Morgunblaðið - 02.11.2001, Side 53

Morgunblaðið - 02.11.2001, Side 53
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2001 53 Guðmundur kvæntist 1948 Sigrid Kristinsson bókasafnsfræðingi. Þau eignuðust fjögur börn, þar af lifa þrjú föður sinn. Sigrid andaðist eftir nokkurra ára vanheilsu sumarið 2000. Hún var mikilhæf kona sem stóð þétt að baki Guðmundar í öllu lífi hans. Það var á vordögum 1974 að leiðir okkar Guðmundar lágu saman. Ég sem nýútskrifaður tæknifræðingur, starfsmaður Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Hann sem hönnuður aðveitustöðvar Korpu við Vestur- landsveg. Þetta var upphaf rúmlega tíu ára náins samstarfs við marg- háttaðar byggingarframkvæmdir á vegum Rafmagnsveitunnar. Sam- starf sem leiddi til einlægrar tryggr- ar vináttu allt til lokadags. Því fór fjarri að við værum alltaf sammála og stundum gneistaði á milli. En sá þráður sem spunninn var slitnaði aldrei þótt á hann reyndi. Um nokkurra ára bil, eða þar til að hann hætti að þola vosbúð, slóst hann í hóp góðra veiðifélaga í árlegar veiðiferðir á Arnarvatns- heiði, en hann hafði á yngri árum verið lagtækur laxveiðimaður. Þar stundaði hann silungsveiðina af sömu nákvæmni og elju og hann hafði tamið sér við önnur störf. Þar kom í ljós djúp virðing fyrir nátt- úrunni og ógleymanlegar eru ljós- myndir sem hann tók við þau tæki- færi. Frá þeim stað er nú gott að eiga minningu þegar hann nú er genginn til móts við nýjar víddir. Að leiðarlokum er hér kvaddur með þakklæti og virðingu dreng- skaparmaður. Um leið eru börnum hans, tengdabörnum og afkomend- um færðar innilegustu samúðar- kveðjur, frá mér og konu minni. Blessuð sé minning Guðmundar Kr. Kristinssonar. Magnús Sædal. Hemingway hefur bók sína Hverj- um klukkan glymur á tilvitnun í kvæði frá síðari hluta miðalda þar sem segir meðal annars: ,,Enginn maður er eyland, dauði sérhvers manns smækkar mig því ég er íslunginn mannkyninu; spyr þú því aldrei hverjum klukkan glymur, því hún glymur þér.“ Sé þetta rétt hversu mikið smækkar þá dauði vin- ar mig, vinar, sem hefur verið traustur vinur í tæpa hálfa öld? Þegar ég kveð Mumma vin minn streyma ótal góðar minningar fram, fluguklúbburinn á heimilum klúbb- félaganna á hverjum mánuði í mörg ár og veiðitúrarnir í framhaldinu þegar framleiðsla vetrarins var reynd, svo og ótal aðrar samveru- stundir, bæði á vinnustað og á heim- ilum okkar, þegar margt var spjallað og krufið. Guðmundur var vandvirkasti maður sem ég hef kynnst, hand- bragðið á öllum teikningum hans var óviðjafnanlegt, enda var hann virtur af öllum byggingamönnum, kolleg- um og öðrum samstarfsmönnum. Vandvirknina og heiðarleikann hlaut hann í arf úr foreldrahúsum, sonur heiðurshjóna, sem ekki máttu vamm sitt vita í neinu og heiðarleiki og eft- irbreytnivert líferni voru höfð í fyr- irrúmi Kjörorð Mies Van der Rohe ,,minna er meira“ var leiðarljós Guð- mundar í öllu því sem hann skapaði, því þar réði einfaldleikinn og tært form ríkjum. Hann var smekkmað- ur, fagurkeri, svo sem verkin sýna, Búrfellsvirkjun, Esso-húsið, Raf- veituhúsið, SPRON, Háskólabíó, gamla heimilið okkar Steffíar í Mávanesi 7 o.s.frv. Honum sárnaði, ef illa var að verki staðið, hataði allt lélegt hand- verk og stóð fast á sínu og sínum smekk. Ég kallaði hann stundum