Morgunblaðið - 02.11.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENDIR aðilar hafa í vaxandi
mæli leitað til fjármálaráðuneyt-
isins eftir bindandi álitum í skatta-
málum, hvað varðar túlkun ís-
lenskra stjórnvalda á tvísköttunar-
samningum, en í Morgunblaðinu í
gær kom fram að dæmi eru um að
erlend fjármála- eða stórfyrirtæki
hafi stofnað hér eignarhaldsfélög
vegna skattalegs hagræðis sem því
getur verið samfara. Þannig stofn-
aði fjárfestingarbankinn Morgan
Stanley hér þrjú fyrirtæki í sumar.
Baldur Guðlaugsson, ráðuneyt-
isstjóri í fjármálaráðuneytinu,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að lögum samkvæmt annist fjár-
málaráðuneytið túlkun tvísköttun-
arsamninga, en það séu samningar
sem gerðir séu við einstök lönd
þar sem samið sé um gagnkvæma
skiptingu skattlagningarréttarins
jafnframt því sem komið sé í veg
fyrir sköttun sömu teknanna og
eignanna í báðum löndunum. All-
nokkuð sé um það að erlendir að-
ilar, sem hafi hugmyndir um að
setja hér upp félög, leiti álits ráðu-
neytisins á því hvernig muni vera
háttað skattlagningu, en vel að
merkja sé oft um að ræða félög
sem ekki ætli sér í reynd að reka
mikla starfsemi hér á landi aðra en
nánast utanumhald um starfsemi
félaganna í öðrum löndum. Í slík-
um tilvikum verði tekjurnar til í
dótturfélögum eða útibúum í öðr-
um löndum fyrst og fremst og
spurningin snúi að því hvernig
tekjum og eignum skuli skipt milli
höfuðstöðva hér og útibús í öðru
landi með tilliti til skattlagningar.
Einnig komi til álita skattlagning
vegna flutnings teknanna til eig-
enda sem búi í þriðja landinu. Oft
sé um að ræða mjög flókið fyr-
irtækjamynstur þar sem Ísland sé
bara einn hlekkur í langri keðju og
inn í þetta spili bæði ákvæði tví-
sköttunarsamninga og ákvæði inn-
lendrar skattlöggjafar, bæði að því
er varðar skattlagningu tekna fé-
lagsins sem myndast hafi erlendis
sem og skattlagningu arðgreiðslna
eða annarra útgreiðslna til eig-
enda.
Aðspurður hvort einhver ávinn-
ingur fyrir íslenskt efnahags- og
atvinnulíf sé af stofnun þessara fé-
laga hér á landi ef þau rækju hér
litla sem enga starfsemi, sagði
Baldur ávinninginn ekki alltaf aug-
ljósan í slíkum tilvikum. Það færi
þó eftir því að hvaða marki heild-
arhagnaður af alþjóðlegum umsvif-
um viðkomandi félags kæmi til
skattlagningar hér á landi. Auk
þess gætu fylgt þessu einhver
verkefni fyrir innlenda sérfræð-
inga sem tækju að sér að halda ut-
an um þá takmörkuðu starfsemi
sem rekin væri hér. Hins vegar
væri ekkert nema gott um það að
segja að erlendir aðilar sýndu Ís-
landi áhuga í þessum efnum.
Æskilegast væri þó að það byggð-
ist á því mati slíkra aðila að al-
menn starfsskilyrði atvinnurekstr-
ar væru hagstæð hér og þær
breytingar sem ríkisstjórnin hefði
lagt fram tillögur um að gera á
hinu almenna skattalega umhverfi
miðuðu að því að örva atvinnulíf og
gera Ísland að æskilegum kosti í
þessum efnum og áhugavert fyrir
hingaðkomu erlendra aðila.
Dæmi um kröfur um
takmörkunarákvæði af
hálfu viðsemjenda
Baldur sagði jafnframt að þess
væru dæmi í viðræðum um tví-
sköttunarsamninga nú að gerðar
væru af hálfu viðsemjenda okkar
kröfur um að inn kæmu takmörk-
unarákvæði (limitation of bene-
fits). Slík ákvæði fælu í sér að sett
væru fram ákveðin skilyrði fyrir
því að félög gætu notið hagræðis
af ákvæðum tvísköttunarsamninga
og meðal annars sé þá horft til
þess hvers konar tekjur um sé að
ræða og gerð krafa um að þær hafi
skapast í virkri starfsemi í við-
komandi landi.
