Morgunblaðið - 02.11.2001, Side 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 13
SIGMUNDUR E. Ófeigsson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Norðlenska eins og sagt var frá í
blaðinu í gær. Með fréttinni átti að
birtast mynd af Sigmundi, en fyrir
mistök birtist mynd þar sem hann er
með Guðjóni Stefánssyni og undir
henni var myndatexti sem ekki átti
við fréttina
Í annarri frétt þar sem greint var
frá mótmælum foreldra vegna hækk-
unar leikskólagjalda var farið rangt
með fjölda þeirra sem skrifuðu undir
mótmælin. Þeir voru 745 talsins, en
ekki 475 eins og þar kom fram.
Hlutaðeigandi eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
TÖLUVERÐIR umhleypingar
eru í veðrinu þessa dagana og
hafa Akureyringar ekki farið
varhluta af því. Í byrjun vik-
unnar snjóaði nokkuð í bænum
og í kjölfarið fór hitastigið nið-
ur fyrir frostmark.
12 stiga hiti
Á miðvikudag fór hitastigið
niður undir frostmark en í gær-
dag var kominn 12 stiga hiti í
bænum. Snemma í gærmorgun
var um tveggja stiga hiti en hit-
inn steig síðan jafnt og þétt
fram eftir degi og fór í 12 gráð-
ur um miðjan daginn, sem fyrr
sagði.
Sveiflur
í veðrinu
LAUFÁSPRESTAKALL: Guðs-
þjónusta verður í Grenivík-
urkirkju á sunnudag, 4. nóv-
ember, kl. 14. Minnst látinna.
Kirkjugestir geta kveikt á kert-
um í kirkjunni til minningar um
látna ástvini. Kyrrðarstund í
Grenivíkurkirkju á sunnudags-
kvöld kl. 21.
Kirkjustarf
JÓHANN Már Jóhannsson,
tenór og Rögnvaldur Valbergs-
son, orgel, kom fram á kvöld-
stund í Akureyrarkirkju í
kvöld, föstudagskvöldið 2. nóv-
ember, en hún hefst kl. 20.
Tónleikar þeirra eru til
minningar um Jóhann Kon-
ráðsson, Doriett Kavanna,
Sindra Konráðsson og Konráð
Jóhannsson. Flutt verða inn-
lend og erlend sönglög. Að-
gangseyrir er 1.000 krónur og
rennur ágóðinn til Umhyggju,
félags til stuðnings langveikum
börnum.
Kvöldstund í
Akureyrar-
kirkju
BJÖRN Steinar Sólbergsson
organisti heldur hádegistón-
leika í Akureyrarkirkju kl. 12 á
laugardag, 3. nóvember.
Á efnisskrá tónleikanna
verða verk Jehan Alain og
Maurice Duruflé.
Lesari á tónleikunum er Ing-
unn Björk Jónsdóttir, djákni.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og eru allir velkomnir.
Listvinafélag Akureyrar-
kirkju stendur fyrir tónleikun-
um.
Akureyrarkirkja
Hádegis-
tónleikar
EITT ÁR er í dag liðið frá því versl-
unarmiðstöðin Glerártorg var opnuð
á Akureyri og verður af því tilefni
mikið um að vera þar í dag og um
helgina. Almennt virðast menn sam-
mála um að opnun miðstöðvarinnar
fyrir ári hafi haft jákvæð áhrif á
verslun í bænum og tekist hafi að
laða fleira fólk til bæjarins í kjölfar
þess að Glerártorg var opnað.
„Þetta hefur verið alveg magnað,“
sagði Hilmar Már Baldursson að-
stoðarverslunarstjóri í Rúmfatalag-
ernum. Hann sagði að sala hefði auk-
ist í versluninni eftir að hún færði sig
um set inn í Glerártorg, enda hefði
rými líka aukist umtalsvert frá því
sem áður var. „Þær væntingar sem
við gerðum hafa staðist og við erum
bara mjög lukkuleg hérna. Við-
skiptavinir virðast líka kunna að
meta umhverfið hér, en þeir eru
bæði úr hópi heimamanna og eins
verðum við vör við að mikið er um
fólk úr nágrannabyggðum,“ sagði
Hilmar.