ráðherrann, þegar mér fannst hann öllu vilja ráða í sambandi við bygg- ingar. Þegar lífsförunauturinn Sigrid lést fyrir skömmu eftir erfið veikindi held ég að hann hafi ekki langað til að lifa lengur, enda var þá stutt eftir. Við Steffí sendum börnunum, tengdabörnunum, barnabörnunum og þér Helga einlægar samúðar- kveðjur og biðjum Guð að styrkja ykkur á þessari kveðjustund. Hafðu þökk fyrir samfylgdina góði vinur. Davíð. ✝ Helena Geirs-dóttir Zoëga fæddist í Reykjavík 12. júní 1920. Hún varð bráðkvödd að heimili sínu í Hæðar- garði 20 í Reykjavík 22. október síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Guðfinna Helga Guðmunds- dóttir, f. í Botni í Súgandafirði 25. júní 1892, d. 9. febrúar 1971, og Geir H. Zoëga, f. í Reykjavík 1. nóvember 1896, d. 25. mars 1978. Hálfsystir, sam- feðra, er Ester, f. 10. febrúar 1925. Helena, f. 18. ágúst 1964, og Hild- ur, f. 8. september 1966. 3) Erna Ólöf, f. 12. maí 1950, gift Michael K. Rothe, f. 6. mars 1947. Dætur þeirra eru Stella Michelle, f. 3. jan- úar 1969, og Cristie Lynn, f. 6. október 1974. Barnabarnabörnin eru orðin átta. Helena giftist 10. desember 1961 eftirlifandi eigin- manni sínum, Ernst Pálssyni, f. 12. janúar 1933 í Þýskalandi. Helena ólst upp frá sex ára aldri á Hofsstöðum í Hálsasveit og stundaði nám við Héraðsskólann í Reykholti. Árin 1938 til 1940 dvaldi hún við nám og störf í Kaupmanna- höfn. Hóf þar nám í tannsmíði en hélt til Íslands eftir hernám Þjóð- verja með Esju frá Petsamo í Finn- landi í október 1940. Frá um 1955 stundaði Helena verslunarstörf í Reykjavík. Útför Helenu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Helena giftist 1. júlí 1943 Ólafi Guttorms- syni húsateiknara, f. 9. desember 1919, d. 23. mars 1983. Þau skildu. Dætur þeirra eru: 1) Anna Guðlaug, f. 2. október 1943, gift Kristni R. Guðmunds- syni, f. 14. nóvember 1935. Dætur hennar eru Helena Björk, f. 1. febrúar 1965, Anna Valdís, f. 2. ágúst 1966, og Arna Guðlaug, f. 19. febrúar 1973. 2) Helga Guðrún, f. 9. nóvember 1945, gift Halldóri Páls- syni, f. 27. júlí 1943. Þeirra dætur: Að áliðnum haustdegi lést þessi mæta og góða kona. Hún varð bráð- kvödd á heimili sínu í Reykjavík, þar sem hún var fædd og hafði alið nær allan sinn aldur. Virkileg Reykjavíkurmær. Það var líka kom- ið haust í lífi hennar því árin voru orðin mörg. En sjálf var hún samt enn þá eins og sumarið, geislandi af gleði og lífsorku, svo manni fannst sem hjá henni stæði tíminn kyrr og aldurinn einnig, e.t.v. væri enginn aldur og kannski fengjum við að njóta samvistar við hana enn um langa hríð. En einmitt þess vegna var lát hennar svo óvænt og erfitt að sætta sig við í fyrstu. Auðvitað var líkaminn farinn að gefa sig nokkuð, sérstaklega eftir mikil veik- indi í byrjun sumars þótt aldrei kvartaði hún eða léti uppi að sér liði ekki vel, heldur lét jafnan eins og ekkert væri því ekki vildi hún að við hefðum af henni áhyggjur eða fyr- irhöfn. Slík var hennar lund. Hún var af þekktu merkisfólki komin og bar það með sér, var höfð- ingleg í fasi og framgöngu, háttvís svo af bar og ljúf í skapi. Virt og dáð ættmóðir var hún, fyrirmynd hinna yngri, gleðigjafi sem sárt er saknað. Faðir hennar var Geir H. Zoëga, þekktur maður hér á landi. Hann rak kolaverslun í Reykjavík