Morgunblaðið - 02.11.2001, Síða 46

Morgunblaðið - 02.11.2001, Síða 46
UMRÆÐAN 46 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Prófkjör Prófkjör sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi fer fram laugardaginn 3. nóvember og birtast hér greinar af því tilefni. Greinarnar eru ennfremur birtar á mbl.is. SKYGGNUMST inn á heimili nútíma- fjölskyldu á Seltjarn- arnesi. Við sjáum lík- lega fleiri en eitt sjónvarpstæki, þó- nokkur útvarpstæki, DVD-spilara, MP3- hljómtæki auk þess sem við rekumst að öllum líkindum á tölvu sem er tengd Netinu, jafnvel með hrað- virkri sítengingu. Foreldar, börn og unglingar skipta með sér (eða slást um) tölvunni og aukið framboð sjónvarps- og annars afþreyingarefnis þrýstir á um að fjölskyldan fái sér fleiri sjónvarpstæki, þar sem þarfir hvers og eins og áhugamál geta verið með afar ólíku sniði. Í mjög náinni framtíð má því reikna með að á heimilum verði sítengdar tölv- ur, jafnvel í hverju herbergi, og að hver fjölskyldumeðlimur hafi yfir eigin sjónvarps- og útvarpstæki að ráða. Þetta verða ekki þau heim- ilistæki sem við eigum að venjast í dag, heldur samvirkar fjarskipta- stöðvar. Heimilið verður í reynd lítið staðarnet þar sem nútímaupp- lýsingatækni gegnir lykilhlutverki, ekki aðeins hvað hefðbundna tölvu- og sjónvarpsnotkun snertir, heldur einnig fjarvinnslu, vöktun heimila, fjarstýringu heimilistækja með Netinu og svo mætti lengi telja. Ljóst er að þróunin er í þessa átt og sem Seltirningar, íbúðareig- endur og fjölskyldufólk munum við verða fyrir sterkum áhrifum hinn- ar nýju tækni með því að taka þátt í breyttu mynstri eins og aðrir. En spurningin er kannski sú hvort við erum dæmd til að bíða eftir að framtíðin komi til okkar eða hvort við getum haft áhrif á þessa þróun. Ég tel að við getum og eigum að hafa áhrif á hana. Við getum einn- ig haft skoðun á því hvort bæj- arfélagið okkar getur með ein- hverju móti haft áhrif á hversu fljótt fullkomið fjarskiptakerfi verður komið í öll hús á Seltjarn- arnesi. Það er alveg ljóst að sú mynd sem ég lýsti að ofan kallar á fullkomnari fjarskiptakerfi en nú eru almennt í gangi. Málið er brýnna en virðist við fyrstu sýn, þar sem það mun hafa áhrif á framtíðarverðmæti fasteigna. Ég geri þessi mál að umtalsefni nú í aðdraganda prófkjörs sjálf- stæðismanna og vil tengja það spurningunni um hvert er hlutverk bæj- arstjórna og kjörinna bæjarfulltrúa. Aug- ljóslega er meginverk- efnið það að ráðstafa skatttekjum íbúanna til þeirrar þjónustu sem veitt er, en ég tel að bæjarstjórnir eigi ekki síður að vera vakandi gagnvart málum sem almennt horfa til heilla fyrir íbúana og gera þeim tilveruna auðveldari. Fjarskipti til framtíð- ar falla að mínu mati undir þennan flokk. Nokkuð almenn samstaða er um þá staðhæfingu að ljósleiðarinn sé besta og varanlegasta fjarskipta- kerfið og á Nesinu er búið að leggja breiðband Landssímans í Mýrina, Eiðistorg og Austurströnd og ljóslínu Línu.Nets í spennu- stöðvar. Það er jafnframt vitað að ljósleiðaravæðing er dýr og lagna- fyrirtækin forgangsraða þannig að fyrst er farið í þéttbýl hverfi og síðast þar sem íbúar búa tiltölu- lega strjált eins og á Seltjarnar- nesi. Að óbreyttu tel ég því líklegt að það muni líða allmörg ár þar til ljósleiðaravæðingu Seltjarnarness verður lokið. En getur bæjarstjórnin haft ein- hver áhrif? Já, ég