Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ FLUGLEIÐIR telja að strax þurfi að hefja markaðssókn erlendis til að fyrirbyggja verulega fækkun ferða- manna til Íslands á næsta ári og munu leggja á það höfuðáherslu í markaðsstarfi sínu á næsta ári að verja þann árangur sem náðst hefur í fjölgun ferðamanna til landsins und- anfarin ár. Mun flugfélagið óska eftir viðræðum við stjórnvöld um sam- starf í ljósi vilja stjórnvalda til að taka á vandanum. Árlegum markaðsdögum Flug- leiða lauk í gær þar sem farið var yfir markaðshorfur félagsins auk þess sem kynntar voru nýjar upplýsingar um þjóðhagslegar afleiðingar sam- dráttar í ferðaþjónustunni. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur metið mikilvægi Flugleiða í þjóðarbúskapnum en þess má geta að gjaldeyristekjur Flugleiða og ís- lenskrar ferðaþjónustu eru árlega um 12,5% af heildargjaldeyristekjum þjóðarinnar. Niðurstöður hagfræði- stofnunar benda til þess að samdrátt- ur hjá Flugleiðum sem orsakar 10% fækkun ferðamanna til Íslands muni leiða til um 10,7 milljarða króna nei- kvæðra atvinnu- og efnahagsáhrifa í hagkerfinu öllu og fækkunar um rúmlega 1.100 ársverk. 30% fækkun ferðamanna myndi hafa í för með sér 32 milljarða króna neikvæð áhrif og fækkun sem nemur 3.400 ársverkum. Gríðarleg óvissa í Bandaríkjunum Fram kom á markaðsdögunum, sem er árlegur fundur svæðisstjóra Flugleiða erlendis, að gríðarleg óvissa ríki nú um flug- og ferðastarf- semi í Bandaríkjunum vegna ástands heimsmála. Almennt er gert ráð fyrir miklum samdrætti en Ameríku- og Evrópuflug Flugleiða hefur dregist saman um 21% frá 11. september. Flugleiðir hafa ákveðið að draga saman um 11% í flugi til og frá Ís- landi næsta sumar. Af hálfu Flug- leiða er þó stefnt að því að nýta þau tækifæri sem virðast vera fyrir hendi í sölu svokallaðra hvataferða til Ís- lands frá Bandaríkjunum. Á Skandinavíuskrifstofu Flugleiða er stefnt að því að auka enn við mark- aðshlutdeild Flugleiða í flugi til Bandaríkjanna á næsta ári, þótt gert sé ráð fyrir að heildarflutningar muni dragast saman. Nokkrum samdrætti er þá spáð í flugi milli Íslands og Norðurlandanna. Ástand markaðsmála í Bretlandi, þar sem ferðamönnum til Íslands hefur fjölgað mikið undanfarin ár, er á þann veg, samkæmt upplýsingum Stefáns Eyjólfssonar svæðisstjóra, að bókanir í nóvember og desember eru álíka margar og í fyrra og að auki kom nýliðinn októbermánuður mun betur út í ár en október í fyrra. Hins vegar ríkir meiri óvissa um bókanir fyrstu mánuði næsta árs. Markaðurinn að taka við sér á meginlandi Evrópu Á meginlandi Evrópu eru vísbend- ingar um að markaðurinn sé að taka við sér, en Flugleiðir hafa á því svæði gert mikið átak í markaðssókn með ferðaheildsölum og ferðaskrifstofum. Fram kom í máli Gunnars Más Sig- urfinnssonar, svæðisstjóra í Frank- furt, að Flugleiðir væru nú komnar á blað í 6 milljónum ferðabæklinga fyr- ir komandi vetur. „Við sjáum meiri bókanir til Íslands, þrátt fyrir allt,“ sagði hann. Steinn Logi Björnsson, fram- kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Flugleiða, sagði að gífurlega mikil- vægt væri fyrir Flugleiðir að komast inn í dreifileiðirnar á meginlandi Evrópu, en markaðssókn síðastlið- inna þriggja ára hefði loks skilað þessum árangri. Hann sagði í samtali við Morgun- blaðið