Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 11 FERÐAMÁLARÁÐ borgarinnar Asti á Ítalíu, Asti Turisimo, hefur ákveðið að Álfheiði Hönnu Frið- riksdóttur, blaðamanni, skuli veitt verðlaun fyrir grein sem hún skrif- aði eftir nýlega heimsókn sína til borgarinnar. Álfheiður Hanna hlýtur verð- launin fyrir grein sem hún skrifaði eftir tólf daga dvöl í Asta og birt var í Morgunblaðinu. Í tilkynningu frá ferðamála- ráðinu segir að í greininni hafi blaðamanni tekist að draga upp mjög sanna mynd af íbúum og menningu Asti. Álfheiður Hanna mun taka við verðlaununum við hátíðlega athöfn í fornu klaustri í Asti 17. nóvember næst komandi en sama kvöld mun hún halda einsöngstónleika á veg- um stofnunarinnar Arte’ Graficia. Morgunblaðið/RAX Blaðamaður verðlaunaður SAMKEPPNISSTOFNUN hefur óskað eftir að Húsasmiðjan hf. taki tímabundið úr umferð auglýsingu um málningartilboð, sem birt var í Morgunblaðinu í gær, eftir að stofn- uninni bárust kvartanir frá BYKO og GLV ehf./Litaveri. Bogi Þór Siguroddsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, segir fyrirtækið hafa ákveðið að fara að tilmælum Samkeppnisstofnunar og birta ekki auglýsinguna fyrr en stofnunin hef- ur fellt úrskurð í málinu. „Við förum að sjálfsögðu eftir þessari ósk. Við höfum reyndar ekki fengið neina lýsingu á því undan hverju er verið að kvarta og getum því ekki tekið neina afstöðu til þess sem Samkeppnisstofnun segir fyrr en við sjáum fyrir hvað er verið að kæra okkur en við höfum ekki verið boðaðir til fundar við starfsmenn stofnunarinnar enn sem komið er,“ segir Bogi. Aðspurður um viðbrögð við kvört- uninni segir Bogi Húsasmiðjuna hafa farið yfir auglýsinguna í sam- starfi við auglýsingastofu sína og niðurstaða þess fundar hafi verið að í auglýsingunni sé ekkert að finna sem ekki megi birtast. „Við vitum að þetta er áreitin auglýsing og hún getur því verið umdeilanleg, en það hvarflaði ekki að okkur að í henni væri nokkuð að finna sem gæfi tilefni til kæru,“ sagði Bogi. Auglýsing dregin til baka ÞAU mistök urðu við vinnslu helgartilboða á neytendasíðu á fimmtudag að sagt var að af- mæli og tilboð hjá 10–11 hæfust fimmtudaginn 1. nóvember. Hið rétta er að tilboðin ganga í gildi í dag, föstudaginn 2. nóvember. Hið sama gildir um afmælisleik verslananna vegna tíu ára af- mælisins. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á mistökun- um og þeim óþægindum sem röng dagsetning hefur skapað. Mistök í vinnslu helg- artilboða KALDAVATNSLEIÐSLUR fóru í sundur á mótum Vesturgötu og Hafnarstrætis um hádegisbil í gær og milli 30 og 40 sekúndulítrar vatns streymdu um stræti og torg. Orkuveitan vann að viðgerðum fram- eftir degi en fljótlega eftir að viðgerðarmenn komu á vettvang tókst þeim að loka fyrir vatnsflauminn. Ekki varð vatnslaust í miðbænum af þessum sökum nema á veitingahúsinu Kaffi Reykjavík sem er í næsta nágrenni holunnar sem grafa varð vegna við- gerðanna. Morgunblaðið/Golli Vatnsflaumur í miðbænum HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær Ak- ureyrarbæ og Vátryggingafélag Ís- lands af bótakröfu konu sem varð fyrir slysi við skíðaiðkun á skíða- svæðinu í Hlíðarfjalli. