Morgunblaðið - 02.11.2001, Side 8

Morgunblaðið - 02.11.2001, Side 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sjáðu hvað þetta er grjótmagnað, Árni, þetta er úr dánarbúinu okkar gömlu kommanna. Aukaþing ungra framsóknarmanna Fyrst og fremst verið að sam- þykkja ný lög Framsóknarflokkur-inn taki við forsæt-is- og fjármála- ráðuneyti, óviðunandi EES-samningur og einkavæðingu í heilbrigð- iskerfinu og RUV hafnað er á meðal þess sem stendur í drögum að ályktunum semliggja fyr- ir aukaþingi Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) sem haldið verður á morgun frá klukkan 10– 19 að Hverfisgötu 33 í Reykjavík. Einar Skúla- son er formaður SUF og hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér til áfram- haldandi formennsku. Hann á von á innihalds- ríku og skemmtilegu átakaþingi þar sem ungt fólk frá öllu landinu hittist, ræðir málefni líðandi stundar, skiptist á skoðunum og skemmtir sér sam- an. – Hver verða helstu málefni þingsins? „Fyrst og fremst er verið að samþykkja ný lög fyrir Sam- bandið, en flokksþing Framsókn- arflokksins lagði þær skyldur á stofnanir hans að endurskoða lög sín fyrir áramót. Að öðru leyti verður fjallað um stjórnmála- ástandið í dag, stöðuna í utanrík- ismálum í ljósi atburðanna í haust og sérstaklega verður rætt um sveitarstjórnarmálin vegna kosn- inganna í vor.“ Er að vænta markverðra stefnubreytinga í einhverjum veigamiklum málum? „Það má segja að stefnumálin séu skýr í nokkrum málum. Við höfnum einkavæðingu að nokkru leyti, eins og í heilbrigðiskerfinu og í Ríkisútvarpinu. Við viljum að lög verði sett um fjárreiður stjórnmálaflokkanna í landinu og í sértillögu sem liggur fyrir þinginu er því beint til forystu Framsóknarflokksins að sett verði á stofn nefnd sem hafi það hlutverk að vinna drög að siða- reglum fyrir félaga í Framsókn- arflokknum.“ – Það er sagt að sjálfstæðis- mönnum verði svarað vegna um- ræðna um heilbrigðisráðuneytið? „Já, í einni af ályktunum lands- fundar Sjálfstæðisflokksins kem- ur fram að þeir ásælist heilbrigð- isráðuneytið. Í drögum að stjórnmálaályktun er þessu hafn- að enda ljóst að hugmyndir Sjálf- stæðisflokksins um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu eiga ekki hljómgrunn meðal þjóðarinnar. Það er ekki vilji til þess hjá okkur að koma upp tvískiptu kerfi þar sem hætta er á því að fólki verði mismunað eftir stöðu. Reyndar hvetjum við síðan einnig til þess í ályktunardrögum að Framsókn- arflokkur taki við nokkrum þeirra ráðuneyta sem Sjálfstæð- isflokkurinn sinnir nú um stundir.“ – Varðandi álykt- anir um sveitar- stjórnarmál og utan- ríkismál...hvað er helst um þær að segja? „Í ályktun um sveitarstjórnar- mál er m.a. lagt til að sveitarfé- lagamörk verði ákveðin með lög- um og að fremur verði litið til hæfni tilvonandi sveitarfélags til að sinna þjónustu fremur en til lágmarksíbúafjölda. Þó mætti miða við 5.000 íbúa lágmark í þessu tilliti. Í drögum að ályktun um utanríkismál ítrekum við að aðild Íslands að innri markaði Evrópusambandsins sé forsenda fyrir áframhaldandi efnahagsleg- um stöðugleika og hagvexti hér á landi. Við viljum þó ekki una við það að Íslendingar eigi ekki öruggt sæti við borðið þegar sett er löggjöf sem skuli gilda á öllu efnahagssvæðinu, þ.