Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 02.11.2001, Blaðsíða 68
FÓLK Í FRÉTTUM 68 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Laugavegi 1 Velkomin um borð! 15% afsláttur af öllum peysum í dag og á morgun Í ÞEIM geira alþýðutónlistar sem kallast „singer/songwriter“ á ensku er yfirleitt að finna tónlistarmenn sem syngja sín eigin lög og texta við kassagítarleik. Þetta form býður upp á mjög per- sónulega og einka- lega túlkun og hef- ur höfðað sérstak- lega mikið til kvenna. Hægt er að nefna fjöldann allan af þekktum tónlistarkonum sem hafa skapað sér frægð sem syngjandi söngvasmiðir. Af einhverjum ástæð- um hafa samt fáar íslenskar tónlist- arkonur valið þá leið að fara einförum með gítarinn síðan mesta hippavíman rann af fólki. En nú höfum við eignast eina hreinræktaða kassagítarkonu, Heru Hjartardóttur, sem sendi ný- lega frá sér sína fyrstu stúdíóplötu. Not so sweet hefur að geyma hvorki meira né minna en 18 lög og texta eftir Heru, sem hefur hlotið sína eldskírn við að spila lögin sín á börum og kaffihúsum í heimabæ sínum á Nýja-Sjálandi, hvar hún hefur verið búsett undanfarin ár. Það er röddin sem snertir mann mest þegar hlustað er á diskinn. Hera er aðeins 18 ára, en hljómar sérlega örugg og þroskuð. Hún segir einu þjálfun sína í söng hafa verið þá, að þegar hún var barn og gekk heim úr skólanum í íslensku vetrarmyrkri hafi hún sungið til að verða ekki myrkfæl- in. Henni virðist vera mjög eðlislægt að tjá sig með söngnum um hvaðeina í lífi sínu, og hefur sterka og kraftmikla rödd, sem hún getur líka beitt á blíðan og viðkvæmari hátt án þess að tapa fyllingu. Lagasmíðarnar eru flestar rólegar og ljúfar kassagítarmelódíur í þjóðlagaanda, en röddin gefur þeim skerpu. Lagið „If I Confessed“ er t.d. sérstaklega vel sungið og þótt laglín- an sé kannski ekki fréttnæm er ekki annað hægt en að leggja við eyrun. Textarnir eru líka oft þess virði að hlusta á, því Hera er ófeimin við að bera á borð sínar innstu tilfinningar og þrár, er hreinskilin og blátt áfram og á köflum jafnvel berorð, eins og í einu besta lagi plötunnar, „Suits Me“. Ágætt er líka „Naughts and Crosses“ sem hefur melankólískara og dekkra yfirbragð en flest lögin. Hera mætti þó teygja meira á hefðinni í uppbygg- ingu laganna en þau eru frekar fyrir- sjáanleg og fátt er um óvæntar hljómasamsetningar eða millikafla. Sum lögin gætu líka borið hrárri út- setningar og meiri styrk, auk þess sem gítarleikurinn virkar stundum heldur veiklulegur og daufur fyrir kraftmikla röddina. Stærsti gallinn er samt sá að lögin eru alltof mörg og súrt í broti að góðu lögin eiga á hættu að hverfa í djúpið með þeim léttvæg- ari, vegna þess að fjöldinn gerir yf- irbragðið einsleitt og keimlíkt. Sér- staklega finnst mér halla á ógæfuhliðina um seinni hlutann (und- anskil þó „Itchy Palms“) og veruleg grisjun hefði gert þetta að mun sterk- ari grip. Hæfileikarnir leyna sér samt ekki og þegar litið er til hvað konan er ótrúlega ung og einbeitt má búast við forvitnilegu efni frá henni í framtíð- inni. Tónlist Sætt og súrt HERA Not so sweet Foolsday Ltd. Sólóplata Heru Hjartardóttur. Hera samdi öll lög og texta, auk þess sem hún stjórn- aði upptökum. Fram koma á plötunni, auk Heru sem syngur og leikur á gítar, Helen Webby harpa, Bryce Collier bassi, kontrabassi og tíbeskar bjöllur, Joseph Veale trommur, Brent Dowson píanó, Keith Petch gítar og Fiona Pears fiðla. Platan inniheldur 18 lög og tekur 54 mín- útur