Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 44
UMRÆÐAN
44 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í ársbyrjun 1999
ritaði undirritaður
grein í Morgunblaðið
undir heitinu „Á að
hækka eða lækka
vexti?“ Greinin hefst
með eftirfarandi orð-
um: „Er hin mikla út-
lánaþensla í hagkerf-
inu eftirspurnardrifin
eða framboðsdrifin?
Miklu skiptir að
greina þá krafta rétt
sem eru að verki á
lánsfjármarkaðnum ef
peningastjórnun á að
ná árangri.“
Í greininni eru síð-
an færð rök fyrir því
að „útlánaþenslan eigi sér fyrst og
fremst rætur á fram-
boðshlið lánamarkað-
arins, þ.e. hjá banka-
kerfinu sjálfu“. Þeirri
spurningu er velt upp
„hvort ekki hafi orðið
það miklar breytingar
á framboðshlið lána-
markaðarins á árinu
1998 að í raun sé um
kerfisbreytingu að
ræða sem breytt hafi
markaðsskilyrðum
lánsfjármarkaðarins
verulega. Í þessu sam-
hengi eru nefnd fjögur
atriði, þ.e. breytingar
á stjórntækjum Seðla-
bankans, tilkoma
Fjárfestingabanka atvinnulífsins,
harðnandi samkeppni bankanna,
og mikill vaxtamunur milli inn-
lendra og erlendra lána“. Frekari
grein er gerð fyrir þessum þáttum
í greininni.
Næstsíðasta málsgrein greinar-
innar hljóðar svo: „Mikill vaxta-
munur á inn- og erlendum lána-
markaði getur skapað verulegt
ójafnvægi á innlendum peninga-
markaði. Ef fjársterk innlend fyr-
irtæki sem njóta trausts erlendis
færa lánaviðskipti sín út úr landinu
vegna hagstæðari kjara losnar um
fjármagn hér innanlands og útlána-
geta innlendra banka eykst til ann-
arra viðskiptavina. Svipaða sögu er
að segja ef bankarnir sjálfir leita á
erlendan lánamarkað til að auka
útlánagetu sína hér á landi. Ef
bankarnir vilja auka útlán sín geta
þeir annað tveggja höfðað til spar-
enda um aukin innlán eða aukið er-
lenda lántöku sína til endurlána“.
Og lokamálsgreinin hljóðar svo:
„Ljóst er af ofangreindum þáttum
að mikill þrýstingur er á framboðs-
hlið lánsfjármarkaðarins um aukin
útlán. Einn lykilþáttur í þeim
þrýstingi er vaxtamunur milli inn-
lendra og erlendra lána sem gefur
bankakerfinu færi á auknum um-
svifum. Væri vaxtamunurinn minni
drægi verulega úr hvatningu
þeirra til erlendrar lántöku og end-
urlána. Lækkun vaxta drægi því
verulega úr frumkvæði bankakerf-
isins að útlánaþenslu. Í þessu sam-
hengi má velta upp hvort hinn
mikli viðskiptahalli sem þjóðarbúið
á við að etja eigi ef til vill rætur í
kerfisbreytingum á framboðshlið
lánsfjármarkaðarins“. Þannig voru
þau orð.
Nú nálægt þremur árum síðar
eru bæði fyrirtækin í landinu og
heimilin orðin mjög skuldum vafin
vegna þessarar miklu útlána-
þenslu, og því illa undir það búin að
mæta samdráttarskeiði. En við
skulum vona að þessi hagstjórn-
armistök kenni okkur að aðeins
góð menntun, þekking, fag-
mennska og skýlaus ábyrgð getur
tryggt að slík mistök endurtaki sig
ekki.
Hagvísindi og fag-
mennska Seðlabankans
Jóhann Rúnar
Björgvinsson
Hagfræði
Nú, nálægt þremur ár-
um síðar, segir Jóhann
Rúnar Björgvinsson,
eru bæði fyrirtækin í
landinu og heimilin orð-
in mjög skuldum vafin
vegna þessarar miklu
útlánaþenslu.
Höfundur er hagfræðingur hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í
Washington.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Vélstjóri óskast
1. vélstjóra vantar á skip sem er að fara á rækju-
veiðar við Grænland. Vélarstærð 1.280 kW.
Upplýsingar í síma 869 0065.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
NAUÐUNGARSALA
Nauðungarsölur
Framhald uppboðs á eftirtaldri fasteign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Skálá, 25%, Sveitarfélaginu Skagafirði, þingl. eign Árna Benediktsson-
ar, eftir kröfu sýslumannsins á Sauðárkróki, verður háð á eigninni
sjálfri, miðvikudaginn 7. október 2001, kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
31. október 2001,
Ríkarður Másson.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
1, Ísafirði, þriðjudaginn 6. nóvember 2001 kl. 14.00 á eftirfar-
andi eignum:
Aðalstræti 8, norðurendi, Ísafirði, þingl. eig. Ágúst Sigurður Saló-
monsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Bára ÍS 364, sk.skr.nr. 1053, þingl. eig. Sameyri ehf., gerðarbeiðandi
sýslumaðurinn á Selfossi.
Góuholt 8, Ísafirði, þingl. eig. Arnar Kristjánsson, gerðarbeiðendur
Ingvar Helgason hf. og Póllinn hf.
Hlíðarvegur 12, Ísafirði, þingl. eig. Kristján Finnbogason og María
Sonja Hjálmarsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður sjómanna.