og hafði umboð fyrir enskar togaraútgerðir. Hann stofnaði og rak Ferðaskrif- stofu Zoëga, en hún var mjög um- svifamikil í ferðaþjónustu hér á sín- um tíma, eins og eldri menn muna. Rakti hann ættir sínar til Jóhann- esar Zoëga, sem var sjálfur danskur maður og tugthúsmeistari í Reykja- vík á fyrstu árum þess en af- komendur hans voru allir þekktir athafnamenn, kaupmenn, útgerðar- menn og embættismenn. Frammá- menn í þjóðfélaginu á þessum tíma tengdust gjarnan fjölskylduböndum sín á milli. Því er það, þegar flett er upp í bókinni um Zoëgaættina, að þar ber mörg ættarnöfnin á góma. En Helena stærði sig ekki af þess- um ættartengslum. Hún ólst upp hjá móður sinni, sem var barnsmóð- ir Geirs H. Zoëga, og hét Guðfinna Helga Guðmundsdóttir, ættuð frá Súgandafirði. Örlögin höguðu því svo að þau giftust ekki en Geir hélt jafnan góðu sambandi við barns- móður sína og dóttur. Sömuleiðis var Helena, eða Stella eins og hún var af mörgum kölluð, alla tíð í mjög góðum tengslum við föðurfjölskyldu sína. Þær mæðgur áttu fyrstu árin m.a. heima að Hofsstöðum í Borg- arfirði þar sem móðir Helenu vann fyrir þeim sem ráðskona og Helena lauk prófi frá Héraðsskólanum í Reykholti. Þá fluttu þær til Reykja- víkur. Nokkru síðar, eða um það bil sem Helena varð gjafvaxta, fannst föður hennar tími til kominn að hún aflaði sér frekari menntunar og var þá horft til útlanda. Og það varð úr að hún fór til Kaupmannahafnar þar sem hún dvaldi í nær tvö ár á heim- ili föðursystur sinnar, Ástu Zoëga Ólafsson, sem þar rak gistiheimili. Jafnframt hóf hún nám í tannsmíði. Minntist hún þessa tíma ávallt með mikilli hlýju og notfærði sér vel þá forfrömun sem hún hlaut þar. Til eru myndir af Helenu þar sem hún spókar sig á götum Kaupmanna- hafnar, sem þá var enn höfuðborg okkar, ung, hnarreist og glæsileg að vanda. Og ekki er að vita hvað orðið hefði ef seinni heimsstyrjöldin hefði ekki skollið á um þessar mundir. Helena ákvað að fara heim og tók sér far með Esjunni frá Petsamo í Finnlandi ásamt 257 öðrum Íslend- ingum er þangað komu frá Norð- urlöndunum öllum í október 1940. Esjan kom síðan til Reykjavíkur og lagðist að hafnarbakkanum hinn 15. október og var vel fagnað. Þetta voru Petsamo-fararnir margfrægu. Trúlegt er að töluvert hafi nú fækk- að í röðum þeirra. Auðvitað gat ekki hjá því farið að svo falleg og gjörvuleg ung stúlka sem Helena var vekti athygli ungu mannanna í borginni eftir að heim var komið. Leið enda ekki á löngu áður en hún kynntist manninum sem átti eftir að verða fyrri eig- inmaður hennar. Það var Ólafur Guttormsson húsateiknari, sonur Guttorms Andréssonar, sem var mikilsmetinn arkitekt og hefur skil- ið eftir sig mörg mjög falleg hús í eldri hluta borgarinnar, en lést fyrir aldur fram. Þau Helena áttu saman mörg góð ár og áttu saman þrjár ljóshærðar dætur en leiðir skildi þó að lokum. Auðvitað hefur það verið erfiður tími. En öll él birtir upp um síðir og Helena kynntist eftirlifandi eiginmanni sínum, Ernst Ziebert Pálssyni, hermannlegum manni, fríðum sýnum og vöskum í fram- göngu. Glaðsinna og vinmörgum. Ernst fæddist og ólst upp í Þýska- landi stríðstímans og bar sjálfur menjar stríðsins eftir að hafa slasast af sprengjubrotum. Hann kom til Íslands fullþroska ungur maður ásamt tveimur systrum