Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 29
NÝ SAMSTJÓRN hútúa og tútsa
tók við völdum í Afríkuríkinu Búr-
úndí í gær en vonast er til að þar
með hafi stórt
skref verið stigið
í þá átt að binda
enda á langvinna
borgarastyrjöld í
landinu. Pierre
Buyoya, sem
verið hefur leið-
togi Búrúndí frá
því að hann
rændi völdum
árið 1996, sór
embættiseið forseta en hann mun
gegna embættinu næstu átján
mánuði. Er gert ráð fyrir að sam-
stjórn þjóðflokkanna tveggja fari
með stjórnartaumana til bráða-
birgða næstu þrjú árin.
Nelson Mandela, fyrrverandi
forseti Suður-Afríku, var viðstadd-
ur sérstaka vígsluathöfn í Bujumb-
ura í gær.
Sagði Mandela, sem hefur stýrt
friðarviðræðum í Búrúndí undan-
farin tvö ár, í ávarpi til nýrra vald-
hafa að myndun samstjórnarinnar
markaði tímamót. „Ég sagði ykkur
alltaf að þið mættuð ekki láta
svartsýnina ná yfirhöndinni. Við
megum ekki láta hina herskáu
halda friðarferlinu í gíslingu,“
sagði hann.
Hundruð þúsunda
manna hafa fallið
Um 250 þúsund manns eru taldir
hafa fallið í deilum hútúa og tútsa
undanfarin átta ár. Átök standa
enn yfir milli tveggja uppreisnar-
sveita hútúa og stjórnarhersins en
vonast er til að hin nýja samstjórn
beggja ættbálkanna verði til þess
að takast muni að binda enda á
átökin.
Sagði Mandela frá því í gær að
uppreisnarmennirnir hefðu tjáð
sér á miðvikudag að þeir væru
reiðubúnir að hefja viðræður við
hina nýju stjórn. Þessar fréttir
voru þó bornar til baka síðar um
daginn.
Markmið friðarsamninga, sem
náðust fyrir tilstilli Mandelas, er
að tryggja aukin völd hútúa en
þeir eru um 83% íbúa landsins.
Tútsí-menn, sem eru um 15% íbú-
anna, hafa að mestu farið með völd
í landinu síðan það hlaut sjálfstæði
frá Belgíu árið 1962. Er Buyoya til
að mynda af ættbálki tútsí-manna.
Ásamt Buyoya sór Domitien
Ndayizeye embættiseið varafor-
seta en hann hefur verið helsti
leiðtogi stjórnarandstöðu hútú-
manna.
Ætlunin er að hann taki við af
Buyoya að átján mánuðum liðnum
og að varaforsetaembættið flytjist
í staðinn til tútsa þó svo að Buyoya
hafi lýst því yfir að hann muni ekki
gegna því.
Vonir um að borgarastyrjöldinni í Búrúndí fari að ljúka
Samstjórn hútúa og
tútsa tekur við völdum
Bujumbura. AFP.
Pierre
Buyoya
TUGÞÚSUNDIR manna í Finn-
landi og Svíþjóð voru í gær án raf-
magns, ýmist vegna mikillar snjó-
komu eða úrhellisrigningar og roks.
Allt flug lagðist niður um hríð og
vegna veðurhamsins var ekki unnt
að aðstoða flutningaskip á Eystra-
salti.
Í Finnlandi felldi þungur og blaut-
ur snjór margar staurasamstæður
og við þar rofnaði allt rafmagn til
20.000 heimila. Í Svíþjóð voru um
15.000 heimili rafmagnslaus í fyrri-
nótt vegna veðursins.
Ekki tókst að koma írönsku flutn-
ingaskipi, Iran-Sarbas, til hjálpar
þar sem það stríddi við vélarbilun
240 km vestur af Helsinki. Voru
þyrlur búnar að bjarga 15 af 31
manni í áhöfn skipsins þegar þær
urðu frá að hverfa en björgunarskip
er í nánd og bíður þess að veður lægi.
Tarja Halonen, forseti Finnlands,
varð að hætta við ferð til Álandseyja
þegar flugið lagðist niður, lestarferð-
ir röskuðust og víða stöðvaðist öll
bílaumferð á vegum. Þá var einnig
aflýst ferjuferðum milli Finnlands
og Eistlands.
Eyrarsundsbrúnni var lokað í
fyrradag í fyrsta sinn fyrir bílaum-
ferð vegna þess hve veðrið var vont
en hún var opnuð aftur í gærmorg-
un.
Stórviðri
á Norður-
löndum
Helsinki. AP.
ÞÚSUNDIR manna söfnuðust sam-
an í gær á ströndum Hellusunds er
úkraínskt flugmóðurskip var dregið
um sundið út í Miðjarðarhaf. Þaðan
verður það síðan dregið alla leið til
Kína þar sem það á að öðlast nýtt
líf sem spilavíti.
Yfirvöld í Tyrklandi hafa í marga
mánuði neitað að leyfa flugmóður-
skipinu fyrrverandi, Varyag, að fara
um sundið enda er það bæði vélar-
og stýrislaust. Létu þau loks undan
er kínversk stjórnvöld lofuðu að
bæta þann skaða, sem skipið kynni
hugsanlega að valda.
Sigling um Hellusund er mjög
vandasöm en þar eru sterkir
straumar og 13 sinnum verða skip
að breyta stefnunni þegar farið er
um það. Allt fór þó vel og fjórum
öflugum dráttarbátum tókst að
koma Varyag í gegnum sundið á sex
tímum.
Tyrknesk stjórnvöld hafa notað
ferð Varyags til að vekja athygli
umheimsins á þeim hættum, sem
fylgja aukinni umferð um Hellu-
sund. Vilja þau, að Montreux-samn-
ingnum frá 1936 verði breytt en
samkvæmt honum er Hellusund al-
þjóðlegt hafsvæði nema á stríðs-
tímum. Þá er það undir tyrkneskri
stjórn.
„Spilavíti“
dregið um
Hellusund
Istanbul. AFP.
♦ ♦ ♦