Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 32
LISTIR/KVIKMYNDIR
32 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EINHVERJIR muna eftir CB
senditækjum áttunda áratugarins,
sem sumir bílaeigengur töldu ómiss-
andi og/eða stöðutákn, áður en GSM
tæknin kom til sögunnar. Þessi
senditæki eru enn í fullri notkun á
þjóðvegum Bandaríkjanna og er
grundvöllur ófara þremenninganna
sem eru aðalpersónur Joy Ride, nýj-
ustu myndar leikstjórans góðkunna,
Johns Dahl.
Langþráð sumarleyfi er nýhafið,
Lewis Thomas (Paul Walker), býður
Vennu (Lee Sobielski), draumadís-
inni sinni, í ferðalag þvert yfir
Bandaríkin. Kaupir í því skyni roskið
og ráðsett, áttagata tryllitæki og lagt
er út á malbikið. Ferðin er rétt ný-
byrjuð þegar Lewis verður að taka á
sig krók til að bjarga úr vandræðum
svarta sauðnum í fjölskyldunni, Full-
er (Steve Zahn), bróður sínum.
Fuller er gjörólíkur Lewis, eilíf-
lega í útistöðum við umhverfið og líð-
ur ekki á löngu uns hann er búinn að
koma þremenningunum í meiri
bobba en nokkru sinni fyrr; í bráða
lífshættu. Það atvikast þannig að
Fuller fer að fikta í CB forngripnum
á mælaborðinu og lætur sem hann sé
stelpugála, til í hvað sem er. CB not-
andi, sem kallar sig Ryðnagla, bítur
á agnið. Er honum verður ljóst að
hann er hafður að fífli, tekur Ryð-
nagli umsvifalaust til sinna ráða.
Skyndilega eru ferðalangarnir
komnir með 18 hjóla, risavaxinn
flutningabíl í kjölfarið.
Leikurinn, sem átti að verða þre-
menningunum til skemmtunar, hef-
ur snúist í æðislegan eltingaleik, tví-
sýna baráttu uppá líf og dauða.
Hræðslan og kvíðinn eru í fyrir-
rúmi en Dahl og handritshöfundarn-
ir gæta þess að gamanið sé aldrei
langt undan. Spennan er byggð upp
með samúð með þremenningunum,
þannig að Joy Ride er ætlað að vera
annað og meira en innantóm spennu-
mynd. John Dahl þykir einn af at-
hyglisverðari leikstjórum samtím-
ans og hefur m.a. gert tvær myndir á
vegum Sigurjóns Sighvatssonar,
Red Rock West og Kill Me Again.
Meðal annarra verka leikstjórans
má nefna hina kolsvörtu gaman-
mynd The Last Seduction og The
Rounders, með Edward Norton,
Matt Damon og John Cusack. Aðal-
leikararnir þrír eru öll ung, upprenn-
andi og hafa verið áberandi síðustu
tvö árin
Leikarar: Steve Zahn (That Thing You
Do, Out of Sight, The Object of my Aff-
ection), Paul Walker (The Skulls, The
Fast and the Furious), Leelee Sobielski
(Never Been Kissed, Eyes Wide Shut).
Leikstjóri: John Dahl.
Steve Zahn, Leelee Sobieski og Paul Walker í myndinni Joy Ride.
Með
dauðann
á hæl-
unum
Smárabíó og Regnboginn frumsýna Joy
Ride, með Steve Zahn, Paul Walker og
Leelee Sobieski.
JENNIFER Lopez er ekki aðeins
feikivinsæl söngkona heldur gerist
hún æ afkastameiri á hvíta tjald-
inu. Nú síðast fer hún með aðal-
hlutverkið í spennumyndinni Angel
Eyes, eftir mexíkóska leikstjórann
Luis Mandoki. Að þessu sinni leik-
ur hún lögreglukonuna Sharon
Pouge sem fylgist grannt með
glæpalýðnum í suðurbæ Chicago-
borgar. Eina nóttina lendir hún í
hrikalegri fyrirsát og er næstum
búin að láta lífið þegar ókunnur
bjargvættur kemur til hjálpar, ut-
anúr myrkrinu. Þessi dularfulli
náungi, sem heitir Catch (Jim Cav-
iezel), afvopnar óbermin og bjarg-
ar lífi Sharon.