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður úrskurðað að konan ætti að fá tæplega fjórar milljónir í bætur. Lítill snjór var í fjallinu í umrætt sinn og aðeins ein braut opin en snjólitlir móar beggja vegna. Konan var á leið niður fjallið þegar hún sá skyndilega vélsleða koma á móti sér. Henni var brugðið og hún skrikaði til með þeim afleiðingum að hún lenti út af brautinni og út í móa þar sem hún fór margar veltur áður en hún stöðvaðist. Konan var flutt á sjúkrahús en þar kom í ljós að hún var hrygg- brotin. Varanleg örorka hennar vegna slyssins var metin 33%. Kon- an er matreiðslumaður að mennt en fyrir héraðsdómi kvaðst konan ekki geta sinnt slíkum störfum eftir slys- ið. Vélsleðinn var í eigu Akureyrar- bæjar og ekið af starfsmanni hans og því stefndi konan bænum og tryggingafélagi hans, Vátrygginga- félagi Íslands. Skíðamenn verða sjálfir að meta aðstæður Hæstiréttur sagði að konan væri alvön skíðakona og þekkti vel allar aðstæður í fjallinu. Nægilegt rými hefði verið fyrir hana til að mæta vélsleðanum í brautinni, sem var um 10 m á breidd, en vélsleðanum var ekið upp brautina í jaðri hennar. Talið var að röng viðbrögð konunnar hefðu valdið slysinu en ekki akstur vélsleðans eða notkun hans. Engin raunveruleg hætta hefði stafað af sleðanum og tjón væri því ekki sennileg afleiðing af hættueiginleik- um og notkun vélsleðans í skilningi umferðarlaga. Akureyrarbær var einnig sýknað- ur af varakröfu konunnar þar sem ekki var á það fallist að óforsvar- anlegt hefði verið að hafa skíðasvæð- ið opið þótt snjólítið hefði verið utan brauta. Skíðamenn verði sjálfir að meta aðstæður og taka áhættu af því að vera á skíðum, þegar þannig stendur á. Auk þess var ekki talið að starfsmenn bæjarins hefðu átt sök á slysinu. Fær ekki skaðabæt- ur vegna skíðaslyss ♦ ♦ ♦ PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi, vegna sveitarstjórn- arkosninganna næsta vor, fer fram á morgun, laugardag, í félagsheimili sjálfstæðismanna á Austurströnd 3, fyrir ofan útibú SPRON, milli kl. 10 og 19. Prófkjörið þykir sæta tíðind- um fyrir þá sök að í fyrsta sinn fer fram hjá stjórnmálaflokki rafræn kosning. Áfram verður þó boðið upp á hefðbundna kjörseðla fyrir þá sem vilja eða ef tölvurnar bregðast. Sjálfstæðismenn fengu fimm full- trúa í bæjarstjórn í síðustu kosning- um. Sigurgeir Sigurðsson bæjar- stjóri, sem leitt hefur flokkinn, hættir næsta vor eftir fjörutíu ára setu í sveitarstjórn á Nesinu, þar af í 36 ár sem sveitar- og bæjarstjóri. Samkvæmt upplýsingum frá kjör- nefnd geta allir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnar- nesi kosið, sem eru 18 ára og eldri á kjördegi. Þeir þurfa aðeins að skrifa nafn sitt í bók á kjörstað sem ekki verður notuð til að skrá menn í flokk- inn. Einnig geta kosið þeir sem eru flokksbundnir sjálfstæðismenn á aldrinum 15–18 ára, samkvæmt nýj- um reglum sem samþykktar voru á síðasta landsfundi. Að sögn Péturs Kjartanssonar, formanns kjörnefnd- ar, ættu úrslit að liggja fyrir milli kl. hálfátta og átta á laugardagskvöld. Fimmtán frambjóðendur Fimmtán frambjóðendur gefa kost á sér í prófkjörinu og verða þátttakendur að tilgreina nákvæm- lega sjö þeirra og raða þeim í röð frá 1. og niður í 7. sæti. Tveir frambjóðendur vilja leiða listann við næstu kosningar, Ásgerð- ur Halldórsdóttir viðskiptafræðing- ur og Jónmundur Guðmarsson fjár- festingarstjóri. Tveir gefa kost á sér í 2. sætið, þau Inga Hersteinsdóttir verkfræðingur og Ingimar Sigurðs- son deildarstjóri, og þrjú stefna á 3. sætið, þau Árni Halldórsson fram- kvæmdastjóri, Sigrún Edda Jóns- dóttir fjármálastjóri og Þórhildur Albertsdóttir fjármálastjóri. Í 2. til 4. sæti bjóða sig fram Bjarni Torfi Álfþórsson ráðgjafi og Gunnar