Morgunblaðið - 30.10.2001, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2001 49
!" # $% &
' (!" !" )
!" * % '
! # +
' !%
,
- .- /-" /
%
)
/ 0 0 1
/
'
% %2 0 1
% 3
4 526 7(%
888%'
'%
Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518
Ný sending
Ullar- og kasmírkápur
Flottir aðskornir heilsársfrakkarIVAN Sokolov er með hálfs
vinnings forystu á minningar-
mótinu um Jóhann Þóri Jónsson
nú þegar mótið er hálfnað. Fyrir
helgina var sterkasti skákmaður
Dana, Peter Heine Nielsen, efst-
ur. Sokolov sneri á hann í fjórðu
umferð þegar honum tókst óvænt
að spinna mátnet í kringum kóng
Heine Nielsen í endatafli. Fyrr í
skákinni hafði Heine Nielsen stað-
ið prýðilega og ýmsir voru farnir
að spá honum sigri, þannig að það
var nokkuð súrt í broti fyrir hann
að tapa á þennan hátt. Í fimmtu
umferð fylgdi Sokolov þessum
sigri síðan eftir með því að leggja
annan danskan stórmeistara, en
að þessu sinni var stórmeistarinn
Lars Schandorff fórnarlambið, en
hann er fjórði sterkasti skákmað-
ur Dana um þessar mundir. Sigur
Sokolovs gegn honum var hins
vegar sannfærandi og hann er
með 4½ vinning af 5, hefur ein-
ungis gert jafntefli við Hannes
Hlífar.
Hannes Hlífar Stefánsson hefur
staðið sig best íslensku keppend-
anna og er með 3½ vinning í 4.–10.
sæti. Hann hefur gert jafntefli í
þremur síðustu umferðunum gegn
sterkum andstæðingum. Í fjórðu
umferð tefldi hann gegn enska
stórmeistaranum Murray Chand-
ler og í þeirri fimmtu við Peter
Heine Nielsen. Sú skák var reynd-
ar ansi fjörug og spennandi þrátt
fyrir að henni hafi lokið með jafn-
tefli og Hannes sýndi að hann bar
enga virðingu fyrir andstæðingn-
um þegar hann fórnaði riddara í
25. leik og náði í kjölfarið að fanga
svörtu drottninguna fyrir hrók,
riddara og peð. Hannes fékk þó
ekki nægilegt frumkvæði og skák-
inni lyktaði með jafntefli eins og
áður sagði.
Sá keppandi sem skákáhuga-
menn munu hafa auga með í
næstu umferðum er Arnar Gunn-
arsson. Hann hefur verið að vinna
sig upp töfluna í síðustu umferð-
um og er nú jafn Hannesi að vinn-
ingum. Arnar hefur sýnt það að
undanförnu að hann er til alls lík-
legur þegar hann nær sér á strik,
en á það mun reyna í næstu um-
ferðum þegar hann fer að mæta
sterkustu mönnum mótsins.
Þegar litið er á stöðu íslensku
keppendanna eftir helgina má
segja að í heildina tekið sé hún
ekki ólík því sem var fyrir helgina.
Nú eru sex íslenskir skákmenn
meðal 16 efstu manna á mótinu,
en voru sjö fyrir helgina. Að vísu
hafa orðið nokkur mannaskipti í
íslensku forystusveitinni. Það
vakti t.d. athygli að Dagur Arn-
grímsson, sem er einungis 14 ára,
tapaði sinni fyrstu skák í fimmtu
umferð. Fram að því hafði hann
m.a. gert jafntefli við tvo stór-
meistara og sigrað einn alþjóðleg-
an meistara. Það var norski al-
þjóðlegi meistarinn Leif Erlend
Johannesen (2.429), sem náði að
leggja Dag, en Dagur hefur
örugglega ekki sagt sitt síðasta
orð í þessu móti og því full ástæða
til að fylgjast vel með honum.
Staðan á mótinu eftir fimm um-
ferðir:
1. Ivan Sokolov 4½ v.
2.–3. Jan H Timman, Jaan
Ehlvest 4 v.