sínum og settist hér að. Í desembermánuði nk. hefðu þau Helena haldið upp á 40 ára brúðkaupsafmæli sitt, ef Guð hefði lofað. Nú fóru í hönd athafnasöm ár. Ferðir um landið, sérstaklega Suð- urlandið þar sem þau áttu marga vini, og til útlanda. Vinmörg voru þau og gestrisin með afbrigðum enda var oft gestkvæmt á heimili þeirra. Dæturnar uxu úr grasi og giftust. Barnabörn og barnabarna- börn hafa smám saman bæst í hóp- inn og öll hafa þau mætt einstakri hlýju og atlæti Helenu og Ernst. Yngsta dóttirin giftist til Bandaríkj- anna og er hún nú hingað komin að kveðja móður sína ásamt dóttur sinni. Nokkrar ferðir fóru Helena og Ernst þangað að heimsækja af- komendur sína, síðast í fyrrasumar. Og þetta var gagnkvæmt. Helena vann á ýmsum stöðum hér í borg meðan hún mátti, fyrst og fremst við verslunarstörf, og gat sér þar gott orð. Munu ýmsir eldri Reykvík- ingar minnast hennar frá þeim tíma. Um tíma ráku þau hjón saman bóka- og gjafavöruverslun. Snemma byggðu þau sér sumarbústað við Meðalfellsvatn í Kjós, í næsta ná- grenni við aðra dóttur sína og tengdason, og undu þar öllum stundum, ekki síst eftir að þau hættu að vinna úti. Það færði þeim alla tíð mikla og einlæga gleði að sinna bústaðnum og náttúrunni um- hverfis hann og þá ekki síst að róa til fiskjar í vatninu en Helena þótti afar fiskin. Hún hafði einnig sér- stakt dálæti á fuglunum mörgu sem þarna syngja daginn langan. Allt sumarið vildu þau helst vera við vatnið. Og einnig þar var gest- kvæmt. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast þeim hjónum og gerast tengda- sonur þeirra fyrir nokkrum árum. Ég hafði að vísu áður komið inn í líf þeirra sem læknir. Mér er það minnisstætt hve vel þau tóku mér þá sem og alltaf síðan. Alltaf var maður velkominn og alltaf var jafn gaman að koma í Hæðargarðinn þar sem þau bjuggu alla sína tíð og höfðu búið sér sérstaklega hlýlegt og aðlaðandi heimili. Það var upp- hefð að fá að kynnast þeim og njóta gestrisni þeirra og hlýju. En nú er þessi góða kona látin. Kvöldið áður hafði hún setið og glaðst í hópi nær allra afkomenda sinna og einnig talað við dóttur sína vestra, hress og glöð. Næsta dag var hún öll. Þannig var hennar kveðjustund. Hjá þeim sem eftir lifa er söknuðurinn mikill og tóm í sálu manns en þá er gott að eiga góðar minningar um góða konu. Kristinn R. Guðmundsson. Elskuleg amma okkar lést að kvöldi mánudagsins 22. október sl. Þegar við systurnar sitjum hér sam- an hellast yfir okkur hlýlegar minn- ingar um þessa yndislegu konu. Hvern hefði grunað að sunnudag- urinn, þegar öll fjölskyldan kom saman, væri síðasti dagurinn henn- ar hér með okkur? Hún sem bar sig alltaf svo vel og kvartaði aldrei. Þess vegna kom andlát hennar eins og reiðarslag yfir okkur öll. Amma okkar var falleg kona, glæsi- leg og tignarleg, og vakti aðdáun og virðingu þeirra sem til hennar þekktu. Hæverska og lítillæti var henni í blóð borin sem og alúð og gestrisni og mátti það merkja á hlý- legu og fallegu heimili sem þau afi bjuggu sér í Hæðargarðinum. Alltaf var notalegt að koma til þeirra, mót- tökurnar hlýlegar og allt það besta sem til var í húsinu borið á borð fyr- ir gesti og gangandi. Þeir voru líka ófáir sumardagarn- ir sem við systur eyddum í góðu yf- irlæti í sumarbústaðnum þeirra afa og