Lúð- víksson verslunarmaður og fyrst og fremst 4. sætið ætlar sér Guðmund- ur Helgi Þorsteinsson framkvæmda- stjóri. Á 4. til 7. sæti stefna Jón Jónsson, fv. stórkaupmaður, og Sólveig Páls- dóttir bókmenntafræðingur, í 5. sæt- ið gefur kost á sér Magnús Örn Guð- mundsson bankamaður og Lárus Brynjar Lárusson flugmaður gefur kost á sér í 6. sætið. Einn frambjóð- andi, Olga Kristrún Ingólfsdóttir nemi, tilgreinir ekki sæti sem hún stefnir á. Jónmundur og Inga hafa verið að- almenn flokksins í bæjarstjórn þetta kjörtímabil og Sigrún Edda verið varamaður. Ásgerður, Gunnar, Ingi- mar og Jón hafa setið í nefndum á vegum bæjarins. Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi Rafræn kosning í prófkjöri um helgina HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær konu af kröfu manns um afslátt af kaupverði á íbúðarhúsi. Maðurinn keypti húsið af eigin- manni konunnar á árinu 1989 en seldi það öðrum árið 1996. Með dómi Hæstaréttar í fyrra var manninum gert að greiða kaupandanum afslátt af kaupverðinu vegna þess að skor- dýr, svonefndar veggjatítlur, höfðu í verulegum mæli grafið sig inn í burðarvirki og klæðningu hússins. Maðurinn höfðaði mál gegn eigin- konu fyrri eiganda en hún sat í óskiptu búi eftir eiginmann sinn. Maðurinn hélt því fram að sami galli hefði verið á húsinu þegar hann keypti það árið 1989. Hæstiréttur taldi sannað að veggjatítlurnar hefðu verið komnar í húsið árið 1989 og hefði maðurinn því rétt til að krefjast afsláttar á kaupverðinu. Aftur á móti hefði hann viðurkennt að leki hefði verið við skorstein þeg- ar hann keypti húsið og að ekki hefði verið ráðist í viðgerðir vegna hans, heldur látið nægja að hafa fötu á gólfi í risi til að taka við regnvatni. Hæstiréttur ályktaði að raki sem hlyti að fylgja þessu hafi bætt mjög lífsskilyrði fyrir veggjatítlur í þess- um hluta hússins en þar virðist þeirra hafa gætt mest. Húsið er járnklætt timburhús, reist árið 1927, með íbúð á hæð og í steinsteyptum kjallara og með óein- angruðu risi sem var notað sem geymsla. Af ástandi hússins eftir að mað- urinn seldi það yrði ekkert ráðið um hversu útbreidd skordýrin kynnu að hafa verið árið 1989, hvaða leiðir voru til að útrýma þeim og hvaða kostnaður hefði getað hlotist af því. Engin gögn lægju fyrir um þessi at- riði og þeirra yrði ekki aflað þar sem þeim hlutum hússins sem voru úr timbri hefði verið fargað. Konan var því sýknuð en með því staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðs- dóms Reykjavíkur. Leki bætti lífsskilyrði fyrir veggjatítlur STEINUNN Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, varpaði því fram í umræðum í borgarstjórn í gær að kannað yrði í tengslum við endurskoðun á aðal- skipulagi borgarinnar hvort unnt væri að banna starfsemi nektar- dansstaða í borginni. Hún kvaðst áður hafa verið þeirrar skoðunar að ekki væri rétt að grípa til þess konar banns held- ur að láta eftirspurn ráða en nú hefði að hennar mati komið ým- islegt fram sem sýndi að slíkir staðir hefðu margt óæskilegt í för með sér. Borgarfulltrúinn sagði að þetta myndi þýða að lagt yrði almennt bann við rekstri nektardansstaða en að í deiliskipulagi mætti ef til vill skoða hverja einstaka umsókn um slíkan rekstur. Borgarfulltrú- inn sagði fulla ástæðu til að kanna lagalega hvort borgaryfirvöldum væri stætt á að setja slíkt bann í aðalskipulagi. Vill banna rekstur nektar- dansstaða ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.