4.–10. Hannes H. Stefánsson,
Lars Schandorff, Peter Heine
Nielsen, Arnar Gunnarsson, Tomi
Nyback, Leif Erlend Johannes-
sen, Jonny Hector 3½ v.
11.–16. Murray G. Chandler,
Helgi Ólafsson, Henrik Danielsen,
Stefán Kristjánsson, Ingvar Ás-
mundsson, Ingvar Þór Jóhannes-
son 3 v.
17.–25. Dagur Arngrímsson,
Jón Viktor Gunnarsson, Þröstur
Þórhallsson, Guðmundur Gíslason,
Róbert Harðarson, Björn Þor-
finnsson, Friðrik Ólafsson, Davíð
Kjartansson, Guðmundur Pálma-
son 2½ v.
26.–35. Magnús Örn Úlfarsson,
Halldór Halldórsson, Áskell Ö.
Kárason, Bragi Þorfinnsson, Pall
A. Thorarinsson, Tómas Björns-
son, Guðmundur Kjartansson,
Björn Þorsteinsson, Kristján Eð-
varðsson, Sigurður P. Steindórs-
son 2 v.
o.s.frv.
Teflt er í ráðhúsi Reykjavíkur
og eru áhorfendur velkomnir.
Teflt er daglega og umferðir hefj-
ast klukkan 17.
Sokolov tekur foryst-
una á minningarmótinu
um Jóhann Þóri
SKÁK
R á ð h ú s
R e y k j a v í k u r
23.10.–1.11. 2001
Daði Örn Jónsson
MINNINGARMÓT
UM JÓHANN ÞÓRI
JÓNSSON
Minningarmót Jóhanns Þóris.
Fimmta umferð
1 Ivan Sokolov - Lars Schandorff 1-0
2 Jaan Ehlvest - Murray G. Chandler 1-0
3 Hannes H. Stefánss. - Peter H. Nielsen ½-½
4 Jan H. Timman - Helgi Ólafss. 1-0
5 Jonny Hector - Jón Viktor Gunnarss. 1-0
6 Stefán Kristjánss. - Henrik Danielsen ½-½
7 Friðrik Ólafss. - Arnar Gunnarss. 0-1
8 Róbert Harðars. - Tomi Nyback 0-1
9 Leif E. Johannessen - Dagur Arngrímss. 1-0
10 Björn Þorfinnss. - Þröstur Þórhallss. ½-½
11 Ingvar Ásmundss. - Páll A. Þórarinss. 1-0
12 Magn. Ö. Úlfarss. - Ingvar Þ. Jóhanness. 0-1
13 Davíð Kjartanss. - Bragi Þorfinnss. ½-½
14 Guðm. Gíslas. - Jón Árni Halldórss. 1-0
15 Halldór Halldórss. - Áskell Ö. Káras. ½-½
16 Guðm. Pálmas. - Lenka Ptacnikova 1-0
17 Sig. P. Steindórss. - Tómas Björnss. ½-½
18 Gudjón H. Valgarðss. - Björn Þorsteinss. 0-1
19 Sævar Bjarnas. - Guðmundur Kjartanss. 0-1
20 Kristján Eðvarðss. - Olavur Simonsen 1-0
21 Gylfi Þórhallss. - Hrannar Baldurss. 1-0
FRÉTTIR
Félagsfundur um
Downs-heilkenni
FÉLAG áhugfólks um Downs-heil-
kenni heldur félagsfund í dag,
þriðjudaginn 30. október, kl. 20, í
húsi Landssamtakanna Þroska-
hjálpar, Suðurlandsbraut 22.
Sigurður Rúnar Sæmundsson og
Magnús J. Kristinsson barnatann-
læknar fræða gesti um tannheilsu og
tannvernd barna. Að loknum fyrir-
lestri verður spjallað yfir kaffibolla,
segir í fréttatilkynningu.
Fræðslufundur
um Grænland
DAGSKRÁ á vegum Grænlensk-ís-
lenska félagsins Kalak í sal Norræna
hússins verður í kvöld, þriðjudags-
kvöldið 30. október, kl. 20.
Biskup Íslands, Karl Sigurbjörns-
son, mun segja frá Þjóðhildarkirkju í
Brattahlíð og Róbert Schmidt mun
segja í máli og myndum frá Kaj-
akferð um Kulusuk-svæðið á Austur-
Grænlandi. Aðgangur er ókeypis og
eru allir velkomnir.
