. 20. Þetta
verður lokaður hópur, þar sem
fólki gefst kostur á því að vinna úr
tilfinningum sínum og reynslu með
fræðslu, umræðu og gagnkvæmum
stuðningi, segir í fréttatilkynn-
ingu. Aðgangur í hópinn er tak-
markaður við 8–10 manns, en
kynningarfundurinn er öllum op-
inn. Handleiðslu hópsins annast sr.
Björn Sveinn Björnsson og sr. Sig-
fús Ingvason.
Fyrirlestur um
hagnýta um-
hverfisfagurfræði
FINNSKI heimspekingurinn Yrjö
Sepanmaa frá Háskólanum í Jo-
ensuu talar um „Hagnýta umhverf-
isfagurfræði“ í boði Siðfræðistofun-
ar og Hugvísindastofnunar
miðvikudaginn 31. október. Fyrir-
lesturinn verður haldinn í Lögbergi,
stofu 101 og hefst kl. 12. Hann verð-
ur fluttur á ensku. „Viðfangsefni
umhverfisfagurfræðinnar er fegurð
náttúru og umhverfis; eðli þessarar
fegurðar og hvernig við förum að
því að njóta hennar. Tilgangur hag-
nýtrar umhverfisfagurfræði er að
leggja grunn að praktískum aðgerð-
um. Hagnýt umhverfisfagurfræði
getur t.a.m. komið iðnhönnuðum,
skipuleggjendum borga og bæja og
landslagsarkitektum að gagni, auk
þeirra aðila sem vinna að náttúru-
og umhverfisvernd,“ segir í tilkynn-
ingu.
Opið hús hjá
Heimahlynningu
HEIMAHLYNNING verður með
samverustund fyrir aðstandendur í
kvöld, þriðjudaginn 30. október, kl.
20–22 í húsi Krabbameinsfélags Ís-
lands, Skógarhlíð 8. Sr. Gunnar
Matthíasson sjúkrahúsprestur á
Landspítala í Fossvogi ræðir um
sorg og sorgarviðbrögð. Kaffiveit-
ingar.
Íbúafundur
í Grafarvogi
MIÐGARÐUR, fjölskylduþjónust-
an í Grafarvogi, og Borgarskipulag
halda opinn kynningarfund fyrir
íbúa í Rimahverfi þriðjudaginn 30.
október kl. 20 í Rimaskóla.
Á fundinum verður tillaga að
deiliskipulagi á fyrrum lóð Lands-
símans í Gufunesi kynnt. Skipu-
lagshöfundar kynna tillöguna og
formaður skipulags- og byggingar-
nefndar verður á fundinum ásamt
fulltrúa Borgarskipulags og Borg-
arverkfræðings, segir í tilkynn-
ingu.
Fræðslukvöld í
Víðistaðaskóla
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Vitinn,
Foreldrafélag Víðistaðaskóla og
Víðistaðaskóli halda sameiginlegt
fræðslukvöld fyrir foreldra nem-
enda í íþróttahúsi Víðistaðaskóla í
kvöld, þriðjudagskvöldið 30. októ-
ber, kl. 19. Frummælendur verða
Geir Bjarnason, Ragnheiður Þór-
dís, Þorgeir Ólafsson og Einar Gylfi
Jónsson. Opnar umræður, kaffi og
veitingar. Markmið þessa fræðslu-
fundar er að styrkja samstarf for-
eldra og félagsmiðstöðvarinnar og
fá svör og/eða ráð við spurningum
og vangaveltum um málefni sem
snúa að börnum og unglingum.
Samhliða fræðslukvöldinu verður
aðalfundur Foreldrafélags Víði-
staðaskóla, segir í fréttatilkynn-
ingu.