Morgunblaðið - 02.11.2001, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 02.11.2001, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 39 Alþjóðaflugmálastofnunin sam- gönguráðherra bréf þar sem varað var við afleiðingum truflana á al- þjóðlegu flugi á flugstjórnarsvæði Íslendinga og benti forseti ICAO ráðherra á að stofnunin gæti þurft að endurúthluta flugumferðarþjón- ustu yfir úthöfunum. Frá upphafi samnings um alþjóð- lega flugumferðarþjónustu um- hverfis Ísland 1948 hefur flugum- ferðarþjónustan á Íslandi verið undir ströngu eftirliti Alþjóðaflug- málastofnunarinnar en hundruð þúsunda flugfara fara um flug- stjórnarsvæðið árlega og tugir milljóna farþega. Samningurinn er Íslendingum mjög mikilvægur því gjaldeyristekjur af þjónustunni skipta tugum milljóna Bandaríkja- dala árlega, þjónustan skapar mörg mikilvæg störf hérlendis og stuðlar að aukinni tækniþekkingu og tækja- kosti í flugumferðarþjónustu. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sagði við Morgunblaðið í febr- úar að samkvæmt bréfi ICAO væri ljóst að ef ekki væri hægt að standa við samninginn yrðu aðrir kallaðir til þess. ICAO léti ekki viðgangast að truflun yrði á fluginu og flug- félögin sem nýttu sér þjónustuna myndu ekki sætta sig við að setja allt úr skorðum vegna þess að ekki væri hægt að uppfylla samninginn. Ráðherra segir að staðan nú sé eitthvað verri en í febrúar ef eitt- hvað er. Fyrir liggi að ICAO láti ekki viðgangast að ekki sé staðið við samninga en í tengslum við Flug- þingið sl. miðvikudag hafi fulltrúi frá ICAO komið til landsins og farið yfir málin með fulltrúum ráðuneyt- isins og Flugmálastjórnar. Loftur Jóhannsson segist ekki óttast að ICAO taki flugumferðar- þjónustuna yfir úthöfunum af Ís- lendingum. Alþjóðlegt loftrými í flugstjórnarsvæði Íslendinga sé af- skaplega lítið. Stærsti hlutinn sé yf- ir Grænlandi sem sé á höndum Dana að ákveða hvað verði gert við. Ísland sé miðpunktur allrar umferð- ar á umræddu svæði og flugstjórn verði ekki hætt nema flugmálayfir- völd og stjórnvöld taki um það ákvörðun. Eins og fram komi í bréfi forseta ICAO til samgönguráðherra sl. vetur verði að tryggja þessa þjónustu. Umrædd nefnd hafi verið sett á fót til þess, skýrsla hennar bendi á leiðir til þess og flugumferð- arstjórar fari fram á að framkvæmt verði samkvæmt henni. Vonast eftir samningum í tíma Ljóst er að komi til boðaðra vinnustöðvana valda þær miklum truflunum á flugi og kostnaðarauka. Loftur Jóhannsson segir að boðun verkfalls sé til þess eins að reyna að knýja á um samninga. Flugumferð- arstjórar voni að samningar náist fyrir miðjan mánuðinn og hægt sé að semja fyrir þann tíma. Sturla Böðvarsson segir að ekki hafi verið rætt um að koma í veg fyr- ir fyrirhugaðar vinnustöðvanir með lagasetningu enda trúi hann ekki öðru en að samningar takist. Hann segir að flugumferðarstjórar átti sig örugglega á þessari erfiðu stöðu sem flugið sé í og ekki sé á bætandi. Sturla mun í dag, föstudag, funda með fulltrúa Alþjóðaflugmálastofn- unarinnar, sem staddur er hérlend- is. Mun ráðherra gera honum grein fyrir þeirri stöðu sem ráðuneytið stendur frammi fyrir og leggja á ráðin um viðbrögð sem nauðsynlegt er að viðhafa, komi til verkfalls. und krónur. Samsvarandi laun í jan- úar voru um 454 þúsund, en þá voru dagvinnulaunin um 256 þúsund, yf- irvinnulaun um 104 þúsund og önn- ur laun um 93 þúsund krónur. Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í nýj- asta fréttabréfi SA að frá árinu 1987 hafi kaupmáttur dagvinnulauna flugumferðarstjóra aukist um tæp 111%, en kaupmáttur dagvinnu- launa annarra hópa opinberra starfsmanna mun minna. Kaup- máttur Starfsmannafélags ríkis- stofnana hafi þannig aukist um 32%. Enginn efist um mikilvægi þess að hæfir einstaklingar gegni störfum flugumferðarstjóra en þeir verði að stilla kröfum sínum í hóf og setja þær í samhengi við kjör annarra stétta. Loftur Jóhannsson segir að deila megi um hvað séu háar tölur í þessu sambandi en flugumferðarstjórar séu ekki óánægðir með tekjurnar og ef gengið yrði að kröfum þeirra og farið