Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 47 KLT944 Connexion firá›laus sími me› 10 númera minni, stillanlegri hringingu og styrk og s‡nir lengd hvers símtals. HRJ580 Jvc Sex hausa myndbandstæki me› nicam stereo, longplay, upptökuminni, öllum a›ger›um á skjá og scart-tengi. MIC1220 United Hljómtækjasamstæ›a me› útvarpi, geislaspilara og segulbandi. Hljómtækjasamstæ›a Fer›atæki firá›laus sími Örbylgjuofn 10.990 kr. Myndbandstæki 24.990 kr. MWO1975 United 20 l Rúmgó›ur örbylgjuofn, einfaldur í notkun og me› öllum hef›bundnum möguleikum. RCD2353 United Fer›atæki me› geislaspilara, útvarpi og segulbandi. 6.990 kr. 5.990 kr. 9.990 kr. Allar flessar vörur fást í Hagkaupum Smáralind. Takmarka› úrval í ö›rum verslunum Hagkaupa. ÁSTÆÐA þess að ég styð Ásgerði eindregið í fyrsta sæti er einföld. Ég hef ekki aðeins reynt Ásgerði af fjölda þarfra verka í þágu bæjarfélagsins, heldur hef ég einnig í gegnum árin starf- að mikið með þessari atorkumiklu konu, m.a. fyrir Sjálfstæð- isflokkinn og ekki hvað síst íþrótta- félagið Gróttu. Ég hef því kynnst af eigin raun hennar einstaka drifkrafti og ósérhlífni. Ás- gerður lætur verkin tala og þau eru hvorki fá né smá, hvort heldur litið er til stjórnmála, félagsmála eða íþrótta- og æskulýðsmála, svo dæmi séu nefnd. Þess vegna met ég það svo, að reynsla hennar og þekking geri hana afar hæfa til þess að stýra bæjarfélaginu okkar. Hvet ég alla sem kjósa í opnu prófkjöri sjálfstæðismanna á Sel- tjarnarnesi 3. nóvember nk. að veita Ásgerði stuðning í 1.sætið. Ásgerði sem bæjarstjóra! Guðrún B.Vilhjálmsdóttir, varaformaður félagsmálaráðs Seltjarnarness, skrifar: Guðrún B. Vilhjálmsdóttir Seltjarnarnesið er lítið og lágt, svo kvað skáldið forðum. Víst er það rétt. Sá hluti nessins sem nú til- heyrir Seltjarnar- nesbæ er aðeins 1,6 m² og Valhúsahæð er aðeins 30 m yfir sjáv- armáli. Strandlengja á íbúa í metrum talin er samt meiri en í flestum öðrum bæj- arfélögum. Það eru forréttindi! En hér búa ekki lengur fáir og hugsa smátt held- ur margir og hugsa hátt. Íbúar Seltjarnarness hafa að jafnaði góðar tekjur og gera kröfur til lífsins, kröfur til sjálfra sín og barna sinna og kröfur til bæjar- félagsins. Byggð á Hrólfskálamel Það er staðreynd að meðan íbú- um fækkaði lítillega á nesinu á sl. ári, fjölgaði börnum á leikskóla- og grunnskólaaldri. Það segir sína sögu. Nú styttist í að Seltjarnarnes teljist fullbyggt og því munu áherslur í skipulagsmálum breyt- ast. Skipulagsnefnd hefur nýlega samþykkt að mæla með tilboði ÍAV í byggingu íbúða á Hrólfskálamel, á horni Nesvegar og Suðurstrand- ar. Önnur ný íbúðabyggð er ekki fyrirsjáanleg. Nokkur þétting byggðar mun þó verða í eldri hverfum. Hrólfskálamelur verður hjarta bæjarins í meira en einum skilningi og því er afar mikilvægt að vel takist til. Byggðin þarf að tengja saman á sem eðlilegastan hátt skólana og leikskólana, íbúðir aldraðra og fjölbýlishúsin á Aust- urströnd, íþróttamiðstöðina og lág- reist einbýlishús. Ásýnd bæjarins veltur mikið á útliti þessarar nýbyggðar. Bygg- ingarnar þurfa að falla vel að um- hverfinu og að gefa bænum hlýleg- an, fjölskylduvænan og jafnframt nýtískulegan svip. Hverfið þarf einnig að tengjast vel við þjón- ustuna á Eiðistorgi og Austur- strönd. Umferðarskipulag mikilvægt Aðkomuleiðir að Nesinu eru að- eins tvær, Eiðisgrandi og Nesveg- ur, og er hverfið því staðsett við ein aðalgatnamótin í bænum. Hverfið mun aðeins teljast vel heppnað ef umferðarmálin verða leyst á farsælan hátt. Það er óneit- anlega freistandi að sjá fyrir sér Suðurströndina liggja undir Nes- veginn og allt þetta svæði sem að- laðandi göngusvæði, er tengir sam- an byggðahlutana sitt hvorum megin með stéttum, bekkjum, gróðri og iðandi mann- lífi. Þó er vafasamt að sú lausn geti gengið upp í bráð af tækni- legum ástæðum, svo ekki sé minnst á kostn- aðinn, og því er ljóst að nokkuð er þar til sá draumur getur ræst. Eflum bæjarbraginn Við eigum auðvitað okkar torg innanhúss, Eiðistorgið. Af ein- hverri ástæðu hefur okkur ekki lánast að gera það að þeim iðandi kjarna mannlífs og viðskipta sem vonast var eftir. Væri ekki gaman að sjá Eiðistorg sem miðstöð lista- manna og sérstæðrar gjafavöru, þar sem fólk kemur til að versla, rölta, skoða og spjalla? Nokkurs konar félagsmiðstöð bæjarbúa? Með endurskipulagningu íþrótta- miðstöðvarinnar og sundlaugarinn- ar mætti auka nýtingu, lengja við- verutíma og auka fjölbreytni í þjónustu við bæjarbúa. Mörkum okkur stefnu Mörg verkefni bíða komandi bæjarstjórnar. En hvert viljum við stefna? Hvernig sjáum við framtíð Seltjarnarness fyrir okkur? Hvern- ig viljum við „markaðssetja“ bæinn okkar? Viljum við vera eingöngu svefnbær sem sækir sína afþrey- ingu og menningu annað eða viljum við efla bæjarbraginn og umhverf- ið, svo að aðrir leiti hingað í aukn- um mæli eftir menningu og afþrey- ingu? Því ekki það? Við höfum allt að vinna. Seltirningar – hugsum hátt! Inga Hersteinsdóttir Prófkjör Ný byggð á Hrólf- skálamel, segir Inga Hersteinsdóttir, skiptir miklu máli fyrir ásýnd bæjarins. Höfundur er verkfræðingur, situr í bæjarstjórn og ýmsum nefndum á Seltjarnarnesi og gefur kost á sér í 2. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi. Súrefnisvörur Karin Herzog Silhouette
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.