Hlíðarvegur 15, neðri hæð, 0101, Ísafirði, þingl. eig. Bergljót Halldórs-
dóttir og Einar Garðar Hjaltason, gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Holtagata 29, Súðavík, þingl. eig. Byggingarfélag Súðavíkur ehf.,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Véla- og verkfærageymsla Fremri-Breiðadal, Önundarfirði, þingl.
eig. Skógarsveppir ehf., gerðarbeiðandi Lánasjóður landbúnaðarins.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
1. nóvember 2001.
STYRKIR
Félag heyrnarlausra,
Laugavegi 103,
105 Reykjavík,
sími 561 3560,
fax 551 3567
Menntunarsjóður Félags heyrnarlausra
Umsóknir um styrki
Stjórn Menntunarsjóðs Félags heyrnarlausra
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að menntun
heyrnarlausra, daufblindra og heyrnarskertra,
formlegrar og óformlegrar og einnig
starfsþjálfunar.
Skilyrði fyrir styrkveitingu úr sjóðnum er að
viðkomandi sé fullgildur félagsmaður í Félagi
heyrnarlausra.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum ásamt ítarleg-
um upplýsingum um umsækjendur og væntan-
legt nám, ber að senda til stjórnar Menntun-
arsjóðs Félags heyrnarlausra, Laugavegi 26,
101 Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2001.
TILKYNNINGAR
Handverksfólk athugið
Handverksmarkaður verður á Garða-
torgi laugardaginn 3. nóvember.
Vinsamlega staðfestið básapantanir í
síma 692 6673 eða 861 4950.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir
Bjarkarbraut 23, 0101, Dalvíkurbyggð, þingl. eig. Ingibjörg A. Helga-
dóttir, gerðarbeiðendur Fjármögnun ehf. og Sparisjóður Norðlend-
inga, þriðjudaginn 6. nóvember 2001 kl. 14:00.
Geislagata 7, gistihús, Akureyri, þingl. eig. Lykilhótel hf., gerðarbeið-
endur Akureyrarkaupstaður, Eignarhaldsfél Alþýðubankinn hf. og
Íslandsbanki-FBA hf., miðvikudaginn 7. nóvember 2001 kl. 10:30.
Glerárgata 34, suðurhl. vörug. á baklóð, Akureyri ásamt vélum og
tækjum, þingl. eig. Legsteinar ehf., gerðarbeiðendur Byggðastofnun
og sýslumaðurinn á Akureyri, miðvikudaginn 7. nóvember 2001
kl. 11:00.
Hvammshlíð 2, efri hæð og bílskúr, Akureyri, þingl. eig. Elsa Bald-
vinsdóttir, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Íslands hf. og Landsbanki
Íslands hf., miðvikudaginn 7. nóvember 2001 kl. 11:30.
Langholt 15, Akureyri, þingl. eig. Sigurgeir Bragason, gerðarbeiðend-
ur Akureyrarkaupstaður og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 7. nóv-
ember 2001 kl. 13:30.
Litlahlíð, íbúðarhús, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Anna Hafdís Karls-
dóttir, gerðarbeiðendur Ingvar Helgason hf. og sýslumaðurinn á
Akureyri, miðvikudaginn 7. nóvember 2001 kl. 14:30.
Litli-Garður, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Ármann Hólm I. Ólafsson,
gerðarbeiðendur Sandblástur og málmhúðun hf., sýslumaðurinn
á Akureyri og Véla- og skipaþjón Framtak ehf., miðvikudaginn 7.
nóvember 2001 kl. 15:15.
Sniðgata 1, neðri hæð, Akureyri , þingl. eig. Magnús Víðir Ásgeirsson,
gerðarbeiðandi AM PRAXIS sf., miðvikudaginn 7. nóvember 2001
kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
1. nóvember 2001.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
ÝMISLEGT
Lagerútsala
Hrím, umboðs- og heildverslun, verður með
lagersölu í húsnæði sínu, Smiðjuvegi 5.
Ýmsar vörur, s.s. haglabyssur, rifflar, skot,
veiðifatnaður, aukahlutir, golfsett, hand-
verkfæri, loftpressur, háþrýstidælur, kýtti,
festifrauð, rekskrúfur, múrboltar, múrtapp-
ar, rafmagnsverkfræði o.m.fl.
Opið virka daga frá kl. 9.00—17.30, laug-
ard. og sunnud. frá kl. 11.00—17.00.
Upplýsingar í síma 544 2020.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 1 1821128 8½ O*
I.O.O.F. 12 1821128½ 9.II.
Í kvöld kl. 21 heldur Kristján
Árnason erindi: „Grískar goð-
sögur í gleðileik Dantes” í húsi
félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Gunnlaugs
Guðmundssonar, sem fjallar um
stjörnuspeki og túlkun á stjörnu-
kortum þátttakenda.
Á sunnudögum kl. 17-18 er
hugleiðingarstund með leiðbein-
ingum fyrir almenning.
Hugræktarnámskeið Guðspeki-
félagsins verður framhaldið
fimmtudaginn 8. nóvember kl.
20.30 í umsjá Sigurðar Boga
Stefánssonar, sem mun fjalla
um „Kristna hugleiðingu”.
Á fimmtudögum kl. 16.30-
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta. Starfsemi félagsins er
öllum opin.
www.gudspekifelagid.is
mbl.is
ATVINNA