að tilmælum og tillögum skýrslunnar yrði lítil tekjuhækkun hjá þeim. Auk þess segir hann að nefna mætti að um 50% umræddrar umbeðnar kauphækkunar kæmi vegna samningsins um alþjóðlegu flugumferðarþjónustuna og ríkið fengi því sömu fjárhæð beint til baka. Því sé ekki hægt að tala um kostnað fyrir ríkið og þegar dæmið sé reiknað til enda komi í ljós að það sé hagnaður fyrir þjóðarbúið að hækka laun flugumferðarstjóra vegna þessa samnings. Á Flugþingi sl. miðvikudag var umræðuefnið öryggismál og m.a. rætt um öryggi í flugi, flugþjónustu og flugumferðarþjónustu. Loftur Jóhannsson segir að ef bæta eigi ör- yggi í flugumferðarstjórn verði það gert með því að minnka aukavinn- una og þar með sé hægt að ná fram öllum markmiðunum, þ.e. að tryggja öryggi og rekstraröryggi og tryggja flugumferðarstjórum þá af- komu sem þeir hafi nú þegar í raun. Umsjón flugstjórnar- svæðisins í uppnámi Kjarasamningur flugumferðar- stjóra rann út 1. nóvember 2000 og flugumferðarstjórar boðuðu tveggja sólarhringa verkfall sem hófst 20. febrúar sl. og stóð það í 16 tíma, en þá var skrifað undir samn- ing sem gildir til 15. nóvember nk. Áður en til verkfallsins kom sendi og í fyrir nið- hélt 1979, vandamál jóra. Þar nutími og i flugum- ið öryggi ð miða há- við mörk sé miðað um innan ðkomandi ónar gönguráð- ttarstöðu- i skýrslu amningar ráðuneyta yrir því að æri um í tengslum kipun um- plega sex tjórar um ta að auki a komi til Jóhanns- skra flug- unnið hafi að fjölga m sé ein hafi fylgt kki gerast á afkomu andi hníf- hafi verið nu. Ef öll t án þess ðalafkomu ið leyst. Fréttariti opinberra aun flug- 22 þúsund vinnulaun a um 148 m 101 þús- ngur um gstjórnar- ppnámi   . , / . 1  2 steg@mbl.is dag- g- a hef- meira ann- JÓHANN A. Jónsson, semstýrt hefur HraðfrystistöðÞórshafnar hf. um langtskeið, mun láta af störfum um næstu áramót. Félagið hefur verið rekið með tapi undanfarin ár og hefur rekstur nýrrar kúfisk- vinnslu einkum gengið erfiðlega. Samherji hf. hefur átt ráðandi hlut í fyrirtækinu síðastliðin tvö ár en að sögn Finnboga Jónssonar, stjórnarformanns HÞ og Sam- herja, þýðir þessi breyting ekki að fyrirhuguð séu umskipti á rekstri félagsins. Tap HÞ í fyrra nam 364 millj- ónum króna og tap á fyrri helm- ingi þessa árs var tæpar 105 millj- ónir. Stærstu hluthafar HÞ eru Samherji með 27% hlut, Olíufélag- ið með 12 til 14% hlut og Sjóvá- Almennar með um 12%. Tími til kominn að hætta Jóhann segir að ástæða þess að hann hætti sé sú að hann hafi um mjög langt skeið starfað að upp- byggingu fyrirtækisins. „Einhvern tíma hljóta að verða kaflaskil og það eru komnir nýir eignaraðilar að félaginu og mér hefur fundist að minn tími sé liðinn og tímabært sé að skipta um stýringu félagsins. Tímarnir breytast og mennirnir með og ég geng út frá því að með nýjum mönnum komi nýir siðir.“ Aðspurður hvort sátt hafi verið um þetta segir Jóhann að þetta hafi verið niðurstaðan og hún sé ekki óeðlileg. Hann hafi ekki ákveðið enn hvað hann geri eftir að hann hættir hjá Hraðfrystistöð- inni. Skynsamlegt nýta heimildir í stað þess að leigja þær „Það hlýtur að vera stefna Hraðfrystistöðvar Þórshafnar í framtíðinni að nýta þær aflaheim- ildir, sem fyrirtækið ræður yfir, í stað þess að leigja þær frá sér, eins og gert hefur verið með bol- fiskinn. Þessar heimildir þarf að nota til að styrkja fyrirtækið og atvinnulífið á staðnum,“ segir Þor- steinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sem á 27% í fyrirtæk- inu. Jóhann A. Jónsson, sem hefur starfað hjá HÞ í um 25 ár og stærsti atvinnurekandinn á staðn- um en ætla má að um 50 til 70 föst störf séu hjá HÞ. Henrý Már Ás- grímsson, sveitarstjóri Þórshafn- arhrepps, segist ekki sjá fyrir sér neinar hræringar á rekstri HÞ sem hafa myndu einhver veruleg áhrif á atvinnuástandið á staðnum. Ekki hafi verið unninn bolfiskur að neinu marki á Þórshöfn á vegum HÞ en mjög góð aðstaða sé fyrir bræðslu og vinnslu á uppsjávar- fiski sem engum sé hagur í að flytja burt. Aðspurður segir Henrý að hann hafi ekki vitað að Jóhann A. hefði ákveðið að hætta, hann hafi fyrst heyrt um það í fjölmiðlum. „Jó- hann A. er búinn að vera lengi í starfi framkvæmdastjóra og ég reikna með að hann hafi hreinlega verið orðinn þreyttur. En ég get ekki sagt að þetta komi mér sér- staklega á óvart. Þetta hefur svona að einhverju leyti legið í loftinu.