Hvað gerðist? Var þetta hunda-
heppni? Örlögin? Löghlýðinn, ár-
vökull borgari sem átti af tilviljun
leið hjá á réttum tíma og var
hvergi smeykur við að blanda sér í
atburðarásina?
Hvað sem því líður verða Jim og
Sharon ástfangin, komast að raun
um að þetta er ekki í fyrsta skipti
sem þau hittast, komast að sann-
leikanum um hvort annað og verða
að takast á við leyndarmál úr for-
tíðinni. Það kemur í ljós að bæði
eiga undarlega fortíð og lifa afar
sérstæðu lífi. Sharon er fylgin sér í
starfi og hikar aldrei við að leggja
líf sitt í hættu fyrir réttlætið.
Catch er einfari sem virðist und-
arlegur í háttum í augum sam-
ferðamanna sinna. Ýmsir álíta
hann snarbilaðan, aðrir hættuleg-
an. Hjálpar þeim sem minna mega
sín, skýtur upp kollinum þar sem
þörfin er brýn, líkt og er hann
kemur Sharon til hjálpar. Hvorugt
á umtalsvert einkalíf.
„Myndin er um sambönd og ein-
angrun,“ segir handritshöfundur-
inn Gerald Di Pago, sem ólst upp á
öngstrætum Suður-Chicago. „Við
einangrumst vegna ótta okkar við
að blanda geði við aðra, sérstak-
lega á þessum síðustu og verstu. Á
hinn bóginn berum við öll þær von-
ir í brjósti að ná sambandi við ann-
að fólk. Ég held að frelsun okkar
felist í að skapa slík tengsl.“
Di Pago er kunnur handritshöf-
undur sem á m.a. að baki Phen-
omenon, Instinct, Sharky’s Mach-
ine og Message in a Bottle, sem
hann vann með leikstjóra Angel
Eyes, Luis Mandoki.
Leikarar: Jennifer Lopez (U-Turn, Sel-
ena, Out of Sight, The Cell, The
Wedding Planner), Jim Caviezel (The
Thin Red Line, Ride With the Devil,
Pay It Forward, Frequency), Sonia
Braga (Kiss of the Spider Woman,
Donna Flor and Her Two Husbands,
Moon over Parador). Leikstjóri: Luis
Mandoki (White Palace, Gaby – A
Love Story).
Bjarg-
vætturinn
í nóttinni
Jim Caviezel og Jennifer Lopez í Angel Eyes.
Sambíóin frumsýna Angel Eyes með Jennifer Lopez, Jim
Caviezel og Soniu Braga.
FÁAR myndir hafa
vakið jafn mikla at-
hygli í seinni tíð og
draugamyndin The
Others, nýjasta
mynd spánverjans
Alejandros Amenáb-
ar. Þessi tæplega þrí-
tugi leikstjóri og
handritshöfundur
þykir hafa gert
hverja myndina ann-
arri betri, þrátt fyrir
ungan aldur.
The Others er
draugamynd (gothic
horror), af gamla
skólanum, með klass-
ískt sveitasetrið í
bakgrunni, húsið þar
sem er reimt og yf-
irnáttúrulegir hlutir fara að skelfa og
ógna íbúunum. Sögusviðið er Jersey,
ein Ermarsundseyja Breta, að nýlok-
inni seinni heimsstyrjöld. Þar býr
Grace (Nicole Kidman), á afskekkt-
um herragarði frá tímum Viktoríu
Englandsdrottningar, ásamt börnum
sínum, Anne (Alakina Mann) og
Nicholas (James Bentley). Grace hef-
ur ekki sagt þeim að faðir þeirra lést í
stríðinu.
Dag nokkurn knýja þrjár, dular-
fullar manneskjur að dyrum. Eldri
kona (Fionulla Flanagan) og maður
(Eric Sykes) ásamt ungri, mállausri
stúlku (Elaine Cassidy). Þau segjast
vera vinnuhjú sem störfuðu í húsinu á
árum áður og vilja gjarnan fá vinnu
þar aftur. Svo heppilega vill til að
Grace er nýbúin að segja upp þjón-
ustufólkinu svo fólkið er ráðið.
