Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 28
ERLENT 28 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ GÍFURLEGUM fjölda af sprengj- um rigndi yfir hersveitir talibana við víglínurnar norður af Kabúl á mið- vikudaginn þegar bandarískar her- flugvélar, þ.á m. a.m.k. ein B-52- sprengjuflugvél, tæmdu lestar sínar yfir hernaðarlega mikilvægum hæð- um yfir greiðfærustu leið stjórnar- andstöðunnar til höfuðborgarinnar. Háfleygt B-52-risaflugvirkið varp- aði um 30 sprengjum í tveim árás- arferðum í dagsbirtu á hersveitir tal- ibana skammt frá meginþjóð- veginum til Kabúl og á Tota Khan-hæðir, þar sem talibanar hafa útvarðarstöð er hefur verið skot- mark loftárása næstum því á degi hverjum í hátt í hálfan mánuð. Auk árása B-52-vélarinnar vörp- uðu bandarískar F/A-18-Hornet orr- ustuvélar rúmlega 25 öðrum sprengjum á stöðvar talibana þar sem talið er að skriðdrekar og loft- varnabyssur hafi verið. Loftárásirn- ar stóðu linnulaust í fimm klukku- stundir. Bandarískar herflugvélar réðust ennfremur á fjölda skotmarka ann- ars staðar í Afganistan á miðviku- daginn, þ.á m. hernaðarlega mikil- væga borg í norðurhluta landsins, Mazar-e-Sharif, og borgina Kandah- ar, í suðurhlutanum, en hún er menningar- og andleg miðstöð talib- anahreyfingarinnar. Til marks um hertar aðgerðir Notkun B-52-véla við svonefnda „svæðissprengjuárás“ við víglínuna norðan við Kabúl er til marks um að Bandaríkjamenn séu að herða að- gerðir sínar gegn sveitum talibana og í samræmi við hugmyndir um grimmilegar aðferðir sem herskáir herfræðingar í Bandaríkjunum hafa lengi viljað að verði beitt. Þessi „teppalagning með sprengj- um“, eins og svona sprengjuárásir eru stundum nefndar, er vísbending um að markmið Bandaríkjamanna sé að greiða götu hersveita stjórnar- andstöðunnar, Norðurbandalagsins, við árás á Kabúl en ýmsir herfor- ingjar hafa gefið í skyn að slík árás hefjist innan fárra daga. Embættismenn í bandaríska varn- armálaráðuneytinu sögðu á miðviku- daginn að árásirnar gerðu ekki að- eins Norðurbandalaginu kleift að hefja aðgerðir heldur gerðu þeir ennfremur Bandaríkjamönnum mögulegt að senda aukalið inn í Afg- anistan eftir að snjóa leysti með vor- inu. Samkvæmt þessum hugmyndum myndu hersveitir Norðurbandalags- ins – með hjálp Bandaríkjamanna – reyna að opna veginn sem tengir Kabúl við Úzbekistan sem er ná- grannaríkið í norðri. Rumsfeld leitar heimilda Í væntanlegri för sinn um þennan heimshluta mun Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að öllum líkindum fara fram á heim- ild til að flugvélar, skriðdrekar og hermenn fái að leggja upp frá nokkr- um ríkjum sem liggja að Afganistan. Á næstu dögum á Rumsfeld að hitta leiðtoga Úzbekistans, Tadjíkistans og Pakistans og verður væntanlega mikið rætt um notkun Bandaríkja- manna á flugvöllum og herbæki- stöðvum. Á fréttamannafundi í varnarmála- ráðuneytinu brást John D. Stuffle- beem, háttsettur embættismaður í bandaríska herráðinu, varfærnislega við spurningum um árásir B-52-vél- anna á miðvikudaginn, og kvaðst ekki geta rætt herfræðina í smáat- riðum. Hann sagði þó að B-52-vél- unum væri beitt alls staðar í Afgan- istan, þ.á m. á stöðvar talibana í norðurhlutanum. Hann viðurkenndi að varnarmála- ráðuneytið hefði breytt áherslum í lofthernaðinum þannig að meira væri nú lagt upp úr því að veita and- stæðinum talibana stuðning. „Hittu ekki alveg“ Á meðan átökin hörðnuðu á mið- vikudaginn mátti sjá farartækjum talibana ekið til og frá þeim svæðum sem sprengjum var varpað á norður af Kabúl og hermenn þeirra skutu eldflaugum inn á svæði Norður- bandalagsins frá svæði sem aðeins nokkrum mínútum áður hafði orðið fyrir miklu sprengjuregni. „Þeir hittu skotmörkin ekki al- veg,“ sagði sveitarforingi Norður- bandalagsins á svæðinu, Halozai Ahmed Ali, þegar hann fylgdist með sprengjunum springa um fjóra kíló- metra í burtu. „Þrjár sprengjur hittu ekki en tvær fóru nokkuð nærri búð- um talibana.“ Ahmed Ali sagði að miðvikudag- urinn hefði verið „betri en aðrir dag- ar en ég er ekki viss um hversu margir fylgismenn talibana hafa fall- ið. Þeir færa stöðvar sínar í hvert skipti.