ömmu við Meðalfellsvatn. Bú- staðurinn var þeirra annað heimili, þeirra líf og yndi og bar öll merki þeirrar ástúðar og umhyggju sem einkenndi ömmu alla tíð. Myndirnar sem koma upp í huga okkar eru af ömmu úti í garði að hlúa að blóm- unum sínum á meðan afi dyttaði að bústaðnum. Garðurinn í kring, stór og gróinn, fullur af fallegum blóm- um og trjám og fyrir börnin var þetta eins og að koma í ævintýra- land. Gestkvæmt var í bústaðnum og aldrei að tómum kofanum komið hjá ömmu og afa. Hjá þeim svign- uðu borðin ávallt undan kræsingum sem voru töfraðar fram á mettíma. Amma hafði einstakt lag á því að hæna að sér smáfuglana í sveitinni og þökkuðu þeir gjarnan fyrir brauðmolana með því að sitja á ver- öndinni og syngja. Minnistæðar eru líka brennurnar á Eyrinni og veiði- ferðirnar á „Stellunni“ en úr þeim ferðum kom amma oftast með stærsta fenginn. Á bernskuárum okkar systra, þegar við bjuggum í Hveragerði, var það alltaf tilhlökkunarefni að heimsækja ömmu í skóbúðina á Laugaveginum þar sem hún vann í mörg ár. Mikið líf og fjör var á Laugaveginum á þessum tíma og sátum við oft við gluggann og horfð- um á iðandi mannlífið líða framhjá. Jólaboðin hjá afa og ömmu voru líka þau skemmtilegustu, öll fjölskyldan kom saman í Hæðargarðinum, jafnt stórir sem smáir fjölskyldumeðlimir í fjóra ættliði og áttu saman not- arlega kvöldstund. Við viljum þakka ömmu okkar fyrir þann tíma sem við áttum saman og fyrir þá gleði sem samverustundirnar með henni veittu okkur. Guð geymi þig, elsku amma okkar. Elsku afi, mamma, Gulla, Lóló og aðrir aðstandendur. Við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur. Helena Björk, Anna Valdís og Arna Guðlaug. Í dag verður til moldar borin vin- kona okkar Helena Zoëga. Lát hennar bar brátt að þótt við vissum að síðustu árin hefði hún ekki geng- ið heil til skógar. En hún bar sig ætíð vel og leit alltaf svo vel út að maður áttaði sig ekki á að hún var veilli en maður hélt. Við kynntumst fyrir um fjórum áratugum og bar aldrei skugga á vinskap okkar enda var Stella, eins og hún var oftast kölluð, mörgum mannkostum búin. Við minnumst sérstaklega ánægjulegra samveru- stunda í sumarbústöðum okkar við Meðalfellsvatn. Þar undu Stella og Ernst, seinni maður Stellu, sér ein- staklega vel og voru þau þar oftast langdvölum á sumrin. Þar stundaði Stella af miklum dugnaði allskonar garðrækt og var t.d. nýbúin að sjóða niður sultu og saft þegar hún lést. Stella og Ernst voru sérlega gest- risin og nutu þess að taka vel á móti gestum. Stella eignaðist þrjár dætur í fyrra hjónabandi, barnabörn og barnabarnabörn sem hún dáði öll mikið. Við munum sakna Stellu mjög um ókomna tíð en gleðjumst jafnframt að hafa átt óvenju margar og gleði- legar samverustundir með henni og Ernst á síðastliðnu sumri. Við biðjum Stellu allrar blessunar og vottum Ernst, Önnu, Gullu, Ernu, eiginmönnum þeirra svo og barna- og barnabarnabörnum okkar dýpstu samúð. Ragnheiður og Walter. HELENA G. ZOËGA  Fleiri minningargreinar um Hel- enu G. Zoëga bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Davíð Osvaldsson útfararstjóri Sími 551 3485 • Fax 568 1129 Áratuga reynsla í umsjón útfara Önnumst alla þætti Vaktsími allan sólarhringinn 896 8284

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.