tel að með frum- kvæði bæjarstjórnar megi láta á það reyna hvort með alútboði á Seltjarnarnesi fyrir ljósleiðara- lagnir megi ekki flýta þróuninni um nokkur ár. Ljóst er að átak á Seltjarnarnesi verður ekki gert nema margir aðilar komi að því, auk íbúanna að sjálfsögðu. Mín skoðun er sú að bæjar- stjórnin eigi að taka kröftugt frumkvæði í málinu og leita til þeirra aðila sem hafa hagsmuni af og áhuga á verkefninu. Mín fram- tíðarsýn í þessum málaflokki er sú að við gerum Seltjarnarnes að fyrsta sveitarfélaginu á höfuðborg- arsvæðinu sem er að fullu tengt við fjarskiptakerfi framtíðarinnar. Slík áætlun hefði víðtæk áhrif og myndi setja okkur Seltirninga í fararbrodd í notkun á Netinu og annarri fjarskiptaþjónustu. Ljós- leiðaranet um Seltjarnarnes opnar þess utan möguleika á margs kon- ar nýjungum eins og að reka sjálf- stætt staðarnet sem gæti verið lokað öðrum en Seltirningum. Það myndi m.a. auðvelda samskipti bæjarbúa við bæjarstjórn, jafnvel gæti verið um beinar útsendingar að ræða úr sveitarfélaginu, þ. á m. af bæjarstjórnarfundum. Seltirningar geta með átaki orð- ið frumherjar í fjarskiptum og ég mun fyrir mitt leyti beita mér fyrir átaki á vegum bæjarins við að gera þetta að forgangsmáli og umfram allt að framfaramáli til heilla fyrir bæjarbúa. Það leiðir síðan af sjálfu sér að forysta Seltirninga í þessu máli myndi svo sannarlega ekki skaða verðmæti húseigna í bæj- arfélaginu eða draga úr áhuga fólks á að setjast hér að. Seltjarnarnes frumkvöðull í fjarskiptum morgundagsins Ásgerður Halldórsdóttir Höfundur er viðskiptafræðingur og gefur kost á sér í 1. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Fjarskipti Mín skoðun er sú, segir Ásgerður Halldórs- dóttir, að bæjarstjórnin eigi að taka kröftugt frumkvæði í málinu og leita til þeirra aðila sem hafa hagsmuni af og áhuga á verkefninu. NÁMS- og starfsráð- gjafar hafa starfað um árabil í grunn- og fram- haldsskólum landsins. Í framhaldsskólunum er skipulagið betra enda er starf þeirra bundið í lögum um framhalds- skóla. Að vísu er ekki kveðið fastar að orði en svo að um ráðgjöf sjái m.a. námsráðgjafar. (14.gr.) Engin fyrir- mæli eða viðmið eru um hversu margir náms- og starfsráðgjafar eigi að starfa við skólana, t.d. miðað við nemenda- tölu. Nánari starfslýsing er svo í reglugerð (Stjtíð. B, nr. 37/1998, 10.gr.). Mjög misjafnt er hvernig staðið er að þessari þjónustu í skól- unum og jafnvel dæmi um að einn menntaður náms- og starfsráðgjafi starfi við skóla með meira en 1.000 nemendur. Mjög margir starfa ein- göngu að hluta til að náms- og starfs- ráðgjöf en sinna að öðru leyti kennslu. Ekki hefur enn tekist að fá starfsheitið lögvernd- að. Í grunnskólanum eru lagastoðir engar og náms- og starfsráðgjaf- inn nefndur í nokkrum reglugerðum án þess að bein fyrirmæli sé um ráðningu hans (reglu- gerð um nemenda- verndarráð, aðalnám- skrá). Í grunnskólanum starfa margir náms- og starfsráðgjafar á höf- uðborgarsvæðinu en nokkuð margir í hálfri stöðu. Við lauslegan út- reikning er einn náms- og starfsráðgjafi á 1.100 nemendur í Reykjavík sem er það sveitarfélag sem hefur haft for- ystu í ráðningu þeirra. Í upphafi þessa skólaárs hefur reyndar Garða- bær tekið forystuna. Hvers vegna náms- og starfsráðgjafar? Það er von að menn spyrji til hvers eigi að ráða nýja stoðstétt til grunn- skólans, og hvort