Kynning á
lífupplýsingafræði
ARNALDUR Gylfason kynnir gögn,
aðferðir og lausnir á sviði lífupplýs-
ingafræði, þriðjudaginn 30. október
kl. 16.15 – 18 í húsi Íslenskrar erfða-
greiningar að Lynghálsi 1.
Fjallað verður um notkun
strengjasamanburðar og reiknirit
sem notuð eru til þess. Skoðað verð-
ur hvaða aðferðir aðgerðarannsókna
eru notaðar á þessu sviði og sérstak-
lega farið í notkun kvikrar bestunar í
lífupplýsingafræði.
Allir eru velkomnir.
HÁTÍÐIN „Við vorum ung í Kópa-
vogi 1950–1970“ verður haldin í Fé-
lagsheimili Kópavogs laugardaginn
3. nóvember nk., en með breyttum
formerkjum, því nú eru afkomendur
fyrrnefndra Kópavogsbúa sérstak-
lega boðnir velkomnir með pabba og
mömmu. Að öðru leyti eru allir vel-
komnir.
Húsið verður opnað kl. 21 og leik-
ur Gunnar Páll Ingólfsson fyrir
gesti. Eftir það munu Lúdó og Stef-
án leika fyrir dansi til kl. 3. Aðgöngu-
miðar verða seldir í Café Catalínu,
Hamraborg 11, frá og með laugar-
deginum 27. október. Athugið, ekki
tekið við greiðslukortum. Verð að-
göngumiða 1.500 kr.
Afkomendur
boðnir velkomnir
á Kópavogsgleði
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi sem
átti sér stað á gatnamótum Kringlu-
mýrarbrautar og Sæbrautar að
kvöldi 28. október 2001 um kl. 21.15.
Ljósrauðri Hyundai-fólksbifreið
var ekið vestur Sæbraut en dökk-
rauðri Isuzu-jeppabifreið var ekið
eftir Kringlumýrarbraut og beygt til
vinstri inn á Sæbrautina til vesturs.
Ágreiningur er milli ökumanna um
stöðu umferðarljósanna.
Lýst eftir vitnum
Kynning á
flokkunarlista fyrir
landupplýsingar
KYNNINGARFUNDUR verður
haldinn á vegum LÍSU-samtakanna
og Landmælinga Íslands á Hótel
Sögu, Ársal, miðvikudaginn 31. októ-
ber kl. 12.45–16. Fundurinn er hald-
inn í samráði við Tækninefnd LÍSU
og Fagráð í upplýsingatækni. Kynnt
verður vinna við samræmdan flokk-
unarlista um skráningu atriða í land-
upplýsingakerfi. Farið verður yfir
stöðu verkefnis, vinnuferli og sam-
starfsaðilar kynna þá yfirflokka sem
þeir hafa umsjón með. Erindi flytja:
Guðbjörg Sigurðardóttir og Jófríður
Guðmundsdóttir. Fundarstjóri verð-
ur Magnús Már Magnússon.
Skráning á skrifstofu LÍSU: lisa-
@aknet.is. Ókeypis fyrir LÍSU-fé-
laga og 1.000 kr. fyrir aðra, segir í
fréttatilkynningu
Kaffibar á
Eiðistorgi
ESPRESSOBARINN í Blómastof-
unni Eiðistorgi á Seltjarnarnesi var
opnaður nýlega. Á Espressobarnum
verður aðaláhersla lögð á kaffi, en
einnig verður boðið upp á aðra heita
og kalda drykki ásamt léttu meðlæti.
Breytingar hafa verið gerðar á
húsnæði Blómastofunnar, en hún
býður áfram upp á íslensk og sér-
innflutt blóm og gjafavöru, meðal
annars eigin innflutning frá Mar-
okkó og nytjalist ungra skandinav-
ískra hönnuða. Espressobarinn og
Blómastofan Eiðistorgi eru opin
daglega frá kl. 10 til 21.