á m. hér á landi.“ Einhverjar lagabreytingar sem máli skipta? „Í tillögum að lagabreytingum er meðal annars lagt til að þing SUF verði opin öllum framsókn- armönnum á aldrinum 16 til 35 ára, sem er nýmæli, því í dag velja FUF félög um allt land full- trúa á þingin. Í öðru lagi er lagt til að fjölga í framkvæmdastjórn og skilgreina verksvið betur, fækka verulega í miðstjórn, en um leið færa henni aukið hlutverk og einnig er áréttað að hlutur hvers kyns megi ekki vera minni en 40% í kosningum embætta. Að öðru leyti má segja að verið sé að endurskoða lögin til samræmis við nýsamþykkt flokkslög.“ Er mikil gróska í ykkar röðum þessi misserin? „Það er alltaf einhver gróska meðal ungra framsóknarmanna þó að hún rísi auðvitað hæst fyrir kosningar hverju sinni. Við erum næststærsta ungliðahreyfingin á landinu með tuttugu og tvö aðild- arfélög og hátt í 1.800 fé- lagsmenn. Reglulega og óreglulega eru haldnar uppákomur, ungir framsóknar- menn skrifa í vefritið maddaman.is og stöðug umræða á sér stað. Ég á von á skemmtilegri helgi þar sem ungt fólk frá öllu landinu hittist, ræðir málefni líð- andi stundar, framtíðina og skemmtir sér saman. Ég vil jafn- framt vekja athygli á því að þing SUF er opið öllum félagsmönnum SUF og nánari upplýsingar má fá á www.framsokn.is og með því að senda póst á suf@framsokn.is.“ Einar Skúlason  Einar Skúlason fæddist í Kaupmannahöfn 22. september 1971. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1991 og lauk síðan BA- prófi í stjórnmálafræði frá Há- skóla Íslands árið 1998. Einar er einn eigenda auglýsingastof- unnar Bankastræti og hefur ver- ið formaður Sambands ungra framsóknarmanna síðan haustið 1999. Hann á tvo syni, Gabríel Gauta og Stein Inga. Við viljum að lög verði sett um fjárreiður stjórn- málaflokkanna GENGIÐ hefur verið frá dómsátt í máli Ernis Snorrasonar og deCODE Genetics, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar. Ernir höfðaði mál gegn fyrirtækinu fyrir dómstóli í Delaware í Bandaríkjunum á síðasta ári og krafðist viðurkenningar á eign- arhlutdeild sinni í félaginu. Sam- kvæmt upplýsingum Páls Magnús- sonar, upplýsingafulltrúa ÍE, var gerð dómsátt í málinu fyrir nokkru, sem felur í sér að Ernir fær um 160 þúsund hluti í félaginu og er þessu deilumáli þar með lokið, að hans sögn. Ernir Snorrason var einn af stofn- endum fyrirtækisins á sínum tíma ásamt Kára Stefánssyni o.fl. Átti hann rúmlega 480 þús. bréf í fyrir- tækinu skv. stofnfjárfestasamningi. Ágreiningur var milli stofnendanna en forsvarsmenn deCODE töldu að Ernir hefði brotið trúnað við fyrir- tækið og fyrirgert samningum. Í stefnunni hélt Ernir því fram að fyrirtækið hafi með óréttmætum hætti reynt að gera að engu rétt hans til 256 þús. hluta en skv. málsgögn- unum nýti fyrirtækið sér ákvæði stofnfjárfestasamnings til að endur- kaupa hluta af bréfum hans. Hélt Ernir því fram að krafa félagsins um að það geti með löglegum hætti keypt til baka hluta af hlutafénu þegar hann hætti störfum væri ekki gild þar sem hann hafi aldrei starfað hjá félaginu. deCODE og Ernir Snorrason gera dómsátt Ernir fær um 160 þúsund hluti í félaginu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.