“ Norðurbandalagið hafði kvartað yfir því lengi að loftárásir Banda- ríkjamanna á vígstöðvarnar við Ka- búl væru of fáar og of veikar og sagði Ahmed Ali að árásir B-52-vélanna og árásirnar sem fylgdu í kjölfarið væru góð tilbreyting. „Ef þeir halda svona áfram í viku eða lengur getur verið að talibanarnir verði yfirbugaðir á þessum vígstöðvum,“ sagði hann með varkárni. Dreifa tugum sprengna B-52-vélarnar geta dreift tugum hefðbundinna sprengna til þess að eyða hersveitum og farartækjum og sprengjurnar skilja eftir sig djúpa gíga á stórum svæðum. B-52-vélarn- ar hafa hingað til fyrst og fremst ver- ið notaðar í stríðinu til að skjóta stýriflaugum. Vélin sem réðst á stöðvar talibana á miðvikudaginn fór í loftið frá bæki- stöð breska hersins á eynni Diego Garcia í Indlandshafi. Hún flaug inn yfir Afganistan úr norðri, í sömu hæð og farþegaþotur fljúga. Nokkrum kílómetrum áður en vélin kom yfir skotmarkið var sprengjulestin losuð. Fyrstu árásinni var beint að stöðv- um talibana við þorpið Karabakh, sem hafa aðalþjóðveginn suður til Kabúl á valdi sínu. Andstæðingar talibana vonast til að geta notað veg- inn til að komast tafarlaust með skriðdreka sína til höfuðborgarinnar takist að ryðja hersveitum talibana úr vegi. Eftir að hafa tekið krappa hægri- beygju yfir Kabúl flaug B-52-vélin aftur til norðurs en um fimmtán mín- útum síðar kom hún aftur í ljós á suð- urleið á mjög svipaðri braut og í fyrri árásarferðinni, í of mikilli hæð til að loftvarnarbyssur talibana næðu til hennar. Í gegnum aðdráttarlinsu ljós- myndara mátti sjá sprengjurnar falla, tvær og tvær í senn, og lenda á Tota Khan og springa um hálfri mín- útu síðar. Um 25 mínútum síðar var litlum flutningabíl ekið hratt frá Tota Khan í átt til Kabúl. Bíllinn komst burtu og þegar F/ A-18-þoturnar komu skömmu síðar skutu talibanar einni sprengikúlu sem sprakk nokkur hundruð metra frá varðstöð Ahmeds Alis. Í tvær klukkustundir til viðbótar lét hver herflugvélin af annarri sprengjum rigna yfir Tota Khan og önnur skot- mörk við víglínuna. Bandarískar herflugvélar hefja „teppalagningu með sprengjum“ norður af Kabúl Rabat í Afganistan, Washington. The Los Angeles Times, The Washington Post. Reuters Sprengjur frá B-52-þotunni springa í Tota Khan-hæðum, skammt frá höfuðborginni, Kabúl, þar sem talibanar hafa útvarðarstöð. Átta hreyfla bandarísk B-52-sprengjuþota losar lestar sínar yfir Tota Khan norður af Kabúl á miðvikudaginn. RÚSSNESK stjórnvöld til- kynntu í gær, að tæplega 3.500 rússneskir hermenn og 11.000 tsjetsjneskir skæru- liðar hefðu fallið síðan hafnar voru aðgerðir gegn aðskiln- aðarsinnum í Tsjetsjníu 1. október 1999. Sagði talsmað- ur stjórnarinnar, að 11.661 hermaður hefði særst í átök- unum við skæruliða, en nefndi engar tölur um hugs- anlegt mannfall meðal óbreyttra borgara. Samtök, sem mæður rússneskra her- manna hafa stofnað, hafa oft véfengt opinberar tölur um mannfallið og þau benda á, að samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsum og líkhúsum kunni það að vera allt að því þrisvar sinnum meira en upp er gefið. Svíar með flísa- sprengjur GÖRAN Persson, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, og Anna Lindh utanríkisráðherra hafa lýst sig andvíg notkun flísa- sprengna í Afganistan en nú hefur verið upplýst, að þær eru líka í vopnabúri sænska hersins. Um er að ræða sprengjur, sem dreifa fjölda minni sprengihleðslna yfir stórt svæði. Algengt er, að sumar þessara smásprengna, um 10%, springi ekki þegar þær falla til jarðar, heldur liggi þar uns einhver stígur á þær eða handfjatlar. Yfirmað- ur upplýsingaþjónustu sænska hersins sagði í gær, að með gagnrýni sinni hefði ríkisstjórnin fyrst og fremst átt við, að í Afganistan hefði sprengjunum verið varpað á það, sem hann kallaði „grátt svæði“. Fjölda- grafir í Serbíu JARÐNESKAR leifar meira en 400 manna, líklega Albana frá Kosovo, hafa verið grafn- ar upp í Serbíu á síðustu mánuðum. Kom það fram í við- tali við Dragan Karleusa, háttsettan mann í serbnesku lögreglunni, í júgó- slavneska dagblaðinu Vreme. Sagði hann, að finna yrði þá, sem bæru ábyrgð á morðun- um. Karleusa sagði, að 305 lík hefðu fundist í sumar í tveim- ur fjöldagröfum rétt við þjálf- unarbúðir leyniþjónustunnar í Batajnica skammt frá Bel- grad en auk þess hafa fundist 122 lík í tveimur gröfum ann- ars staðar í Serbíu. Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, er nú í haldi Stríðsglæpadómstóls Samein- uðu þjóðanna í Haag sakaður um stríðsglæpi og brot gegn mannkyni. STUTT Um 3.500 Rússar fallnir í Tsjetsjníu Milosevic
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.