Áhugi erlendra aðila á stofnun eignarhaldsfélaga hér
Vaxandi áhugi á
bindandi álitum í
skattamálum
SVARTIR riddarar, hrókar, peð og
jafnvel biskupar í fullum skrúða
heyja nú tvísýnt stríð í Ráðhúsi
Reykjavíkur við hvíta fjendur sína.
Báðar fylkingar eru tilbúnar að
verja konung sinn með öllum til-
tækum ráðum, jafnvel þó að það
þýði dauða.
Herforingjar þeirra sem eru ís-
lenskir jafnt sem erlendir skák-
menn, skipuleggja baráttuna eftir
ströngum leikreglum, en hverri orr-
ustu verður að ljúka innan ákveð-
inna tímamarka svo álagið er mikið
og andrúmsloftið þrungið spennu.
Einbeitingin skein líka úr andliti
hvers skákmanns er blaðamaður
læddist um gólf Ráðhússins og
fylgdist með þöglu stríði á hverju
taflborði. Undanfarna daga hafa 42
skákmenn, sem margir hverjir eru
stórmeistarar, teflt á þessu al-
þjóðlega minningarmóti um Jóhann
Þóri Jónsson skákmann, sem hefði
orðið sextugur um þessar mundir.
Sjá mátti jafnt eldri meistara, sem
þegar hafa skráð nöfn sín á spjöld
íslenskrar skáksögu, sem yngri og
upprennandi skákmenn framtíð-
arinnar íbyggna á svip færa menn
sína af miklu öryggi. Af þeim yngri
höfðu þegar nokkrir komið á óvart
á mótinu og staðið sig með prýði.
Bosníumaðurinn Ivan Sokolov
var fyrir umferðina í gær efstur á
mótinu eftir 9 umferðir, en Hannes
Hlífar Stefánsson hafði flesta vinn-
inga af Íslendingunum.
Flestir skákáhugamenn sem rætt
var við virtust sammála um að mót-
ið væri sérstakt að því leyti að Guð-
mundur Pálmason, sem lítið hefur
spurst til í skákheimum síðan hann
gerði jafntefli við Sovétmanninn
Stein á skákmóti á Kúbu árið 1966,
settist aftur við skákborðið nú, til að
heiðra minningu félaga síns, Jó-
hanns Þóris. Guðmundur sagðist þó
aðeins hugsa sér að tefla á þessu
eina móti.
Meðal hátinda á skákferli Guð-
mundar má nefna að hann gerði tví-
vegis jafntefli við hollenska skák-
manninn Euve á fimmta og sjötta
áratugnum, svo og við hinn þekkta
skákmeistara Spasky á heimsmeist-
aramóti stúdenta árið 1957 í
Reykjavík, svo fátt eitt sé nefnt.
Skákmenn safna með tímanum
svokölluðum Elo-stigum sem segja
til um styrkleika þeirra. Athygli
vekur að Guðmundur hefur engin
slík stig þrátt fyrir glæstan skákfer-
il. En ástæðan er einföld; Elo-stigin
komu ekki til sögunnar fyrr en 1970
og þá hafði Guðmundur lagt tafl-
borðið á hilluna, í það minnsta á op-
inberum vettvangi.
Friðrik Ólafsson stórmeistari
settist einnig að nýju við skákborðið
á þessu móti, en hann hefur verið
minna áberandi í skákheimum að
undanförnu. Friðrik er ánægður að
sjá vin sinn Guðmund aftur á kapp-
skákmóti og sömuleiðis fleiri eldri
og mæta skákmenn.
Friðrik segir mikla eftirsjá að Jó-
hanni Þóri úr íslensku skáklífi enda
hafi hann verið líflegur skákmaður.
