Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. FLUGLEIÐIR telja að strax þurfi að hefja markaðssókn erlendis til að fyr- irbyggja verulega fækkun ferða- manna til Íslands á næsta ári. Mun flugfélagið óska eftir viðræðum við stjórnvöld um samstarf í ljósi vilja stjórnvalda til að taka á vandanum. Almennt er nú gert ráð fyrir mikl- um samdrætti í flug- og ferðastarf- semi vegna ástands heimsmála en Ameríku- og Evrópuflug Flugleiða hefur dregist saman um 21% frá 11. september. Flugleiðir hafa ákveðið að draga saman um 11% í flugi til og frá Íslandi næsta sumar. Mat Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands á mikilvægi Flugleiða í þjóð- arbúskapnum bendir til þess að sam- dráttur hjá flugfélaginu, sem orsakar 10% fækkun ferðamanna til Íslands, muni leiða til um 10,7 milljarða króna neikvæðra atvinnu- og efnahags- áhrifa í hagkerfinu öllu og fækkunar um rúmlega 1.100 ársverk á Íslandi. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sagði í samtali við Morgunblað- ið í gær, að hann væri reiðubúinn til samstarfs við ferðaþjónustugreinina en á þessu stigi gæti hann ekki gefið út neinar yfirlýsingar um með hvaða hætti það yrði gert. „Við erum að fara yfir málin og meta stöðuna,“ sagði Sturla og sagði að staðan í ferðaþjón- ustugreininni væri mjög sérstök. Hann sagði mjög eðlilegt af hálfu Flugleiðamanna að óska eftir viðræð- um við stjórnvöld í ljósi þess að hann hefði áður lýst yfir vilja stjórnvalda til að taka á vandanum. Flugleiðir hyggja á markaðssókn fyrir Ísland erlendis Óska eftir sam- starfi við stjórnvöld  Flugleiðir vilja/6 TILKYNNT var um sprengju í Flugstöð Leifs Eiríkssonar laust eftir klukkan hálftíu í gærkvöldi. Engin sprengja fannst í flugstöð- inni í kjölfar leitar og var hættu- ástandi aflétt kl. 23.40. Hótunin barst á íslensku í gegn- um síma og í kjölfarið var flug- stöðin rýmd og öllum leiðum til og frá henni lokað. Lögreglunni tókst að rekja símtalið og að sögn lög- reglu liggur ákveðinn aðili undir grun. Enginn var þó handtekinn vegna málsins í gærkvöldi. Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar á Keflavíkurflugvelli var sprengjan sögð springa innan ákveðins tíma. Sprengjusérfræð- ingar Landhelgisgæslunnar voru kallaðir til og leituðu þeir í flug- stöðinni ásamt lögreglu. Vél frá Kaupmannahöfn beið á flugbrautinni Engir farþegar voru í flugstöð- inni er hótunin barst. Flugvél Flugleiða frá Kaupmannahöfn lenti laust fyrir ellefu og beið hún á flugbrautinni þar til hættu- ástandi var aflétt en um 140 far- þegar voru í vélinni. Flugvél frá London lenti í þann mund sem hættuástandinu var aflétt og urðu þeir 80 farþegar sem í henni voru ekki fyrir neinum óþægindum vegna hótunarinnar samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli. Öllum leiðum að flugstöðinni var lokað meðan hættuástand varði og mynduðust fljótt mjög langar raðir bíla. Yfirvöldum á Keflavíkurflugvelli barst síðast sprengjuhótun 11. september, í kjölfar hryðjuverka- árásanna í Bandaríkjunum. Öllum leiðum til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar var lokað í kjölfar sprengjuhótunar. Viðbún- aður vegna sprengju- hótunar Morgunblaðið/Árni Sæberg HEILDARLAUNAKOSTNAÐUR vegna íslenskra flugumferðarstjóra er um 640 milljónir króna og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins nema árslaun einstakra flugumferð- arstjóra allt að átta milljónum króna eða um 660 þúsundum á mánuði að meðaltali. Flugumferð- arstjórar hafa boðað hrinu verkfalla 16. til 30. nóvember. Samkvæmt Fréttariti kjararann- sóknarnefndar opinberra starfs- manna voru meðallaun flugumferð- arstjóra tæplega 522 þúsund í júní í ár. Þar af voru dagvinnulaun um 272 þúsund, yfirvinna um 148 þús- und og önnur laun um 101 þúsund krónur. Samsvarandi laun í janúar á þessu ári voru um 454 þúsund, en þá voru dagvinnulaunin um 256 þúsund, yfirvinnulaun um 104 þús- und og önnur laun um 93 þúsund krónur. