Morgunblaðið - 30.10.2001, Side 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 47
á innimálningu
Íslensk gæðamálning
miðað við 10 lítra dós í ljósum lit, gljástig 10.
TILBOÐ
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Skeifunni 4, Reykjavík s: 568 7878
Snorrabraut 56, Reykjavík s: 561 6132
Stórhöfða 44, Reykjavík s: 567 4400
Austursíðu 2, Akureyri s: 464 9012
Hafnargötu 90, Keflavík s: 421 4790
Dalvegi 4, Kópavogi s: 540 9100
Bæjarlind 6, Kópavogi s: 544 4411
Harpa Sjöfn málningarverslanir
470 kr.
20-40% afsláttur
af allri innimálningu
Verð á lítra frá
Fagleg ráðgjöf og þjónusta
fyrir einstaklinga.
UM helgina voru níu
ökumenn grunaðir um
ölvun við akstur og 46
um of hraðan akstur.
Á föstudagskvöld var gerð könn-
un á ástandi bifreiða sem óku um
Sæbraut. 54 bifreiðar voru stöðv-
aðar og fimm ökumenn verða kærð-
ir.
Aðfaranótt sunnudags var til-
kynnt um þrjá hettuklædda menn í
áflogum á Kleppsvegi. Töluvert var
hringt til lögreglu vegna þessa.
Þarna reyndist vera um að ræða
leikþátt í steggjapartíi. Þessu fólki
var gert að færa sig af akbrautinni.
Þá varð árekstur og minniháttar
meiðsli á Njálsgötu. Bifreið var ek-
ið á aðra mannlausa sem skall við
það á húsvegg og braut kjallara-
glugga.
Reyndu að stela
hangikjötslærum
Maður og kona gerðu tilraun til
að stela fjórum hangikjötslærum í
verslun í vesturbænum á föstudag.
Kjötið var tekið af þeim í verslun-
inni og voru þau horfin á braut þeg-
ar lögregla kom á staðinn. Veski
konunnar varð eftir í búðinni en í
því fundust áhöld til fíkniefna-
neyslu.
Á föstudagskvöld var tilkynnt
um sofandi eða veikan mann inni í
bifreið. Reyndist þetta vera útlend-
ingur sem var að fara með flugi af
landi brott daginn eftir.
Aðfaranótt laugardags var frek-
ar fátt í miðbænum, talið um 800
manns þegar flest var. Þrír voru
handteknir vegna ölvunar en ann-
ars var frekar rólegt á vaktinni.
Dyraverðir á veitingastað í mið-
borginni veittu athygli manni sem
var með hvítt efni í umslagi. Efnið
var talið vera fíkniefni. Maðurinn
var handtekinn og færður á lög-
reglustöð.
Þá var tilkynnt um eld í sum-
arbústað við Laxnes í Mosfellsdal.
Lögregla og slökkvilið var sent á
vettvang. Á vettvangi var kona sem
kvaðst vera með leyfi til að kveikja
í umræddum bústað en gat ekki
framvísað neinu leyfi. Um var að
ræða gamlan sumarbústað sem bú-
inn var að þjóna tilgangi sínum. Því
var ekki farið út í slökkvistarf held-
ur var bústaðurinn látinn brenna til
grunna.
Á laugardagskvöld var tilkynnt
um par að slást í biðskýli stræt-
isvagna við Suðurlandsbraut. Í ljós
kom að þau voru grunuð um þjófn-
að úr verslun í Lágmúla. Skinka
sem hafði verið stolið úr verslun-
inni fannst í bakpoka konunnar.
Brotist inn í bifreiðageymslu
Fámennt og rólegt var í mið-
borginni aðfaranótt sunnudags.
Ölvun var nokkur en ástand þokka-
legt. Einn maður var handtekinn
vegna ölvunar og tveir fluttir á
slysadeild eftir árásir en nokkuð
var um pústra. Mikill erill var hjá
lögreglunni um nóttina vegna ölv-
aðra manna sem voru með hávaða, í
slagsmálum, neituðu að fara út af
veitingahúsum eða voru að ónáða
fólk með öðrum hætti. Þá voru
nokkrir teknir með ætluð fíkniefni.