að Flugleiðir hefðu á síðustu dögum merkt vaxandi fyrirspurnir eftir mikla niðursveiflu í bókunum, bæði til Íslands og yfir Atlantshafið. „Við viljum, fyrst samgönguráðherra hefur lýst því yfir að fyrra bragði að hann vilji gjarnan reyna að verja þá hagsmuni sem eru í íslenskri ferða- þjónustu, freista þess að sækja fram áður en við tökum ákvarðanir um frekari niðurskurð,“ sagði hann. Aðspurður sagði hann að þetta myndi fela í sér fjárhagslega áhættu fyrir Flugleiðir en benti jafnframt á að aðgerðaleysi væri ekki síður áhættusamt. „Við stöndum frammi fyrir því að við getum ekki sýnt að- gerðaleysi. Þá þyrftum við að skera verulega niður, sem er líka dýrt, þ.e. að segja upp fólki, losa út flugvélar og slíkt. Bara sú ákvörðun að skera niður kostar mikla fjármuni eins og er að koma í ljós með evrópsk flug- félög, sem sum hver standa svo illa að þau geta ekki greitt fólki sem þau hafa sagt upp laun út uppsagnar- frestinn.“ 10% fækkun ferðamanna til landsins myndi fækka ársverkum um 1.100 Flugleiðir vilja tafarlausa markaðssókn erlendis Morgunblaðið/Þorkell Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs. FYLGI Sjálfstæðisflokksins mælist nú rösklega 46% skv. fylg- iskönnun Gallup og hefur aukist um fjögur prósentustig frá síðustu könnun í september og hefur ekki mælst hærra í könnunum Gallup frá í september í fyrra. Fylgi Samfylkingarinnar breyt- ist lítið frá síðustu könnun, fer nú úr tæplega 19% í slétt 18%. Stuðningur við Vinstrihreyf- inguna – grænt framboð (VHG) og Framsóknarflokkinn fer hins veg- ar minnkandi og fellur um tvö pró- sentustig á milli kannana. Fylgi Vinstrihreyfingarinnar mælist nú 19% og fylgi Framsóknarflokksins 13%. Frjálslyndi flokkurinn bætir við sig rösklega einu prósentustigi frá því síðast og mælist nú með rúmlega 3% fylgi. 63% styðja ríkisstjórnina Stuðningur við ríkisstjórnina fer lítið eitt vaxandi og nýtur hún nú stuðnings 63% kjósenda skv. könn- uninni en var 62% í síðustu könn- un. Könnun Gallup var gerð dagana 26. september til 30. október. Úr- takið var 2.773 manns á aldrinum 18 til 75 ára og svarhlutfallið um 70%. Sjálfstæð- isflokkur mælist með 46% fylgi Fylgiskönnun GallupÞRIGGJA bíla árekstur varð ámótum Vesturlandsvegar og Víkurvegar í Mosfellsbæ um áttaleytið í gærmorgun án þess þó að teljandi meiðsl hlytust af. Miklar tafir urðu hins vegar á umferð er lögregla athafnaði sig á vettvangi. Þá varð árekstur á Bústaða- brúnni skömmu síðar en meiðsl á fólki lítil eða engin. Að sögn umferðardeildar lögreglunnar í Reykjavík voru akstursskilyrði mjög slæm í gærmorgun, myrkur og götur blautar. Þriggja bíla árekst- ur í Mos- fellsbæ Á FUNDI Halldórs Ásgrímssonar ut- anríkisráðherra með Alexander Borisov, staðgengli efnahags- og viðskiptaráðherra Rússlands, lýstu Rússar áhuga á framkvæmd EES- samningsins og óskuðu eftir nánari upplýsingum frá Íslandi þar að lút- andi. Í fréttatilkynningu frá utanrík- isráðuneytinu kemur fram að áhugi Rússa tengist undirbúningi við- ræðna þeirra við Evrópusambandið um efnahagssamvinnu. Utanrík- isráðherra tók vel í málaleitan Rússa og er frekara samráð ríkjanna um reynslu Íslands af framkvæmd EES- samningsins fyrirhugað á næstunni. Á fundinum voru einnig rædd ým- is mikilvæg tvíhliða viðskiptamál. Ákveðið var að hefja viðræður milli