Ýmislegt er öðru vísi í heimilishald-
inu en venjulegt get-
ur talist. Enga hurð
má opna öðruvísi en
aðrar séu læstar.
Ekki má draga tjöld
frá gluggum, óvænt-
an gest ber að garði.
Nú má ekki segja
fleira, efnið er ákaf-
lega óvenjulegt, dul-
úðin umlykur persón-
urnar og gestir eru
hvattir til að segja
ekki frá óvæntum
endinum.
Amenábar forðast
gamalkunnugt blóð-
bað og ódýrar brellur,
enda segir hann: „Það
er hættulega auðvelt
fyrir kvikmyndagerð-
armann að sleppa öllu
lausu, sullast í blóði og áhrifaríkum
brellum; snúa eftirsóknarverðum
hrolli í léttvægan viðbjóð. Frá mínum
bæjardyrum séð er nauðsynlegt að
skilja eitthvað eftir fyrir ímyndunar-
aflið.“
Nicole Kidman fer með lang-
stærsta hlutverkið, gjörólík þeim sem
hún hefur áður túlkað. Lítið máluð, í
hversdagsklæðum, laus við allt glys
og pjátur. Gagnrýnendur segja að
hún hafi aldrei verið betri.
Leikarar: Nicole Kidman (Dead Calm, To
Die For, Eyes Wide Shut, Moulin Rouge).
Fionula Flanagan (Walking Ned Devine,
Some Mother’s Son, Mad at the Moon).
Christopher Eccleston (Gone in 60 Sec-
onds, ExistenZ, Elizabeth).
Prinsessa
í álögum
Nicole Kidman leikur að-
alhlutverk í kvikmynd-
inni The Others.
Sambíóin og Háskólabíó frumsýna The
Others, með Nicole Kidman, Fionula
Flanagan, Christopher Eccleston, Alak-
ina Mann, Eric Sykes.
ÆVINTÝRI franska rithöf-
undarins Alexander Dumas
um skytturnar þrjár, Athos,
Portos og Aramis, að
ógleymdum D’Artagnan, er
löngu sígilt og hefur verið
kvikmyndað í ein 15–20
skipti. Nýjasta útgáfan er
gerð af Peter Hyams,
bandarískum spennu-
myndaleikstjóra og kvik-
myndatökumanni, sem á að
baki langan feril og margar
kunnar afþreyingarmyndir. Flestar
hafa þær gerst í samtíð og framtíð en
nú lítur hann um öxl, hverfur aftur til
18. aldar í Frakklandi.
Óöld ríkir í Frans, Richelieu kard-
ínáli (Stephen Rea) lætur böðul sinn
(Tim Roth) ganga milli bols og höf-
uðs á þeim sem standa í vegi fyrir
þessum slóttuga kirkjunnar manni.
Þeirra á meðal eru foreldrar piltsins
D’Artagnans, sem kemst undan og
fær uppeldi sem skytta undir hand-
leiðslu hins dygga Blanchet (Jean-,
Pierre Castaldi). 14 árum síðar fer
hann með D’Artagnan (Justin
Chambers), sem nú er orðinn fær í
flestan sjó, til Parísar. Þar komast
þeir á snoðir um að skyttulið keis-
arans er splundrað og Richelieu er
að undirbúa yfirtöku landsins með
hjálp sinnar hægri handar, Febre.
D’Artagnan ákveður að smala
skyttunum saman, bjarga keisara-
veldinu og ná fram hefndum á
óþokkunum, sem m.a. drápu for-
eldra hans.
Handritshöfundurinn, Gene
Quintano, og Hyams flytja þunga-
miðju sögunnar frá skyttunum þrem
til D’Artagnans, fjórðu skyttunnar,
eins og hann er oft kallaður. Kvik-
myndin er tekin á söguslóðum í
Frakklandi og Lúxemborg og kvik-
myndatökustjórnin er í höndum
Hyams sem einnig leikstýrir. Meðal
nánustu samstarfsmanna hans við
gerð The Musketeer er Xin Xin
Xiong, kunnur bardagasérfræðingur
frá Hong Kong en meðal leikaranna
er hinn breski Tim Roth, sem kvik-
myndahúsagestir sáu síðast í Planet
of the Apes, og Catherine Deneueve.