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í nýj- asta fréttabréfi SA að frá 1987 hafi kaupmáttur dagvinnulauna flugum- ferðarstjóra aukist um tæp 111%, en kaupmáttur dagvinnulauna ann- arra hópa opinberra starfsmanna mun minna. Skömmu áður en verkfall flug- umferðarstjóra hófst í febrúar sem leið varaði Alþjóðaflugmálastofnun- in í bréfi til samgönguráðherra við afleiðingum truflana á alþjóðlegu flugi á flugstjórnarsvæði Íslendinga og benti forseti ICAO samgöngu- ráðherra á að stofnunin gæti þurft að endurúthluta flugumferðarþjón- ustu yfir úthöfunum. Sturla Böðv- arsson, samgönguráðherra, segir að staðan nú sé verri ef eitthvað sé, en í tengslum við Flugþingið sl. mið- vikudag hafi fulltrúi frá ICAO kom- ið til landsins og farið yfir málin með fulltrúum ráðuneytisins og Flugmálastjórnar. Árslaun flugum- ferðarstjóra allt að átta milljónir  Flugsamgöngur/38 VERÐ á þotueldsneyti hefur ekki verið lægra í tvö ár en það er nú. Verðið er nú rúmir 207 Bandaríkja- dalir fyrir tonnið, en var 260 dalir að meðaltali í septembermánuði. Fara þarf allt aftur til október- mánaðar 1999 til að finna dæmi um lægra verð en þá var verðið 206 dalir fyrir tonnið. Í millitíðinni hafa verið miklar sveiflur í verði á þotuelds- neyti. Þannig fór verðið í fyrrahaust yfir 350 dali tonnið, en verðið í sumar hefur verið á bilinu 250–270 dalir fyrir tonnið. Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá Olíufé- laginu, segir að ástæðurnar fyrir þessari lækkun séu bæði aukið fram- boð á olíu og minni eftirspurn eftir þotueldsneyti vegna verulegs sam- dráttar í flugi. Framleiðslan á þotu- eldsneyti í olíuhreinsunarstöðvum virðist hafa minnkað um 20–25% og í staðinn séu framleiddar aðrar teg- undir eldsneytis. Þotueldsneyti ekki lægra í tvö ár GENGI íslensku krónunnar náði sögulegu lágmarki í gærmorgun. Gengisvísitala krónunnar fór þá í 145,90 stig en það er hæsta gildi, og þá jafnframt lægsta gengi, sem skráð hefur verið. Lokagengi dagsins var örlítið sterkara, eða 145,70 stig. Þrátt fyrir að gengið í gærmorgun sé það lægsta sem skráð hefur verið, hefur krónan einu sinni áður verið lægri en þá fór gengisvísitalan um skamma hríð yfir 146 stig innan dags. /   -  -                  !.    ? .    -  ;     Gengi krónunnar í sögulegu lágmarki ÍSLENSKIR fatahönnuðir hafa í æ ríkari mæli freistað þess að starfa sjálfstætt og selja hönnun sína í eigin verslunum eða á vinnustofum. Sumir hyggjast koma sér á framfæri í tískuheiminum og hafa sýnt fatnað á sýn- ingum erlendis, en segja skort á fjárfestum standa þeim fyrir þrifum. Í sama streng tóku nokkrir, sem þegar hafa þreifað fyrir sér utan landsteinanna. Aðrir eru bjartsýn- ir og hafa umboðsmenn í útlöndum á sínum snærum, sem annast markaðssetningu. Í Daglegu lífi í dag og næsta föstudag endurspeglast viðhorf og hönnun íslenskra fatahönnuða, sem fara eigin leiðir og alls- endis ólíkar. Ólíkar leiðir í fatahönnun  Úr smiðju /B4 Morgunblaðið/Ásdís HARÐUR árekstur varð á gatna- mótum Suðurhlíðar og Bústaðaveg- ar í Reykjavík á sjöunda tímanum í gærkvöld. Tveir bílar lentu saman með þeim afleiðingum að ökumaður og farþegi annars bílsins og ökumað- ur hins voru fluttir á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss með minni háttar áverka. Báðar bifreiðir eru hins vegar stórskemmdar og voru fluttar á brott með kranabíl. Þrír á slysadeild eftir árekstur ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.