“ Henrý segir að bolfiskvinnsla hafi nær engin verið hjá HÞ síð- astliðin tvö ár og hann sjái því vart fram á breytingar hjá HÞ sem dragi muni verulega úr atvinnu á staðnum. „Þetta hefur aðallega verið uppsjávarvinnslan og svo kú- skelin. Þegar Samherji kom að HÞ voru þeir auðvitað fyrst og fremst með augun á vinnslu og bræðslu á uppsjávarfiski hér á Þórshöfn og það væri bæði þeim og HÞ í óhag að færa þá vinnslu burt. Bræðslan er mjög góð hér, bæði öflug og vel rekin og eins er hér orðin góð að- staða fyrir frystingu á uppsjáv- arfiski.“ Sameiginleg bolfiskútgerð álitleg Henrý segir að bolfiskkvóti HÞ skipti litlu máli fyrir atvinnulífið á Þórshöfn auk þess sem hann sé ekki nógu mikill til þess að gera út á hann eitt skip. HÞ hafi ekki skip til þess að veiða hann og kvótinn hafi því verið leigður burt um ára- bil. Henrý segist hins vegar ekki hafa heyrt neitt um það að selja eigi kvótann. „Það væri frekar um það að Samherji og HÞ myndu slá saman, þ.e. að Samherji kæmi með kvóta á móti sem félögin gætu gert út á sameiginlega. Það er sú hugmynd sem menn hafa verið að reifa. Og við hefðum áhuga á slík- um samrekstri ef það gæti skapað störf fyrir sjómenn frá Þórshöfn og þá ef til vill í hlutfalli við þann bolfiskkvóta sem HÞ á.“ Morgunblaðið innti Jakob Bjarnason, fulltrúa Olíufélagsins í stjórn HÞ, eftir því hvert fram- haldið yrði. Hann vildi ekkert um það segja. lengst af sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins, hefur ákveðið að láta af störfum um áramót. „Um það er í sjálfu sér lítið að segja. Jóhann hefur ákveðið að hætta og við eig- endur fyrirtækisins hljótum að skoða framhaldið í ljósi þess. Eftir að Samherji keypti sig inn í fyr- irtækið höfum við lagt áherzlu á að styrkja það og höfum meðal ann- ars landað miklu af uppsjávarfiski á Þórshöfn í fyrra og á þessu ári. Fyrirtækið hefur haft yfir að ráða tæplega 1.400 tonna bolfisk- kvóta en hann hefur það leigt frá sér enda ekkert skip átt til að sækja þann afla. Því hefur engin bolfiskvinnsla verið hjá Hrað- frystistöð Þórshafnar síðustu miss- erin. Það hljóta að vera hagsmunir fyrirtækisins og byggðarlagsins að aflaheimildir þess séu nýttar af fyrirtækinu og eins og er það stefnan,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson. Rætt um að taka þátt í rekstri frystitogara Aðspurður segir Finnbogi Jóns- son, stjórnarformaður Hraðfrysti- stöðvar Þórshafnar, að brotthvarf Jóhanns þýði í sjálfu sér ekki að fyrirhugaðar séu breytingar á rekstri félagsins. Hins vegar sé alltaf í skoðun hvernig megi bæta reksturinn og ekki sé ólíklegt að nýjum mönnum fylgi breyttar áherslur. „Brýnasta verkefnið nú er að ná tökum á rekstri kúfisk- vinnslunnar sem hófst síðastliðið vor en þar höfum við átt við ýmsa byrjunarerfiðleika að etja. Rekstur fiskimjölsverksmiðjunnar hefur hins vegar gengið vel.“ Finnbogi segir að rætt hafi ver- ið um að taka þátt í rekstri frysti- togara og nýta bolfiskkvóta félags- ins á hann. Engar ákvarðanir liggi hins vegar fyrir í þeim efnum. „Ef af því verður gæfi slíkt samstarf möguleika á nýjum hátekjustörf- um sem skipti miklu fyrir atvinnu- ástandið á svæðinu.“ Finnbogi segir ekki ljóst hver taki við framkvæmdastjórastöð- unni af Jóhanni. Það verði skoðað á næstu dögum. Þórshafnarhreppur átti áður stóran hlut í Hraðfrystistöðinni en á nú eftir um 6% hlut. HÞ er lang- Jóhann A. Jónsson lætur af störfum framkvæmdastjóra HÞ Engar róttækar breytingar í vændum Jóhann A. Jónsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar um áratuga skeið, mun láta af störfum um næstu ára- mót. Ekki eru þó fyrirhugaðar róttækar breytingar á rekstri félagsins. Morgunblaðið/Líney Hraðfrystistöð Þórshafnar er langstærsti atvinnurekandinn á Þórshöfn á Langanesi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.