UNDANÚRSLIT í heimsmeist-
aramótinu í brids hefjast í dag í París
en keppnin um Bermúdaskálina og
Feneyjabikarinn hófst fyrir rúmri
viku. Þrjár Evrópusveitir tryggðu
sér í gær sæti í undanúrslitum í opna
flokknum: Norðmenn, Ítalar og Pól-
verjar, en fjórða sveitin er B-sveit
Bandaríkjanna.
Í kvennaflokki komust einnig
þrjár Evrópusveitir í undanúrslit,
Austurríkismenn, Frakkar og Þjóð-
verjar, auk B-sveitar Bandaríkjanna.
Í opnum flokki unnu Pólverjar
öruggan sigur á Indverjum, 279:105.
B-sveit Bandaríkjanna vann einnig
Frakka nokkuð örugglega, 276:178,
en í bandarísku sveitinni spila m.a.
Alan Sontag og Peter Weischel sem
síðast spiluðu saman árið 1983 og
urðu þá heimsmeistarar. Norðmenn
unnu Indónesa 297:215,5. Þá unnu
Ítalar A-sveit Bandaríkjanna,
262:146.
Í undanúrslitunum spila saman
annars vegar Norðmenn og Ítalar og
hins vegar Pólverjar og Bandaríkja-
menn í opnum flokki og Þjóðverjar
og Austurríkismenn annars vegar og
Frakkar og Bandaríkin hins vegar í
kvennaflokki.
Leikur Evrópumeistara Ítala og
A-sveitar Bandaríkjanna var lengi
vel mjög spennandi. Ítalar náðu for-
skoti í upphafi en Bandaríkjamenn
jöfnuðu metin þegar fjórum lotum af
sex var lokið. Fimmta 16 spila lotan
endaði hins vegar 57-0 fyrir Ítala og
þar með voru úrslitin ráðin. Núver-
andi heimsmeistarar eru því úr leik.
Þetta spil er úr leik Ítala og
Bandaríkjamanna og er athyglisvert
fyrir áhugamenn um sagntækni:
Vestur gefur, enginn á hættu
Norður
♠ 109842
♥ ÁK875
♦ 6
♣D7
Vestur Austur
♠ G65 ♠ ÁKD7
♥ G ♥ 6
♦ ÁD10853 ♦ K94
♣954 ♣Á10832
Suður
♠ 3
♥ D109432
♦ G72
♣KG6
Við annað borðið sátu Ítalarnir
Giorgio Duboin og Norberto Bocchi
AV og Bandaríkjamennirnir Jeff
Meckstroth og Eric Rodwell NS:
VESTUR NORÐUR AUSTUR SUÐUR
Duboin Meckstr. Bocchi Rodwell
Pass Pass 1 lauf 1 hjarta
3 tíglar 4 tíglar 4 hjörtu pass
5 tíglar Pass Pass Pass
Það er athyglisvert að Duboin í
vestur skyldi ekki opna á einhverri
veikri tígulsögn; á íslensku bridsmóti
myndi enginn maður segja pass með
vesturspilin. En sagnir þróuðust
heppilega fyrir AV og 5 tíglar unnust
auðveldlega, 400 til Ítalíu.
Við hitt borðið sátu Bob Hamman
og Paul Soloway AV fyrir Bandarík-
in og Ítalarnir Lorenzo Lauria og
Alfredo Versace sátu NS:
VESTUR NORÐUR AUSTUR SUÐUR
Hamman Lauria Soloway Versace
3 tíglar 4 tíglar 4 grönd 5 lauf
pass 5 hjörtu///
Hamman valdi að opna á hindrun-
arsögn og Lauria lét eins og hann
ætti að minnsta kosti 8 slaga hendi
með hálitina. Ítalarnir sögðu svo
sannfærandi að Soloway þorði ekki
að dobla 5 hjörtu sem fóru aðeins
einn niður, 50 til Bandaríkjamanna
en 8 impar til Ítalíu.
Keppnin um Bermúdaskálina
Þrjár Evrópu-
sveitir í
undanúrslit
Guðm. Sv. Hermannsson
BRIDS
P a r í s
Heimsmeistaramótið í brids er
haldið í París dagana 21. október til
3. nóvember. Hægt er að fylgjast
með mótinu á heimasíðunni
www.bridge.gr.