Hyams vakti einna mesta athygli
með Capricorn One (’78), spennu-
mynd sem fjallaði um blekkingar í
geimferðaáætlun Bandaríkjanna.
Meðal annarra mynda Hyams má
nefna Outland (’81), framtíðarfantas-
íu sem gerist á Júpíter, og Timecop
(’94).
Leikarar: Tim Roth (Rob Roy, Pulp Fict-
ion), Justin Chambers (The Wedding
Planner, Liberty Heights), Mena Suvari
(American Pie 1 og 2, American
Beauty), Catherine Deneueve (Est-
Ouest, Indochine, Le Dernier métro,
Tristana, Belle de jour, Les Demoiselles
de Rochefort), Stephen Rea (The
Butcher Boy, Interview with the Vamp-
ire, The Crying Game). Leikstjóri: Peter
Hyams (2010, Star Chamber, The Relic,
End of Days).
Úr myndinni The Musketeer.
Musterisriddar-
arnir snúa aftur
Laugarásbíó og Stjörnubíó
frumsýna The Musketeer með
Justin Chambers, Tim Roth,
Stephen Rea, Catherine De-
neuve og Menu Suvari.
WALT Disney-kvikmyndafyrir-
tækið er frægt fyrir langa og
glæsta teiknimyndahefð. Sú nýj-
asta, Skólalíf, skólaslit (Recess),
fjallar einmitt um þann merkisvið-
burð í augum krakkanna í skól-
anum við þriðju götu. Aðalpersón-
an, T.J., er með miklar áætlanir á
prjónunum fyrir sig og félagana.
Það á ekki að sitja auðum höndum
heldur keyra allt á fullu, uns skól-
inn byrjar aftur. Þá kemur babb í
bátinn, vinahópurinn, einsog hann
leggur sig, er að fara í sumarbúðir
án hans.
T.J. lætur sér leiðast og veit
ekki hvað hann á að taka til
bragðs. Það er enginn almennileg-
ur krakki til að leika við. Einn góð-
an veðurdag hjólar hann framhjá
skólanum sínum og sér þar loga
grænt ljós. Hann segir foreldrum
sínum frá ljósaganginum, og lög-
reglunni, en enginn vill hlusta. Þá
tekur T.J. til sinna ráð og ævin-
týrin fara að gerast. Honum þarf
ekki að leiðast lengur.
Myndin verður sýnd í tveimur
útgáfum, með upprunalegu, ensku
talsetningunni, og íslenskri. Leik-
raddirnar, íslensku og bandarísku,
eru í höndum þekktra leikara og
nýliða. Meðal enskumælandi leik-
aranna eru Rickey O’Shea Collins,
Andy Lawrence, Dabney Coleman,
James Woods og Robert Goulet.
Leikstjóri myndarinnar, Chuck
Sheetz, er búinn að vinna sig upp í
þessa stöðu eftir áralanga vinnu
við Simpson-þættina vinsælu.
Fyrst sem tæknimaður, að lokum
leikstjóri.
Íslenskar leikraddir: Ólafur Hrafn
Steinarsson, Árni Egill Örnólfsson,
Kolbrún Erna Pétursdóttir, Gísli Bald-
ur Gíslason, Jakob Þór Einarsson,
Guðmundur Ólafsson, Hanna María
Karlsdóttir, Örn Arnarson, o.fl. Leik-
stjóri íslensku talsetningarinnar: Jak-
ob Þór Einarsson. Leikstjóri: Chuck
Sheetz (frumraun).
„Skólahurð aftur skellur…“
Sambíóin í Reykjavík, Keflavík og á Ak-
ureyri frumsýna Skólalíf, skólaslit (Re-
cess), teiknimynd með röddum Ólafs
Hrafns Steinarssonar, Árna Egils Örn-
ólfssonar, o.fl.