Sigmundur Sigurðsson, verslun-
arsjóri í Netttó, sagði að nýr heimur
hefði opnast í verslun og viðskiptalífi
á Akureyri eftir að miðstöðin var
opnuð á Glerártorgi. „Það hefur orð-
ið veruleg aukning í versluninni og
mikið um að fólk komi jafnvel langt
að til að versla. Austfirðingar þurfa
til að mynda ekki að fara lengra en til
Akureyrar til að nálgast flest það
sem í boði er syðra,“ sagði Sigmund-
ur. „Við erum mjög sátt og bjartsýn
á framtíðina, þetta hefur staðið undir
okkar væntingum.“
Halldór Halldórsson úrsmiður
flutti starfsemi sína úr útjaðri mið-
bæjarins á Akureyri og í Glerártorg
fyrir ári. „Hér er gott að vera, það er
gaman að vera innan um allt þetta
fólk og verslanir sem hér eru,“ sagði
Halldór. Hann sagði að umsvif sín
hefðu aukist umtalsvert frá því hann
opnaði verslun á Glerártorgi. Tveir
úrsmiðir eru á Akureyri, en að öðru
leyti eru ekki starfandi úrsmiðir á
svæðinu frá Akranesi norður og
austur um að Selfossi, þannig að
Halldór sagði að mikið væri að utan-
bæjarfólk sækti til sín þjónustu.
Ragnar Sverrisson sem á Skó-
verslun Steinars Waage á Glerár-
torgi sagðist ekki hafa heyrt annað
en fólki líki vel á Glerártorgi. „Ég
held að opnun Glerártorgs hafi lyft
Akureyri á hærra plan sem verslun-
arstað. Þarna kemur mikið af fólki
og ég tel að flestir hafi náð þeim ár-
angri sem að var stefnt,“ sagði
Ragnar.
Ingþór Ásgeirsson, verslunar-
stjóri hjá Pennanum Bókval, sagðist
sáttur við reksturinn síðasta árið.
„Að mínu mati hefur Glerártorg haft
mikil áhrif á bæjarbraginn og fest
Akureyri í sessi sem verslunarbæ.
Staðan væri verri í samkeppninni við
Reykjavík ef miðstöðin hefði ekki
verið opnuð,“ sagði Ingþór.
Eitt ár liðið frá opnun verslunarmiðstöðvarinnar Glerártorgs
Akureyri fest í
sessi sem versl-
unarstaður
Morgunblaðið/Kristján
Það verður vafalítið líflegt á Glerártorgi um helgina en í tilefni afmæl-
isins verða ýmsar uppákomur í verslunarmiðstöðinni.
ÞAÐ var mikið um dýrðir í Síðuseli
í gær þegar haldið var upp á 20 ára
afmæli leikskólans.
Börnin efndu til sýninga fyrir
foreldra sína og aðra gesti sem
heimsóttu Síðusel í tilefni dagsins.
Alls voru fjórar sýningar, stutt leik-
rit, söngur og þá komu brúður við
sögu. Einnig var opnað kaffihús í
kjallara leikskólans þar sem gest-
um var boðið upp á veitingar.
Nú eru 89 börn í Síðuseli, tveggja
til sex ára, á þremur deildum og
eru starfsmenn rúmlega 20 talsins.
Leikskólinn stækkaði nokkuð um
áramótin 1993-94 þegar kjallarinn
var tekinn í notkun.
Snjólaug Pálsdóttir leik-
skólastjóri sagði að unnið hefði ver-
ið að þróunarverkefninu Gæða-
stjórnun í leikskólum og árangur af
því hefði orðið góður, en nú er unn-
ið að öðru þróunarverkefni sem
nefnist Lífsleikni í leikskólum. Það
er unnið í samvinnu við leikskólana
Sunnuból og Krógaból. Um er að
ræða mannræktarverkefni að sögn
Snjólaugar að indverskri fyr-
irmynd en það hefur ekki verið
reynt áður í starfi með svo ungum
börnum eða frá tveggja ára aldri.
Snjólaug sagði að mikill stöð-
ugleiki væri í starfsmannahaldi á
leikskólanum, en þar hefur sami
fasti kjarninn unnið um árabil og
haldið uppi starfinu.
Leikskólinn Síðusel 20 ára
Börnin buðu foreldrum
á sýningu og kaffihús
Morgunblaðið/Kristján
Börnin á Síðuseli höfðu ríka ástæðu til að brosa út að eyrum í gær, á 20
ára afmæli leikskólans.
EISTNESK-írsk tónlist verður leik-
in í Deiglunni á laugardagskvöld, 3.
nóvember. Hún verður flutt af þrem-
ur Eistlendingum sem allir eru starf-
andi tónlistarkennarar á Norður-
landi. Þeir eru Jaan Alavere á
harmoniku, fiðlu og gítar, Tarvo
Nõmm á bassa ásamt Mait Trink
sem syngur og spilar á gítar. Tón-
leikarnir hefjast kl. 22.30 og miða-
verð er 1.000 kr.
Eistnesk-írskt
tónlistarkvöld