Brotist var inn í bifreiðageymslu
í Seljahverfi og farið þar inn í þrjár
bifreiðar með því að brjóta rúður.
Stolið var hljómtækjum og einnig
var sprautað gluggaþéttiefni í allar
glufur og hurðir bifreiðar.
Brotist var inn í tvo báta við smá-
bátabryggjuna í Suðurbugt. Tals-
vert var rótað til í bátunum en ekki
er vitað hvort einhverju var stolið.
Úr dagbók lögreglu – 22.– 28. október
Þrír hettuklæddir menn
í áflogum á Kleppsvegi
VERSLUNAREIGENDUR í
Kringlunni og á Laugavegi bera
sig vel þrátt fyrir tilkomu versl-
unarmiðstöðvarinnar í Smáralind.
Þeir segja samdrátt í verslun vart
mælanlegan þó að auðvitað hafi
menn orðið varir við að viðskipta-
vinum fækkaði fyrstu dagana, sem
Smáralindin var opin.
Einar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Kringlunnar, sagði
kaupmenn þar þokkalega ánægða
með fjölda viðskiptavina en hann
benti á að verslun væri jafnan með
minna móti í október.
Hann sagði að fyrstu dagana,
sem Smáralind starfaði, hefði sam-
dráttur í fjölda viðskiptavina num-
ið um 12% en síðan hefði fljótt
komist á jafnvægi og að núna
mældist kannski um 3–4% sam-
dráttur.
Sagði Einar að í síðustu viku
hefðu um 96 þúsund manns heim-
sótt Kringluna sem ekki væri
nema um 3% færri gestir en í
sömu viku í fyrra. „Smáralindin
hefur í raun haft mun minni áhrif
þessa fyrstu daga heldur en við
reiknuðum með,“ sagði hann.
„Höfum ekki verið að sjá í
iljarnar á okkar kúnnum“
Edda Sverrisdóttir í versluninni
Flex í Bankastræti bar sig líka vel
þegar haft var samband við hana.
Kvaðst hún ekki hafa orðið vör við
samdrátt vegna opnunar Smára-
lindar þó að vitaskuld hefðu menn
orðið varir við það fyrstu dagana,
að fólk færi að skoða Smáralindina.
Þeir kaupmenn sem hún þekkti til,
þ.e. neðarlega á Laugavegi og í
Bankastræti, væru sama sinnis. Í
raun væru menn hissa á því að
áhrifin skyldu ekki hafa orðið meiri
en raun bæri vitni.
„Við höfum ekki verið að sjá í ilj-
arnar á okkar kúnnum,“ sagði hún.
„Þeir eru hér allir og raunar fleiri
til því að ferðamönnum hefur fjölg-
að á nýjan leik, en við urðum
áþreifanlega vör við að þeim fækk-
aði nokkuð í kjölfar árásanna á
Bandaríkin 11. september.“
Valgerður Ólafsdóttir, annar eig-
enda verslunarinnar Noi ofarlega á
Laugavegi, tók í sama streng. Hún
sagði að mjög rólegt hefði verið
fyrstu dagana sem Smáralind var
opin. Það skýrðist þó líka með því
að þá daga hefði veður verið
slæmt, sem þýddi ávallt að færri
legðu leið sína í miðbæinn en ella.
Um síðustu helgi hefði hins vegar
verið mjög gott veður, og að auki
hefði verið efnt til eins konar há-
tíðar í miðbænum þannig að helgin
síðasta kæmi vel út. Október væri
ekki helsti verslunarmánuður árs-
ins en hann kæmi alls ekkert illa
út í samanburði við október í fyrra.
Verslunareigendur í Kringlunni og á Laugavegi bera sig vel
Samdráttur vegna Smára-
lindar vart sjáanlegur