aðrir, t.d. kennarar, geti ekki sinnt þeirri þjónustu sem þarf að veita. Vissulega hefur starf umsjónarkennarans breyst og viður- kennt að meiri tími umsjónarkenn- arans fari í ráðgjafarþjónustu við nemendur og foreldra. En það eru takmörk fyrir því hvað umsjónar- kennarar komast yfir og hversu fljótt þeir geta gripið inn í atburðarás, t.d. vegna eineltis eða þ.h. Þá er nem- enda-foreldraþjónustan orðin svo umfangsmikil og hennar óskað á þeim tímum sem umsjónarkennarinn á erfitt með að mæta. Náms- og starfsráðgjafar hafa svo í sinni fagmenntun ýmsa þekkingu sem beita þarf. Þannig þarf ekki í mörgum tilfellum að leita ráða utan veggja skólans. Það er líka tíma- og kostnaðarfrekt. Þótt ekki verði farið hér í nánari lýsingu á starfi náms- og starfsráðgjafans má nefna að hann sinnir og skipuleggur einnig forvarn- arstarf innan skólans. Það þarf að gera átak Að mínu áliti þarf að gera átak vegna ráðgjafarþjónustu í skólum landsins.  Það þarf að tilgreina hámarks- fjölda nemenda á hvern ráðgjafa, en eðlilegt telst að náms- og starfs- ráðgjafi í fullu starfi sinni 300 til 400 nemendum.  Það þarf að semja og samþykkja sérstök lög um náms- og starfsráð- gjöf í grunn- og framhaldsskólum.  Það þarf að skilgreina starfssvið náms- og starfsráðgjafans og lög- vernda starfsheitið. Í dag eru yfir 30 í námi í náms- og starfsráðgjöf þannig að það er raun- hæft að stefna að þessu markmiði. Félag náms- og starfsráðgjafa fagn- ar um þessar mundir 20 ára afmæli sínu og því verðugt að veita því slíka afmælisgjöf. Það er um leið gjöf til nemenda og foreldra þeirra. Nauðsyn námsráðgjafar í grunnskólum Gísli Baldvinsson Ráðgjöf Gera þarf átak, segir Gísli Baldvinsson, vegna ráðgjafarþjón- ustu í skólum landsins. Höfundur er náms- og starfs- ráðgjafi á Akureyri. Félagsmálaráðherra Páll Pétursson var ný- lega inntur álits á þeim ummælum forsvars- manna Landssamtak- anna Þroskahjálpar að í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2002 væri ekki að finna vísbend- ingu um að standa ætti við gefin fyrirheit um þjónustu við fólk með fötlun. Svör ráðherra komu ekki á óvart, þau voru í þeim hefðbundna stíl sem ráðherra hefur tileinkað sér. Ráð- herrann fullyrti að um- talsverðar umbætur væri að finna í fyrirliggjandi frum- varpi og lauk síðan máli sínu á því að býsnast yfir því hvað húsnæði ætlað þessum skjólstæðingum sínum væri herfilega dýrt. Allt þetta eru venju- bundin viðbrögð Páls Péturssonar við gagnrýni. En um hvað snýst þessi gagnrýni? Hún snýst um þann vanda sem fólk með fötlun og aðstandendur þeirra eiga við að glíma vegna þjónustuleys- is þrátt fyrir ákvæði laga um ótví- ræðan rétt þeirra til þjónustu. Þyngst vega þar biðlistar eftir búsetuþjón- ustu, skammtímavistun og dagþjón- ustu. Um þessa biðlista hefur verið fjallað af þremur starfshópum sem ráðherra hefur skipað. Allir þessir starfshópar hafa skilað áliti og reynt að áætla hvað það kostaði að eyða þessum biðlistum. Einnig hafa þeir gert áætlanir um hvernig eðlilegast sé að dreifa þeim fjárveitingum sem til þurfi á hæfilega langt tímabil svo uppbyggingin verði stöðug. Þar hefur verið tekin með í reikninginn vænt- anleg nýliðum á biðlistunum. Fé- lagsmálaráðherra hefur í framhaldi af því haft uppi góð orð um að hann væri tilbúinn að beita sér fyrir fram- gangi þessara áætlana. Þegar til stóð að flytja þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga um næstu áramót var skipuð sérstök kostnaðarnefnd. Þar áttu sæti full- trúar félagsmálaráðuneytis, fjár- málaráðuneytis og félags íslenskra sveitarfélaga. Nefndin studdist við nýjustu talningu til að meta kostnað vegna biðlistanna. Niðurstaða nefnd- arinnar var sú að heildarkostnaður vegna biðlistanna væri 800 milljónir króna, þar af 520 milljónir vegna rekstrar. Þar er lagt til að sá kostn- aður verði greiddur á næstu 3 árum. Í vor var síðan hætt við yfirflutninginn í bili. Landssamtökin Þroskahjálp litu því svo á að vænta mætti u.þ.b. 170 milljóna króna til verkefnisins vegna rekstrar. Þær hlytu að vera áfram til- tækar, enda vandséð hvað um þær ætti verða við það eitt að ríkið héldi áfram um stjórnvölinn í félagsþjón- ustu við fatlaða. Okkur brá því í brún er við sáum að í fjárlögum ársins 2002 er aðeins að finna 23 miljónir kr. til að stytta bið- listana. Þeir peningar eru enganveg- inn nægir til að reka þau sambýli sem Hússjóður Öryrkjabandalags Íslands hefur byggt og tilbúin verða í mars og maí 2002. Að óbreyttu frumvarpi virðist því einsýnt að hús þessi koma til með að standa auð í 4 og 6 mánuði vegna skorts á rekstrarfjárveitingum og allar líkur eru á að fleiri verði á biðlistum við áramótin 2002–2003 en eru þar nú. Er nema von að biðlund manna sé þrotin? Landssamtökin Þroskahjálp hafa alltaf fallist á þær tillögur sem frá hinum stjórnskipuðu nefndum hafa komið og talið að eðli- legt væri að gefa stjórnvöldum gott svigrúm til að koma þessum málum í lag. Það svigrúm var veitt í því trausti að áætlunum yrði fylgt markvisst eft- ir. Það traust er ekki lengur til staðar. Friðurinn hefur verið rofinn. Hæstvirtur félagsmálaráðherra hefur nú um nokkura ára skeið haft það fyrir sið að tjá sig aldrei um bú- setumál fólks með fötlun án þess að koma því að hversu dýrt hið sérhann- aða húsnæði er, sem byggja þarf fyrir tiltekinn hóp mikið fatlaðra einstak- linga. Ráðherra fer nú sjaldnast alveg rétt með þær tölur en hér skal það látið liggja á milli hluta. En hvað gengur ráðherra eiginlega til með þessum stöðugu yfirlýsingum sínum? Er kannski ætlunin að fjölskyldur þessara mest fötluðu einstaklinga átti sig á hvaða byrði börn þeirra séu á samfélaginu? Er verið að gefa í skyn að bruðlað sé við gerð þessara húsa? Eða hvað? Gert er ráð fyrir að byggja þurfi 5–6 slík sértæk hús fyrir u.þ.b. 30 manns. Kostnaður við hús þessi mun kosta umtalsvert minna en hinn nýi skáli sem reisa á við Alþingishúsið. Landssamtökin Þroskahjálp hafa á 25 ára sögu sinni ávallt reynt að ástunda þau vinnubrögð að vinna með stjórnvöldum á hverjum tíma að úr- lausn mála og viljað geta treyst á réttsýni þeirra og orðheldni. Eftir þeirri bjartsýnu nálgun hefur verið tekið. Til dæmis sá Framsókn- arflokkurinn ástæðu til að veita Landssamtökunum Þroskahjálp bjartsýnisverðlaun sín á síðasta Landsfundi sínum. Því miður bendir fjárlagafrumvarp ársins 2002 til þess gildi bjartsýni okkar hafi verið ofmet- ið. Biðlundin á þrotum Halldór Gunnarsson Þroskahjálp Í fjárlögum ársins 2002, segja Halldór Gunn- arsson og Friðrik Sig- urðsson, er aðeins að finna 23 miljónir kr. til að stytta biðlistana. Halldór er formaður og Friðrik framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Friðrik Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.