„Jóhann var mjög sérstakur skák-
maður og hafði mikil áhrif á skák-
ina á Íslandi. Það er nú þess vegna
sem ég ákvað að taka þátt í þessu
móti, til að heiðra minningu hans og
sýna þakklæti mitt fyrir framlag
hans til skákarinnar. Sagt er að
hann hafi litið á skákina sem gullæð
í gráu bergi. Það lýsir honum vel.“
Skákáhugamenn um allan heim
geta nú fylgst með skákmótum í
gegnum Netið. Minningarmót Jó-
hanns Þóris var engin undantekn-
ing, skákborðin eru tengd við tölvu
sem kemur skilaboðum um allar
hreyfingar á taflmönnum til um-
heimsins á örskotsstundu. Hægt er
að fylgjast með síðustu umferð
mótsins, sem hefst klukkan 13 í dag,
á www.skak.is, en til að fá stemmn-
inguna beint í æð er salur Ráðhúss-
ins öllum opinn.
Hætti áður en
Elo-stigin komu
til sögunnar
Guðmundur Pálmason einbeitt-
ur á svip en 35 ár eru liðin síðan
hann tefldi síðast opinberlega.
Friðrik Ólafsson tefldi á minning-
armótinu en hann er án efa þekkt-
asti skákmaður Íslendinga.
Guðmundur Kjartansson, þrett-
án ára, hugsar næsta leik.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Telft er af kappi í Ráðhúsinu þessa dagana í
minningu Jóhanns Þóris Jónssonar. Sunna
Ósk Logadóttir kíkti í heimsókn og spjall-
aði við skákmenn milli stríða.
SJÚKRALIÐAR á Landspít-
alanum – háskólasjúkrahúsi
sem unnið hafa samkvæmt
svonefndum undanþágulistum
í verkföllum sjúkraliða fengu
ekki greidd laun fyrir vinnu
sína í verkföllunum nú um
mánaðamótin.
Bjarni Kr. Grímsson, deild-
arstjóri launadeildar Land-
spítala – háskólasjúkrahúss
segir að þetta eigi við um þá
sex daga sem verkföllin stóðu
eftir 15. október sl. Bjarni
segir ástæðuna fyrir þessu
vera þá að undanþágulistarnir
bárust ekki í tæka tíð en
vinnuskýrslur þurfi að vera
tilbúnar fyrir 25. hvers mán-
aðar til að hægt sé að keyra
upplýsingar úr þeim saman
við launakerfi ríkisbókhalds.
Leiðrétt um leið og upp-
lýsingar berast um vinnu
Bjarni segir að þegar
sjúkraliðar boðuðu verkfall
hafi ríkisbókhald tekið þá út af
launaskrá fyrir þá daga sem
verkfall var boðað. Leiðrétta
hefði þurft laun þeirra sem
unnu á undanþágulistunum en
því miður hefðu upplýsingarn-
ar ekki borist í tæka tíð.
Aðspurður segir hann að
margir sjúkraliðanna hafi þeg-
ar fengið leiðréttingu á sínum
málum og þeir sem eftir séu
fái leiðréttingu um leið og
upplýsingar um vinnu þeirra
berist.
Undan-
þágulist-
ar bárust
ekki í
tæka tíð
HEILDARUPPGJÖRI Viðlaga-
tryggingar Íslands vegna tjóna
sem urðu af völdum jarðskjálft-
anna á Suðurlandi 17. og 21. júní
í fyrra er sem næst lokið. Bóta-
skylt tjón hefur orðið á 2.505
eignum (matshlutum) og heildar-
greiðslur námu 10. október sl.
2.215 milljónum kr., að því er
kemur fram í svari viðskiptaráð-
herra við fyrirspurn Margrétar
Frímannsdóttur (S) á Alþingi.
Í svarinu kemur fram að enn
sé verið að tilkynna stök tjón á
eignum sem menn telji að rekja
megi til skjálftanna og nokkuð sé
um að frekari skemmdir komi í
ljós á áður metnum eignum, t.d.
við framkvæmd viðgerða, enda
hafi verið búist við slíku við fyrri
matsgerðir og uppgjör. Ekki eru
þó líkur á að ótilkynnt tjón
breyti verulega heildarupphæð
tjónabóta.
Jarðskjálftarnir á Suðurlandi
Heildartjón um
2,2 milljarðar