og 33 sekúndur í flutningi. Skarphéðinn Guðmundsson Hera er 18 ára gamalt söngvaskáld sem búsett er á Nýja-Sjálandi. Moulin Rouge Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Baz Luhrman. Aðalleikendur: Nicole Kidman, Ew- an McGregor, Jim Broadbent. Sannkölluð himnasending í skammdeginu. Stórfengleg afþreying sem er allt í senn: Söng- og dansa- mynd, poppópera, gleðileikur, harmleikur, nefndu það. Baz Luhrman er einn athyglis- verðasti kvikmyndagerðarmaður samtímans sem sættir sig ekki við neinar málamiðlanir og uppsker einsog hann sáir; fullt hús stiga. Smárabíó, Regnboginn. AI Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Steven Spielberg. Handrit: Spielberg o.fl. Aðalleikendur: Haley Joel Osment, Jude Law, Frances O’Connor, William Hurt. Mjög spennandi og áhrifarík kvikmynd með sterkri ádeilu. Endinum er þó algerlega ofaukið.  Bíóborgin. Jay and Silent Bob Strike Back Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Kevin Smith. Aðalleikendur: Jason Mewes, Kevin Smith. Járnbentur steypuhúmor frá einum frumlegasta kvikmyndagerðarmanni samtíðar- innar sem skopast einkum að samkynhneigð, bölbænum og ragni. Tvíeykið á frábæra spretti í vegamynd þvert yfir Bandaríkin.  Regnboginn. Mávahlátur Tilkomumikil kvikmynd Ágústs Guðmundsson- ar byggð á samnefndri skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur. Þar skapar leikstjórinn söguheim sem er lifandi og heillandi, og hefur náð sterkum tökum á kvikmyndalegum frá- sagnarmáta. Frammistaða Margrétar Vil- hjálmsdóttur og Uglu Egilsdóttur er frábær.  Háskólabíó, Kringlubíó. Sexy Beast Bresk, spænsk. 2000. Leikstjóri: Jonathan Glazier. Handrit: Aðalleikendur: Ben Kingsley, Ray Winstone. Fersk mynd og frumleg frá nýj- um leikstjóra, um sálarkreppu fyrrverandi krimma sem reynt er að draga aftur til fortíðar. Stórkostlegur leikur hjá Ben Kingsley og Ray Winstone.  Háskólabíó, Sambíóin. American Pie 2 Bandarísk. 2001. Leikstjóri J.B. Rodgers. Handrit: Adam Herz. Aðalleikendur: Jason Biggs, Shannon Elizabeth, Chris Klein. Bein framhaldslýsing á kynórum menntaskóla- nema er fyrri myndinni sleppir. Græskulaus neðan mittisfyndni flutt af sama, góða ung- leikaragenginu.  Háskólabíó, Sambíóin. Bridget Jones’s Diary Bresk. 2001. Leikstjóri: Sharon Maguire. Handrit: Helen Fielding. Aðalhlutverk: Renée Zellweger, Hugh Grant, Colin Firth, Jim Broad- bent. Sagan um ástamál Bridget verður að hæfilega fyndinni, rómantískri gamanmynd. Zellweger gerir margt gott í titilhlutverkinu.  Háskólabíó. Captain Corelli’s Mandolin Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John Madden. Handrit: Shawn Slovo. Aðalleikendur: Nicolas Cage, Penelope Cruz, John Hurt. Falleg og gamaldags mynd með sérstaka sýn á seinni heimsstyrjöldina, auk ástarsögunnar. Frábærir leikarar sem standa sig vel, en það má deila um Nicolas Cage.  Bíóborgin. Pétur og kötturinn Brandur Sænsk. 2000. Leikstjóri: Albert Hanan Kam- insky. Handrit: Torbjörn Janson. Teiknimynd. Aðalraddir: Guðmundur Ólafsson, Arngunnur Árnadóttir, Sigurður Sigurjónsson, Sigrún Waage. Ekkert stórvirki en ágætis skemmtun fyrir litla krakka. Pétur og Brandur eru viðkunn- anlegir og uppátektarsamir.  Smárabíó, Laugarásbíó. Rugrats in Paris Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Stig Bergquist, Paul Demyer. Handrit: J. David Stem o.fl. Ísl. leikraddir: Edda Heiðrún Backmann, Inga María Valdimarsdóttir, Rósa Guðný Þórsdóttir, Dofri Hermannsson o.fl. Skemmtileg en full fyrirsjáanleg mynd um káta krakkaorma í leit að mömmu handa vini sínum.  