Íslands og Rússlands í tengslum við fyrirhugaða aðild Rússa að Alþjóða- viðskiptastofnuninni WTO. Halldór lagði áherslu á að tollalækkanir á sjávarafurðum yrðu forgangsatriði af hálfu Íslands. Þá var rætt um fyr- irhugaðan samning landanna um gagnkvæma vernd fjárfestinga. Gert var ráð fyrir því að Halldór myndi hitta Igor Ivon, utanríkis- ráðherra Rússlands, en þeim fundi var frestað. Í dag ræðir utanríkisráðherra við Alexei Kudrin, varaforsæt- isráðherra og fjármálaráðherra Rússlands. Hann mun og eiga fund með Dmitry Rogozin, formanni ut- anríkismálanefndar rússneska þingsins, Evgeny Nazadratenko, formanni sjávarútvegsráðsins, og Igor Yusufov orkumálaráðherra að því er fram kemur í tilkynningu. Vilja upplýsingar um fram- kvæmd EES-samningsins Itar Tass/Konstantin Kyjel Halldór Ásgrímsson lagði í gær blómsveig að gröf hins óþekkta hermanns í Alexandersgarðinum við Kreml. Heimsókn Halldórs Ásgrímssonar til Rússlands SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ not- aði flugvél Flugmálastjórnar 25. maí síðastliðinn og 22. maí notaði Flugmálastjórn hana til flugpróf- ana, að sögn Heimis Más Péturs- sonar, upplýsingafulltrúa stofnun- arinnar. Gísli S. Einarsson alþingismaður hefur gert fyrir- spurn um notkun vélarinnar og segir að ákveðnar ábendingar hafi komið fram um ónauðsynlega notkun vélarinnar og sérstaklega hafi honum verið bent á þessa daga. Jakob Falur Garðarsson, aðstoð- armaður Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra, segir að vélin hafi verið notuð til að flytja ráð- herra milli staða umræddan dag. Fyrri hluta dagsins varði ráðherra til að kynna íslenska hestinn í Laugardal, hann flaug síðan með vélinni til Akureyrar þar sem hann ávarpaði ársfund Slysavarna- félagsins Landsbjargar. Þaðan var flogið til Stykkishólms þar sem ráðherra sótti ráðstefnu um menn- ingartengda ferðaþjónustu. Um kvöldið var ráðherra viðstaddur frumsýningu á leikritinu Fróðár- undrin sem var innlegg í ráðstefn- una. Ráðherra keyrði síðan til Reykjavíkur seint um kvöldið en flugvélinni var flogið til Reykjavík- ur. Jakob Falur segir ekkert óeðli- legt við notkun vélarinnar þennan dag og segir flugvélina oft notaða til að flytja ráðherra milli staða. „Það er vert að hafa í huga að tími ráðherranna er dýrmætur. Við notum að sjálfsögðu áætlunarflug þegar því verður við komið en þeg- ar um er að ræða marga fund- arstaði sem eru dreifðir um landið er þetta eina aðferðin sem við höf- um,“ segir Jakob Falur. Hann seg- ir að greitt sé fyrir notkun vél- arinnar en Flugmálastjórn sér um rekstur hennar. Flugvélin notuð til að flytja ráðherra milli staða ♦ ♦ ♦ GJALDSKRÁ korthafa VISA breyttist 18. september sl. og hækkuðu einstakir liðir hennar mismunandi mikið skv. upplýs- ingum Þórðar Jónssonar, for- stöðumanns þjónustusviðs VISA Ísland. Þannig hækkaði t.d. árgjald vegna almenns korts úr 1.900 kr. í 2.500 kr. og árgjald gullkorts úr 7.500 í 8.500 kr., en þar er um algeng- ustu kortin að ræða. Að sögn hans hafa þessi gjöld ekki verið hækkuð í níu ár. Spurður um ástæður hækkan- anna sagði Þórður að þrýsting- ur á kostnað á bak við umrædd kort hefði leitt til þess að ákveðið var að breyta gjald- skránni á þessum tíma. Árgjöld VISA hækk- uðu í sept- ember
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.