Bíóhöllin, Háskólabíó. Small Times Crooks Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit: Woody Allen. Aðalleikendur: Allen, Tracey Ull- man, Elaine May. Bráðfyndin mynd meistara Allen. Grínið ræður ríkjum, en sagan hefði mátt vera skemmtilegri og kannski aðeins dýpri. Frábærir leikarar.  Bíóborgin. Cats & Dogs Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Lawrence Gut- erman. Handrit: John Rena. Aðalraddir: Alec Baldwin, Sean Hayes, Susan Sarandon. Ein- föld saga og spennandi fyrir krakka. Annars ósköp klisjukennd og illa leikstýrð. Kringlubíó. Final Fantasy Japönsk. 2001. Leikstjórn: Hironobu Sakag- uchi. Handrit: Al Reinert. Aðalraddir: Alec Baldwin, Ming Na, Donald Sutherland, James Woods. Frábærlega unnin tölvugrafíkmynd um framtíðarátök á Móður Jörð. Skortir meira líf og lit og þó ekki væri nema örlítinn húmor. Smárabíó, Regnboginn. A Knight’s Tale Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Brian Helgeland. Aðalleikendur: Heath Ledger, Ruf- us Sewell, Mark Addy. Rokkað feitt á burtreið- um? Undarleg samsuða af miðaldagamni og nútímarokki sem erfitt er að sjá að hafi mikinn tilgang en Helgeland reynir hvað hann getur að láta taka sig alvarlega. Regnboginn. Osmosis Jones Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit: Farr- ellybræður o.fl. Aðalleikendur og raddir: Chris Rock, Bill Murray. Frumleg blanda teikni- og leikinnar myndar, gerist á framandi slóðum mannslíkamans. Hér stendur baráttan á milli vondra sýkla og góðra lyfja og hvítra blóð- korna. Kemst ekki í fluggír. Kringlubíó. Rat Race Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Jerry Zucker. Handrit: Andrew Breckman. Aðalleikendur: John Cleese, Rowan Atkinson, Whoopi Gold- berg, Cuba Gooding. Gamanmynd hlaðin bröndurum og skondnum karakterum sem keppa um hver er fyrstur að finna tvær millj- ónir dollara. Dellumynd, sannarlega, en má hlæja að henni. Laugarásbíó. The Score Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Frank Oz. Handrit. Serge Hamilton. Aðalleikendur: Robert De Niro, Edward Norton, Angela Bassett, Marlon Brando. Frábærir leikarar geta lítið gert fyrir handrit sem ekki gengur upp. Sumt sniðugt, það dugar ekki til. Laugarásbíó. Swordfish Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Dominic Sena. Handrit: Skip Woods. Aðalleikendur: John Travolta, Hugh Jackman og Halle Berry. Flott mynd með góðu gengi og fínum hasar en gengur ekki nógu vel upp. Kringlubíó. Lucky Numbers Bresk. 200. Leikstjórn: Nora Ephron. Handrit: Adam Resnick Aðalleikendur: John Travolta, Lisa Kudrow. Svört grínmynd sem gengur ekki upp; lélegir brandarar, morð og græðgi. Trav- olta og Kudrow skiljanlega ekki nógu skemmtileg. Háskólabíó. 3000 Miles to Graceland Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Demian Lichten- stein. Handrit: Bruno Corsica. Aðalleikendur: Kurt Russell, Kevin Costner, Courteney Cox. Afkáraleg, yfirmáta blóðidrifin vegamynd um rán í Las Vegas og undankomuna. Lengdin drepur spennuna. Sambíóin. Evil Woman Bandarísk. 2001. Aðalleikarar: Amanda Peet, Steve Zahn, Jason Biggs, Jack Black. Lapþunn aulamynd um þrjá bjálfa og kvenskratta. Af myndinni að dæma stefna aulabrandarabankar í gjaldþrot.  Smárabíó, Stjörnubíó. Moulin Rouge: „Sannkölluð himna- sending í skammdeginu.“ Bíóin í borginni Sæbjörn Valdimarsson /Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.